DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rose des Vents

Prjónuð ferhyrnd peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk með gatamynstri að aftan og blaðamynstri meðfram kanti að framan. Stærð S - XXXL

DROPS 150-11
DROPS Design: Mynstur nr me-063
Garnflokkur B + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL
ATH: Vegna þyngdar á garninu og gatamynstri að aftan verður peysan mjög teygjanleg og teygist því um ca 10-12 cm á lengd og breidd ef miðað er við mynsturteikningu það sem sýnd er mæling á stykkinu. Búið er að taka tillit til þessa eins og í t.d. lengd á ermum. Prjónaðu þá stærð sem þú velur alla jafna til þess að prjóna úr.

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
550-600-650 gr litur nr 05, ljós grár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-175gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l og 17 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – fyrir kant í garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá miðju að aftan í ferhyrning, prjónið síðan út að hvorri hlið fyrir framstykki. Að lokum eru ermarnar prjónaðar.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 8 l með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) og skiptið l yfir á 4 sokkaprjóna nr 6 (= 2 l á prjóni). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu l (= 4 prjónamerki).
Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1 fjórum sinnum eftir hverri annarri í umferð. Lykkjur með prjónamerki eru hornlykkjur, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað og umferð merkt með ör í mynstri, endar ferhyrningurinn í stærð S/M = 64 l meðfram hvorri hlið og alls 256 l á prjóni.
STÆRÐ L/XL + XXL/XXXL: Haldið svona áfram út eins og útskýrt er í A.1A (þ.e.a.s. að útaukning heldur áfram eins og áður í annarri hverri umf með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn í hverju horni og prjónað er br meðfram hverri hlið). Endið ferhyrninginn þegar 76-90 l eru meðfram hverri hlið og alls 304-360 l á prjóni.

ALLAR STÆRÐIR:
= 256-304-360 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l sl (= miðju-l í fyrsta horni), fellið af næstu 63-75-89 l (= öxl og hnakki við miðju að aftan), fellið af næstu 26-29-32 l fyrir handveg, prjónið 38-47-58 l br og 1 l sl (setjið síðan þessar 39-48-59 l á þráð (= vinstri hlið á framstykki), prjónið 63-75-89 l sl (= neðri kantur), prjónið 1 l sl, 38-47-58 l br og setjið síðan þessar 39-48-59 l á þræði (= hægri hlið á framstykki) og fellið síðan af síðustu 25-28-31 l í umf + fyrsta l í byrjun umf (= 26-29-32 l fyrir handveg). Klippið frá.
Setjið 63-75-89 l af neðri kanti á hringprjóna nr 5. Byrjið frá röngu og prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka áður en fellt er laust af með sl frá röngu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 26-29-32 l fyrir handveg á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir), setjið síðan 39-48-59 l af þræði frá vinstri hlið á framstykki á sama hringprjón = 65-77-91 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – héðan er nú mælt. Prjónið sléttprjón fram og til baka, en 2 síðustu l í lok umf frá réttu (= við neðri kant) eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 12-14-16 cm frá prjónamerki eru allar 65-77-91 l settar á þráð.

Leggið stykkið með röngu á móti röngu við opið fyrir handveg og saumið sauminn efst við handveg innan við 1 kantlykkju (saumið A við B eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 12-14-16 cm saumur) – punktur þar sem saumurinn endar inn við stykki = C.

