DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1716.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 167-7
DROPS Design: Mynstur nr r-696
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
150-200 g litur nr 18, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st x 11 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1716.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf sem byrjar á st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Í byrjun hverrar umf sem byrjar með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Umf endar á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

HATTUR:
Heklið 5 ll með heklunál nr 3 með Muskat og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 11 st um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 22 st.
UMFERÐ 3: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 st.
UMFERÐ 4: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 44 st.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 55 st.
UMFERÐ 6: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 66 st.
UMFERÐ 7: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 5 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 77 st.
UMFERÐ 8: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 6 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 88 st.
UMFERÐ 9: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 7 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 99 st.
Nú er heklað mismunandi eftir stærðum.

Stærð S/M:
UMFERÐ 10: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 10 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 108 st.
Heklið nú 1 st í hvern st þar til stykkið mælist ca 16 cm.
Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT er fækkað um 3 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 105 st. Heklið barð.

Stærð L/XL:
UMFERÐ 10: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 8 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 110 st.
UMFERÐ 11: Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, * 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 17 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 116 st.
Heklið nú 1 st í hvern st þar til stykkið mælist ca 17 cm.
Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT er fækkað um 4 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 112 st. Heklið barð.

BARÐ:
Heklið nú A.1 þannig (A.1 er endurtekið alls 15-16 sinnum hringinn):
UMFERÐ 1: A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar – Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 2 ll, hoppið yfir fyrstu/næstu 3 st, í næsta st er heklað 1 tbst + 2 ll + 1 st + 2 ll + 1 tbst, 1 ll, hoppið yfir 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið umf á 1 kl í fyrstu ll = 15-16 st/tbst-hópar og 16-17 ll-bogar.
UMFERÐ 2: Heklið * 1 fl um fyrsta/næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 15-16 st-hópar og 15-16 fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 st + 2 ll + 1 st í fyrstu fl, hoppið yfir 2 st, 1 fl í hvern af næstu 3 st, hoppið yfir 2 st, * í næstu fl er heklað 1 st + 2 ll + 1 st + 2 ll + 1 st, hoppið yfir 2 st, 1 fl í hvern af næstu 3 st, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 st í fyrstu fl í byrjun á 2. umf + 2 ll = 15-16 st-hópar og 45-48 fl.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 st í fyrsta/næsta st, 4 st um fyrsta/næsta ll-boga, hoppið yfir 1 st + 1 fl, 1 fl í næstu fl, hoppið yfir 1 fl + 1 st, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 15-16 st-hópar og 15-16 fl.
UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu/næstu 3 st, hoppið yfir 2 st, í næstu fl er heklað 1 st + 2 ll + 1 st + 2 ll + 1 st, hoppið yfir 2 st, 1 fl í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 15-16 st-hópar og 75-80 fl.
UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í hvora af fyrstu/næstu 2 fl, 5 st um fyrsta/næsta ll-boga, 1 st í næsta st, 5 st um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 15-16 st-hópar og 45-48 fl.
UMFERÐ 7: Heklið 1 st + 3 ll + 1 st í fyrstu fl, hoppið yfir 1 fl + 2 st, 1 fl í hvern af næstu 7 st, hoppið yfir 2 st + 1 fl, * í næstu fl er heklað 1 st + 3 ll + 1 st + 3 ll + 1 st, hoppið yfir 2 st + 1 fl, 1 fl í hvern af næstu 7 st, hoppið yfir 1 fl + 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið umf á 1 st í fyrstu fl í byrjun á 6. umf + 3 ll = 15-16 st-hópar og 105-112 fl.
UMFERÐ 8: Heklið * 1 st í fyrsta/næsta st, 6 st um fyrsta/næsta ll-boga, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í hverja af næstu 3 fl, hoppið yfir 2 fl, 6 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 15-16 st-hópar og 45-48 fl.
UMFERÐ 9: Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu/næstu 5 st, hoppið yfir 2 st + 1 fl, í næstu fl er heklað 1 st + 3 ll + 1 st + 3 ll + 1 st, hoppið yfir 1 fl + 2 st, 1 fl í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 15-16 st-hópar og 135-144 fl. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fl um ll-boga
symbols = st í l
symbols = st um ll-boga
symbols = tbst í st
symbols = st er heklaður í næstu fl (= þ.e.a.s. í sömu fl eins og næstu 2 st)
symbols = endið umf á 1 kl í fyrstu ll
symbols = fyrsta fl í byrjun umf er skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í fyrstu ll
symbols = fyrsta st í byrjun umf er skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll
symbols = síðasta umf fyrir barð, umf hefur nú þegar verið hekluð
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Tina wrote:

Hvis der er 105 masker efter 10. omgang og første runde på skyggen hækles i hver 4. maske. Hvordan kan det så blive til 15-16 samlinger af stangmasker? 105:4=26,25, hvilket passer med det antal jeg er endt med

21.03.2024 - 19:12

DROPS Design answered:

Hej Tina, ifølge opskriften skal du have enten 108 st eller 110 st efter 10.omgang :)

03.04.2024 - 12:12

country flag Dolfin wrote:

Je tiens à préciser, après avoir lu les commentaires, que je suis dans la même laine indiquée et que mes dimensions correspondent exactement à ce qu'il est indiqué dans le modèle pour un crochet 3. Merci pour votre réponse.

