-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= litur koksgrár / piparkorn, slétt lykkja | |
= litur koksgrár / piparkorn, brugðin lykkja | |
= litur beige | |
= litur hvítur |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Dashing Through the Snow |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu með hettu, laskalínu og norrænu mynstri úr DROP Karisma Angora-Tweed eða DROPS Soft Tweed. Prjónuðu pilsi úr DROPS Karisma og vettlingum úr DROPS Alaska.
DROPS 63-16 |
|||||||||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*. STROFF: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR (á við um vettlinga): M:4: * 2 umferðir sléttprjón, 1 umferð brugðin *, endurtakið frá *-*. ---------------------------------------------------------- PEYSA: Peysan er prjónuð í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handveg. Síðan er stykkið prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 180-200 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum koksgrár Karisma Angora -Tweed eða litnum piparkorn Soft Tweed og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið M.1 JAFNFRAMT er aukið út í 2 umferðum merktum með * um 10 lykkjur jafnt yfir = 200-220 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19 cm er prjónað M.2 – passið uppá að það komi 1 lamadýr fyrir miðju á framstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-30 cm er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 94-104 lykkjur á framstykki, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 94-104 lykkjur á bakstykki, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg. Prjónið nú fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 94-104 lykkjur. Fellið af fyrir handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í annarri hverri umferð: 1 lykkja 25-31 sinnum, síðan í 4. hverri umferð: 1 lykkja 3-0 sinnum. JAFNFRAMT þegar eftir eru 1-2 lykkjur eru felldar af miðju 30-32 lykkjur fyrir hálsmáli, fellið síðan af 2 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð. Eftir M.2 eru prjónaðar 9-14 umferðir með litnum koksgrár / piparkorn. Stykkið mælist ca 51-54 cm, fellið af. FRAMSTYKKI: Fellið af fyrir handveg og prjónið mynstur eins og á bakstykki en þegar eftir eru 2-4 lykkjur eru felldar af miðju 26-28 lykkjur fyrir hálsmáli, fellið síðan af 2 lykkjur við háls í annarri hverri umferð 2 sinnum. Eftir síðustu affellinguna fyrir hálsmáli mælist stykkið ca 51-54 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 50-50 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum koksgrár / piparkorn og prjónið 4 umferðir garðaprjón, skiptið síðan yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið M.1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi 23-23 sinnum í S/M: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, M/L: Í 4. hverri umferð = 96-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 35-35 cm er prjónað M.2 – staðsetjið eitt lamadýr mitt á ermi. Þegar stykkið mælist 44-46 cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (passið uppá að það sé sama mynstur af M.2 og fram- og bakstykki) og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Áfram er fellt af hvoru megin innan við 1 kantlykkju (eins og í garðaprjóni) í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 7-7 sinnum, 1 lykkja 24-24 sinnum = 14-14 lykkjur. Eftir M.2 er prjónað til loka með koksgráum þar til stykkið mælist 68-70 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman – það er 1 kantlykkja fyrir saum í öllum stykkjum, passið uppá að mynstrið passi að hvert öðru! HÁLSMÁL: Takið upp ca 76 lykkjur í kringum háls á sokkaprjón 3,5, prjónið stroff í 12 cm. Fellið laust af. HETTA: Takið upp lykkjur og prjónið hettu utan við háa hálsmálið. Takið upp 94-94 lykkjur upp í háa hálsmálinu á sokkaprjón 3,5 með litnum koskgrár / piparkorn. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan þannig: 1 cm stroff með 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 JAFNFRAMT er aukið út um 12-12 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 106-106 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar hettan mælist 36-37 cm eru lykkjur settar á þráð, leggið hettuna saman tvöfalda og saumið saman efst með lykkjuspori. SKÚFUR: Klippið 50 þræði (ca 20 cm langa) með litnum koksgrár / piparkorn, hnýtið með tvöföldum þræði (ca 20 cm langa) um miðju á skúf, leggið þræðina saman tvöfalda (= skúfurinn verður 10 cm langur), vefjið þræði 4-5 sinnum utan um skúfinn ca 3 cm neðan við uppábrotið. Festið skúfinn aftan á hettu. