DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

The First Noel

Prjónaður barnabílstóls poki fyrir börn úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað með hettu og dúsk. Stærð 1 mán - 4 ára. Þema: Jól.

DROPS Extra 0-1052
DROPS Design: Mynstur nr ee-020-by
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 – 6/9 – 12/18 mán (2 – 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92 - 98/104)

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
500-550-600 (650-750) g litur 56, jólarauður
50-50-50 (50-50) g litur 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA, HJARTA, NR 553: 5-5-5 (5-6) stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann) svo ekki myndist gat.

GAT FYRIR ÖRYGGISBELTI Í BÍLSTÓL:
Hægt er að gera gat að framan og að aftan fyrir belti í bílstól.
Gerið fyrra gatið á bakstykki þegar stykkið mælist ca 16-20-23 (28-33) cm (eða eftir þá lengd sem þarf) með því að fella af miðju 4 l á prjóni.
Í næstu umf eru fitjaðar upp 4 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af og haldið áfram eins og áður.
Endurtakið á framstykki þegar stykkið mælist frá öxl 42-47-52 (58-59) cm.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = fellið af þriðju l frá l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 1, 6, 10, 14 og 19 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 1, 5, 10, 15 og 20 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 1, 6, 11, 16 og 21 cm.
STÆRÐ 2 ára: 1, 7, 12, 17 og 22 cm.
STÆRÐ 3/4 ára: 1, 6, 10, 14, 18 og 23 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

POKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Pokinn er prjónaður sem eitt stykki– byrjað er neðst niðri á bakstykki, fitjaðar eru upp l fyrir ermi, fellt af fyrir hálsmáli og endað neðst niðri á framstykki. Til þess að fá pláss fyrir allar l eru stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Einnig er hægt að gera GAT FYRIR ÖRYGGISBELTI Í BÍLSTÓL – sjá útskýringu að ofan – ef óskað er eftir.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 36-40-44 (46-50) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með litnum jólarauður. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 37-45-52 (62-67) cm – JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 4 l jafnt yfir = 32-36-40 (42-46) l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l, haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 46-54-61 (71-76) cm eru fitjaðar upp nýjar l á hvorri hlið fyrir ermi. Fitjið upp l í lok hverrar umf: 4 l 1 sinni, 5 l 1-1-1 (2-2) sinnum og 9-10-12 (12-16) l 1 sinni = 68-74-82 (94-106) l. Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni. ATH! Eftir síðustu útaukningu eiga 3 síðustu l í hvorri hlið (= neðst á ermum) að vera prjónaðar áfram í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 54-63-71 (82-88) cm haldið áfram þannig: 3 l garðaprjón 19-22-25 (31-37) l sléttprjón, 24-24-26 (26-26) l garðaprjón (= aftan við hnakka), 19-22-25 (31-37) l sléttprjón, 3 l garðaprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 6 umf garðaprjón yfir l að aftan við hnakka eru felldar af miðju 12-12-14 (14-14) l fyrir hálsmáli og hvor hlið er prjónuð fyrir sig. Setjið l frá hægri hlið á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 28-31-34 (40-46) l. Prjónið áfram í sléttprjóni og 6 l garðaprjóni við hálsmál og 3 l garðaprjón neðst á ermi. Þegar stykkið mælist 58-67-75 (86-92) cm setjið 1 prjónamerki = miðja ofan á öxl – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 1-1-2 (2-2) cm aukið út um 1 l við hálsmál í næstu umf frá réttu innan við 6 l garðaprjón – SJÁ ÚTAUKNING. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og endurtakið útaukningu í næstu umf frá réttu. Prjónið 1 umf til baka frá röngu, í lok á þessari umf eru fitjaðar upp 7-7-8 (8-8) nýjar l við miðju að framan = 37-40-44 (50-56) l. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir 7-7-8 (8-8) nýjar l – hinar l eru prjónaðar eins og áður. Haldið nú áfram í sléttprjóni með 6 l garðaprjón við miðju að framan (= kantur að framan) og 3 l garðaprjón neðst á ermi. Þegar stykkið mælist 8-9-10 (11-12) cm fækkið lykkjum fyrir ermar í hlið í byrjun umf þannig: 9-10-12 (12-16) l 1 sinni, 5 l 1-1-1 (2-2) sinnum og 4 l 1 sinni = 19-21-23 (24-26) l. Haldið áfram með sléttprjón og 6 l á kanti að framan þar til stykkið mælist ca 18-19-20 (21-22) cm (brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxl og passið að prjónaðar séu jafn margar umf í sléttprjóni á bakstykki og á framstykki) – stillið af að næsta umf sé prjónuðu frá réttu. Prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l. Prjónið 2 umf þar sem haldið er áfram í sléttprjón og kantlykkjur að framan í garðaprjóni – JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 2 l jafnt yfir (aukið ekki yfir kant að framan) 21-23-25 (26-28) l. Setjið l á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka l af þræði á prjóninn (= 28-31-34 (40-46) l) og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt.
MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Setjið síðan l af vinstra framstykki á sama prjón = 42-46-50 (52-56) l. Í næstu umf (= rétta) eru felldar af kantlykkjur að framan þannig: Prjónið sléttprjón yfir 15-17-19 (20-22) fyrstu l á hægra framstykki, setjið 6 kantlykkjur að framan á hægra framstykki á hjálparprjón fyrir framan stykkið * prjónið 1 l af hjálparprjóni slétt saman með 1 l af vinstri framkanti *, endurtakið frá *-* 6 sinnum = 6 l færri, prjónið síðan sléttprjón út umf = 36-40-44 (46-50) l. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l. Þegar stykkið mælist ca 55-64-72 (83-89) cm (brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxl og passið uppá að framstykki og bakstykki séu jafn löng fyrir utan 3 neðstu rendurnar í garðaprjóni á bakstykki). Prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið LAUST af.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl og saumið sauma undir ermum og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.
Saumið uppfitjunarkantinn við affellingarkantinn neðst niðri á pokanum – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í vinstra framstykki.

