DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2904.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 167-8
DROPS Design: Mynstur nr l-141
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/58 cm

Efni:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio
150 g litur nr 11, beige
50 g litur nr 05, brúnn

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio
200 g litur nr 26, dökk beige
50 g litur nr 44, brúnn

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 fl/hst verði 10 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2904.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynstur er heklað alls 5 sinnum hringinn.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með hst er fyrsta hst skipt út fyrir 2 ll. Umf endar á 1 kl í 2. ll í byrjun umf.
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 fl. Umf endar á 1 kl í 1. ll í byrjun umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

HATTUR:
Heklið 5 ll með heklunál nr 3,5 með litnum beige Bomull-Lin eða dökk beige Paris og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 11 hst um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2 (og síðan í hverri umferð með sléttum tölum): Heklið 1 fl í hvern hst.
UMFERÐ 3: Heklið 2 hst í hverja fl = 22 hst.
UMFERÐ 5: Heklið * 2 hst í fyrstu/næstu fl, 1 hst í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 hst.
UMFERÐ 7: Heklið * 2 hst í fyrstu/næstu fl, 1 hst í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 44 hst.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 9: Heklið * 2 hst í fyrstu/næstu fl, 1 hst í hverja af næstu 3 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 55 hst.
UMFERÐ 11: Heklið * 2 hst í fyrstu/næstu fl, 1 hst í hverja af næstu 4 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 66 hst.
UMFERÐ 13: Heklið * 2 hst í fyrstu/næstu fl, 1 hst í hverja af næstu 5 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 77 hst.
UMFERÐ 15: Heklið * 2 hst í fyrstu/næstu fl, 1 hst í hverja af næstu 6 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 88 hst.
UMFERÐ 17: Heklið * 2 hst í fyrstu/næstu fl, 1 hst í hverja af næstu 7 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 90 hst.
Haldið áfram í annarri hverri umf með 1 fl í hvern hst og 1 hst í hverja fl.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 17 cm ofan frá – passið uppá að síðast umf sé hekluð með fl. Heklið barð.

BARÐ:
Heklið nú A.1 þannig (A.1 er endurtekið alls 5 sinnum hringinn):
UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 2 ll, * 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 5 fl, 2 hst í hverja af næstu 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 5 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 2 hst í hverja af næstu 2 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið umf á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 90 hst og 10 ll-bogar.
UMFERÐ 2: Heklið * 3 fl um fyrsta/næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hvern af næstu 13 hst, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í hvern af næstu 3 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 110 fl.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 hst í hverja af fyrstu/næstu 3 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 4 fl, 2 hst í hvora af næstu 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 4 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 3 fl, 2 hst í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 110 hst og 10 ll-bogar.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu/næstu 3 hst, 3 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hvern af næstu 11 hst, 3 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hvern af næstu 6 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 130 fl.
UMFERÐ 5: Heklið * 1 hst í hverja af fyrstu 6 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 3 fl, 2 hst í hvora af næstu 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 3 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 6 fl, 2 hst í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 130 hst og 10 ll-bogar.
UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu/næstu 6 hst, 3 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hvern af næstu 9 hst, 3 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hvern af næstu 9 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 150 fl.
UMFERÐ 7: Heklið * 1 hst í hverja af fyrstu/næstu 9 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hvora af næstu 2 fl, 2 hst í næstu fl, 1 hst í hverja af næstu 3 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 10 fl, 2 hst í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 140 hst og 10 ll-bogar.
UMFERÐ 8: Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu 9 hst, 3 fl um fyrsta/næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hvern af næstu 6 hst, 3 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hverja af næstu 11 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 160 fl.
UMFERÐ 9: Heklið * 1 hst í hverja af fyrstu 12 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í næstu fl, 2 hst í næstu fl, 1 hst í næstu fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 12 fl, 2 hst í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 150 hst og 10 ll-bogar.
UMFERÐ 10: Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu/næstu 12 hst, 3 fl um fyrsta/næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hvern af næstu 3 hst, 3 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hvern af næstu 13 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 170 fl.
UMFERÐ 11: Heklið * 1 hst í hverja af fyrstu/næstu 16 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hverja af næstu 15 fl, 2 hst í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 165 hst og 5 ll-bogar.
UMFERÐ 12: Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu/næstu 16 hst, 3 fl um fyrsta/næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í hvern af næstu 16 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 175 fl.
UMFERÐ 13: Heklið 1 hst í hverja fl = 175 hst. Klippið frá og festið enda.

FLÉTTUÐ SNÚRA:
Gerið eina fléttu með 3 tvinnuðum snúrum. Gerið 1 tvinnaða snúru þannig: Klippið 2 þræði með litnum brúnn Bomull-Lin eða í litnum brúnn Paris ca 8 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Gerið einn hnút í hvorn enda.
Gerið 2 snúrur alveg eins.
Gerið 1 fléttu með 3 tvinnuðum snúrunum. Hnýtið hnút ca 4 cm upp frá hvorum enda. Vefjið fléttunni 2 sinnum um hattinn hringinn og hnýtið hnút.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.07.2016
BARÐ:UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 2 ll, * 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 hst í hverja og eina af næstu 5 fl, 2 hst í hverja og eina af næstu 2 fl, 1 hst í hverja og eina af næstu 5 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 2 hst í hverja og eina af næstu 2 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið umf á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 90 hst og 10 ll-bogar.