VINSTRI KANTUR VIÐ HÁLSMÁL/KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ BLAÐAMYNSTRI + FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 20-23-27 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (= 5 l – byrjið frá 1. umf í mynstri merktri með ör, síðan er mynstureiningin endurtekin frá umf 2 til 23) og prjónið garðaprjón yfir 15-18-22 l sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka jafnframt sem aukið er út og lykkjum fækkað í A.2 eins og útskýr er í mynsturteikningu þar til stykkið mælist ca 11-13-16 cm (leggið kant að framan frá miðju að aftan efst á ferhyrninginn og fram að punkti C þar sem saumurinn endar efst við handveg, athugið mál á meðan stykkinu er haldið uppi og prjónið ef til vill lengra þar sem stykkið teygist aðeins). Setjið nú l af þræði frá vinstra framstykki inn á sama hringprjóna og kantur að framan frá réttu þannig: Prjónið A.2 eins og áður, prjónið 15-18-22 l sl eins og áður og prjónið síðan sléttprjón með 2 l garðaprjón í kanti að neðan yfir 65-77-91 l af þræði á vinstra framstykki. Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt.
Haldið áfram fram og til baka með A.2, garðaprjóni og sléttprjóni þar til vinstra framstykki mælist ca 36-42-52 cm frá prjónamerki – passið að það verða 10 umf í 1 mynstureiningu af A.2 og næsta umf sé frá röngu. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka, en A.2 heldur áfram yfir síðustu l í kanti að framan eins og áður. Þegar síðasta mynstureiningin með A.2 er lokið og prjónaðar hafa verið 10 umf garðaprjón (stykkið mælist ca 40-46-56 cm), fellið af mjög laust með sl frá röngu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið 39-48-59 l af þræði í hægri hlið við framstykki á hringprjóna nr 6, fitjið að auki upp 26-29-32 nýjar l í lok umf fyrir handveg = 65-77-91 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – héðan er nú mælt. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 þræði af hvorri tegund, en síðustu 2 l í frá byrjun umf frá réttu (= við neðri kant) eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 12-14-16 cm frá prjónamerki eru allar 65-77-91 l settar á þráð.
Leggið röngu á stykki við röngu við op fyrir handveg alveg eins og á vinstra framstykki og saumið sauminn efst við handveg innan við 1 kantlykkju (saumið A við B eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 12-14-16 cm saumur) – punktur þar sem saumurinn endar inn við stykki = D

HÆGRI KANTUR VIÐ HÁLSMÁL/KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ BLAÐAMYNSTRI + FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 20-23-27 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umf sl frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 15-18-22 l og A.3 yfir síðustu 5 l. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka jafnframt er aukið út og lykkjum fækkað í A.3 eins og útskýrt er í mynsturteikningu þar til stykkið mælist ca 11-13-16 cm (athugið mál alveg eins og gert var á vinstri kanti við hálsmál/kantur að framan og prjónið álíka langt eins á á vinstri kanti við hálsmál/kantur að framan). Setjið nú inn l af þræði frá hægra framstykki inn á saman hringprjón og kantur að framan frá réttu: Prjónið sléttprjón með 2 l garðaprjón í neðri kanti (þ.e.a.s. í byrjun umf frá réttu) yfir 65-77-91 l af þræði frá hægra framstykki, prjónið 15-18-22 l garðaprjón eins og áður og prjónið síðan A.3 eins og áður. Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt.
Haldið áfram fram og til baka með A.3, garðaprjón og sléttprjón fyrir hægra framstykki þar til stykkið mælist ca 36-42-52 cm frá prjónamerki – passið að það verði 10 umf í 1 mynstureiningu af A.3 og næsta umf frá réttu. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka, en A.3 heldur áfram yfir síðustu l í kanti að framan eins og áður. Þegar síðasta mynstureiningin með A.3 er lokið og prjónaðar hafa verið 10 umf garðaprjón (stykkið mælist ca 40-46-56 cm), fellið af mjög laust með sl frá röngu.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 30-34-36 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 6. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-7-9 cm, aukið út um 2 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu með 3-3-2 cm millibili, 11-11-13 sinnum til viðbótar (= alls 12-12-14 sinnum) = 54-58-64 l. Þegar stykkið mælist 44-42-39 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), prjónið fram og til baka og fækkið um 5 l í byrjun á 4 næstu umf fyrir ermakúpu. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 46-44-41 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið inn ermar við miðju að framan- og bakstykki innan við affellingarkantinn á hvorum handveg.
Saumið saman hálsmál/kant að framan við miðju að aftan (passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar kanturinn að framan er brotinn niður) og saumið hálskantinn við ferhyrninginn aftan við hnakka á milli punkta C og D.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.02.2014
Ný skýringarmynd A.1 (í umf 29 er slegið 2 sinnum uppá prjóninn í miðju og búið er að bæta við einu uppslætti á hvorri hlið).
Yfirfarið á vefsvæði: 31.03.2014
Ný skýringarmynd A.1 (röð 49.)
Yfirfarið á vefsvæði: 02.10.2020
Nýtt efnismagn - Kid-Silk: DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-175gr litur nr 01, natur

