DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Shelter

Prjónað poncho úr DROPS Big Merino í klukkuprjóni, prjónað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 156-31
DROPS Design: Mynstur nr mb-017
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
600-650-700 gr litur nr 02, grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu!

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.
ATH! Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1/A.2. Í fyrstu útaukningu eru nýjar l prjónaðar eins og síðasta l í mynstri A.1 (þ.e.a.s. í næstu umf á eftir umf með útaukningu er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Eftir 2 næstu umf með útaukningu er uppslátturinn prjónaður snúinn br).

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður á hringprjóna. Prjónið fyrst kant við hálsmál fram og til baka, síðan er stykkið prjónað í hring á hringprjóna, áður en haldið er áfram fram og til baka á fram- og bakstykki.

PONCHO:
Fitjið upp 96-102-108 l á hringprjóna nr 5,5 með Big Merino.
Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, í 7 cm. Prjónið síðan stykkið í hring. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið 1 umf sléttprjón. Í næstu umf er prjónað aftan frá þannig: A.1 (= 3 l) 6-7-7 sinnum á breiddina, setjið 1. prjónamerki í síðustu l, A.2 (= 11 l), setjið 2. prjónamerki í miðjulykkja (= miðja á öxl), prjónið síðustu l í A.1, setjið 3. prjónamerki í þessa l, A.1 12-13-14 sinnum á breiddina, setjið 4. prjónamerki í síðustu l, A.2, setjið 5. prjónamerki í miðjulykkju (= miðja ofan á öxl), prjónið síðustu l í A.1, setjið 6. prjónamerki í þessa l, A.1 6-6-7 sinnum á breiddina. Haldið svona áfram, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning: Prjónið fram að 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 2. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við þessa l, prjónið fram að 3. prjónamerki, prjónið l með prjónamerki, sláið1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 5. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við þessa l, prjónið fram að 6. prjónamerki og prjónið þessa l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umf = 104-110-116 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1/A.2 –
LESIÐ ÚTAUKNING! ATHUGIÐI PRJÓNFESTUNA!

Aukið út svona á undan 1. og 4. prjónamerki og á eftir 3. og 6. prjónamerki (= 4 útaukningar): Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 12-18-21 sinnum til viðbótar og í 4. umf 11 sinnum í öllum stærðum.

Aukið út á hvoru megin við 2. og 5. prjónamerki (= 4 útaukningar): Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 16 sinnum til viðbótar.

Þegar alla útaukningu eru 260-290-306 l í umf. Þegar stykkið mælist 39-43-47 cm er prjónað frá byrjun umf þannig: Prjónið fyrstu 62-71-74 l (= bakstykki), fellið af næstu 5 l, prjónið næstu 125-140-148 l (= framstykki), fellið af næstu 5 l, prjónið þær l sem eftir eru 63-69-74 l (= bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
Nú eru 125-140-148 l fyrir framstykki. Haldið áfram fram og til baka með mynstur yfir framstykki eins og áður, JAFNFRAMT er prjónuð 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka hvoru megin á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 13 sinnum til viðbótar = 97-112-120 l eftir. Stykkið mælist 53-57-61 cm – stillið af að næsta umf sé 2.-4. eða 6. umf í mynstri. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. ATH! Uppslátturinn er felldur af br. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kantinn í garðaprjóni aftan í hnakka. Saumið l eina og eina fallega saman svo að saumurinn verði fallegur. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br
symbols = prjónið uppsláttinn og sl l slétt saman frá réttu, prjónið uppsláttinn og br l br saman frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Martina wrote:

Guten Morgen, vielen Dank für die rasche Antwort und das Video. Das hilft. Wünsche dem gesamten Team einen schönen Tag.

20.09.2023 - 09:51

country flag Martina wrote:

Hallo, es wäre wirklich hilfreich, ein Diagramm zu erstellen, aus dem eindeutig ersichtlich ist, wo die Marker sitzen und wie genau die Zunahmen in die Muster "integriert" werden sollen. Ich habe die Beschreibung auch nach mehrmaligem Lesen nicht verstanden. Die bereits vorhandenen Fragen zeigen mir, dass ich nicht die einzige bin. Auch die vorhandenen Erklärungen helfen mir nicht weiter... Danke und viele Grüße, Martina

19.09.2023 - 19:16

DROPS Design answered:

Liebe Martina, die Markierungen sollen Sie jeweils in die beschriebenen Maschen einsetzen: die 1. Mark am Ende Rückenteil, die 2. Mark in de Mitte A.2, die 3. Mark am Anfang Vorderteil, die 4. Mark am Ende Vorderteil, die 5. Mark in der Mitte A.2 und die 6. Mark am Anfang Vorderteil. Dann nehmen Sie wie unter ZUNAHMETIPP vor 1. + 4. Mark und nach 3. + 6. Markierung und gleichzeitig nehmen Sie beidseitig von der 2. und der 5. Markierung. Dieses Video zeigt, mit man mit 1 Umschlag zunimmt, und wie die Maschen nach und nach im Patentmuster gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

20.09.2023 - 07:33

country flag Gudrun Winter wrote:

Hallo, ist es richtig, dass nach den Zunahmen oben auf der Schulter (insgesamt 17x) das Patentmuster rechts und links der mittleren Masche nur eine linke Masche hat? Ansonsten müsste ich ja 18 mal zunehmen, richtig?

17.09.2021 - 14:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Winter, ja stimmt, es sind nur 1 linke Masche beidseitig von der mittleren Maschen in A.2 (= rechte Masche). Viel Spaß beim stricken!

