DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 149-42
DROPS Design: Mynstur nr de-102
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
500-500-600 gr litur nr 02, plómu/beige/fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 4 – eða sú stærð sem þarf til að 21 l og 40 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
1 heil sólfjöður mælist ca 18 cm á breiddina og 15 cm á hæðina.
DROPS 2 stk SOKKAPRJÓNAR + HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir lista með garðaprjóni í hálsmáli.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 1 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR:
Ef óskað er eftir stærri/minni stærð eða styttri/lengri er hægt að stilla af með því að prjóna fleiri/færri sólfjaðrir á breiddina og færri/fleiri umf á hæðina, en passið uppá að staðsetning á sólfjöðrum geta haft áhrif á hálsmál.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan samanstendur af mörgum „sólfjöðrum“ sem eru prjónaðar saman jafnóðum. Byrjað er neðst niðri á framstykki í þeirri röð sem sólfjaðrirnar eru númeraðar – sjá A.1 (veldu mynstur fyrir þína stærð). Nýjar lykkjur eru alltaf prjónaðar upp frá réttu.

FRAMSTYKKI:

SÓLFJÖÐUR 1A:
Fitjið upp 61 l á hringprjóna nr 4 með Delight og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3 : Prjónið 2 l slétt saman, 9 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 49 l.
UMFERÐ 4-7: Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l/uppsláttur.
UMFERÐ 9-10: Prjónið slétt.
UMFERÐ 11: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 37 l.
UMFERÐ 12-15: Prjónið slétt.
UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 37 l/uppsláttur.
UMFERÐ 17-18: Prjónið slétt.
UMFERÐ 19: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 29 l.
UMFERÐ 20-26: Prjónið slétt.
UMFERÐ 27: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 21 l.
UMFERÐ 28-29: Prjónið slétt.
UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman * , endurtakið frá *-* út umf = 21 l/uppsláttur.
UMFERÐ 31-34: Prjónið slétt.
UMFERÐ 35: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl, 2 l slétt saman = 17 l.
UMFERÐ 36-42: Prjónið slétt.
UMFERÐ 43: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 13 l.
UMFERÐ 44-48: Prjónið slétt.
UMFERÐ 49: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 9 l.
UMFERÐ 50-54: Prjónið slétt.
UMFERÐ 55: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l slétt saman = 5 l.
UMFERÐ 56-58: Prjónið slétt.
UMFERÐ 59: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl = 3 l.
UMFERÐ 60: Prjónið slétt.
UMFERÐ 61: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl. Klippið frá, dragið þráðin í gegnum l og festið.

Prjónið SÓLFJÖÐUR 2A, 3A og 4A o.s. frv. Í 1. röð

1. röð með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

SÓLFJÖÐUR 1B:
Prjónið upp 30 l meðfram vinstrikanti á SÓLFJÖÐUR 1A (séð frá réttu) – þ.e.a.s. prjónið upp 1 l í hverja rönd með garðaprjóni og ca 1 l í hvern hálfhring og prjónið síðan upp 31 l meðfram hægrikanti á SÓLFJÖÐUR 2A (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið síðan eins og SÓLFJÖÐUR 1A, nema frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið með sl frá röngu).

Prjónið SÓLFJÖÐUR 2B, 3B o.s.frv í röð 2 alveg eins.

HÁLF SÓLFJÖÐUR VINSTRA MEGIN VIÐ STYKKIÐ (séð frá réttu þegar stykkið liggur flatt) – SÓLFJÖÐUR 1C:
Prjónið upp 31 l meðfram vinstri kanti (séð frá réttu) á síðustu sólfjöður í fyrstu umf.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 l slétt saman, 9 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 25 l.
UMFERÐ 3-6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l/uppsláttur.
UMFERÐ 8-9: Prjónið slétt.
UMFERÐ 10: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 19 l.
UMFERÐ 11-14: Prjónið slétt.
UMFERÐ 15 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 19 l/uppsláttur.
UMFERÐ 16-17: Prjónið slétt.
UMFERÐ 18: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 15 l.
UMFERÐ 19-25: Prjónið slétt.
UMFERÐ 26: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 11 l.
UMFERÐ 27-28: Prjónið slétt.
UMFERÐ 29 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 11 l/uppsláttur.
UMFERÐ 30-33: Prjónið slétt.
UMFERÐ 34: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 9 l.
UMFERÐ 35-41: Prjónið slétt.
UMFERÐ 42: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 7 l.
UMFERÐ 43-47: Prjónið slétt.
UMFERÐ 48: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 5 l.
UMFERÐ 49-53: Prjónið slétt.
UMFERÐ 54: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 3 l.
UMFERÐ 55-59: Prjónið slétt.
UMFERÐ 60: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum l og festið.

