DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

In Treble

Settið samanstendur af: Heklaðri basker / alpahúfu og hálsskjóli úr 1 þræði DROPS Big Delight eða 2 þráðum DROPS Fabel með stuðlahópum.

DROPS 172-7
DROPS Design: Mynstur nr db-069
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

BASKER / ALPAHÚFA:
Stærð: S/M – M/L.
Höfuðmál: 54/56 – 56/58 cm.

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
100-100 g litur nr 11, skógarberja múffa

eða notið:
DROPS Fabel frá Garnstudio
100-100 g litur nr 655, rósarunni

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – M/L
Mál:
Ummál: 60-63 cm.
Hæð: 34-36 cm.

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
200-200 g litur nr 11, skógaberja múffa

eða notið:
DROPS Fabel frá Garnstudio
200-200 g litur nr 655, rósarunni

DROPS HEKLUNÁL NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 11 st og 6 umf verði 10 x 10 cm og 1 st-hópur + 1 ll verði 3,5 cm á breiddina og 6 umf á hæðina verði 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umf með fl byrjar með 1 ll og endar með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
Hver umf með st byrjar með 3 ll og endar með 1 kl í þriðju ll í byrjun umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA-1:
Fækkið um 1 fl þannig: Heklið 1 fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl, en þegar þráðurinn er dreginn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl.

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka l í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 81 fl) og deilið þessum l með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 27 l) = 3. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá hekluð önnur hver og þriðja hver fl saman.

LITASKIPTI (á við um húfu):
Til að fá enn meiri litadýrð með Big Delight þá er hægt að hekla aðra hverja umf með þráðinn innan úr dokkunni og utan með dokkunni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA / BASKER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

ALPAHÚFA / BASKER:
Byrjið með 1 þræði Big Delight eða 2 þráðum Fabel og heklunál nr 7.
Heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1a, heklið síðan A.1b 4 sinnum í umf, endið með A.1c.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt mynstrið hefur verið heklað til loka á hæðina mælist stykkið ca 13 cm ofan frá og niður.
Haldið síðan áfram að endurtaka 2 síðustu umf í mynstri þar til stykkið mælist 20 cm – stillið af að enda sé eftir síðustu umf í mynstri.
Heklið síðan kant með fl þannig – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR OG LITASKIPTI: Heklið 1 fl í hvern st og 1 fl um hverja ll = 81 l (meðtalin 1 ll í byrjun umf). Í næstu umf er fækkað um 27-25 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1 og ÚRTAKA-2 = 54-56 fl. Haldið síðan áfram hringinn með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist alls 24-25 cm. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 85-90 ll með heklunál nr 7 með 1 þræði Big Delight eða 2 þráðum Fabel og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið 1 st í hverja og eina af næstu 2 ll, * heklið 1 ll, hoppið yfir 2 ll, heklið 1 st í hverja og eina af næstu 3 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn þar til 2 ll eru eftir, heklið 1 ll og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 68-72 l.
Heklið nú mynstur með byrjun frá umf með ör í mynstri þannig:
Heklið A.2a, A.2b 16-17 sinnum í umf, A.2c. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Endurtakið umf 2 og 3 í mynstri A.2a til A.2c þar til stykkið mælist 34-36 cm – passið uppá að enda eins og umferð sem er eins og umferð 3 í mynstri. Heklið nú kant þannig: Heklið 5 ll, 1 fl um næstu ll, * 3 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í 1 ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.
Heklið 1 kant meðfram ll-umf sem var hekluð í byrjun stykkis þannig: Heklið 1 fl um einn ll-boga með 2 ll, 4 ll * heklið 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 5 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju. Svartur punktur er byrjun á umferð.
symbols = 1 stuðull um loftlykkju / loftlykkjuhring
symbols = 1 stuðull í loftlykkju
symbols = 3 loftlykkjur í byrjun umferð. Umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð
symbols = 1 loftlykkja
symbols = byrjið hér
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Stephanie wrote:

I am baffled with the In Treble Hat pattern. Do you have written instructions please?

11.11.2023 - 08:17

DROPS Design answered:

Dear Stephanie, this is the only format of the pattern available, with a combination of charts and written instructions. To better understand our charts you can check the following lesson: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19. You can also ask if you have problems in a specific section of the pattern. Happy crocheting!

12.11.2023 - 22:51

country flag Elena wrote:

Cosa significa lavorare una maglia “intorno” alla catenella, anziché nella catenella?

14.12.2022 - 15:52

DROPS Design answered:

Buonasera Elena, provi a vedere se questo video può esserle di aiuto. Buon lavoro!

28.12.2022 - 19:35

country flag Catherine Ness wrote:

I'm not referring to the main pattern which I have finished, only the last part of the pattern, just the edging. "Now work an edge as follows:.." My question is, why are the bottom edge and the top edge different? - one has 3ch between each dc, the other has 4ch! This results in one edge being tighter than the other.

