DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Nordic Urban

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Big Fabel eða 2 þráðum DROPS Fabel með mynstruðu berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 140-11
DROPS Design: Mynstur nr bf-007
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG FABEL frá Garnstudio
700-700-800-900-1000-1100 gr litur nr 400, svartur
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 100, natur
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 200, grár
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 905, svartur/natur

Eða notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio
500-500-600-700-750-800 gr litur nr 400, svartur
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 100, natur
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 200, grár
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 905, svartur & hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði Big-Fabel eða 2 þráðum Fabel.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni og öll úrtaka í mynstri er prjónuð með litnum svartur.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram-og bakstykki):
Byrjið á 2 l á undan prjónamerki og fækkið lykkjum þannig: Prjónið 2 l sl saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 198-216-234-258-282-306 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði Big-Fabel eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 8 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 38-42-46-50-58-62 l jafnt yfir = 160-174-188-208-224-244 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 80-87-94-104-112-122 l á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili, 5-5-5-6-6-6 sinnum til viðbótar = 136-150-164-180-196-216 l. Þegar stykkið mælist 34 cm er aukið út um 1 hvoru megin við bæði prjónamerkin (4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-5-5-6-6 cm millibili, 2 sinnum til viðbótar = 148-162-176-192-208-228 l. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, fellið af 8-8-10-10-12-12 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 66-73-78-86-92-102 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 42-42-48-48-54-54 l á sokkaprjóna nr 4,5 með 1 þræði Big-Fabel eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-10-10-12-12 l jafnt yfir = 36-36-38-38-42-42 l. Prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 8-8-7-8-8-9 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2½-2½-2 cm millibili, 8-10-11-12-12-14 sinnum til viðbótar = 54-58-62-64-68-72 l. Þegar stykkið mælist 42-42-42-41-41-41 cm fellið af 8-8-10-10-12-12 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 46-50-52-54-56-60 l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 224-246-260-280-296-324 l. Prjónið 1-1-1-2-4-6 umf slétt með svartur JAFNFRAMT er fækkað um 8-6-8-4-8-12 l jafnt yfir í 1. umf = 216-240-252-276-288-312 l. Nú er mynstur prjónað eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað (endið við ör í þinni stærð), eru 108-120-105-115-120-130 l eftir á prjóni. Í stærð S og M er nú prjónuð 1 umf slétt með svartur JAFNFRAMT er fækkað um 18-20 l jafnt yfir (ekki er prjónað/lykkjum fækkað í öðrum stærðum) = 90-100-105-115-120-130 l. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Nú er prjónuð upphækkun að aftan við hnakka (með svartur og sléttprjóni) þannig: Byrjið við miðju að aftan og prjónið þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerki við miðju að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 27-30-32-32-33-35 l á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 27-30-32-32-33-35 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 39-45-49-49-51-55 l á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 39-45-49-49-51-55 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið til baka við miðju að aftan. Prjónið 1 umf slétt, hringinn yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 6-16-15-25-24-34 l jafnt yfir = 84-84-90-90-96-96 l.

KRAGI:
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 3 l sl, 3 l br). Þegar kraginn mælist 20-20-20-22-22-22 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = litur svartur
symbols = litur natur
symbols = litur grár
symbols = litur svartur/natur
symbols = 2 lykkjur slétt saman með litnum svartur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Britt-Inger wrote:

Jag undrar vad jag skall göra då det står "strama tråden"?

09.01.2024 - 09:45

DROPS Design answered:

Du ska dra lätt i tråden så att maskan inte blir för lös där du har vänt arbetet.

09.01.2024 - 17:23

country flag Maj wrote:

Jeg vil gerne strikke denne som en rigtig tyk og fed "islandsk" trøje til brug som overtøj. Er det bedste garnalternativ til dette Alaska?

28.09.2020 - 11:11

DROPS Design answered:

Hej Maj. Både DROPS Alaska(100%ull) og DROPS Nepal(65% Ull, 35% Alpakka) er 2 gode alternativer. God Fornøyelse!

28.09.2020 - 17:05

country flag Myriam wrote:

Bonjour, je suis d’un niveau intermédiaire existe-t-il une vidéo pas à pas de ce modèle ou d’un autre qui m’aiderait à réaliser ce modèle ou un autre car juste avec les explications je suis perdue et frustrée car je ne peux ni acheter de la laine ni réaliser tous ces beaux modèles que vous présentez. Merci par avance et belle journée.

11.04.2020 - 10:39

DROPS Design answered:

Bonjour Myriam, vous trouverez ici des vidéos relatives à ce modèle et en bas de page, une liste de leçons susceptibles de vous aider. Vous trouverez ici la liste des magasins DROPS où vous procurer la laine nécessaire. Bon tricot!

14.04.2020 - 14:46

country flag Ethel Weinberg wrote:

I have found the sweater pattern but not the pattern for the yolk with colors. Where is it? Thanks

13.01.2018 - 22:18

DROPS Design answered:

Dear Ethel,you can find the schematics and the diagram with the color key at the bottom of the page, below the written pattern. If it is for some technical reason not available in your language, please check the English or the Norvegian version. Happy Knitting!

13.01.2018 - 23:30

country flag Anna Marie Strømman wrote:

Hei. Finnes denne modellen i andre farger. Ønsker natur som bunn farge, med brunfarger.. Kategori : genser , modell 140-11 Mvh Anna Marie Strømman

28.02.2014 - 10:55

DROPS Design answered:

Hej Anna. Nej, vi viser kun denne farvevariation, men du kan finde en alternativ farve paa Big Fabel farvekortet eller erstat Big Fabel med Alaska eller Nepal for mere variation.

28.02.2014 - 14:19

country flag Birthe Johannesen wrote:

Hej jeg vil gerne spørge om der en fejl i mønsten ??? jeg kan ikke får det til at passe ved første indtagning!!

06.02.2014 - 14:49

DROPS Design answered:

Hej Birthe. Hvilken str strikker du?

06.02.2014 - 16:47

country flag Hannah Rørbye wrote:

Hej, findes denne opskrift som trøje, altså med knaplukning foran? Mvh Hannah

13.01.2014 - 14:51

DROPS Design answered:

Hej Hannah. Desvaerre har vi ikke denne model med knapper. Du kan evt selv pröve at tilpasse mönstret og strikke frem og tilbage fra midtfor.

14.01.2014 - 14:57

country flag Evi Viigipuu wrote:

Mustri öpetus antud 2 värviga ?! Kuid mina näen seal 4 värvi?? Kuidas ma siis kuduma pean !! ja veel lisaks et väga raskesti seletatvad öpetused kui ma poleks vana kuduja siis ei saaks kyll möhkugi aru !

23.12.2013 - 15:21

country flag Päivi wrote:

Very good modell och garn - läckert!

04.10.2013 - 17:44

country flag Marina Martens wrote:

Is het mogelijk om dit patroon te krijgen.

01.10.2012 - 14:45

DROPS Design answered:

Ja, je kan het gratis printen door op "Afdrukken: patroon" te drukken of bestel het boek 140 bij één van onze verkooppunten.

02.10.2012 - 16:10