HÁLF SÓLFJÖÐUR HÆGRA MEGIN VIÐ STYKKIÐ (séð frá réttu þegar stykkið liggur flatt) – SÓLFJÖÐUR 2C:
Prjónið upp 31 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1A (séð frá réttu). Prjónið síðan eins og SÓLFJÖÐUR 1C, nema spegilmynd (þ.e.a.s. í 2.- 10.- 18.- 26.- 34.- 42.- 48.- 54. og 60. umf er lesið aftur á bak, en byrjið á 2 l slétt saman og endið á að taka 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir – Til dæmis er 2. umf prjónuðu þannig: Prjónið 2 l slétt saman, * 6 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 9 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 25 l.

2. röð með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

SÓLFJÖÐUR 1D:
Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti á SÓLFJÖÐUR 2C (séð frá réttu) – þ.e.a.s. prjónið upp 1 l í hverja rönd með garðaprjóni og ca 1 l í hvern hálf hring, prjónið upp 1 l í hornið efst á SÓLFJÖÐUR 1A og prjónið síðan upp 31 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1B (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið nú síðan upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1B (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1A, nema frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið á sl frá röngu).

Prjónið SÓLFJÖÐUR 2D, 3D, 4D o.s.frv. alveg eins.

3. röð með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

Haldið áfram með SÓLFJÖÐUR 1E, 2E, 3E o.s.frv. alveg eins.

SÓLFJÖÐUR 1F:
Prjónið eins og SÓLFJÖÐUR 1C, nema prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti á síðustu sólfjöður í 3. röð, að auki er prjónuð upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1C = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1C.

SÓLFJÖÐUR 2F:
Prjónið upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 2C, prjónið síðan upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1D (séð frá réttu) = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 2C.

4. röð með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

Haldið áfram með SÓLFJÖÐUR 1G, 2G, 3G o.s.frv. eins og áður.

5. röð með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

Í næstu röð (= 6. Röð) er gerð klauf við miðju að framan, þ.e.a.s. að prjónaðar eru 2 hálfar sólfjaðrir í stað þess að prjóna 1 heila sólfjöður. Prjónið SÓLFJÖÐUR 1H, 2H o.s.frv., alveg eins og SÓLFJÖÐUR 1D með staðsetningu eins og útskýrt er í A.1, prjónið nú HÁLF SÓLFJÖÐUR 1I alveg eins og 1F bæði á vinstri hlið á stykki og á hægra megin við klauf við miðju að framan. HÁLF SÓLFJÖÐUR 2I er prjónuð í hægri hlið á stykki og vinstra megin við klauf við miðju að framan.

6. röð með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

Í 7. röð með sólfjöðrum eru sólfjaðrirnar prjónaðar eins og í 3. röð.

Prjónið að lokum aflíðandi kant með hálfhringjum sem jafna út línuna efst þannig:

HÁLFUR HRINGUR Á MILLI SÓLFJAÐRA (SÓLFJÖÐUR 1K, 2K o.s.frv):
Prjónið upp frá réttu, 61 l meðfram kanti á milli 2 sólfjaðra – þ.e.a.s. prjónið upp 1 l í hverja rönd og prjónið ca 1 l í hverja gata umferð + 1 l mitt á milli tveggja sólfjaðra í hornið efst á sólfjöður frá fyrri röð.

Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjóni slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt.
UMFERÐ 4: * Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 49 l.
UMFERÐ 5: Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l/uppsláttur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l/uppsláttur.
UMFERÐ 8-14: Prjónið slétt.
UMFERÐ 15 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l/uppsláttur.
UMFERÐ 16-17: Prjónið slétt.
UMFERÐ 18: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 25 l.
UMFERÐ 19-25: Prjónið slétt.
UMFERÐ 26: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 13 l.
UMFERÐ 27: Prjónið slétt.
UMFERÐ 28: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 7 l.
UMFERÐ 29: Prjónið slétt.
UMFERÐ 30: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 4 l.
UMFERÐ 27: Prjónið slétt.
UMFERÐ 32: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 3 l slétt saman og steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum l og festið.

