DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 25-18
DROPS Design: Mynstur nr u-063-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
150-150-200-200 (200-250) gr litur nr 01, natur
50-100-100-100 (100-100) gr litur nr 71, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 42 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 5-5-5-6 (6-6) stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
* 2 umf garðaprjón í litnum natur, 2 umf garðaprjón í litnum ljós beige, 2 umf garðaprjón í litnum natur *, endurtakið frá *-* (þ.e.a.s. þegar rendurnar eru endurteknar þá verða 4 umf garðaprjón með litnum natur á milli hverra umf í garðaprjóni með litnum ljós beige).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á öðru framstykkinu. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónað upp að öxl. Síðan er stykkið geymt og hitt framstykkið prjónað. Stykkin eru síðan sett á sama hringprjón og prjónað niður yfir bakstykkið.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 34-38-38-42 (42-46) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með litnum natur.
Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 9-11-9-11 (9-10) l jafnt yfir = 25-27-29-31 (33-36) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 14-17-18-20 (22-25) cm fitjið upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 5 l alls 3-5-0-0 (4-5) sinnum, 4 l alls 0-0-7-8 (5-7) sinnum og síðan 7-4-5-7 (8-4) l 1 sinni = 47-56-62-70 (81-93) l.
Eftir síðustu útaukningu er haldið áfram í garðaprjóni og rendur þar til stykkið mælist 20-24-26-28 (31-35) cm. Setjið nú fyrstu 4-5-6-6 (7-8) l frá byrjun umf frá réttu á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn, þá þarf ekki að klippa frá). Fellið af fyrir hálsmál í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 2 l 2 sinnum og 1 l 2-2-2-2 (3-3) sinnum = 37-45-50-58 (67-78) l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 24-28-30-33 (36-40) cm.
Setjið 1 prjónamerki (= miðja ofan á öxl) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT.
Haldið áfram í garðaprjón og rendur eins og áður þar til prjónað hefur verið 1 cm frá prjónamerki, en í síðustu umf frá röngu eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok umf við hálsmál. Setjið allar 39-47-52-60 (69-80) l á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. að stroffið byrjar á 2 l br eftir 1 kantlykkju í hlið og endar á 2 l sl á undan 1 kantlykkju við miðju að framan. Þegar fitjaðar eru upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá röngu, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá röngu og þegar fitjaðar eru upp 2 nýjar l við hálsmál er það gert í lok síðustu umf frá réttu, síðan er prjónuð 1 umf slétt frá röngu þannig að bæði framstykkin enda eftir 1 umf slétt frá röngu.