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið 1 umferð neðst í kringum fram- og bakstykkik, neðst í kringum ermar og utan um hettu með tvöföldum þræði frá réttu með litnum koksgrár / piparkorn og heklunál 4 þannig: Heklið 1 umferð með fastalykkju í gagnstæða átt, þ.e.a.s. frá vinstri til hægri án þess að snúa stykkinu. ---------------------------------------------------------- PILS: Pilsið er prjónað neðan frá og upp. Fitjið upp 330-390 lykkjur á hringprjón 4 með litnum koksgrár og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan M.1 og M.3 og áfram með koksgráum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-23 cm eru sett 3 prjónamerki í stykkið með 110-130 lykkjur á milli hverra. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 6 lykkjur færri í hverri umferð) þannig: 2 lykkjur slétt saman á undan prjónamerki, á eftir prjónamerki er 1 lykkja tekin óprjónuð, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum alls 10-18 sinnum í 5.-3. hverjum cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin 17-17 sinnum í hverjum cm = 168-180 lykkjur. Þegar stykkið mælist 93-97 cm er fækkað um 22-20 lykkjur jafnt yfir í umferð = 146-160 lykkjur. Prjónið 3 cm sléttprjón, 1 umferð brugðið (= uppábrot), 3 cm sléttprjón, fellið af og brjótið uppá kantinn tvöfaldan að röngu og saumið. Þræðið teygju í mitti. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið 1 umferð neðst í kringum pilsið með tvöföldum þræði frá réttu með litnum koksgrár og heklunál 4 þannig: Heklið 1 umferð með fastalykkjum í gagnstæða átt, þ.e.a.s. frá vinstri til hægri án þess að snúa stykkinu. ---------------------------------------------------------- VETTLINGAR: Tölur í () = herrastærð. Fitjið upp 42 (48) lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum natur og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 3 cm. Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 38 (44) lykkjur. Prjónið síðan M.4 í 5 cm. Eftir M.4 eru sett 3 prjónamerki í stykkið þannig: 1 prjónamerki, 1 þumallykkja (sléttprjón), 1 prjónamerki (= í hlið), 22 (25) lykkjur ofan á hönd, 1 prjónamerki (= í hlið), 15 (18) lykkjur í hönd. Haldið áfram í sléttprjóni – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við þumallykkju í annarri hverri umferð 5 sinnum = 48 (54) lykkjur. Þegar stykkið mælist 6,5 (7) cm setjið miðju 11 (11) lykkjur fyrir þumal á 1 þráð. Í næstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja yfir lykkjur á þræði = 38 (44) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15 (16) cm færið prjónamerkin 2 lykkjur ofan á hönd (= 1 prjónamerki í hvorri hlið á vettling). Fækkið áfram um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin þannig: Á undan prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir óprjónuðu lykkjuna. Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið um 2 (3) sinnum í annarri hverri umferð og síðan í hverri umferð þar til 6 (4) lykkjur eru eftir á prjóni. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum síðustu lykkju og festið enda. Vettlingurinn mælist ca 27 (29) cm. ÞUMALL: Takið upp alls 15 (18) lykkjur í kringum þumal og prjónið sléttprjón. Eftir 6,5 (7) cm eru prjónaðar lykkjur saman tvær og tvær og síðan er þráðurinn dreginn tvöfaldur í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið annan vettling alveg eins. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6922 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (11)
Sunniva wrote:
Vil gjerne felle ragland og ikke sy den, har dere fremgangsmåte for det?
04.03.2024 - 19:53DROPS Design answered:
Hej Sunniva, ja vi har mange opskrifter med raglan som strikkes rundt, nedefra og op, du kan følge en af disse: genser, raglan, 20masker :)
07.03.2024 - 15:30Annedore Döring wrote:
Danke für Ihre Antwort, aber Ihre Angaben beziehen sich auf die Farbe Anthrazit. Im Musterstreifen gibt es aber einen anderen Grauton, Pfefferkorn oder auch Koksgrau. Hierfür machen Sie keine Angaben für den Rock. Die Wolle für den Musterstreifen ist Auch nicht Karisma, sondern Angora Tweed oder Soft Tweed. Wieviel brauche ich für den Rock in Größe M/L in der Farbe Koksgrau oder Pfefferkorn?
13.02.2023 - 09:07DROPS Design answered:
Liebe Frau Döring, benutzen Sie unseren Garnumrechner für die ältere Garne - Angora Tweed war etwas Länger für 50 g als Karisma ist, So brauchen Sie 50 g in die 2 Farben Nr 10 und Nr 11 - dh je 2 Knäuel Karisma in diese beide Farben + 400 g Farbe Nr 53 (= 8 Knäuel) - oder von den gewünschten Farben Viel Spaß beim stricken!