06.08.2023 - 08:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dolfin, il est effectivement facile de perdre sa tension en cours de route, donc pensez toujours à bien crocheter suffisamment serré/lâche pour garder cette même tension que pour l'échantillon et retrouvez la réponse ci-dessous. Bon crochet!

07.08.2023 - 10:14

country flag Dolfin wrote:

Comment durcir les bords d'un chapeau ? Parce que le mien ne reste pas du tout comme le modèle et retombe sur les yeux. D'ailleurs ce n'est pas le premier chapeau que je fais chez vous, et il ressemble plus à des sacs qu'à des chapeaux, alors que sur vos modèles ils sont magnifiques. Donc je suppose que vous durcissez les bords. Comment faites-vous ? Merci

05.08.2023 - 09:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dolfin, vous pouvez utiliser de l'amidon en bombe ou bien crocheter le dernier tour du chapeau autour d'un fil de fer fin pour lui permettre de bien tenir. Dans cette vidéo, nous montrons comment procéder pour le fil de fer. Bon crochet!

07.08.2023 - 09:37

country flag Farida Derycke wrote:

Hoe word dit hoedje stijf aan de rand?

03.07.2023 - 16:45

DROPS Design answered:

Dag Farida,

Je zou de rand op kunnen stijven door het te drenken in kleurloze frisdrank of suikerwater en daarna in vorm laten drogen (bijvoorbeeld door hem over een omgekeerde pan of kom te leggen waarbij de rand op de ondergrond ligt waar de kom op geplaatst is).

03.07.2023 - 21:12

country flag Kirsi wrote:

Hei, miten lieri kuuluisi käsitellä, jotta se pysyisi suorana ja terhakkaana kuten kuvissa? Omani lurpahtaa ja aaltoilee

13.05.2023 - 08:42

DROPS Design answered:

Kun virkkaat lierin, on tärkeää, että silmukoita ei virkata liian löyhästi. Katso myös ohjeeseen kuuluva video: Ohjeen DROPS 167-7 hatun lierin virkkaaminen. Myös tämä video voi olla avuksi: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1443&lang=fi

17.05.2023 - 16:34

country flag Plessis Régine wrote:

Bonjour, Pour mesurer la hauteur de 16 cm, je suppose qu'il s'agit de mesurer à partir du centre . Merci. Cordialement

19.05.2022 - 20:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Plessis, tout à fait, mesurez à partir du 1er rang (pas en "diamètre"). Bon crochet!

20.05.2022 - 08:05

country flag Eva-karin Rosenquist wrote:

Hej igen, det står att jag ska hoppa över 3 stolpar, ska det vara nån stolpar mellan grupperna, fattar inte riktigt

19.08.2021 - 20:44

DROPS Design answered:

Hej Eva-Karin, hvilken størrelse hækler du og hvor langt er du kommet i mönsteret?

25.08.2021 - 10:41

country flag Eva-karin Rosenquist wrote:

Får inte rätt på första varvet på brättet, får många fler stolpgrupper på 112 maskor. Hur gör jag?

16.08.2021 - 16:46

DROPS Design answered:

Hei Eva-Karin. Ta en titt på svaret du fikk på ditt forrige spørsmål, se under. mvh DROPS design

18.08.2021 - 13:10

country flag Eva-karin Rosenquist wrote:

Hej, förstår inte första varvet i brättet, blir ju fler än 17 stolpgrupper

15.08.2021 - 20:32

DROPS Design answered:

Hei Eva-Karin. Hopper du over de stavene du skal på 1. omgang? Det skal være 6 staver mellom hver stavgruppe (stavegruppe = 1 dbl-st+2 lm+1 st+2 lm+1 dbl-st). Om du hekler str. XL, skal du hekle A.1 16 ganger rundt = 16 stavgrupper. mvh DROPS design

18.08.2021 - 13:08

country flag Andrea wrote:

Ich bin etwas irritiert. Ich habe Teil 1 des Gutes mit 99 Stäbchen abgeschlossen. In der nächsten Runde soll ich dann zwei Stb. Zunehmen und in die nächsten 10 Stb. Je 1 Stb. Arbeiten. Wie kommt man da dann auf 108 Mäschen/Stb.? Lt. Anleitung 10. Runde *2 Stb. In das erste/nächste Stb., je 1 Stb. In die nächsten 10 Stb.* Von *-* bis Rd-Ende Wdh = 108 Stb. Verwirrung ist groß. Gruß Andrea

15.06.2021 - 08:53

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, wenn Sie *2 Stb. In das erste/nächste Stb., je 1 Stb. In die nächsten 10 Stb* wiederholen = 9 Mal über 11 Stäbchen = 99 Stäbchen, und mit den Zunahmen haben Sie jetzt 12 Stäbchen x 9 = 108 Stäbchen. Viel Spaß beim häkeln!

15.06.2021 - 13:22