BAKSTYKKI:
Prjónið þær 39-47-52-60 (69-80) l frá vinstra framstykki (1. umf = slétt frá réttu og rendur halda áfram eins og áður), fitjið upp 14-16-18-18 (22-24) nýjar l á prjóni (= hálsmál aftan við hnakka) og prjónið inn 39-47-52-60 (69-80) l af hægra framstykki á sama hringprjón = 92-110-122-138 (160-184) l.
Haldið áfram í garðaprjón og rendur. Þegar stykkið mælist 8-8-8-9 (9-9) cm frá prjónamerki á öxl (passið uppá að fjöldi umf og rendur séu samhverfar með framstykki með viðmið við prjónamerki á öxl), fellið af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 7-4-5-7 (8-4) l 1 sinni, 4 l alls 0-0-7-8 (5-7) sinnum og 5 l alls 3-5-0-0 (4-5) sinnum = 48-52-56-60 (64-70) l eftir á bakstykki. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 20-24-26-29 (32-36) cm frá prjónamerki á öxl – stillið af eftir framstykki og passið uppá að rendurnar endi eins og þær byrja á framstykki. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og litinn natur og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-20-20 (20-22) l jafnt yfir = 68-72-76-80 (84-92) l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið á 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni (frá réttu verða 2 l sl í hvorri hlið innan við kantlykkju).
Haldið svona áfram með stroff.
Þegar stroffið mælist 4 cm (stykkið mælist ca 24-28-30-33 (36-40) cm frá prjónamerki á öxl, prjónið 1 umf slétt (frá réttu) yfir allar l áður en fellt er laust af.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp frá réttu, ca 42 til 74 l meðfram hægra framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjóna nr 3 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 53-61-65-73 (81-89) l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, endið á 2 l br og 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kanturinn að framan mælist 1 cm er fellt af í næstu umf frá réttu fyrir 4-4-4-5 (5-5) hnappagötum jafnt yfir. 1 hnappagat = prjónið 2 l br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (fallegast er að fella af í br einingu séð frá réttu). Efsta hnappagatið á að vera ca 4 cm frá kanti við hálsmál og neðsta hnappagatið ca 2 cm frá neðri kanti.
Prjónið síðan áfram þar til kanturinn að framan mælist 2½-2½-2½-3 (3-3) cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og hægri kantur að framan, ekki er fellt af fyrir hnappagötum.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu, ca 56 til 78 l (meðtaldar l af þræði)í kringum hálsmál (einnig yfir kant að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu.
Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 68-72-76-80 (88-92) l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið þar til 3 l eru eftir, endið á 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 1 cm fellið af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kanti að framan.
Prjónið síðan áfram þar til kantur í hálsmál mælist 2½-2½-2½-3 (3-3) cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

KANTUR Á ERMI:
Prjónið upp frá réttu, ca 34 til 38 l neðst niðri í kringum ermi á sokkaprjóna nr 3 með litnum natur. Prjónið 1 umf br. Prjónið 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið jafnt út til 40-40-40-44 (48-48) l. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar kantur á ermi mælist 4 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br.
Endurtakið á sama hátt neðan á hinni erminni.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Solvej Larsen wrote:

Jeg vil gerne strikke denne lille trøje i den mindste str.Jeg har noget garn som jeg gerne vil bruge som hedder Perfect og er 22m =10.cm på p. 3 *3 1/2.jeg skal være oldemor og er nød til at bruge noget af det garn jeg har. Håber i kan hjælpe mig ?\r\nOpskriften .hedder Little Darcy,

10.08.2021 - 23:30

country flag Birgitte wrote:

Jeg har svært ved at forstå, på Venstre forstykke skal der slåes nye masker op til ærme i slutningen af vrangpinden, samtidigt skal der lukkes af til hals i begyndelsen af vrangpinden, hvorfor er det anderledes end højre forstykke?...

15.06.2021 - 11:05

DROPS Design answered:

Hej Birgitte, det er lettere at tage ud i slutningen af pinden, derfor er du nødt til at tage ud fra vrangen på venstre forstykke (det der ligger til højre når det ligger foran dig) :)

16.06.2021 - 13:02

country flag Lotte wrote:

Hallo! Beim Rückenteil soll man zuletzt gleichmäßig verteilt Maschen aufnehmen. Wie macht man das, ohne Löcher zu produzieren? Bisher habe ich die Maschen in der gleichen Weise aufgenommen, wie für die Ärmel - aber das ist vermutlich einfach ein Umschlag... Leider habe ich kein Tutorialvideo finden können. Viele Grüße Lotte

08.06.2021 - 15:23

DROPS Design answered:

Liebe Lotte, Sie können mit 1 Umschlag zunehmen (bei der nächsten Reihe, den Umschlag verschränkt stricken, um ein Loch zu vermeiden) - siehe Video oder 2 Maschen aus einer Masche stricken - siehe Video - oder irgendeine andere Technik, die Sie bevorzugen. Viel Spaß beim stricken!

08.06.2021 - 16:28

country flag Nadia Gianferrari wrote:

Bonjour, J\'ai une question quant aux coloris ... Le coloris n° 71 est indiqué comme étant du \"beige clair\" dans les explications, mais quand je veux commander le n° 71 est du \" rose argenté\" !! J\'aimerais vraiment garder l\'harmonie de la veste de la photo. Laquelle des deux dois-je commander ? Merci de votre réponse.

