DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-836
DROPS Design: Mynstur nr u-654
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS - S – M - L

Mál:
Yfirvídd: ca 28/32-40/44-50/54-60/66 cm
Lengd á bakstykki: ca 24/26-32/34-40/42-48/52 cm
Fyrir hundategundir: XS = Chihuahua,
S = Bichon Frisé, M = Cocker Spaniel, L = Irsk Setter.

Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
50-100-150-200 gr litur nr 55, ljós brúnn
50-50-100-100 gr litur nr 01, natur
50-50-50-100 g litur nr 56, dökk brúnn

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón frá hálsmáli og niður. Minnstu stærðirnar eru prjónaðar á sokkaprjónar en aðrar stærðir eru prjónaðar á hringprjóna.

PEYSA FYRIR HUND:
Fitjið upp 52-76-100-124 lykkjur á sokkaprjóna / hringprjóna nr 3 með litnum ljós brúnn. Prjónið stroffprjón 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 6-8-10-12 cm (hálsmál). Skiptið yfir á sokkaprjóna / hringprjóna nr 3,5 - HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 60-84-108-132 lykkjur.

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!

Prjónið mynstur þannig:
Stærð XS: A-1, A-2 og A-4.
Stærð S: A-1, A-2, A-3 og A-4.
Stærð M: A-1, A-2, A-3, A-2 og A-4.
Stærð L: A-1, A-2, A-3, A-2, A-3 og A-4.

JAFNFRAMT í síðustu umferð A.1 er aukið út um 5-7-9-11 lykkjur jafnt yfir = 65-91-117-143 lykkjur. JAFNFRAMT í síðustu umferð A.2 er fækkað um 1 lykkju í XS og M og aukið út um 1 lykkju í S og L = 64-92-116-144 lykkjur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-6-9-12 cm (mælt eftir hálsmáli) skiptist stykkið fyrir op fyrir framfætur þannig: Fellið af 1 lykkju, setjið 11-17-23-33 lykkjur á þráð (= magastykki), fellið af 1 lykkju, prjónið mynstur áfram fram og til baka yfir þær lykkjur sem eftir eru (= bakstykki).
Þegar stykkið mælist 10-14-18-22 cm (op fyrir framfætur mælist ca 6-8-9-10 cm) setjið lykkjur á þráð. Setjið lykkjur af þræði frá magastykki til baka á prjóninn (= 11-17-23-33 lykkjur) og prjónið mynstur yfir þessar lykkjur eins langt og á bakstykki. Setjið allar lykkjur inn á sama prjón og fitjið upp 1 nýja lykkju í hvora hlið á milli bakstykkis og magastykkis = 64-92-116-144 lykkjur. Prjónið mynstur til loka, eftir það er haldið áfram með litnum ljós brúnn að loka máli
Þegar stykkið mælist 15-20-25-30 cm, fellið af 10-14-18-22 lykkjur mitt undir magastykki. Prjónið áfram fram og til baka að loka máli – jafnframt er lykkjum fækkað í byrjun á hverri umferð: 2 lykkjur 1-3-4-6 sinnum, 1 lykkja 9-8-9-8 sinnum, 2 lykkjur 1-3-4-6 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 22-32-42-52 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist nú ca 29-38-47-52 cm ásamt hálsmáli.

FRÁGANGUR:
Setjið þær lykkjur sem eftir eru á sokkaprjóna / hringprjón 3, prjónið að auki upp lykkjur í kringum affellingarkant þannig að heildarfjöldi lykkja verður = 84-112-144-188 lykkjur. Prjónið stroffprjón 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið þannig: 3-6-9-12 umferðir með litnum ljós brúnn, 2 umferðir með litnum dökk brúnn, 2 umferðir með litnum ljós brúnn, 2 umferðir með litnum dökk brúnn, fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRAMFÓTUR:
Prjónið upp 36-44-52-60 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum ljós brúnn í kringum annað opið fyrir framfót. Prjónið stroffprjón 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið þannig: 5-8-12-17 umferðir með litnum ljós brúnn, 2 umferðir með litnum dökk brúnn, 2 umferðir með litnum ljós brúnn, 2 umferðir með litnum dökk brúnn, fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 4-5-6-8 cm.
Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt.

