DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 149-45
DROPS Design: Mynstur nr ne-120
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L - XL/XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
550-600-650-700 gr litur nr 2923, skærgulur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

MÆLING:
Vegna þyngdar á garninu að halda stykkinu uppi þegar mælt er, annars verður stykkið of langt.

ÚRTAKA:
Prjónið 2 l slétt saman. Öll úrtaka er gerð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Til þess að kraginn falli fallega að þegar hann er brotinn niður, aukið út um 1 l í hverri einingu með sléttu í stroffi. Aukið út frá réttu þannig: * Prjónið 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l br *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf. Uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf og prjónað er stroff með 4 l sl, 3 l br.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 97-111-125-139 l á hringprjóna nr 5,5 með Nepal.
Prjónið 8-9-10-11 cm GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1A (= 13 l) 1 sinni, A.1B (= 14 l) 4-5-6-7 sinnum (= 56-70-84-98 l), A.1C (= 16 l) 1 sinni og 6 l garðaprjón = alls 97-111-125-139 l á prjóni. Þegar prjónuð hefur verið 1 mynstureining á hæðina (= 38 umf) og stykkið mælist 27-28-29-30 cm er haldið áfram með 5 cm garðaprjón yfir allar l – LESIÐ MÆLING! Prjónið nú sléttprjón með 6 l garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-40-44-47 cm eru sett 3 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, 21-25-28-32 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki hér, 21-25-28-32 sléttprjón, setjið 2. prjónamerki hér, 21-25-28-32 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki hér, 22-24-29-31 l sléttprjón, 6 l garðaprjón. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 6 l færri). Endurtakið úrtöku í 10. hverri umf 2-2-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-3 sinnum), í 6. hverri umf alls 2-2-2-2 sinnum, í 4. hverri umf alls 0-1-1-2 sinnum og í annarri hverri umf alls 1-1-2-2 sinnum (alls 36-42-48-54 l færri) = 61-69-77-85 l eftir á prjóni. Geymið stykkið. Stykkið mælist nú ca 55-60-65-70 cm.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma- saumið kant í kant yst í lykkjubogann frá kraga og niður en látið verða eftir ca 25 cm neðst niðri í hvorri hlið fyrir klauf.

KRAGI:
Setjið l frá fram- og bakstykki saman á hringprjóna nr 5 = 122-138-154-170 l. Stykkið mælist nú héðan! Prjónið 1 umf slétt og fækkið um 3 l jafnt yfir 12 l garðaprjón í hvorri hlið (= 6 l færri í umf og það eru 9 l garðaprjón í hvorri hlið), JAFNFRAMT í stærð S/M er aukið út um 2 l jafnt yfir í einingum í sléttprjóni á fram- og bakstykki (= alls 4 l fleiri) og í stærð XL/XXL-XXXL er fækkað um 2-4 l jafnt í einingum í sléttprjóni á fram- og bakstykki (= alls 4-8 l færri) – ATH: Lykkjum er ekki fækkað/aukið út í stærð L = 120-132-144-156 l eftir á prjóni.
Byrjið á undan 9 l garðaprjón í annarri hlið á stykki þannig: * Prjónið 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Haldið svona áfram með stroff, JAFNFRAMT þegar kraginn mælist 16 cm er aukið út um 1 l í hverri einingu í sléttprjóni – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Þegar kraginn mælist ca 22 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = kúla: Prjónið 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl í sömu l (= 5 l), snúið við. Prjónið 4 umf sléttprjón yfir þessar 5 l. Steypið 2. l af hægra prjóni yfir 1. l, steypið 3. l yfir 1. l, steypið 4. l yfir 1. l og að lokum steypið 5. l yfir 1. l (= 1 l eftir)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Maria Teresa wrote:

En el cuello: El aumento es 3 derecho una lazada 2 revés? En el Tip habla de “ tejer el resorte con 4d, 3r.” Gracias por su ayuda

14.08.2020 - 01:22

DROPS Design answered:

Hola Maria Teresa. Es una errata de traducción El elástico correcto es 3 d. /3 r., y después de hacer la lazada se convierte en 4d, 3r, como se menciona en los TIPS explicados arriba. Gracias.

16.08.2020 - 14:14

country flag Star wrote:

Hi, could you please tell me how I can knit the triangle and 12 rows pattern? Many thanks in advance.

16.09.2019 - 16:33

DROPS Design answered:

Dear Star, not sure what you mean with 12 rows pattern; the triangle pattern (A.1A, B, C) is worked over 38 rows as shown in diagram. Happy knitting!

17.09.2019 - 10:31

country flag Anke wrote:

Dag, een erg leuke poncho. Ik zou hem echter met rechte breinaalden willen breien, heb geen ervaring met een rondbreinaald. Is dat mogelijk? Hartelijk dank. Groet, Anke

05.09.2019 - 19:48

DROPS Design answered:

Dag Anke,

Je zou het patroon dan in 2-en kunnen splitsen en achteraf bij de zijnaden in elkaar naaien. Dus je zet dan de helft van de steken op, maar wel 2 kantsteken extra aan beide kanten. Let wel even op hoe dit uitkomt met de boordsteek bij de hals, zodat de boord mooi doorloopt als je hem in elkaar naait.