03.12.2020 - 17:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gianferrari, il n'est pas rare que les couleurs soient renommées avec le temps, pour toute assistance au choix des couleurs, contactez votre magasin DROPS, c'est toujours la façon la plus simple de vous faire aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

04.12.2020 - 08:10

country flag Carola Norberg wrote:

Hej Vart är mitt på axeln? Där axeln går över till ärm? Mvh C

30.10.2020 - 08:32

DROPS Design answered:

Hej Carola, du sætter mærket for at du skal kunne måle bagstykket, så det bliver lige så lang som forstykket. God fornøjelse!

03.11.2020 - 15:41

country flag Carola Norberg wrote:

Hej Stickar den här koftan 3/4 år har lagt upp maskor till resår fram. Tycker att det ser väldigt litet ut. Har gjort provlapp så masktäthet stämmer. Min fråga är är det en liten storlek eller har jag gjort fel? Mvh C.

27.10.2020 - 13:27

DROPS Design answered:

Hej Carola. Det ska inte vara en liten storlek om jag ser på andra liknande modeller vi har i detta garn. Se på måttskissen längst ner för att dubbelkolla att du får de mått som vi har uppgett där. Mvh DROPS Design

28.10.2020 - 07:37

country flag Lajla Wolff wrote:

Jeg kunne godt savne en størrelse der hed 3-6 mdr. Skal til at strikke til mit oldebarn som er 3 mdr. enten er det for småt om 1 mdr. eller også svømmer hun i det, og det bliver lagt væk til hun kan passe det. Det er et gennemgående problem med mange opskrifter. Vh. Lajla

23.09.2020 - 13:15

country flag Kirsten Terndrup wrote:

Der må være en fejl i opskriften! Når venstre forstykke skal strikkes, skal det være spejlvendt. Fint nok. Men opskriften siger, at man skal lukke af til hals, når der slås nye masker op til ærme! På højre forstk. sættes m. på tråd, når arb. måler 28 cm.

28.06.2020 - 13:25

DROPS Design answered:

Hej Kirsten, nej du lukker af til hals samme sted som på højre forstykke og du slår nye masker op til ærme på samme sted som højre forstykke. (Men i modsat side) God fornøjelse!

30.06.2020 - 13:55

country flag Merli wrote:

Õpetuse järgi peaks nööpaugud olema paremal hõlmal ja nööbid vasakul hõlmal, aga pildi järgi on teistpidi. Kuidas siis õige peaks olema?

31.03.2020 - 16:20

DROPS Design answered:

Tere Merli! Meeste/poiste rõivastel on nööpaugud vasakul hõlmal, naiste/tüdrukute rõivastel on nööpaugud paremal hõlmal. Valige omale sobiv variant! Head kudumist!

31.03.2020 - 16:34

country flag Yvonne Samhammer wrote:

Hallo liebes Drops Team, ich möchte dieses und auch andere Baby Modelle nach arbeiten. Bei den Größen ist mir etwas unklar. Es heißt: Nr. 1 56/62 (1-3 Monate) Nr. 2 68/74 (6-9 Monate) Die Zwischengröße 63/68 (3-6 Monate) gibt es in sämtlichen Anleitungen nicht! Strick ich dann eher Nr. 1 oder Nr. 2 ?? Können sie mir helfen? Danke Yvonne

14.01.2019 - 21:22

DROPS Design answered:

Liebe Frau Samhammer, die Anleitung ist nur in diese Größe erhältlich - Sie finden alle Massen in der Maßskizze, je nach Kind können Sie dann die Massen einer ähnlichen Kleidung vergleichen um die richtige Grösse zu finden - siehe auch die Größe in cm - hier lesen Sie mehr über die Masse. Viel Spaß beim stricken!

15.01.2019 - 09:26