DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Smiles Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, köðlum og vösum. Stærð 6 mánaða – 8 ára.

DROPS Children 37-15
DROPS Design: Mynstur me-062-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 ára)
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116 - 122/128)

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300 (350-350-400-450) g litur 23, gráblár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5-6 (6-6-7-7) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kragi í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-5 (5-5-6-6) næstu hnappagötum með ca 5-4½ (5-5½-5½-6) cm millibili.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 og A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin í stykki þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjón (= alls 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna og saumaðar saman í lokin. Vasarnir eru prjónaðir fram og til baka á hringprjóna og saumaðir á.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 68-72 (80-80-88-92) lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út 4 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 72-76 (84-84-92-96) lykkjur.

BERUSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýring að ofan:
Prjónið 10-11 (13-13-15-16) lykkjur í garðaprjóni (= vinstra framstykki), A.1 (= 6 lykkjur), prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni, A.2 (= 6 lykkjur) (= vinstri ermi), prjónið 12-14 (18-18-22-24) lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), A.1 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni, A.2 yfir næstu 6 lykkjur (= hægri ermi), prjónið 10-11 (13-13-15-16) lykkjur í garðaprjóni (= hægra framstykki).
Prjónið 1 umferð frá röngu.
Aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan – hvoru megin við A.1 og A.2 þannig:
Aukið út í annarri hverri umferð alls 5 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9-10 (11-12-13-14) sinnum = 184-196 (212-220-236-248) lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, mælist stykkið ca 11-12 (13-14-15-16) cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið e.t.v. áfram í garðaprjóni og köðlum án útaukningar þar til stykkið mælist 11-12 (13-14-15-16) cm.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 28-30 (33-34-37-39) lykkjur í garðaprjóni (= framstykki), setjið næstu 40-42 (44-46-48-50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 48-52 (58-60-66-70) lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), setjið næstu 40-42 (44-46-48-50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 28-30 (33-34-37-39) lykkjur í garðaprjóni (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 116-124 (136-140-152-160) lykkjur.
Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 16-18 (20-23-26-29) cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum. Fellið af – sjá AFFELLING.

ERMAR:
Setjið 40-42 (44-46-48-50) lykkjur af þræði í annarri hlið á hringprjón 4. Fitjið upp 4 lykkjur í lok 2 næstu umferða (= 4 nýjar lykkjur í hvorri hlið á stykki) = 48-50 (52-54-56-58) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki). Prjónið garðaprjón fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-10. (12.-14.-14.-14.) hverri umferð alls 7-7 (7-7-8-8) sinnum = 34-36 (38-40-40-42) lykkjur.
Haldið áfram í garðaprjóni þar til ermin mælist 17-20 (24-29-32-35) cm frá skiptingu. Fellið af.
Prjónið hina ermina alveg eins.

VASI:
Fitjið upp 14-14 (16-16-18-18) lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 7-7 (8-8-9-9) cm. Fellið af. Prjónið annan vasa alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið saman ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. Saumið vasana ca 3-3 (3-4-4-4) cm upp frá neðri kanti og ca mitt í hvort framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2021
Leiðrétting á hnappagötum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Maryline Jacquemin wrote:

Bonjour, je suis débutante et je ne comprends pas très bien vos explications.(modèle Automn Smiles Cardigan) Le croquis sur la page 6 est il mis en nombre de mailles ou en cm? quand vous dites tricoter 2 côtes mousse cela veut dire 2 rangs au points mousse ? je prends du début je ne comprends pas combien de rangs faut il faire pour un gilet taille 3/4 ans Merci de m'expliquer déjà le début , dans l'attente de vous lire . Mme Jacquemin.

13.02.2021 - 15:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jacquemin, les nombres dans les schémas correspondent aux mesures en cm - retrouvez ici, plus d'infos sur les schémas. Pour tricoter 1 côte mousse, il faut tricoter 2 rangs endroit (cf POINT MOUSSE (en allers et retours): au début des explications. Pour le col, on doit tricoter 2 côtes mousse, autrement dit on va tricoter 4 rangs endroit. Bon tricot!

15.02.2021 - 08:06

country flag Giusy wrote:

Ho realizzato questo modello per la mia nipotina nel colore giallo. Risultato e effetto eccellente! Grazie per la chiarezza delle spiegazione e per i diagrammi utilissimi da consultare durante l'esecuzione del lavoro

01.02.2021 - 10:02

country flag Ana Cecilia Ramirez wrote:

For the size I am knitting, 6 buttons will be to little as the garnment measures around 40 cm. And the bottons are spaced every 4,5 cm. The length of the yoke was longer than the measurement for about 2 cm. Should I knit the body shorter?

