DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lilla Camilla

Prjónuð peysa úr DROPS Air með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-33
DROPS Design: Mynstur nr ai-035
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
250-300-300-350-350-400 g nr 03, perlugrár
50-50-50-50-50-50 g nr 15, fjólublá þoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerkin fjögur – ATH: Ekki er aukið út með sama lykkjufjölda á fram-/bakstykki og ermum.

Aukið út um 2 l hvoru megin við fram- og bakstykki í annarri hverri umf (= 8 l fleiri):
Aukið út á undan prjónamerki þannig:
Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig:
Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í næstu l. Í næstu l er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

Aukið út um 1 l hvoru megin við fram- og bakstykki eða á hvorri
ermi í annarri hverri umf (= 4 l fleiri að framan/aftan eða 4 l fleiri á ermi):
Aukið út á undan prjónamerki þannig:
Byrjið 1 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig:
Prjónamerki 1 l sl, sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

Aukið út um 1 l í hvorri hlið á fram- og bakstykki eða hvorri ermi í 4. hverri umf (= 4 l fleiri að framan/aftan eða 4 l fleiri á ermi):
Aukið út á undan prjónamerki þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið 1 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki.
UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt svo það myndist gat.
UMFERÐ 3: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki (= engin l útaukin).
UMFERÐ 4: Prjónið uppsláttinn slétt svo það myndist gat.

Aukið út á eftir prjónamerki þannig:
UMFERÐ 1: Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt svo það myndist gat.
UMFERÐ 3: Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman (= engin l útaukin).
UMFERÐ 4: Prjónið uppsláttinn slétt svo það myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um útaukning í hliðum á fram- og bakstykki):
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið l mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjóna/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 62-62-66-74-78-78 l á stutta hringprjóna nr 4,5 með litnum perlugrár og prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 10 l jafnt yfir = 72-72-76-84-88-88 l. Skiptið yfir í stutta hringprjóna nr 5 og prjónið þannig (byrjun umf = miðja að aftan): 13-13-14-14-15-15 l sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið eitt prjónamerki, 10-10-10-14-14-14 l sléttprjón (= ermi), setjið eitt prjónamerki, 26-26-28-28-30-30 l sléttprjón (= framstykki), setjið eitt prjónamerki, 10-10-10-14-14-14 l sléttprjón (= ermi), setjið eitt prjónamerki og sléttprjón yfir síðustu 13-13-14-14-15-15 l í umf (= hálft bakstykki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA OG LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Í næstu umf byrjar útaukning fyrir laskalínu – LESIÐ ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU!
Aukið út hvoru megin við 4 prjónamerki, en ekki er aukið eins út á fram-/bakstykki og ermum þannig:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út um 2 l í hvorri hlið á fram- og bakstykki í annarri hverri umf 0-2-1-3-6-8 sinnum, aukið út um 1 l í hvorri hlið á fram- og bakstykki í annarri hverri umf 20-21-24-24-22-22 sinnum og aukið út um 1 l í hvorri hlið á fram- og bakstykki í 4. hverri umf v 1-0-0-0-0-0 sinnum.

ERMI:
Aukið út um 1 l í hvorri hlið á hvorri ermi í annarri hverri umf 16-23-25-24-22-22 sinnum og aukið út um 1 l í hvorri hlið á hvorri ermi í 4. hverri umf 3-0-0-1-3-4 sinnum.
Eftir alla útaukningu eru 232-264-280-304-324-344 l í umf. Stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá öxl (19-21-22-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti). Nú er prjónað þannig: Prjónið fyrstu 34-38-40-44-49-53 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 68-76-80-88-98-106 l (= framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýrra lykkja) og prjónið síðan þær 34-38-40-44-49-53 l sem eftir eru (= hálft bakstykki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-164-176-192-216-236 l. Prjónið í sléttprjóni í hring með litnum perlugrár þar til stykkið mælist 3 cm. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Aukið með 3 cm millibili 9 sinnum = 184-200-212-228-252-272 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 28-28-29-30-30-30 cm. Setjið l á milli 2. og 1. prjónamerkis á þráð (= bakstykki), síðan er prjónað fram og til baka yfir þær 92-100-106-114-126-136 l (= framstykki) sem eftir eru. Skiptið yfir í litinn ljós þoka, síðan er prjónað sléttprjón með 5 l GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram í 7 cm, síðan er prjónað 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið af.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka 92-100-106-114-126-136 l af þræði á hringprjóna nr 5. Prjónið sléttprjón með 5 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er skipt yfir í litinn ljós þoka. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni í 7 cm, prjónið síðan 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið af.

ERMI:
Setjið til baka l af þræði á stutta hringprjóna/sokkaprjóna nr 5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-12 nýjar l undir ermi = 54-62-68-72-74-78 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýju l undir ermi – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn á hringprjóna/sokkaprjóna. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3½-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 10-13-15-16-17-18 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 34-36-38-40-40-42 l eftir í umf. Þegar ermin mælist 44-43-43-43-41-40 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið LAUST af. Ermin mælist ca 45-44-44-44-42-41 cm (ATH: Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lilla Camilla

Yolande, France

Lilla Camila

Andrea, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Karin wrote:

På sidan 2 finns övningstips för raglan. Gör man hela den beskrivningen i en följd?