FJÓRÐUNGUR ÚR HRING YST Á VINSTRI HLIÐ Á STYKKI – SÓLFJÖÐUR 1L:
Prjónið upp 30 l meðfram vinstra kanti (séð frá réttu) á síðustu sólfjöður í 7. röð, að auki er prjónuð upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1I = 31 l á prjóni. Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt.
UMFERÐ 4: * Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 25 l.
UMFERÐ 5: Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l/uppsláttur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l/uppsláttur.
UMFERÐ 8-14: Prjónið slétt.
UMFERÐ 15: (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l/uppsláttur.
UMFERÐ 16-17: Prjónið slétt.
UMFERÐ 18: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 13 l.
UMFERÐ 19-25: Prjónið slétt.
UMFERÐ 26: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 7 l.
UMFERÐ 27-29: Prjónið slétt.
UMFERÐ 30: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 4 l.
UMFERÐ 31: Prjónið slétt.
UMFERÐ 32: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 3 l slétt saman og steypið óprjónuðu l yfir = 1 l.
Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum l og festið.

FJÓRÐUNGUR ÚR HRING YST MEÐFRAM HÆGRI HLIÐ Á STYKKI – SÓLFJÖÐUR 2L:
Prjónið upp 1 l í horni efst uppi meðfram SÓLFJÖÐUR 2I, prjónið síðan upp 30 l meðfram hægri kanti á fyrstu sólfjöður í 7. röð = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1L.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki, en ekki er gert ráð fyrir klauf og hálsmál við miðju að aftan. Þ.e.a.s. að í 6. röð er prjónuð 1 heil sólfjöður við miðju að aftan í stað 2 hálfar og í 8. röð er prjónaður einn hálfhringur fyrir miðju að aftan þannig að kanturinn að ofan verði sléttur.

ERMI:
Stykkið er prjónað frá miðju undir ermi og í kringum ermi (sjá prjónastefnu á teikningu).
Fitjið upp 32-36-26 l (meðtalin 1 kantlykkja á hlið) á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 30-32-34 cm, fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið undirerma– og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

GARÐAPRJÓN Í KLAUF AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 4 l á 1 sokkaprjón nr 3 með Delight. Prjónið 1 umf slétt (= ranga), snúið við. Byrjið neðst niðri á vinstri klauf (þar sem farið er í stykkið), takið upp síðustu l með garðaprjóni í klauf (með hægri prjóni), prjónið fyrstu l á vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið sl út umf, snúið við, prjónið sl frá röngu til baka yfir 4 l, snúið við, * takið upp síðustu l með garðaprjóni í næstu rönd með garðaprjóni (með hægri prjóni), prjónið fyrstu l á vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið sl út umf, snúið við, prjónið sl frá röngu til baka yfir 4 l, snúið við, endurtakið þessar 2 umf frá *-* þar til prjónaðar hafa verið upp 1 l í ca hverri l með garðaprjóni meðfram allri klaufinni, fellið síðan af. Endurtakið meðfram hægri klauf, en byrjið efst uppi frá réttu.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 100 til 110 l í kringum hálsinn (jafnvel yfir kantlykkjur með garðaprjóni í klauf að framan) á hringprjóna nr 3 með Delight. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fellt af fyrir 1 hnappagati á hægri hlið þannig: Prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið 2 umf slétt og fellið síðan af með sl frá röngu.

Mynstur

symbols = prjónastefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Rainbow Scallop (DK ver.)

Nyte, United States

149-42 Scallop

Nyte, Denmark

Scallop

Katarzyna, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (78)

country flag Uschi wrote:

Die Anleitung von dem Fächer Davon die Beschreibung ab der 3. Reihe= 2 rechts zusammen, 9 r, Das mein ich. Ich denke, dass dort nur 3 r gemeint ist wie auch am Ende der Beschreibung dieser dritten Reihe

15.01.2024 - 16:53

Uschi answered:

Entschuldigung, ich nehme alles zurück 🙈 Es stimmt alles

15.01.2024 - 17:21

country flag Uschi wrote:

Der Fächer 1 a 3. Reihe Kann es sein, daß gleich am Anfang *nicht* 9 R maschen gestrickt werden sollen, sondern nur 3? Pass sonst nicht am Schluss. Liebe Grüße

15.01.2024 - 14:49

DROPS Design answered:

Liebe Uschi, ich misvertehe leider Ihre Frage, bei der 3. Reihe ist keinen Fächer 1.A sondern 1.D , der wird wie den Fächer 1.A gestrickt (die Maschen werden schon aufgefassen, mit der 2. Reihe anfangen). Viel Spaß beim stricken!

15.01.2024 - 16:26

country flag Newlyn wrote:

I would love to knit this pattern but cannot find where I can buy this yarn or an alternative. Has it been discontinued ? If so why are you still showing patterns for this yarn?

01.12.2023 - 11:43

DROPS Design answered:

Dear Newlyn, correct, this yarn is now discontinued, but since different yarns have different qualities and textures we have chosen to keep the original yarn in our patterns. However, you can easily find options among our available qualities by using our yarn converter, or simply pick a yarn from the same yarn group. It is possible that some retailers still have discontinued yarns in stock, or that someone has a few skeins at home that they would like to find patterns for. The yarn converter will provide both alternative yarn as well as required amount in the new quality. Happy knitting!

