DROPS Symphony
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 133-9
DROPS Design: Mynstur nr WW-061
Garnflokkur D og E
--------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 03 dökk brúnn
Og einnig:
DROPS SYMPHONY frá Garnstudio
100-150-150 gr litur nr 03 brúnn
100-150-150 gr litur nr 11 ljós beige

Eða notið:
DROPS Snow frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 03 dökk brúnn
Og einnig:
DROPS MELODY frá Garnstudio
100-150-150 gr litur nr 15 beige

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 10 fl á breiddina x 11 umf á hæðina verði 10 cm með 2 þráðum af Symphony eða 2 þráðum Melody

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Symphony
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN:
Heklið 2 l saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna og sækið þráðinn í gegnum fyrstu lykkju og síðan í gegnum aðra lykkju, dragið síðan þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður að tá.

TÁTILJA:
Heklið 32-34-36 lausar ll með heklunál nr 8 og 2 þræði af Symphony (1 þráður brúnn og 1 þráður ljós beige) eða 2 þráðum Melody (2 þræðir beige). Snúið stykkinu. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja ll út umf = 31-33-35 fl.
Heklið nú þannig: * Heklið 2 ll, snúið við, heklið 1 st í hverja l, 1 ll, snúið við, heklið 1 fl í hverja l *, endurtakið frá *-* ATHUGIÐ HEKLFESTUNA – heklfestan er mikilvæg til að tátiljan passi.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10 cm fækkið um 2 l í umf þannig: Heklið 2 fyrstu l saman – sjá útskýringu að ofan – og 2 miðjulykkjur saman = 29-31-33 l í umf.
Haldið nú áfram þar til stykkið mælist 19-20-21 cm.
Nú er fótstykkið heklað með fl – setjið prjónamerki í miðjulykkju þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja l fram að l á undan miðjulykkju, 2 fl í næstu l, 1 ll (= miðjulykkja), hoppið yfir næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af síðustu l, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu l fram að ll, heklið 7 st í miðjulykkju (miðjulykkja af þeim 7 l er nú miðjulykkja) og 1 fl í hverja af síðustu l, snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja af næstu l fram að lykkju sem er á undan miðjulykkju, heklið 2 fl í næstu l, 1 ll (= miðjulykkju), hoppið yfir næstu l, heklið 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af síðustu l, snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja l fram að miðjulykkju, 7 st í ll og 1 fl í hverja af síðustu l, snúið við.
Endurtakið umf 3 og 4 þar til fóturinn mælist ca 22-24-27 cm á lengd – mælt þar sem stykkið er brotið saman tvöfalt.
Skiptið nú yfir í Snow og HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
* Heklið 1 umf fl endið umf á 1 ll og snúið við *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 4 – 4,5 – 5 cm – jafnframt í síðustu umf eru 2 fyrstu og 2 síðustu l heklaðar saman – sjá LYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN. Klippið frá.

FRÁGANGUR:
Brjótið tátiljuna saman tvöfalda, saumið kant í kant yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Heklið eina lausa umf með fl efst ofan við ökkla með Snow.
Heklið snúru ll-umferðir ca 150 cm með Snow, gerið smá dúsk á hvorn enda – ATH: Áður en síðasti dúskurinn er gerður er ll-snúran dregin í gegnum lykkjurnar neðst við ökklann aftan við skiptinguna frá Symphony eða Melody að Snow, þá situr hún föst.
Hnýtið þessa ll-snúru utan um legginn.

Heklið aðra tátilju á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 133-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (109)

country flag Vashti Schmahl wrote:

Could I mix Drops Melody in Beige with Drops Brushed Alpaca Silk in Beige for the fluffy part of the boot? If so how much of each yarn would I need?

09.07.2020 - 21:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Schmahl, we already used 2 strands Brushed Alpaca Silk to replace 1 strand Melody in some patterns, so that you might work here with 1 strand Melody + 2 strands Brushed Alpaca Silk instead of 2 strands Melody - but remember to check/keep your tension - read more about alternatives here. Happy crocheting!

