DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 156-56
DROPS Design: Mynstur nr db-038
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd: ca 93 cm.
Lengd: ca 150 cm.

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
1000 gr nr 14, hindberjaterta

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 28 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 fyrir röð, ferninga og prjónstefnu. Mynsturteikning sýnir 1.-5. röð af ferningum.

LEIÐBEININGAR:
Í stað þess að setja lykkjur á þráð er hægt að setja lykkjur á langan hringprjón, eða fleiri hringprjóna allt eftir því sem teppið stækkar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á sokkaprjóna. Allt teppið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Byrjið neðst í horni á FERNINGUR 1 – sjá mynsturteikningu A.1.

FERNINGUR 2:
Fitjið upp 11 nýjar l í lok umf frá FERNINGUR 1 á 1 nýjan prjón. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá röngu er prjónuð 1 l frá fyrri ferningi til baka á prjóninn og byrjun á hverri umf frá réttu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið áfram þar til allar l af FERNINGUR 1 hafa verið prjónaðar – ATH! Síðustu 2 l eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Setjið lykkjur á þráð – LESIÐ LEIÐBEININGAR að ofan.

FERNINGUR 3:
Prjónið 11 l á 1 nýjan prjón meðfram kanti á FERNINGUR 1 frá réttu. Prjónið fram og til baka yfir þessar l í ca 7 cm (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Setjið lykkjur á þráð.

FERNINGUR 4:
Fitjið upp 11 nýjar l í lok umf frá FERNINGUR 3. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá réttu er prjónuð 1 l frá FERNINGUR 3 til baka á prjóni og í byrjun á hverri umf frá röngu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið síðan áfram þar til allar l frá FERNINGUR 3 hafa verið prjónaðar - ATH! Síðustu 2 l af FERNINGUR 3 eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá réttu). Setjið lykkjur á þráð.

FERNINGUR 5:
Prjónið upp 11 l meðfram kanti á FERNINGUR 3 frá réttu, prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá réttu er prjónuð 1 l frá FERNINGUR 2 til baka á prjóni og í byrjun á hverri umf frá röngu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið síðan áfram þar til allar l frá FERNINGUR 2 hafa verið prjónaðar - ATH! Síðustu 2 l af FERNINGUR 2 eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá réttu). Setjið lykkjur á þráð.

FERNINGUR 6:
Prjónið upp 11 l meðfram kanti á FERNINGUR 2 frá réttu. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l í ca 7 cm (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Setjið lykkjur á þráð.

FERNINGUR 7:
Prjónið eins og FERNINGUR 2 (fitjið upp l í lok umf frá FERNINGUR 6, prjónið upp með 1 og 1 lykkju frá FERNINGUR 6.

FERNINGUR 8:
Prjónið upp 11 l meðfram kanti á FERNINGUR 6 frá röngu. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá röngu er prjónuð 1 l frá FERNINGUR 5 til baka á prjóni og í byrjun á hverri umf frá réttu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið síðan áfram þar til allar l frá FERNINGUR 5 hafa verið prjónaðar - ATH! Síðustu 2 l af FERNINGUR 5 eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Setjið lykkjur á þráð.

FERNINGUR 9:
Prjónið eins og FERNINGUR 8 (prjónið upp l frá FERNINGUR 5, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 4).

FERNINGUR 10:
Prjónið eins og FERNINGUR 3 (prjónið upp l frá FERNINGUR 4).

FERNINGUR 11:
Prjónið eins og FERNINGUR 4 (Fitjið upp l í lok umf frá FERNINGUR 10, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 10).

FERNINGUR 12:
Prjónið eins og FERNINGUR 5 (prjónið upp l frá FERNINGUR 10, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 9).

FERNINGUR 13:
Prjónið eins og FERNINGUR 5 (prjónið upp l frá FERNINGUR 9, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 8).

FERNINGUR 14:
Prjónið eins og FERNINGUR 5 (prjónið upp l frá FERNINGUR 8, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 7).

FERNINGUR 15:
Prjónið eins og FERNINGUR 6 (prjónið upp l frá FERNINGUR 7).

Haldið áfram með þetta mynstur þar til 13 ferningar eru á breidd – fellið af 11 l í síðasta ferning á breiddina í stað þess að fitja upp nýjar l og haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar prjónaðir hafa verið 21 ferningar á hæðina eru felldar af fyrstu 11 l frá röngu í stað þess að setja lykkjur á þráð. Prjónið áfram teppið þar til prjónaðir hafa verið 13 x 21 ferningar.

Mynstur

symbols = prjónastefna og númer ferninga í röð
symbols = l settar á 1 band/prjón
symbols = l prjónaðar 2 l slétt saman
symbols = röð og númer raðar
symbols = hér heldur áfram RÖÐ 6-13 á breiddina
symbols = hér heldur áfram RÖÐ 6-21 á hæðina
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-56

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Rubina wrote:

Sarebbe molto utile un video di questa bellissima tecnica

17.01.2022 - 19:44

country flag Leen Eeckeloo wrote:

Hallo, ik wou deze al heel lang breien en ben er eindelijk aan begonnen. Klopt het dat je heel vaak na een vierkantje gebreid te hebben je garen moet losknippen om aan een volgende vierkant te beginnen? Alvast hartelijk dank voor het antwoord!