HETTA:
Prjónið upp 37-39-41 (45-47) l með jólarauður á hringprjóna nr 8 í kringum hálsmál (byrjið við miðju að framan og prjónið upp í ysta lykkjubogann frá réttu). Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til hettan mælist 18-20-22 (24-26) cm. Fellið LAUST af.
Saumið saman hettuna kant í kant efst uppi.

DÚSKAR OG SNÚRA:
Gerið 2 litla dúska með litnum natur að þvermáli ca 6 cm og 1 stóran dúsk að þvermáli 8 cm. Dúskarnir mega ekki vera of þéttir. Klippið 1 þráð ca 1 m, leggið þráðinn saman tvöfaldan og tvinnið hann saman. Saumið snúruna við 1 lítinn dúsk, saumið hinn endann á snúrunni við kantinn að framan með því að þræða fyrst í gegnum kantinn að framan. Gerið alveg eins en saumið niður á gagnstæðan kant að framan. Festið stóra dúskinn efst á hettuna.

Brotið er uppá ermar eftir þörfum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1052

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Weronika wrote:

Witam :) Znów prośba o pomoc :) Lewy przód: „Dalej przer. 2 rz., W TYM SAMYM CZASIE zacząć przer. dżersejem z oczkami obszycia przodu ściegiem francuskim..” czyli po przerobieniu wszystkich o. ściegiem francuskim nast. 2 rz. robię jak wcześniej, czyli 6 o. ściegiem fran. a 13 pozostałych o. dżersejem? Z tym że w 1szym rz. dodaje równomiernie 2 o.? Np. 1 dodatkowe o. co 9 o.?

07.09.2021 - 21:00

DROPS Design answered:

Witaj Weroniko, Po przerobieniu wszystkich o. ściegiem francuskim, 2 następne rzędy przerabiasz jak wcześniej czyli dżersejem, z 6 oczkami ściegiem francuskim od środka przodu. Ponad oczkami dżersejem dodajesz 2 oczka dokładnie tak jak piszesz. Wszystko doskonale zrozumiałaś :) Pozdrawiamy!

08.09.2021 - 14:46

country flag Weronika wrote:

A na co są te dziurki które powstaną po przerobieniu narzutów? Na sznurek od pomponów?

31.08.2021 - 14:49

DROPS Design answered:

Witaj Weroniko, przerabiasz oczko przekręcone w miejscu narzutu, właśnie po to aby uniknąć dziur w tym miejscu. Tak czy inaczej mała dziurka pozostanie. Jeśli w tym miejscu pasuje ci dołączyć sznurek do pompona to super. Pozdrawiamy i miłej pracy!

01.09.2021 - 10:22

country flag Weronika wrote:

Czyli mam dodać 1 o. przed 6 o. robionymi ściegiem francuskim i znów 1 o. zaraz po ściegu francuskim a dalej przerabiać dżersejem? A na lewej str to narzucone oczko przerobić na mniejsza czy większa dziurkę? I po co są w tym miejscu dziurki? Na sznurek od pomponów? Przepraszam ale kompletnie nie rozumiem tego objaśnienia i nie wiem jak się za to zabrać :(

30.08.2021 - 18:35

DROPS Design answered:

Witaj Weroniko, Tym razem ja namieszałam, przepraszam: a więc: LEWY PRZÓD: masz dodać tylko 1 o. w odl. 6 o. ściegiem francuskim od brzegu od strony dekoltu w nast. rzędzie na prawej stronie robótki. Przer. 1 rz. na lewej stronie robótki i powt. dodawanie o. w nast. rzędzie na prawej stronie robótki (znów dodajesz tylko 1 o. od strony dekoltu za 6 oczkami ściegiem francuskim). Przer. 1 rz. na lewej stronie robótki i na końcu rzędu nabrać 7-7-8 (8-8) o. od środka przodu (zobacz schematyczny rysunek, to będzie ta patka z przodu). Narzut przerabiasz przekręcony (patrz DODAWANIE OCZEK). Pozdrawiamy!