01.12.2023 - 15:34

country flag Ula wrote:

Dziekuje. Eureka! ;) To chyba klucz do bledu ktory robilam. Dziekuje!

21.10.2021 - 16:55

DROPS Design answered:

Super!! Projekt jest ambitny, już nie możemy się doczekać, aby go zobaczyć. Pozdrawiamy!

21.10.2021 - 17:17

country flag Ula wrote:

Dzień dobry. Niestety podazajac za opisem sie nie zgadza. Prosze podazyc za opisem. Wykonujac wszystkie czynnosci zgodnie z opisem po 6 oczkach pod koniec rzedu zostaja 2 o wiec nie mozna zrobic przelozenia. Prosze sprawdzic opis 2go rzedu. Nie moge kontynuowac wiec prosze o pomoc

21.10.2021 - 12:45

DROPS Design answered:

Ulu, ten ostatni fragment czyli 'zdjąć 1 o. jak do przerobienia na prawo, 1 o.p., przełożyć oczko zdjęte nad przerobionym oczkiem' wykonujesz na 2 oczkach NASTĘPUJĄCO. Mam nadzieję, że pomogłam. Powodzenia!

21.10.2021 - 14:41

country flag Ula wrote:

Dzien dobry. W rzedzie 2 gim wachlarza 1C jest blad. Otoz po przerobieniu zgodnie z zaleceniami 2 razem na prawo,9o.pr, przelozenie,6o.pr,przelozenie: zostaje 8 na lewym drucie wiec gdyby mialo byc zgodnie z opisem to brakuje 1 o zeby zrobic przelozenie. Prosze o pomoc. Pozdrawiam cieplo

19.10.2021 - 23:56

DROPS Design answered:

Witaj Ulu, sekwencję: zdjąć 1 o. jak do przerobienia na prawo, 2 o. razem na prawo, przełożyć oczko zdjęte nad przerobionym oczkiem wykonujesz NASTĘPUJĄCO. Z 3 oczek zostaje jedno (a zamknęłaś 2). Na wachlarz 1C nabrałaś 31 oczek. Po wykonaniu rzędu 2 zostanie ich 25. Wszystko się zgadza. Pozdrawiamy!

21.10.2021 - 10:25

country flag Katarzyna wrote:

Ile włóczki drops delight potrzebuję, jeżeli chcę z niej zrobić tylko korpus swetra, a rękawy i wykończenia z innej ? Pozdrawiam

08.04.2020 - 15:30

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu! Potrzebujesz 450-450-550 g włóczki Delight (zależy od tego jaki rozmiar wykonujesz). Pozdrawiamy

12.04.2020 - 16:37

country flag DERAS Marie-Danièle wrote:

Bonjour je viens de commencer ce magnifique modèle, , mon premier éventail 1 A est terminé, mais je ne vois aucune explication pour faire l ' éventail 2 A en le racordant a l 'éventail 1 A et comment faire pout les éventails situé juste au dessus marci de ce que vous pourrez me dire bonne journée marie danièle deras entail 2A

28.04.2019 - 15:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Deras, quand l'éventail 1A est terminé, on coupe le fil, on tricote ensuite les éventails 2A, 3A etc de la même façon (= séparément) puis on va tricoter le 2ème rang d'éventails en relevant cette fois les mailles le long des éventails du rang précédent = pour le 1B: 30 m le long du 1A, et 31 m le long du 2A - cf schéma en bas de page pour l'ordre des éventails. Bon tricot!

29.04.2019 - 10:23

country flag Ingrid Van Den Bosch wrote:

Bonjour, existe-t-il un diagramme des différents éventails, car je ne réussis pas avec les explications écrites ? Merci

13.01.2019 - 14:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Van Den Bosch, il n'y a pas de diagramme pour ce motif, suivez bien les explications pas à pas, rang après rang. Bon tricot!

14.01.2019 - 11:33

Ekaterina wrote:

Hello! When I saw this pattern, I immediately thought it almost ideal for my mother. But I found the measurements for the piece confusing: Bust: 152-152-216 cm / 59¾”-59¾”-85” Is the second measurement right? Could you, please, help me to choose size for 184 cm?

12.01.2017 - 12:38

DROPS Design answered:

Dear Ekaterina, you will find all measurements for each size in measurement chart at the bottom of the page, taken flat from side to side, in cm. Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more about sizing here. Happy knitting!

12.01.2017 - 17:05