Brettið hálsmálið niður tvöfalt.

Mynstur

symbols = ljós brúnn
symbols = dökk brúnn
symbols = natur
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Let's Go

Camilla, Sweden

Let's Go

Molly, United States

Let's Go

Pamela Donckers, Belgium

Let's Go

Jeanette, Norway

Let's Go

Jeanette, Norway

Let's Go

Pivy, Finland

Let's Go

Romeo, Norway

Let's Go

Bente, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-836

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (110)

country flag Susanne Christensen wrote:

Jeg er gået stå ved lukning til ben. Strikker magic loop og har 116 m. Skal jeg dele maskerne så jeg har 58 m x 2?. Og så fortsætte frem og tilbage til alle masker samles igen? Mvh en forvirret

21.10.2023 - 12:32

DROPS Design answered:

Hej Susanne, når du har sat maskerne fra tråden tilbage på pinden og slået en ny maske op fortsætter du rundt igen til du lukker maskerne af under maven :)

24.10.2023 - 08:45

country flag Camilla wrote:

Hmmmm… kan dette stemme??? Strikker M og etter A2 har jeg 92 masker slik oppskriften beskriver. Feller deretter 1+1 og setter 17 m på en tråd. Har da igjen 73 m, og det går jo ikke opp i A3 som består av rapporter på 8 m. Kan for meg se ut som om det ikke skulle vært lagt til den ene masken på siste omg av A2…???

23.09.2023 - 22:14

DROPS Design answered:

Hej Camilla, i str M skal du have 116 m.

05.10.2023 - 08:40

country flag Nicole wrote:

Hallo, ich habe zwei Pullover für einen Chihuahua nach eurer Anleitung und mit der vorgegebenen Wolle und Nadeln gestrickt. Der erste war zu klein, weil das Muster A4 in der Beschreibung fehlte. Der zweite passt perfekt 🙂 Nun wünschen sich die Hundebesitzer eine leichtere etwas dünnere Variante für den Frühling. Könnt ihr mir da Wolle aus eurem Shop empfehlen? Wie ändert sich die Nadelgröße und Maschenanzahl, dass er trotzdem passt? Danke im Voraus für eure Hilfe.

26.04.2023 - 13:42

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, am besten ersetzen Sie die Wolle mit einem anderen Garn der Garngruppe B - benutzen Sie den Garnumrechner um die Alternative zu finden. Wenn Sie eine dünnere Wolle benutzen, sollen Sie dann sonnst die ganze Anleitung je nach Ihrer Maschenprobe neu umrechnen bzw anpassen. Hier finden Sie ein Modell aus der Garngruppe A, das Ihnen helfen kann. Viel Spaß beim stricken!

26.04.2023 - 13:58

country flag Iris wrote:

Hello, I have a question to the sizes. The size L refers to a dog named "Irish snach". This must be a mistake. What is meant? Irish Setter? Thanks for your reply, best regards, Iris

04.02.2022 - 14:15

DROPS Design answered:

Dear Iris, correct, the largest size is using a Iris Setter as an example of dogs. Happy knitting!

04.02.2022 - 15:54

country flag Alfhild Mary Østlund wrote:

Strikker hundegenser, modellu-654. Har satt av 17 m på tråd, og skal felle en maske og strikke mønster frem og tilbake. Skal jeg altså starte med ny tråd og strikke mønster på vrangen? Hvor blir beina? Klarer ikke å se dette for meg, men har jeg forstått rett?