16.01.2021 - 19:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ramirez, the yoke should measure 14 cm and last buttonhole in 4th size should be when piece measures 24.5 cm, ie not at the very bottom of the jacket as on the picture - you can work one more buttonhole if you like to and adjust the length of the jacket as you like it to be. (40 cm total length includes 3 cm shoulder) as shown on chart. Happy knitting!

18.01.2021 - 08:54

country flag Maryline Jacquemin wrote:

Excusez moi pour la 1ere question j'ai trouvé comment faire pour changer de couleur. Une débutante peut elle faire ce modèle sans trop de difficulté ? Comment calculer le nombre de pelotes en fonction de a taille? Avez un n° de téléphone direct?

11.01.2021 - 14:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jacquemin, tout dépend du niveau de la débutante - lisez attentivement toutes les explications, regardez les vidéos et les leçons liées si besoin, et n'hésitez pas à poser votre question ici et contactez votre magasin - même par mail ou téléphone - pour toute assistance individuelle. Pour trouver la taille, mesurez un vêtement qui va à l'enfant et comparez ces mesures à celles du schéma - la quantité nécessaire est indiquée au poids: ex, 300 g Merino Extra Fine en 6/9 mois /50 g la pelote Merino Extra Fine = 6 pelotes. Bon tricot!

11.01.2021 - 14:23

country flag Maryline Jacquemin wrote:

Serait il possible d'avoir une autre couleur que le jaune qui est proposé? SVP merci

11.01.2021 - 13:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jacquemin, tout à fait, DROPS Merino Extra fine existe dans une quarantaine de couleurs différentes (dont le bleu présenté ici), découvrez toutes ces couleurs dans le nuancier. Bon tricot!

11.01.2021 - 14:20

country flag Meenakshi wrote:

I am set on this pattern for my little granddaughter. But your instructions do not make clear how the cable is made on the raglan. Maybe, a video showing this clearly would solve all matters. Please do give clear instructions. It would be nice if the pattern could be given for bottoms up knitting too for people not familier with circular needle knitting.

17.12.2020 - 11:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Meenakshi, cable is worked as shown in diagram A.1 - read more about diagrams here) - This video and this lesson are showing how to knit a garment top down, this might help you to understand how the jacket is worked. Happy knitting!

17.12.2020 - 16:57

country flag Christiane Grosskopf wrote:

Wann soll ich im Raglan diese Maschen zunehmen? "In jeder 2. Reihe insgesamt 5 x zunehmen, dann in jeder 4. Reihe insgesamt 9-10 (11-12-13-14) x zunehmen = 184-196 (212-220-236-248) Maschen." 5x was zunehmen? und vor allem an welcher Stelle? Danke!

30.10.2020 - 16:11

DROPS Design answered:

Liebe Frau Grosskopf, es wird - wie unter RAGLANZUNAHMEN erklärt, vor und nach A.1/A.2 zugenommmen, dh beidseitig von jedem Zopf (= 1 Umschlag, Diagram, 1 Umschlag). 5 x in jeder 2. Reihe bedeutet: *1 Hineihe mit Zunahmen Stricken, die Rückreihe stricken*, diese 5 Reihen insgesamt 5 mal stricken (= 10 Reihen bzw 5 Krausrippen sind gestrickt). Dann nehmen Sie genauso aber es werden 3 Reihen ohne Zunahmen zwischen jeder Reihe mit Zunahmen = in jeder 4. Reihe. Viel Spaß beim stricken!

02.11.2020 - 07:17

country flag Claudia Del Bene wrote:

Vi chiedo spiegazioni in merito agli aumenti per il raglan. Per la taglia 7/8 anni gli aumenti totali sono 14 per un totale di 112 maglie che sommate alle 96 del collo al termine degli aumenti per il raglan risultano essere 208 e non 248 come indicato nelle istruzioni. Grazie

07.10.2020 - 12:42

DROPS Design answered:

Buongiorno Claudia. Si aumenta per il raglan, in tutto 19 volte: prima ogni 2 ferri (un ferro sì e uno no) per 5 volte, poi ogni 4 ferri per 14 volte. Sono 8 m in più ad ogni ferro con aumenti; quindi 8x19 = 152 m in più che sommate a 96 danno le 248 maglie indicate. Buon lavoro!

07.10.2020 - 13:31