10.07.2020 - 07:58

country flag Lory wrote:

Grazie per la sua disponibilita'. le chiedo se all'inizio e troppo stretto con 32 maglie , come posso fare ?

07.03.2019 - 19:56

DROPS Design answered:

Buongiorno Lory, deve prima di tutto verificare che il suo campione corrisponda a quello indicato, altrimenti non otterrà le misure corrette. Può eventualmente provare a lavorare una taglia più grande. Buon lavoro!

19.08.2019 - 18:16

country flag Lory wrote:

Scusami non capisco quando spieghi 10-10-10- cm e diminuire 2 all'inizio e 2 centrali . devo fare 30 cm e poi diminuire sempre 2 all'inizio e 2 centrali ? o quando devo iniziare a farlo ? misura piede 37 . grazie aspetto risposta

07.03.2019 - 16:03

DROPS Design answered:

Buongiorno Lory. L'indicazione 10-10-10 cm è la misura riferita ad ognuna delle taglie. In questo caso è uguale per tutte e tre le taglie. Quando il suo lavoro misura 10 cm, deve lavorare insieme le prime 2 maglie e le 2 maglie centrali. Sui ferri rimangono 29 maglie. Prosegue senza ulteriori diminuzioni finchè il lavoro non misura 19 cm (per la taglia 35/37). Buon lavoro!

07.03.2019 - 16:16

country flag Majbritt Borup wrote:

Er det rigtigt at der skal bruges ialt 300 gr symphony men kun 150 g melodi?

18.02.2017 - 17:14

DROPS Design answered:

Hej Majbritt. Ja, det er korrekt, for Melody löber 140 m per 50 gr og Symphony löb kun 70 m.

21.02.2017 - 16:18

country flag Tracy wrote:

I made these for my daughter and was so much fun! She loves them!

11.10.2015 - 06:14

country flag Niki wrote:

What yarn can I use if I cannot find the Symphony on here? Maybe I missed it, but the only one I see is the Eskimo.

27.07.2015 - 17:02

DROPS Design answered:

Dear Niki, DROPS Symphony is now discontinued - click here for alternatives and yarn requirements. Your DROPS store will help you with tips & advices. Happy crocheting!

27.07.2015 - 18:08

country flag Andrea wrote:

I love these! I was wondering though, could you the pattern for soles please?

22.02.2015 - 04:33

DROPS Design answered:

Dear Andrea, the pattern for sole starts from the part worked in Eskimo. Happy crocheting!

23.02.2015 - 10:03

country flag MaryAnn wrote:

What does it mean when you saw "folded double "? Just folded like you would wear it around your leg?

25.01.2015 - 00:50

DROPS Design answered:

Dear MaryAnn, that's correct, so that you can sew tog beg/end of rows along the back of leg and on bottom of foot. Happy crocheting!

26.01.2015 - 10:06

country flag Shelly Moses wrote:

I've only been crocheting a few months so could you explain what 32-34-36 etc. means?

14.12.2014 - 23:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Moses, each number refers to the matching size, the slippers are in size 35/37, 35/40 and 41/43. If you work 1st size, you will start with 32 ch and have 31 dc at the end of 1st row, in 2nd size, you start with 34 ch and have 33 dc at the end of 1st row, and in larger size, you start with 36 ch and have 35 dc at the end of 1st row. Happy crocheting!

15.12.2014 - 10:27

country flag Shara wrote:

Sorry, assembly unclear. Foot done. Assembly says fold in half. When I do it is extremely pointed, even with just 5 DC. Does the toe assemble to look envelope with a square end on the end or pointed? in the us, and didn't buy garn yarn. In Missouri. So I can't ask them. Could you email?

14.11.2014 - 22:26

DROPS Design answered:

Dear Shara, after having crocheted sole (sc rows worked "straight"), you then fold last row double and sew sole together on the bottom (and along mid back). Click here to get yarn in the U.S.. Happy crocheting!

15.11.2014 - 09:47