DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Sea Blush

Prjónaður bolero með gatamynstri úr DROPS Cotton Viscose og DROPS Kid-Silk. Stærð XS/S - XXXL

DROPS 119-21
DROPS design: Mynstur nr N-110
---------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 28, ljós bleikur
og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75-75-75-100-100-100 gr litur nr 03, ljós bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 14 l með gatamynstri verði 10 cm á breidd með 1 þræði af hvorri tegund.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4 (80 cm) – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 – Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaðar snúinn í næstu umf (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri svo ekki myndist gat).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, síðan eru teknar upp l fyrir kant með stroffi og stykkið síðan prjónað í hring.

BOLERO:
Fitjið upp 104-111-118-126-133-140 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 3 umf slétt (umf 1 = ranga) JAFNFRAMT í 3. umf er fækkað um 17-18-19-21-22-23 l jafnt yfir í umf (ca 5. og 6. hver l eru prjónaðar saman) = 87-93-99-105-111-117 l. Prjónið síðan frá réttu þannig: 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, M.1A (= 3 l), M.1B þar til 3 l eru eftir og endið á 3 l GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með M.1 með 3 l garðaprjón í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3-3-4-5-6-7 cm eru fitjaðar upp 6 nýjar l í hvorri hlið fyrir ermi = 99-105-111-117-123-129 l. Haldið áfram yfir allar l með M.1 og 3 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 37-41-44-47-50-53 cm fellið af 6 l í hvorri hlið = 87-93-99-105-111-117 l. Prjónið síðan M.1 með 3 l garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 39-43-47-51-55-59 cm (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá röngu). Prjónið 3 umf garðaprjón JAFNFRAMT í 1 umf er aukið út um 17-18-19-21-22-23 l jafnt yfir í umf (ca eftir 5. hverja l) = 104-111-118-126-133-140 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið upp 104-111-118-126-133-140 l frá uppfitjunarkanti (stykkið er prjónað í hring á hringprjóna héðan) = 208-222-236-252-266-280 l. Prjónið 1 umf br JAFNFRAMT er aukið út um 80-86-92-100-106-112 l jafnt yfir í umf (eftir ca til skiptis í aðra hverja og þriðju hverja l) lesið ÚTAUKNING! = 288-308-328-352-372-392 l. Prjónið síðan 1 umf slétt. Prjónið nú stroff = 2 l sl, 2 l br yfir allar l. Þegar stroffið mælist 2,5 cm er aukið út um 1 l í hverri brugðnu mynstureiningu í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið 2 l í 1. l í hverri brugðnu mynstureiningu). Prjónið nú stroff 2 l sl, 3 l br þar til stroffið mælist 5 cm. Í næstu umf er aukið út um 1 l í hverri sléttri mynstureiningu (þ.e.a.s. prjónið 2 l í síðustu l í hverri sléttri mynstureiningu). Síðan er stroffið prjónað = 3 l sl, 3 l br þar til stroffið mælist 7 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju – sjá strikaða línu á teikningu.

Mynstur

symbols = svona er flíkin notuð
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 119-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (130)

country flag Sara Maria Luisa Pompei wrote:

Buongiorno. Farò questo modello con bomull, taglia M. Sono sufficienti 8 gomitoli? Ho convertito in base alla lunghezza del filato di un gomitolo ma avrei bisogno di una conferma. Grazie Sara

15.03.2023 - 12:13

DROPS Design answered:

Buongiorno Sara, il calcolo della quantità di filato è corretto: ha controllato che il suo campione corrispondesse a quello indicato? Buon lavoro!

15.03.2023 - 16:55

country flag Tanja wrote:

Was heißt "an der Anschlagkante Maschen aufnehmen"? Wie sieht das Bolero vor dem Zusammennähen aus? Ich kann es mir leider nicht vorstellen wie dann rundgestrickt wird. Ist die Darstellung das gesamte Bolero oder nur eine Hälfte und es wird von Handgelenk zu Handgelenk gestrickt? Passt aber auch irgendwie nicht. Vielen Dank

17.02.2023 - 11:15

DROPS Design answered:

Liebe Tania, die Kante wird in der Runde gestrickt, also nach den Maschen auf die Nadel soll man 1 Masche in jede Masche der Anschlagskante auffassen, dann alle Maschen in der Runde für die Kante stricken. Viel Spaß beim stricken!