03.10.2020 - 20:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ness, this is correct, the top edge will be tighter than the bottom edge. Happy crocheting!

05.10.2020 - 10:01

country flag Catherine Ness wrote:

When edging the neck warmer, the bottom edge has 3 chain between each dc but the top has 4 chain. Is this correct, as it means that the top will be looser than the bottom. Shouldn't both edges be the same?

28.09.2020 - 23:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ness, at the beg of the round you start with 3 chains to replace the first dc, then work 2 dc (= 1 dc-group with 3 dc), you work then 3 dc for each dc-group and 1 chain between each dc group, you should end with 1 chain after last dc-group and 1 sl st in the 3rd chain from beg of round wich replace 1st dc. Happy crocheting!

29.09.2020 - 08:03

country flag Kiara wrote:

Anch'io ho problemi nel leggere i diagrammi, ritengo che un video sarebbe molto utile per imparare ad orientarsi. Ho letto la risposta per Mary, ma vorrei sapere: quando non è indicato nulla, negli spazi bianchi, si salta direttamente avanti? Le tre catenelle indicate quasi all'inizio del lavoro in A.1 b e A.1 c, quando si lavorano? Appartengono a un giro? Grazie, attendo risposta prima di effettuare l'acquisto della lana.

28.01.2019 - 17:15

DROPS Design answered:

Buongiorno Kiara. Se capiamo correttamente la domanda, lo spazio bianco in realtà coincide con una catenella (il trattino orizzontale che trova sopra lo spazio bianco). Intorno a quella catenella lavora le maglie alte al giro successivo e si forma il buco che vede in fotografia. Le 3 cat di A1b e A1c si lavorano al primo giro dei diagrammi. Buon lavoro!

28.01.2019 - 20:45

country flag Mary wrote:

Buonasera,putroppo non riesco a leggere il diagramma per il berretto!Non riesco proprio ad iniziare il lavoro,potrei avere delle delucidazioni in merito?Anche un video esplicativo su come lavorare i diagrammi A1a,b,c sarebbe utile!Grazie

21.10.2017 - 16:38

DROPS Design answered:

Buongiorno Mary. Deve avviare 5 cat e chiuderle in cerchio. Poi lavora 3 cat, 2 maglie alte, (diagramma A.1a) poi ripete per 4 volte il diag A1b: 3 cat, 3 m.a; poi lavora il diag A1c: 3 cat e chiude il giro con 1 m.bss nella terza cat dall'inizio del giro.Prosegue iniziando i giri con 3 cat e lavorando 1 m.a quando trova il segno con il pallino nero e 1 cat quando trova il trattino orizzontale. Buon lavoro!

22.10.2017 - 09:34

country flag MARIA AMODEO FERNANDEZ wrote:

Hola, me encanta este conjunto,de momento querÍa hacer el cuello pero no entiendo el diagrama y he buscado en ayuda y no lo he encontrado, no se si está publicado o no. Por favor me podríais explicar cómo se hace lo del diagrama?, no comprendo lo de A.2a, A.2b y A2c, lo he leído varias veces pero no logro entender el patrón. Gracias por su contestación. Un saludo, MARIA.

10.01.2017 - 14:42

DROPS Design answered:

Hola Maria. Los diagramas A.2a, A.2b y A2c se trabajan como sigue: 3 p.de cad., 2 p.a. (= A.2a), 1 p.de cad, 3 p.a., 1 p.de cad., 3 p.a. (= dos repeticiones de A.2b que tienes que trabajar hasta el final de la vuelta = un total 16-17 repeticiones (depende de la talla)) y 1 p.de cad. (= A.2c). No te olvides de finalizar la vta según la INFORMACIÓN PARA REALIZAR EL TRABAJO.

14.01.2017 - 12:24

country flag Anpatito wrote:

Merci beaucoup pour votre réponse C'est ce que j'ai fait

22.12.2016 - 11:07

country flag Anpatito wrote:

Bonjour Je n'ai pas de problème avec les points mais j'ai recommencé le bonnet plusieurs fois et je ne suis toujours pas satisfaite Il est toujours trop grand même après les 27 diminutions Je ne crochète ni trop serré ni trop lâche, ce n'est donc pas une question grosseur de crochet C'est dommage car l'ensemble me plaît beaucoup Comment dois-je procéder? Merci ^pour votre réponse

20.12.2016 - 19:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Anpatito, si votre échantillon et votre tension sont justes (= 11 B = 10 cm de large), et que la bordure en ms est trop large, ajoutez des diminutions supplémentaires pour ajuster à votre taille. (la bordure doit être plus serrée que le tour de tête pour que le bonnet tienne bien en place). Bon crochet!

21.12.2016 - 09:28

country flag Maria Bækkelund wrote:

Jeg kan ikke printe diagrammerne ud.Der er blank på siderne.Hilsen Maria Bækkelund

21.09.2016 - 17:38