19.12.2021 - 22:53

DROPS Design answered:

Hei Afhild. Når du skal strikke frem og tilbake et stykke over ryggen må du strikke mønstret både fra retten og fra vrangen. Her kan du se på en video på en annen hundegenser, hvordan man strikker de forskjellige "etappene" (sette masker på en tråd, strikke litt av ryggstykket og litt av magen før det strikkes rundt igjen, hvordan beina strikker osv. Ta en titt her: Oversikt over hvordan hundegenseren i DROPS 102-43 strikkes – steg for steg mvh DROPS Design

21.12.2021 - 11:45

country flag Mari wrote:

Har dere denne oppskriften i XL?

18.11.2021 - 14:14

DROPS Design answered:

Hei Mari, Nei, dessverre vi har bare størrelsene som er oppgitt i oppskriften. Du kunne regne ut fra strikkefastheten hvor mange masker og rad du trenger til en større hund, men det kreves litt arbeid.... God fornøyelse!

19.11.2021 - 07:36

country flag Mari wrote:

Hei, har dere denne oppskriften i XL?

18.11.2021 - 14:13

country flag Kirsten Myhre wrote:

Hei! Lurer på om dere har denne oppskrifta til en damegenser? Slik at jeg har matcher hunden 🙂 Nydelig mønster og farger. På forhånd takk!

17.10.2021 - 14:13

DROPS Design answered:

Hei Kirsten, Vi har ikke akkurat dette mønster for damer, men det finnes andre nordiske mønster. Hvis du føler deg komfortabel med det, kunne du bruke fargene og mønster til hundegenser på en dame genser. Lykke til!

18.10.2021 - 07:16

country flag Eva Klarholm wrote:

Strikker hundeoppdkrif u-654.Skal begynne med å sette 17 masker på en tråd til ben ,så strikke videre på ryggen.Strikker i smal .17 masker er det til 2 ben.Strikker på rundpinne .Skal fortsette på ryggen med å strikke fram å tilbake .Er dette rett.Skjønner ikke bare 17 masker.Det er ikke 17 masker på begynnelsen og 17 masker pp slutten.Dette blir jo på undersiden.Strikker i Small.Sitter helt fast

27.09.2021 - 13:09

DROPS Design answered:

Hei Eva. De 17 maskene er til under magen og beina kommer på hver side. Nå fortsetter du frem og tilbake over ryggen til arbeidet måler 14 cm. Så sett disse maskene på 1 tråd og nå skal de 17 maskene (under magen) strikkes like lang som ryggstykket. Når begge delen er like lange, settes alle maskene på samme rundpinne og det strikkes rundt igjen. Selv om det ikke er samme hundegenser, er teknikken den samme, så ta en titt på denne videoen (tiden 0:12-0:26): Oversikt over hvordan hundegenseren i DROPS 102-43 strikkes – steg for steg mvh DROPS Design

28.09.2021 - 14:38

country flag Agata wrote:

Dzień dobry! Robie rozmiar S tego sweterka i jestem przy podziale otworow na lapy. Zamknelam jedno oczko i kolejne 17 oczek zdjelam na drut pomocniczy. W tym momencie odwracam robotke, zeby robic tam i z powrotem i mam jako pierwsze to zredukowane oczko - mam je znowu zamknac z kolejnym oczkiem w rzedzie?

06.09.2021 - 00:12

DROPS Design answered:

Witaj Agato, aby nie odcinać nitki zrób tak: zamknij 1 oczko (przerabiając 2 oczka razem na prawo, zdejmij oczka na drut pomocniczy. Zacznij teraz przerabiać na lewej stronie robótki, tam gdzie masz nitkę, a na końcu tego rzędu przerób 2 oczka razem na lewo (to będzie to drugie zamknięte oczko). Dalej przerabiaj w tę i z powrotem. Video jak wykonać płaszczyk dla psa krok po kroku znajdziesz TUTAJ. Pozdrawiamy!

06.09.2021 - 08:33