31.08.2021 - 14:21

country flag Weronika wrote:

„1 o. w odl. 6 o. ściegiem francuskim..” - najpierw mam zrobić 6 o. ściegiem francuskim jak we wcześniejszych rzędach, a potem dodawać 1 o. co 6 o. dżersejem i tak przez 3 nast. rzędy na prawej str?

30.08.2021 - 13:22

DROPS Design answered:

Witaj Weroniko, masz dodać 1 o. w odl. 6 o. ściegiem francuskim od brzegu od strony dekoltu (dodane 2 oczka, czyli po 1 z każdej strony dekoltu) w nast. rzędzie na prawej stronie robótki, - PATRZ DODAWANIE OCZEK. Przer. 1 rz. na lewej stronie robótki i powt. dodawanie o. w nast. rzędzie na prawej stronie robótki (2-gi raz dodajesz 2 oczka). Przer. 1 rz. na lewej stronie robótki i na końcu rzędu nabrać 7-7-8 (8-8) o. od środka przodu.. Pozdrawiamy!

30.08.2021 - 16:44

country flag Weronika wrote:

Znów mam prośbę o udzielenie pomocy. Mianowicie napisane jest by „ nabrać oczka na rękawy z każdej strony, na końcu każdego rzędu następująco: 1 razy 4 o., 1-1-1 (2-2) razy 5 o. i 1 raz 9-10-12 (12-16) o. = 68-74-82 (94-106) o.” Nie bardzo rozumiem o co tu chodzi. Najpierw mam nabrać w jednym rzędzie po 4 o, w następnym 5 o, a w trzecim 9 o z każdej strony? Ten rękaw nie będzie wtedy mieć takiej „schodkowej” krawędzi zamiast gładkiej?

26.08.2021 - 22:50

DROPS Design answered:

Witaj Weroniko, jako że to dodawanie oczek na rękawy jest wykonywane rząd po rzędzie to schodki nie będą widoczne. Aby zminimalizować jeszcze bardziej to ryzyko, zawsze ostatnie dodane oczko przerabiaj bardziej ścisło (zaciągaj mocniej nitkę po wykonaniu tego oczka). Miłej pracy i pozdrawiamy!

27.08.2021 - 08:47

country flag Weronika wrote:

Witam :) zamieniłam włóczkę ze wzoru na C+C (dokładnie big merino) i zastanawiam się jakich drutów powinnam użyć? Nadal 8mm jak podane jest we wzorze czy mniejszych, np 5mm jak podane jest na włóczące big merino? Będę wdzięczna za podpowiedź :) Pozdrawiam

23.08.2021 - 22:17

DROPS Design answered:

Witaj Weroniko, rozumiem, że zamierzasz przerabiać 2 nitkami włóczki DROPS Big Merino zamiast 1 nitką włóczki DROPS Snow. Najpierw musisz wykonać próbkę na drutach nr 8 (jak we wzorze). Jak będzie ok, to przerabiasz na tych drutach. Jak nie to próbuj na rozmiar mniejszych/większych w zależności od tego co uzyskasz. Pozdrawiamy!

24.08.2021 - 09:05

country flag Claudine wrote:

Bonjour, Je pense qu'il y a un problème dans les explications du dos.. Il est indiqué qu'à 45 cm le nombre de maille est de 36 mailles pour la taille 6/9 mois. A 54 cm on augmente 1 fois 4 m, 1 fois 5 met 1 fois 10 mailles (soit 19 augmentations) ce qui fait donc 55 mailles au total or vous indiquez 74 m ce qui correspond à la suite des explications. Merci de bien vouloir me préciser où est l'erreur. Bonne soirée

18.02.2021 - 18:32

DROPS Design answered:

Bonjour Claudine, vous devez monter le même nombre de mailles de chaque côté pour les manches, autrement dit, montez 4 mailles à la fin des 2 rangs suivants, 5 mailles à la fin des 2 rangs suivants, et 10 mailles à la fin des 2 rangs suivants = 36 +8+10+20= 74 m. Et vous avez le même nombre de mailles pour chaque manche (= 4+5+10). Bon tricot!

19.02.2021 - 07:31

country flag Seonad Wright wrote:

I am really looking forward to starting this

28.06.2020 - 21:36

country flag Sandrene Johnson wrote:

How do i get to print this pattern what must I do

14.06.2020 - 00:11

DROPS Design answered:

Dear Sandrene, there is a button which says print, located under the materials. Happy knitting!

14.06.2020 - 22:52

country flag Emma wrote:

Hej, vad betyder stl i cl? Antar att stl står. för storlek med vad betyder cl? Verkar vara något underliga mått då på vanliga kläder är 86 12-18mån men på lista ser jag att det står 74-80 i cl ska motsvara12-18mån??? Hälsningsr emma

23.04.2020 - 22:52

DROPS Design answered:

Hej Det ska stå cm där, det är nu rättat på den svenska översättningen. Om du har svårt att veta vilken storlek du ska göra kan du alltid se på måttskissen längst ner för att se hur stor åkpåsen kommer att bli. Mvh DROPS Design

24.04.2020 - 09:30