08.09.2019 - 13:21

country flag Andrée Marin wrote:

Encore moi. je fais le modèle de 111 mailles. je suis rendue au patron - 6 m. au point mousse, POINT FANTAISIE en suivant 1 fois le diagramme A.1A = (13 m.) 5 fois = 65 m., = 71 et non 70 m. comme indiqué dans le patron. C'est quoi que je ne comprend pas.

13.07.2019 - 17:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marin, vous tricotez les 11 mailles ainsi: 6 m point mousse, les 13 m A.1A, vous répétez 5 x les 14 m de A.1B, tricotez 1 x les 16 m de A.1C et terminez par 6 m point mousse = 6 + 13 + 5x14 + 16 + 6 = 111 mailles. Bon tricot!

15.07.2019 - 09:40

country flag Andrée Marin wrote:

Il est mentionné après un rapport en hauteur (=38 rangs) continuer au point mousse sur toutes les mailles pendant 5 cm. Mais le diagramme n'est pas terminé c'est seulement la moitié du modèle. C'est quoi que je ne comprend pas. Je pense que nous devons faire le diagramme au complet. Merci pour votre attention à mon problème

13.07.2019 - 04:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marin, les diagrammes se tricotent sur 38 rangs (1 rang du diagramme = 1 rang à tricoter, c'est-à-dire que tous les rangs figurent dans le diagramme, ceux sur l'endroit et ceux sur l'envers), quand ces 38 rangs sont terminés, vous tricotez au point mousse pendant 5 cm. Bon tricot!

15.07.2019 - 09:03

country flag Aurora Pascariu wrote:

Bello! lo sto facendo e mi piace tanto.Il mio è turchese.

11.10.2018 - 02:58

country flag M. Stokyte wrote:

Hallo! Ich verstehe nicht, wie der Kragen gestrickt werden muss. Wird der Kragen in Runden oder hin und zurück gestrickt? Wie ist das mit den 12 M und 9M zu verstehen? Ist die Ab- und Zuname der M gleichzeitig? Wo beginne ich das Muster zu stricken? M. Stokyte

26.12.2017 - 19:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stokyte, der Kragen wird in Runden gestrickt. Bei der 1. Reihen nehmen Sie 3 M über die 12 Maschen kraus rechts auf beiden Seiten ab (= 6 M werden insgesammt abgenommen), es sind jetzt nur noch 9 Maschen kraus rechts. Gleichzeitig in der 1. Grösse nehmen Sie 2 M (Vorder- + Rückenteil = 4 neuen Maschen) ab und bei den 2 letzten Größe nehmen Sie 2-4 Maschen zu (= Vorder- + Rückenteil = insgesamt 4-8 Maschen weniger). Viel Spaß beim stricken!

02.01.2018 - 08:36

country flag Maple F wrote:

I don't understand this poncho pattern. Front piece.decrease part. The pattern say, repeat Dec every 10 row. Is this mean, knit 10 row, then decrease ??? And 6 row and other row. Please help....I don't get it...

09.01.2016 - 17:19

DROPS Design answered:

Dear Maple, see answer below.

11.01.2016 - 09:50

country flag Maple F wrote:

I am knitting saffron poncho, I am knitting small side. I don't understand the front piece. I stop at, "Repeat Dec every 10th row 2 more times ,means 3 time in total, every 6th row 2 times in total, every 4th row 0 times in total, and every other row 1 times in total 36 sts Dec in total = 61 sts remain on needle. I don't understand??? What do the pattern mean ???

09.01.2016 - 17:14

DROPS Design answered:

Dear Maple, in first size you have 97 sts and dec a total of 6 sts every dec row, dec are done: 3 times every 10 rows (*1 dec row, 9 rows without dec*, repeat a total of 3 times), then 2 times every 6 row (= *1 dec row, 5 rows without dec* repeat 2 times), and so on. Happy knitting!

11.01.2016 - 09:50

country flag Monica wrote:

Buonasera, sto provando a realizzare la parte davanti del modello. Mi trovo ad aver terminato il diagramma, ma il mio lavoro invece di misurare 28 cm ne misura circa 22.5, posso aggiungere qualche cm di maglia legaccio ai 5 successivi (per una taglia L)per stare in linea con le istruzioni o altrimenti come potrei fare? Grazie.

09.10.2014 - 16:06

DROPS Design answered:

Buonasera Monica. Sì, può proseguire come meglio preferisce, può p.es lavorare la parte a legaccio sopra il motivo della stessa altezza di quella sotto il motivo e proseguire poi a maglia rasata fino a quando il lavoro misurerà 40 cm . Si ricordi di misurare il lavoro appeso e non steso in piano. Buon lavoro!

09.10.2014 - 23:01