17.02.2023 - 12:08

country flag Lea Jørgensen wrote:

I den sidste udtagning i den 7 cm brede yderkant står der, at udtagning skal ske i sidste retmaske, hvilket giver en "skæv" retbort. I stedet skal udt. ske i 1. retmaske, så den nye maske kommer til at ligge i midten. Måtte trævle en del op efter opdagelsen. Mvh lea

18.05.2022 - 23:05

country flag Lilianne Savard wrote:

Est-ce qu'il y a des rangs envers et des rangs endroits à faire ou on tricote tous les rangs avec le point de fantaisie quel est son nom a ce point de fantaisie? J'adore vos modèles Merci?

24.09.2021 - 04:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Savard, le diagramme montre tous les rangs, vus sur l'endroit, autrement dit, il se tricote en jersey endroit (= on tricote à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers), en faisant les jetés et les diminutions sur l'endroit uniquement. Retrouvez d'autres explications sur les diagrammes ici. Bon tricot!

24.09.2021 - 07:48

country flag Amrane wrote:

Bonjour Le rendu du point fantaisie une fois tricot n est pas le même que sur la photo porté Comment s appelle ce point pour le chercher ailleurs Merci

09.08.2021 - 18:53

DROPS Design answered:

Bonjour Amrane, tricotez les diagrammes ainsi, vu sur l'endroit: tricotez 1 fois M.1A et répétez M.1B en largeur, sur l'envers, tricotez toutes les mailles à l'endroit. Vous allez ainsi alterner 3 m jersey/3 m du point ajouré (= 1 jeté, 1 surjet double, 1 jeté), puis 3 m point ajouré/3 m jersey. Essayez sur un échantillon correspondant au nombre de mailles du diagramme pour vous entraîner. Bon tricot!

10.08.2021 - 13:39

country flag Wenche Frisendal wrote:

Hvordan syr jeg ihop armene, skjønner ikke helt hvordan.?

20.07.2021 - 08:11

DROPS Design answered:

Hei Wenche, Du begynner på bunn av sida og syr oppover til ermehullet, deretter syr du ermet. Sy på innsiden av 1 kantmaske. God fornøyelse!

20.07.2021 - 09:01

country flag Susanne wrote:

I am just starting and finished the decrease row so I have 99 stitches ( 3rd size). Following the pattern w garter edges ( 3 on each side), 3 stitches for m1a and 12 stitch repeat for m1b, I do not get 99 stitches. I must be reading something wrong. Any help is appreciated.

11.07.2021 - 02:34

DROPS Design answered:

Dear Susanne, work as follows: 3 sts in garter stitch, M.1A (= 3 sts), then repeat M.1B until 3 sts remain (= you will repeat the 12 sts in M.1B a total of 7 times, then work the first 6 sts), and finish with 3 sts in garter stitch. Happy knitting!

12.07.2021 - 07:33

country flag Marianne wrote:

Ska bolerin stickas med 2 olika garner eller kan man sticka med bara ett garn?

22.05.2021 - 22:59

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Den stickas med 2 olika garner, men har du ett garn som ger den stickfasthet som uppges i mönstret så kan den stickas med bara 1 garn. Mvh DROPS Design

24.05.2021 - 08:04

country flag Inge wrote:

Ich trage (deutsche) Größe 44. In welcher Größe sollte ich das Bolero stricken, bzw. wie ist das Maß in cm der Oberweite des Boleros bei Ihren Größen XL, XXL und XXXl?

08.04.2021 - 14:15

DROPS Design answered:

Liebe Inge, am besten vergleichen Sie die Maßen in der Skizze mit einer ähnlichen Jacke - und können auch die beste passende Größe mit der Hilfe von einer anderen Jacke von dem selben Heft. Hier lesen Sie mehr über die Skizze. Viel Spaß beim stricken!

08.04.2021 - 16:06

country flag Denise wrote:

Given the lace pattern, do you recommend blocking the piece before or after you add the ribbed border? Thank you.

02.05.2020 - 00:44

DROPS Design answered:

Dear Denise, each knitter has her own practices/habits - you can either block before or after - do not hesitate to contact (even per mail or telephone) the store where you bought your yarn for any individual assistance. Happy knitting!

04.05.2020 - 11:20