27.09.2023 - 23:19

DROPS Design answered:

Hej Karin, ökningstipsen beskriver HUR du ökar till raglan. Följ mönstret från där det står OK och när du kommer til raglan, hoppar du upp och läser hur du ökar :)

05.10.2023 - 10:14

country flag Anna wrote:

Dzień dobry, czy nie ma pomyłki na początku opisu? Wydaje mi się, że 62 oczka to bardzo mało. Jeżeli 17 oczek daje 10 cm, to 62 oczka da ok. 36 cm, tj. mniej więcej obwód szyi. O ile dobrze widzę, to ten sweter jest wkładany przez głowę i ma dużo większy dekolt. Z góry dziękuję za odpowiedź.

06.05.2019 - 16:37

DROPS Design answered:

Witaj Anno! Na górze przerabiasz ściegiem francuskim, jest on bardziej rozciągliwy niż np. dżersej. Po pierwsze nabierz luźno i oczka, a po drugie przerabiaj dosyć luźno ściegiem francuskim przy dekolcie. Zawsze możesz też wykonać dekolt na nieco większych drutach. Powodzenia!

06.05.2019 - 18:01

country flag Diana Blakeley wrote:

The yardage amount for this pattern seem to way off. 400g of the main and 50 g of the contrast????? Also what are the finished measurements for this pattern? Thank you for the help.

01.05.2019 - 02:21

DROPS Design answered:

Dear Diana, there are no mistakes in the yarn amount. Air is 150 m for each skein, so the total amount required for the main colour is 1200 m and for the contrast colour is 150 m. Moreover, you can find the sketch with the finished measurements scrolling down the pattern page. Happy knitting!

01.05.2019 - 09:44

country flag Lana Miu wrote:

I just read some other Raglan sweater instructions, I see I DO NOT join the circle at 66 sts. I re-read your pattern, but not clear as to when I join the round and start knitting in the round, please help, thanks

25.02.2019 - 19:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Miu, jumper is worked in the round top down, so that yoke will be also worked in the round: cast on the sts for yoke and join to work 1 ridge in garter stitch in the round and continue in the round. For the bottom edge of the jumper, you will then work front and back piece separately back and forth for vents. Happy knitting!

26.02.2019 - 10:43

country flag Lana Miu wrote:

Thank you for writing back and try to explain. I am sorry I am still needing more explanation. According to the instructions, I would cast on 66 stitches in the round, I am not able to locate the 12CM mentioned in your reply. I can see the 3-4CM at the top of the diagram, that would mean 17cm + 17cm + 4cm + 4cm total 52cm which is still small to get through the head and much different than the picture closer to a boat neckline, I am wondering if I am not understanding the instructions. Help!

25.02.2019 - 16:57

DROPS Design answered:

Dear Miu, the 3-4 cm at the top of the pattern are for shoulder, these are the sts from neck that are counted for shoulders on each side, ie front and back piece so that you have 6 cm on each shoulder. Make sure your tension is right and use larger needles to cast on if required so that the neck is not too tight, the pattern is right and has already been worked successfully several times. In this pattern, there is no elevation on back piece, ie both neck on front and back piece will be the same (chart is standard). Happy knitting!

26.02.2019 - 10:20

country flag Lana Miu wrote:

I have a question regarding the neck size, according to the diagram, at 17 CM double that is 34 CM which seems extremely small, a typical head is closer to 60 CM. How does one put on the sweater? Please help. BY the way, I checked the gauge, and cast on the number of stitch for a large, in the round, 66 sts. I was not able to get it over my heard.

24.02.2019 - 06:42

DROPS Design answered:

Dear Mrs Miu, the 17 cm is matching the width of neck seen from RS (from side to side), you should have approximately 17 cm for neck + 17 for front + 12 cm for each shoulder (= see the 3 cm for shoulders at top of diagram). Make sure you get the correct tension, cast on the stitches with a larger needle to avoid the casting edge being too tight so that you can get the head through. Happy knitting!

25.02.2019 - 10:33

country flag Tine wrote:

Jeg sidder og læser opskriften og tænker, at den her vil jeg gerne prøve at strikke; men når jeg læser kommentarerne, så er der flere som spørger ind til antallet af masker ved start/halsen.. Der er dog ikke noget svar? Jeg kan nemlig heller ikke helt gennemskue, hvordan man får kraven på billedet med det antal masker...

02.12.2018 - 11:26

country flag Anna Maria wrote:

I started this pattern but the 62 stitches make a much narrower neckline than the picture. And I was using size 10 US needles and a larger gauge anyway. To get the shape of the photo, I ended up starting with 30 stitches in the front and back and 16 for the sleeves

29.04.2018 - 05:23

country flag Francoise wrote:

Bonjour ,je voudrai faire ce modèle lilla Camilla mais j aimerai qu au niveau du cou il soit un peu plus couvrant car sur le mannequin il me semble trop échancré \\\\r\\\\nPouvez vous m indiquez comment ?\\\\r\\\\nJe vous remercie d avance

21.04.2018 - 08:22

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Pour toute assistance complémentaire, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS qui saura vous conseiller et vous renseigner. Bon tricot!

23.04.2018 - 08:35

country flag Irene wrote:

I would SO love to knit this jumper, would it be good for a beginner to try?

20.03.2018 - 16:36

DROPS Design answered:

Dear Irene, read carefully whole pattern and if you have question please feel free to ask here. For any personnal assistance you are welcome to contact your store. Happy knitting!

20.03.2018 - 16:40