20.09.2021 - 10:20

country flag Marion wrote:

Nach der Halsblende soll man ja den Poncho zunächst in Runden stricken. Unter "Diagramm" stehen jedoch für die mit x gekennzeichnete Masche Angaben für Hin- und Rückreihen. Wie sticke ich diese x-Masche aber nun in Runden?

17.02.2021 - 18:32

DROPS Design answered:

Liebe Marion, wenn Sie das Diagram in Runden stricken, stricken Sie immer Hinreihen, dh diese Maschen mit dem x stricken Sie immer links wenn Sie in Runden stricken - wenn Sie dann in Reihen stricken werden, stricken Sie diese Maschen rechts bei den Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!

18.02.2021 - 09:04

country flag Josianne wrote:

Guten Tag, Ich habe die Zunahmen vor der 1. + 4. und nach der 3. + 6. Markierung paralell zu den Zunahmen vor und nach der 2. + 5. Markierung gemacht und bin so statt auf 190 Machen auf ca 100 Maschen mehr gekommen. Muss ich zuerst die 18 + 11 x vor der 1.+3. und nach der 4. + 6. Markierung je eine Masche zunehmen und erst dann mit den Zunahmen vor und nach der 2. +. 5. Markierung (16 mal)? Mit freundlichen Grüssen

04.02.2021 - 21:00

DROPS Design answered:

Liebe Josiane, die Zunahmen werden gleichezetig gestrickt, dh Sie sollen zuest 8 Maschen in jede 2. Rd zunehmen (= vor 1.+4. Mark. + nach 3. und 6. Mark und gleichzeitig beidseitig vom 2. + 5. Mark), insgesamt 16 Mal, dann wird es nicht mehr bei dem 2. + 5. Mark zugenommen und nur noch 2 x in jeder 2. Rd + 11 Mal in jeder 4. Rd vor 1.+4. und nach 3. + 6. Mark zugenommen. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2021 - 08:27

country flag Vibeke Ahlmann Jensen wrote:

Efter at have foretaget de første udtagninger og sat mærketråde, skal jeg til at tage de generelle udtagninger først, efter mærke 1-4 og 3-6 på hver anden omgang 18 g. og derefter på hver 4 omgang 11 gange. næste afsnit begynder med udtagninger efter mærke 2 og 5 hver anden omgang 16 gange. Skal jeg skifte mellem første og andet afsnit, så der er udtagning på hver omgang 16 gange. hvor afsnit 2 afsluttes og så gøre færdig efter første afsnit.

21.01.2021 - 13:23

DROPS Design answered:

Hej Vibeke, du strikker alle 8 udtagninger på hver 2. omgang 16 gange, så 2 udtagninger mere ved 4 af mærkerne hver 2.omgang og sidt på hver 4.omgang 11 gange. God fornøjelse!

27.01.2021 - 14:42

country flag Barbara wrote:

Guten Tag, nun bin ich etwas verwirrt „Zunahmen in Muster einarbeiten“! Bedeutet dies, sobald 5 Maschen bei den Zunahmen sind, im Muster 2 Links - 1 Rechts - 2 Links Stricken? Aus dem Bild geht es nicht hervor. Ansonsten würden ja bei der Achsel breite Bahnen min Links- Maschen entstehen! Lieben Dank für eine kurze Hilfe.

03.07.2020 - 20:26

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, bei der Runde nach den Zunahmen stricken Sie die Zunahmen wie im Muster dh wie die vorrige bzw vorrige Masche im Muster, sollte es eine Patentmasche, stricken Sie sie recht, sonnst stricken Sie die Zunahmen link damit das Muster immer so wie beim A.1 bleibt (1 Patentmasche mit 2 linke Maschen). Viel Spaß beim stricken!

06.07.2020 - 07:57

country flag Jackie wrote:

Thank you so much for the clarification and quick response!

22.10.2019 - 00:20

country flag Jackie wrote:

CONT...any straight rows after the increases until it measures 39cm). Could there be an error in the number of repeats given for each increase: (sm size) set-up increases (3 rows); inc2-12 repeats every other round (24 rows); inc3-11 repeats every 4th rnd (44 rows); inc4-16 repeats every other rnd (32 rows). In the inc3 section (11 rep/4th round), only 2-5 repeats (12 rows) would work depending on # of straight rows after increases. Please advise on increases to achieve intended pattern shape.

19.10.2019 - 17:34

DROPS Design answered:

Dear Jackie, in size S/M you will increase before 1st/4th marker + after 3rd/6th marker a total of 13 times every other round (= 26 rounds) + 11 times every 4th round (= 44 rounds) = 26+44= 70 rounds - at the same time, increase on each side of 2nd/5th marker 17 times in total in every other round (= 34 rounds), but these 34 rounds are not coming extra, they are the same as the first 34 rounds where you increase on other markers. Make sure to check your tension in pattern to recalculate the increases and make them a different way if required so that you get the correct length. Happy knitting!

21.10.2019 - 10:09

country flag Jackie wrote:

Hi! I am starting the Shelter poncho and am recalculating the pattern for my yarn/gauge and a size. In recalculating your pattern, it seems the measurements given in the diagram do not add up to the number of rows given in the written instructions. Both the diagram and instructions shows 39cm after the collar to the the end of the section in the round. With a gauge of 20rows/10cm, this would be 78 rows. The written instructions show 103 rows through the increase rows (not including...CONTINUED

19.10.2019 - 17:17

DROPS Design answered:

Dear Jackie, the tension is given in stocking stitch while the poncho is then worked in English rib (with P2 between each stitch in English rib), the number of rows in pattern will be different than in stocking stitch. You can make a swatch to recalculate the number of rows/height required fro your tension. Happy knitting!

21.10.2019 - 10:05