DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Concerto

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað með ¾-löngum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-39
DROPS Design: Mynstur sk-130
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-350 g litur 01, hvítur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir garðaprjón/stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 25,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 25. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykki er prjónað ofan frá og niður. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan er ermin prjónuð í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 81-81-84-88-94-94 lykkjur á hringprjón 4 með Sky. Setjið eitt prjónamerki í 20.-20.-20.-22.-24.-24. lykkju inn frá hvorri hlið (= 41-41-44-44-46-46 lykkjur á milli lykkja með prjónamerkja). Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur með prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri í umferð) – sjá LASKALÍNA. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-13-15-17-17-19 sinnum = 125-133-144-156-162-170 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 5-6-7-8-8-9 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Fellið laust af fyrstu 31-33-35-39-41-43 lykkjurnar (= handvegur), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-67-74-78-80-84 lykkjurnar (fyrsta af þessum lykkjum er nú þegar á hægri prjóni) og aukið jafnframt út 1-0-0-3-7-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 og fellið laust af síðustu 31-33-35-39-41-43 lykkjur (= handvegur). Klippið þráðinn frá.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið síðan fram og til baka yfir 64-67-74-81-87-95 lykkjur fyrir framstykki frá réttu þannig: Prjónið eins margar lykkjur frá mynsturteikningu A.1 (= 3 lykkjur) og pláss er fyrir, jafnframt eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-3-2-1-0-0 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-5-5 sinnum og 5-7-7-7-9-11 lykkjur 1 sinni = 86-95-104-113-125-137 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Haldið áfram fram og til baka með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-26-27-27-28-29 cm frá handveg – stillið af að endað sé eftir einni af umferð með ör í mynsturteikningu.
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 13-13-16-16-19-19 lykkjur jafnt yfir = 99-108-120-129-144-156 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 61-61-64-68-74-74 lykkjur á hringprjón 4 með Sky. Setjið eitt prjónamerki í 10.-10.-10.-12.-14.-14. lykkju inn frá hvorri hlið (= 41-41-44-44-46-46 lykkjur á milli lykkja með prjónamerkja). Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið garðaprjón fram og til baka, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur með prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri í umferð) – sjá LASKALÍNA. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-13-15-17-17-19 sinnum = 105-113-124-136-142-150 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu. Stykkið mælist nú ca 5-6-7-8-8-9 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Fellið laust af fyrstu 21-23-25-29-31-33 lykkjurnar (= handvegur), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-67-74-78-80-84 lykkjurnar (fyrsta af þessum lykkjum er nú þegar á hægri prjóni) og aukið jafnframt út 1-0-0-3-7-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 og fellið laust af síðustu 21-23-25-29-31-33 lykkjur (= handvegur). Klippið þráðinn frá.
Haldið síðan áfram fram og til baka í garðaprjóni (1. umferð frá röngu) yfir 64-67-74-81-87-98 lykkjur fyrir bakstykki í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið eins margar lykkjur frá mynsturteikningu A.1 (= 3 lykkjur) og pláss er fyrir, jafnframt eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-3-2-1-0-0 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-5-5 sinnum og 5-7-7-7-9-11 lykkjur 1 sinni = 86-95-104-113-125-137 lykkjur.
Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Haldið áfram fram og til baka með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-26-27-27-28-29 cm frá handveg – stillið af að endað sé eftir einni af umferð með ör í mynsturteikningu.
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 13-13-16-16-19-10 lykkjur jafnt yfir = 99-108-120-129-144-156 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Fitjið upp 26-28-28-30-32-32 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Sky.
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón = 50-54-54-58-62-62 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni).
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, jafnframt í lok hverrar umferðar eru fitjaðar upp lykkjur fyrir handveg þannig: Fitjið upp 1 lykkju 7-10-10-9-18-18 sinnum og 2 lykkjur 5-3-4-5-0-0 sinnum. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 8-12-12-12-16-20 lykkjur = 92-98-102-108-114-118 lykkjur.
Prjónið nú sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist alls 36 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 8-8-9-9-6-7 lykkjur slétt, prjónið næstu 76-82-84-90-102-104 lykkjur slétt saman 2 og 2, 8-8-9-9-6-7 lykkjur slétt = 54-57-60-63-63-66 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 40 cm ofan frá og niður í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við kantlykkju garðaprjón. Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Saumið ermar í við handveg innan við affellingarkanta.

