DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3410.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Companions

Prjónað eyrnaband og hálsskjól fyrir börn úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni. Stærð 2 – 12 ára.

DROPS Children 41-23
DROPS Design: Mynstur z-046-bn
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál: ca 48/50 - 50/52 - 52/54 - 54/56 cm

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-150 g färg 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50-50 g litur 01, natur

EYRNABAND:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál: ca 48/50 - 50/52 - 52/54 - 54/56 cm
Hæð: ca 9-9-10-11 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50-50 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK (tilheyrir garnflokki A)
25-25-25-25 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 4,5.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 38 umferðir á hæð með klukkuprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:
2 - 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Ummál: ca: 41-41-49-57 cm

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50-100 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK (tilheyrir garnflokki A)
25-25-25-25 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 38 umferðir á hæð með klukkuprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3410.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR (á við um eyrnaband):
Til að eyrnabandið komi til með að sitja vel á höfðinu, þá verður að prjóna ca 7-8 cm styttra en ummál höfuðs.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift
Endurtakið umferð 2 og 3.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 3 * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Endurtakið umferð 2 og 3.

MYNSTURTEIKNING:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning er notuð við frágang á eyrnabandinu.

MYNSTUR (á við um hálsskjól):
Sjá mynsturteikningu A.5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Endarnir eru síðan saumaðir saman þannig að það myndast kaðall fyrir miðju framann á eyrnabandinu.

EYRNABAND:
Fitjið upp 15-15-17-19 lykkjur aðeins laust á prjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Fyrsta kantlykkjan í umferð er alltaf lyft af prjóni, síðasta kantlykkjan í umferð er prjónuð slétt. Þetta er gert bæði frá réttu og frá röngu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til eyrnabandið mælist ca 40-42-44-46 cm frá uppfitjunarkanti – sjá LEIÐBEININGAR. Skiptið yfir á prjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Stykkið er nú rétthyrningur, brjótið rétthyrninginn saman á lengdina þannig að hann liggi tvöfaldur – sjá mynsturteikningu A.1.
Nú á að leggja löngu hliðarnar á eyrnabandinu inn í hvora aðra í lögum án þess að snúa stykkinu – sjá mynsturteikningu A.2. Endarnir á eyrnabandinu liggja nú til skiptis innan í og utan á hvorum öðrum og endarnir liggja kant í kant – sjá mynsturteikningu A.3.
Nú á að sauma í gegnum öll lögin þannig:
Saumið meðfram strikuðu línunni í mynsturteikningu A.4 (þ.e.a.s. yfir endana á stykkinu), saumið með þéttu spori með 1 spori í hverja lykkju – það er mikilvægt að sauma í gegnum öll lögin þannig að saumurinn sjáist ekki þegar stykkinu er snúið við.
Klippið þráðinn frá og festið. Snúið stykkinu þannig að saumurinn sé að innanverðu á eyrnabandinu.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp aðeins laust 62-62-74-86 lykkjur á hringprjóna 4 með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk. Afgangurinn af stykkinu er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund (það er fitjað upp svona til að uppfitjunarkanturinn dragist ekki saman).
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm.
Prjónið síðan þannig: * Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 5-6-7-8 cm með KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring) – sjá útskýringu að ofan, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.5 *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú skiptist stykkið í hvorri hlið þannig að bæði stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan:
Setjið næstu 31-31-37-43 lykkjur á hringprjón 4,5 og setjið þær 31-31-37-43 lykkjur á þráð.
Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þar til stykkið mælist 20-23-26-29 cm frá uppfitjunarkanti, næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkjum, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan stroff fram og til baka í 2 cm með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið.
Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 22-25-28-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður.
Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjóna 4,5 og prjónið alveg eins og fyrra stykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = byrjið hér
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Susanne Andersen wrote:

Der mangler en forklaring på mønster A5. Kan se, at der er svaret på islandsk i januar. Vil I ikke gøre det på dansk også. Kan også se, at der er en anden 15.9. , der efterlyser det samme. Kom nu please☀️

02.10.2022 - 07:29

DROPS Design answered:

Hej Susanne, det skal vi få lagt ud, den tomme rude er ret fra retsiden og vrang fra vrangen, den rude med - er vrang fra retsiden og ret fra vrangen :)

03.10.2022 - 14:46

country flag Line wrote:

Au début du bandeau, il est indiqué de monter avec les aiguilles et 1 fil de chaque qualité (= 2 fils). Que signifie ? Est-ce que l'on doit doubler le fil ?

26.09.2022 - 17:18

DROPS Design answered:

Bonjour Line, le bandeau se tricote entièrement avec 1 fil DROPS Alpaca + 1 fil DROPS Kid-Silk (cf échantillon), autrement dit avec les 2 laines tricotées ensemble. Bon tricot!

27.09.2022 - 08:22

country flag Kristine wrote:

Jeg tror der mangler en oversigt over symbolerne i A5 hvordan den skal strikkes

14.09.2022 - 18:25

DROPS Design answered:

Hej Kristine, det skal vi få lagt ind :)

15.09.2022 - 15:20

country flag Helga wrote:

Ég er að prjóna hálskjólið en ég er ekki að skilja þegar þeir segja að maður eigi að prjón A5. Skil ekki myndina eða hvað ég á að gera. Væri gott að fá betri útskýringu eða myndband sem gæti útskýrt þetta betur. Mbk

11.01.2022 - 01:31

DROPS Design answered:

Blessuð Helga. Ör: Prjónið 1 umferð slétt (eftir klukkuprjón, prjónið lykkjur og uppslátt saman) og prjónið 4 umferðir sléttprjón (= 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið) og endið með 1 umferð slétt. Gangi þér vel.

24.01.2022 - 10:19

country flag Bente L Knutsen wrote:

Hei jeg strikker denne halsen , men forstår ikke helt. Skal jeg strikke M5 hva er det? Hvor lang skal den være før jeg deler den? Mvh bente l knutsen

04.01.2022 - 19:04

DROPS Design answered:

Hei Bente. Når du har strikket vrangbord i 2 cm, byttes det til rundpinne 4,5 og det strikkes 5-6-7-8 cm med Helpatent med kast (det strikkes fortsatt rundt). Deretter byttes det til rundpinne 4 og nå strikkes det etter diagram A.5 (diagrammet ser du sammen ved skissene A.1-A.4). Så strikkes det 5-6-7-8 cm med Helpatent med kast på pinne 4,5 1 gang til og deretter byttes det til rundpinne 4 og nå strikkes det etter diagram A.5 1 gang til. Nå skal arbeidet deles, hvor lang den er kommer an på hvilken str. du strikker. mvh DROPS Design

14.01.2022 - 13:12