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá röngu, sl frá réttu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjnaður slétt
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l
symbols = fellið af 1 l
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðinn
symbols = prjónastefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Musolino wrote:

Bonjour je suis madame Rose je voudréer savoir comment je po faire un mateau similaire, in effet j'aime beaucoup la tricot et je suis tres interessé pour votre modelle. Pouvez vous me envoyer le exmple patron pour commencer? pour mail çi vous plaie . merci

08.10.2019 - 13:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rose, cliquez sur le menu déroulant sous la photo et sélectionnez "français" pour accéder aux explications de ce modèle en français et les imprimer gratuitement. Bon tricot!

08.10.2019 - 13:53

country flag Christine Erben wrote:

Wann kommt die neue anleitung für mod. 150-11? grüße christine

09.07.2015 - 16:59

country flag Christine Erben wrote:

Die anleitung für die vorderteile stimmen nicht, wann kommt eine neue anleitung? kid silk ist zuwenig (zusätzl. versandkosten!!) grüße christine

08.07.2015 - 19:35

DROPS Design answered:

Wo genau haben Sie bei den Vorderteilen einen Fehler entdeckt? Die Garnmenge von Kid-Silk ist wohl wirklich nicht richtig, ich werde es an die Designerinnen weiterleiten, damit das behoben wird.

29.07.2015 - 11:53

country flag Christine wrote:

Ik heb wol besteld voor dit patroon en kwam op voor de grootste maat aan 13 bollen van het een en 4 bollen van het ander... Nu tijdens het breien kom ik tot de conclusie dat ik eigenlijk nog waarschijnlijk een bol 8 van het een en 4 bollen van kids silk te kort heb... Kan dit??? Want ik heb het patroon gevolgt en mijn uiteindes heb ik echt geen meters wol overgelaten 😄

21.08.2014 - 10:04

DROPS Design answered:

Hoi Christine. Dus in totaal 21 bollen Merino en 8 bollen Kid-Silk? Wij zullen het patroon nakijken en zien of er een fout is gemaakt. Maken wij een correctie, dan kan jij het zien hier op het patroon online. Excuses voor het ongemak en veel breiplezier verder.

21.08.2014 - 15:50

country flag Christine wrote:

Als ik lijn 51 tel kom ik op 62 steken ( met meerderingen en minderingen ) en op lijn 52 heb ik ineens 58 steken waar ik niks moet minderen

24.03.2014 - 20:34

DROPS Design answered:

Hoi Christine. Je hebt gelijk, er mist tekens op de teltekening (Je moet samenbreien/1 st r afhalen enzovoort) voor en na de omslagen bij het motief. We maken zo snel mogelijk een nieuwe teltekening om te publiceren.

26.03.2014 - 16:45

country flag Christine wrote:

Op patroon a1 in lijn 50 staat 10 averecht dan 3 rechts na meerdere malen uitgetrokken te hebben kom ik steeds aan 11 averecht dan 3 rechts dan 13 averechts ipv 12 en dan 7rechts help??

24.03.2014 - 20:20

Chantal wrote:

Il semble y avoir un erreur dans le patron A1 rang 29 et 30. Le patron de la feuille ne se suit plus. Devrait-on enlever les augmentations de la feuille centrale (r29) afin d'éviter le décalage? Quelle est la solution?

31.12.2013 - 17:53

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, un nouveau diagramme A.1 a été publié, merci. Bon tricot!

03.01.2014 - 09:14

country flag Tami wrote:

Fantastic....Love it death!!! Cozy Cape!

05.07.2013 - 05:08

country flag Jeanette wrote:

Denne må jeg bare strikke. Hvor er den bare fin. Håber der snart kommer en opskrift :-)

01.07.2013 - 22:22

country flag Sevgi wrote:

Einfach wow echt klasse

28.06.2013 - 23:58