01.03.2021 - 11:34

DROPS Design answered:

Dag Leen,

Ja dat klopt. Je begint steeds met een nieuw vierkantje welke je samenbreit met een bestaand vierkant of twee bestaande vierkanten. Soms kun je gelijk verder breien met de draad van het vierkantje dat je net had gemaakt.

02.03.2021 - 10:13

country flag SOBCZAK wrote:

Merci beaucoup pour votre réponse. J'ai une autre question : Une fois que j'ai tricoté les 15 premiers carrés, je ne sais pas comment continuer l'ouvrage. Où se place le carré n°16 et les suivants ? Merci beaucoup par avance. Cordialement.

02.02.2020 - 17:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sobczak, le 16ème carré se trouve à la droite du 11ème, le 17ème sera au-dessus du 16ème et ainsi de suite, vous allez continuer les motifs en "escalier" comme du 1er au 15ème. Bon tricot!

03.02.2020 - 10:39

country flag SOBCZAK wrote:

Pour passer du carré 1 au carré 2, doit-on utiliser la même pelote ? Je ne comprends pas trop cette phrase : Monter, sur une nouvelle aiguille, 11 m à la fin du carré 1. Quelle est la fin du carré 1 ? Merci

10.01.2020 - 12:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sobczak, la fin du carré 1 est quand le carré mesure 7 cm (le dernier rang est tricoté sur l'endroit). Pour le carré 2, vous montez à la fin de ce rang avec une nouvelle aiguille (et la même pelote) 11 mailles, tournez et tricotez ensemble la dernière de ces 11 mailles avec la maille suivante en attente du carré-1 à la fin de chaque rang sur l'envers. Bon tricot!

10.01.2020 - 13:21

country flag Susanne wrote:

Kann ich die Decke auch vergrößern? Danke für diese tolle Seite!

11.08.2019 - 10:45

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, wenn Sie die Decke vergrößern möchten, wiederholen Sie dann mehrmals die Quadraten mit 1 Stern (Breite) oder/und mit 2 Sternen (Länge) - die Garnmenge sollte dann angepasst. Viel Spaß beim stricken!

12.08.2019 - 08:18

country flag Lenka Vystavělová wrote:

Dobrý den, uvádíte, že jde o pletení "šikmým" entrelacem..deka ale není šikmá. je ze čtverců..jaký je prosím přesný návod? V ukázkách máte právě jen ten šikmý.. děkuji!

29.05.2019 - 15:44

DROPS Design answered:

Dobrý den, Lenko, nejde o "šikmý entrelac", de facto nejde ani o klasický "proplétaný" entrelac, jak je zúženě vnímán v čj - toto označení je zde kvůli shodným prvkům, tj. připlétání a změně směru pletení. Zkrátka je to jednodušší verze :-). Podrobný postup tvorby (připlétání) jednotlivých čtverečků je rozepsán v návodu a rozkreslen níže - sledujte, prosím, přerušované čáry (= místa, kde se připlétá, splétá) a šipky určující směr pletení. Příjemné proplétání! Hana

01.06.2019 - 17:07

country flag Katrine Vissing wrote:

Når jeg slutter rude 2 står der at jeg skal strikke de sidste 2 masker fra rude 1 sammen. Jeg har i forvejen 11 masker på rude 2, og hvis jeg strikker de 2 sidste fra rude 1 sammen, får jeg jo 12 masker. Hvordan gør jeg det når jeg skal slutte fra vrangen og kun skal have 11 masker på pinden?

13.09.2018 - 10:30

DROPS Design answered:

Hej Katrine, jo på sidste pind strikkes sidste maske fra forrige rude sammen med sidste maske (istedet for at gøre det fra retten som du har gjort hele tiden) God fornøjelse!

19.09.2018 - 14:17

country flag Katrine Vissing wrote:

Når jeg skal strikke rude 3 står der at jeg skal samle masker op på rude 1 på retsiden. Hvordan gør jeg det, når jeg er i den anden ende at rude 1, skal jeg bryde garnet?

12.09.2018 - 12:14

DROPS Design answered:

Hej Katrine, ja det er du nødt til når du skal strikke masker op fra retsiden. God fornøjelse!

12.09.2018 - 14:59

country flag Katrine Vissing wrote:

Når jeg slutter rude 2 står der at jeg skal strikke de sidste 2 masker fra rude 1 sammen. Jeg har i forvejen 11 masker på rude 2, og hvis jeg strikker de 2 sidste fra rude 1 sammen, får jeg jo 12 masker. Hvordan gør jeg det når jeg skal slutte fra vrangen og kun skal have 11 masker på pinden?

12.09.2018 - 12:10

country flag Heidi Masanneck wrote:

Hej Drops panel. Er det muligt når man samler masker op rude 3 på rude 1 at undgå at der kommer til at være en vrang side på tæppet? I såfald, hvordan skal jeg gøre dette?? Jeg håber meget på at i kan hjælpe mig Venligst Heidi Masanneck

25.07.2018 - 09:50

DROPS Design answered:

Hei Heidi. Det vil alltid bli en forside og en bakside på arbeidet, men siden dette teppet er strikket i riller vil det være mindre synlig her. God fornøyelse

15.08.2018 - 07:39