Mynstur

symbols = 2 ll
symbols = fl í hst
symbols = fl um ll-boga
symbols = hst í fl
symbols = hst í fl (hoppið yfir þennan hst í næstu umf)
symbols = umf byrjar á 2 ll og endar á 1 kl í 2. ll
symbols = síðasta umf í hatti, umf hefur nú þegar verið hekluð
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

My Girl Hat

Christina, United States

My Girl

Katerina, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (66)

country flag Monique wrote:

Waarom houdt de hoed zo’n raar puntje bovenop? Rond de begin cirkel bedoel ik? Heb t draadje al losser gemaakt maar het blijft een raar puntje , ik vind dat jammer en de prachtige hoed . Heeft u een tip? Dank ,

04.03.2024 - 20:26

DROPS Design answered:

Dag Monique,

Ik snap wat je bedoeld, dat is niet mooi. Je zou de bovenkant van de hoed kunnen persen met het strijkijzer en een natte theedoek ertussen. Omdat het een hoed is kun je deze niet plat op de strijkplank leggen, dus misschien kun je iets in de vorm van een bloempot vinden waar je weer een handdoek over legt, waar je de hoed overheen kunt doen.

06.03.2024 - 22:05

country flag Janet wrote:

Hello, I would like to clarify my understanding of the pattern. Rd 1: work 11 hdc Question: do I crochet 2 chain as first stitch and work 10 hdc? The crochet information says to replace the 1st stitch with 2 ch. Rd 3: Work 2 hdc in every sc = 22 hdc Question: In 1st stitch, I would crochet 2 ch and 1 hdc, 2 hdc in every stitch. Is this correct? Thank you in advance for the kind help!

19.11.2023 - 15:13

DROPS Design answered:

Dear Janet, replace the first idc at the beg of each round with 2 chains - see CROCHET INFO at the beg of the pattern. This means on 2nd round, start with 2 ch (= 1st idc) and 1 hdc in the same stitch, then 2 hdc in each of the remaining 10 hdc on the round = 22 hdc. Happy crocheting!

20.11.2023 - 10:56

country flag Karen Anna Nilsen wrote:

Hva menes med halvstav i første/neste maske er det både foran og bak skråstrek det blir jo altfor mange masker pr.omgang. På forhånd takk for svar

14.07.2022 - 22:20

DROPS Design answered:

Hei Karen, Nei, instruksen dekker flere gjentagelser (den første gang du strikker er det i 'første' masken, neste gang er det i 'neste' masken). Håper dette hjelper og god fornøyelse!

15.07.2022 - 06:54

country flag Nadine wrote:

The start of this pattern is so confusing :(( It would have been much clearer if the crochet information was integrated into the "hat" pattern. Thanks for a beautiful hat though.

24.04.2022 - 14:50

country flag Åsa Voilås wrote:

Kan hatten stives? I tilfelle hva anbefales?

12.04.2022 - 19:12

DROPS Design answered:

Hei Åse, Ja hatten kan stives. Da anbefaler vi at du dypper hatten i sukkervann eller fargeløs brus, former hatten slik du ønsker den og lar den tørke. God fornøyelse!

13.04.2022 - 08:58

country flag Helen Goddard wrote:

I'm making sun hat 167-8. Maybe I'm being dim but on which rows do I change colour?

22.12.2021 - 20:16

DROPS Design answered:

Hello Helen! Brown yarn is for plaited string. Hope it helps!

23.12.2021 - 23:27

country flag Uli Oswald wrote:

Liebes Dropsteam, was kann ich tun,dass die Krempe nach oben geht

04.08.2021 - 06:42

DROPS Design answered:

Liebe Frau Oswald, Sie können einen Stahldraht anhäkeln (siehe dieses Video ) oder die Krempe etwas steifen. Viel Spaß beim häkeln!

04.08.2021 - 07:57

country flag Gitte Glistrup wrote:

Jeg er i tvivl om ret og vrang siden. Hvilken vej vender hattens puld (spidsen af hatten), når jeg hækler? Vender den opad eller nedad?

14.06.2021 - 13:32

DROPS Design answered:

Hej Gitte, den side du hækler fra er normalt retsiden. Men vælg den side du synes er pænest :)

15.06.2021 - 15:52

country flag Nienke wrote:

Hoe zorg je ervoor dat de rand omhoog blijft staan. Haken jullie ijzerdraad mee of verstevigen jullie de rand met stijfsel of zoiets ?

04.06.2021 - 07:24

DROPS Design answered:

Dag Nienke,

Je kan inderdaad een ijzerdraad meehaken in een van de laatste toeren van de rand. Een andere manier is om de rand van de hoed ik suikerwater te leggen en daarna plat te laten drogen. In dat laatste geval is de rand wel plat, als je hem een beetje om wilt buigen moet je dat even in de gaten houden tijdens het drogen. Of je combineert bovenstaande opties.

11.06.2021 - 12:43

country flag Nanda wrote:

Met de 90 steken lijkt de omvang ongeveer 18 steken (13-15 cm) te groot voor de omvang van mijn hoofd 55CM ongeveer. ondanks dat ik met naald 3.5 haak hoe kan ik de rand aanpassen op 66 of 77 steken? of moet hij zo wijd uitvallen?

02.06.2021 - 19:57

DROPS Design answered:

Dag Nanda,

Heb je de stekenverhouding gecontroleerd? Bij een 90 steken kom je namelijk volgens de stekenverhouding op een omtrek van 50 cm. Hierbij is dus rekening gehouden dat het werk nog een beetje oprekt tijdens het dragen.

13.06.2021 - 10:49