Maria wrote:
Ma di fatto nel fare gli aumenti devo continuare ripetendo ciò che è stato fatto per il primo giro di aumenti? Non capisco perché dicono di seguire le spiegazioni per il raglan per gli altri aumenti quando, se ho ben capito, sembra che debba invece ripetere quanto fatto per il primo giro di aumenti. Perché fare due sezioni distinte per gli aumenti se si tratta di ripetere gli stessi passaggi?
29.01.2022 - 07:06DROPS Design answered:
Buongiorno Maria, le nostre tecniche vengono sempre spiegate nella sezione apposita all'inizio del modello, poi nel modello viene riportato il riferimento. In quella parte si lavorano gli aumenti per il raglan, quindi si segue quanto riportato nel paragrafo "raglan": gli aumenti sono come per il primo giro, ma spiegati in modo che si possa adattare a tutti i giri. Buon lavoro!
29.01.2022 - 14:15Maria wrote:
Non trovo chiaro il procedimento dello sprone. Ossia, io inizio lo sprone che ho 56 maglie (Taglia M), quando inizio a fare il primo giro di aumenti, termino con 64 maglie (sarebbe meglio scriverlo questo). Non mi viene chiesto però di mettere dei segnapunti, come faccio a ricordare, dal secondo giro in poi, quali sono i punti di passaggio tra corpo e manica?
28.01.2022 - 18:57DROPS Design answered:
Buonasera Maria, nel 1° giro di aumenti si lavorano 8 gettati, quindi le maglie passano da 56 a 64. Per gli aumenti successivi può fare riferimento a quanto riportato sotto il paragrafo "RAGLAN". Buon lavoro!
28.01.2022 - 20:31Christine Hagen wrote:
Liebes Drops design die Mengenangaben Drops Andes (Gruppe E) werden mit 700 Gramm beschrieben. Ist dies nicht ein wenig viel beim Modell Frozen Cranberries. Beim Vergleich mit ähnlichen Modellen sind die Mengenangaben so ziemlich die Hälfte davon. Dankbar für Ihre schnelle Antwort. Freundliche Grüsse Christine
02.04.2020 - 13:21DROPS Design answered:
Liebe Frau Hagen, die Garnmenge sollte stimmen - vergessen Sie nicht Ihre Maschenprobe zu stricken/prüfen und die Nadlegrösse anzupassen wenn nötig ist - und sieht ähnlich aus wie anderen Modellen mit Andees gestrickt. Viel Spaß beim strickne!
02.04.2020 - 15:01Annamaria wrote:
A vállrész szaporítása pontosan hogyan történik az 1.szaporítások után? Nem érthető. S ha KÖRBEN kötünk mi a különbség a harisnyakötés és a lustakötés között? Az angol változat sajnos ugyanígy nem érthető.
03.02.2020 - 19:34DROPS Design answered:
Kedves Annamária, ha körben kötünk, a harisnyakötésnél MINDEN körben sima szemekkel kötünk, lustakötésnél pedig egy kört kötünk sima szemekkel és 1 kört kötünk fordított szemekkel Sikeres kézimunkázást!
20.02.2020 - 16:31Annamária wrote:
A vállrész szaporítása pontosan hogyan történik? Nem érthető. S ha KÖRBEN kötünk mi a különbség a harisnyakötés és a lustakötés között? Az angol változat sajnos ugyanígy nem érthető.
03.02.2020 - 19:33DROPS Design answered:
Kedves Annamária, ha körben kötünk, a harisnyakötésnél MINDEN körben sima szemekkel kötünk, lustakötésnél pedig egy kört kötünk sima szemekkel és 1 kört kötünk fordított szemekkel Sikeres kézimunkázást!
27.02.2020 - 05:02Sílvia wrote:
Bonito, quente e charmoso
02.08.2019 - 22:52
Frozen Cranberries |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Andes. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-35 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 12. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 5 lykkjur sléttprjón (laskalína) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (= gat). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-51-54-57-60-63 lykkjur á hringprjón 7 með Andes. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-5-6-3-8-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 52-56-60-60-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið nú berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 5-6-7-7-9-9 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-14-18-18 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 5-6-7-7-9-9 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið áfram með sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið svona út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 14-16-17-19-19-21 sinnum hvoru megin við laskalínu – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 164-184-196-212-220-236 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá eftir kanti í hálsi, en til að gataröðin haldi áfram meðfram laskalínu eftir að útaukningar hafi verið gerðar til loka er prjónað A.1 (= 9 lykkjur) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þar til berustykkið hefur verið prjónað til loka (miðju 5 lykkjur = laskalína). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 23-26-28-31-33-36 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 46-52-56-62-66-72 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-40-42-44-44-46 lykkjurr á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 23-26-28-31-33-36 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-116-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2525-26-26-26-26 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 19-22-23-26-29-32 lykkjur jafnt yfir = 123-138-147-162-177-192 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 36-40-42-44-44-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 42-46-48-50-52-54 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2 sinnum = 38-42-44-46-48-50 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum með 7-4½-4½-3½-3- 3 cm millibili alls 5-7-7-8-8-8 sinnum = 28-28-30-30-32-34 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-36-36-34-32-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 5 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-5-6-6-7-8 lykkjur jafnt yfir = 33-33-36-36-39-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Gabi wrote:
Gefällt, super, mal was anderes.
17.08.2019 - 17:47