Mynstur

symbols = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = Stillið af að mynstrið endi í einni af umferð með ör
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Aud Olsen wrote:

Jeg strikker denne i str, XL. I oppskriften står det at det på ermene skal økes i SLUTTEN på hvær pinne 1 maske 9 ganger og 2 masker5 ganger. Dette blir 19 masker økt Med 58 masker fra før blir det 75 masker + 12 = 89. Skal være 108 så her mangler det 19 masker. Spørsmålet mitt er om det ikke skulle økes både først og sist på pinnen

05.09.2023 - 23:27

DROPS Design answered:

Hej Aud, 58+ 9+9+(2x5=10)+10+12= 108 masker :)

13.09.2023 - 15:30

country flag Brigitte wrote:

Quand on tricote le dos, après les diminutions et augmentations du point mousse, il reste 81 mailles en taille xl, il est indiqué qu’il faut tricoter ces mailles en allers et retours pendant 5 cm avant de changer pour l’aiguille 4 . Doit-on tricoter ces 5 cm au point mousse ? Ensuite, on continue en suivant le dessin et en faisant les augmentations comme pour le devant ?

27.06.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, tout à fait, bonne continuation!

28.06.2023 - 08:35

country flag Loes wrote:

Beste Marlé. Misschien kan ik je helpen: Het meerderen van 7x1 en 5x2 doe je beiderzijds, en daarmee kom je dan op 84 steken. Vervolgens meerder je eenmalig 8 steken voor de oksel. Daarmee kom je op 92 steken in totaal. Succes met verder breien, het gaat je zo vast en zeker lukken!

26.07.2021 - 23:21

country flag Marlé wrote:

Mouw, kleinste maat: na 2nld heb ik 50 steken, moet dan 7x 1 en 5x 2 steken bij maken. Dan kom ik toch op 67 steken; vervolgens 8 steken bij maken. Dan kom ik op 75 maar volgens het patroon zou ik er dan 92 moeten hebben. ????

25.07.2021 - 22:40

DROPS Design answered:

Dag Marlé,

Je zet de steken aan beide kanten van de mouwen op, dus je hebt dan niet 67 steken, maar 84 steken. Ook als je daarna 8 steken erbij maakt, doe je dat aan beide kanten, dus nog 16 erbij en dan kom ik op 90 steken (in plaats van 92, zie ik, dus daar zit toch een kleine afwijking, die zal ik doorgeven aan de ontwerpafdeling).

19.08.2021 - 14:12

country flag Marie Azé wrote:

Mille merci pour votre patience et la rapidité de votre réponse ;

31.05.2021 - 08:25

country flag Marie Azé wrote:

Pour le modèle Summer Concerto , au point mousse , quand vous dîtes tous les deux rangs est-ce 2 aller /retour ou encore un rang au point mousse est-ce un aller /retour ou 1 rang est un aller 1 rang est le retour ?

30.05.2021 - 22:26

DROPS Design answered:

Bonjour Marie Azé, lorsque l'on augmente tous les 2 rangs on va augmenter tous les rangs sur l'endroit (= 1 rang sur l'endroit en augmentant, 1 rang sur l'envers sans augmenter). Bon tricot!

31.05.2021 - 08:00

country flag Marie Azé wrote:

Bonjour , pour le modèle Summer concerto : quand on commence le devant et donc , le point fantaisie , faut-il lire le diagramme de haut en bas : commencer par 2 rangs endroits puis 1 rang envers ou le lire de bas en haut dont commencer par 2 mailles envers 1maille endroit 2mailles envers etc ; Merci de votre réponse .

20.05.2021 - 20:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Azé, le diagramme se lit de bas en haut et de droite à gauche sur l'endroit/de gauche à droite sur l'envers. Bon tricot!

21.05.2021 - 07:43

country flag Birgitte Høft Larsen wrote:

Nogen fornuftig grund til at forstykket er 20 masker større end bagstykket?jeg strikker STR xxxl

24.04.2021 - 13:25

DROPS Design answered:

Hej Birgitte, det er fordi halsudskæringen er dybere foran end bagpå. God fornøjelse!

28.04.2021 - 13:42

country flag Anne Marie wrote:

This is a must have - so nice and romantic.

13.01.2021 - 10:28

country flag Julie wrote:

Country charm

11.01.2021 - 04:45