13.02.2023 - 11:31Annedore Döring wrote:
Guten Tag, wieviel Wolle braucht man in der Farbe Koksgrau für den Rock in Größe M//L?
10.02.2023 - 16:51DROPS Design answered:
Liebe Frau Döring, Material sowie Nadel und Maschenprobe finden Sie etwas unten auf der Seite, nach den Erklärlungen des Pullovers, dh 350-400 g (siehe Grösse) DROPS Karisma. Viel Spaß beim stricken!
13.02.2023 - 08:45Solveig Marie Holt wrote:
Solveig marie holt nedre ringgata 78b 1723 sarpsborg norge kan du sende oppskriften hjem privat til meg i posten Dashing Through the Snow by DROPS Design
27.12.2022 - 00:54DROPS Design answered:
Hei Solveig. Det kan vi dessverre ikke gjøre, men du kan selv laste ned oppskriften (gratis) og skrive ut oppskriften du trenger. Har du ikke en printer, kan du oppsøke et bibliotekt og be de hjelpe deg. mvh DROPS Design
02.01.2023 - 13:23Ansku wrote:
Voiko karisman korvata nord-langalla?
30.05.2022 - 12:10DROPS Design answered:
Valitettavasti Karismaa ei voida korvata Nord-langalla, koska lankojen neuletiheys ei ole sama. DROPS Karisma kuuluu lankaryhmään B, voit korvata langan jollakin toisella samaan lankaryhmään kuuluvalla langalla.
31.05.2022 - 17:04Solveig Marie Holt wrote:
Hei Jeg ønsker oppskriften tilsendt hjem i posten privat Drops design modell G- 019 Drops 63-16 Min adresse: Solveig Marie holt Nedre Ringgata 78 b 1723 Sarpsborg Norge På forhånd ønskes svar, takk. Med vennlig hilsen Solveig Marie holt
04.04.2022 - 08:22DROPS Design answered:
Hei Solveig. Vi sender ikke ut oppskrifter pr post. Oppskrifter kan du skrive ut gratis fra vår nettside. Har du ikke printer, besøk ditt lokale bibliotekt, de har nok mulighet for å hjelpe deg. mvh DROPS Design
04.04.2022 - 13:21Solveig Marie Holt wrote:
Jeg vi kjøpe oppskrift og garn som tilhører denne oppskriften. Hvor mye koster det?
13.03.2022 - 09:49DROPS Design answered:
Hei Solveig. Oppskriften er gratis, den kan du skrive ut fra nettsiden vår. Garnet DROPS Karisma Angora-Tweed er utgått fra vårt sortiment. Bruk vår garnkalkulator, du finner den under eller til høyre for bildet, da finner du ut hvilken garnalternativ du kan bruke. Da fyller du inn garnmengden til den str. du ønsker, så kommer det opp alternativ og mengde garn du trenger. Til f.eks str. S/M og 350 gram Karisma Angora Tweed, kan byttes ut med 550 gram DROPS Karisma. mvh DROPS Design
14.03.2022 - 14:32Jean Voges wrote:
On sleeve decreases it says dec 1 stitch each side every other row: 2 sts 7-7 times, 1 st 24-24 times = 14-14 sts. Does the 1 st 24 times dec occur every other row and also, does this 1 st dec alternate sides? Thanks
20.02.2020 - 16:01DROPS Design answered:
Dear Mrs Voges, you will cast off 2 sts 7 times and 1 st 24 times at the beginning of each row on each side = both from RS and from WS, this means on each side on every other row. Happy knitting!
21.02.2020 - 07:37Lone Hald wrote:
Mønsteret skal hedde noget med Bolivia eller Peru for de har lamaer, ligesom der er i designet. Mvh Lone
30.10.2018 - 16:30Alexandra wrote:
Guten Tag, ich habe gerade diesen Pulli entdeckt... wo finde ich die Anleitung vom Rock dazu?
17.05.2018 - 23:21DROPS Design answered:
Liebe Alexandra, die Anleitung vom Rock finden Sie nach der Anleitung der Pulli - siehe "Roch in Karisma". Viel Spaß beim stricken!
18.05.2018 - 08:57