My Wildflower |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Big Delight með röndum og hekluðum ferningum. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-28 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklaðir eru þríbrugðnir stuðlar í byrjun á umferð eru heklaðar 5 loftlykkjur í stað 3 loftlykkjur í byrjun á umferð. RENDUR-1: * Heklið 1 umferð með litnum grár, 1 umferð með litnumsumarengi *, heklið frá *-*. RENDUR-2: Umferð frá réttu (3 stuðlar + 1 loftlykkja): Sumarengi. Umferð frá röngu (1 stuðull + 4 loftlykkjur): Grár. LITASKIPTI: Þegar mynsturteikningar A.1 og A.2 eru heklaðar eru heklaðar rendur í öðrum hvorum litnum hringinn. Til að sleppa við að klippa þráðinn frá eftir hverja umferð, er hægt að hekla þráðinn með þannig að hann fylgi með upp að næstu umferð. Síðar í stykkinu þegar rendur eru heklaðar fram og til baka, verður að klippa þráðinn frá og festa eftir hverja umferð sem er hekluð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru heklaðir alls 12 ferningar. Fyrir framstykki eru heklaðir 4 ferningar saman sem mynda langa lengju. Fyrir bakstykki eru heklaðir 4 ferningar saman sem mynda ferning, síðan er heklað niður meðfram fram- og bakstykki og upp að öxl. Þegar fram- og bakstykki hafa verið hekluð til loka eru axlir saumaðar saman áður en heklað er áfram út í hvora hlið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Að lokum er kantur í hálsi heklaður og kantur að framan. Allt stykkið er heklað í röndum – sjá LITASKIPTI! HEKLAÐIR FERNINGAR: Heklið 4 loftlykkjur með grár með heklunál 5 og tengið saman í hring með einni keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið nú RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan og A.1 alls 4 sinnum hringinn í umferð (A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 16 cm x 16 cm. Heklið alls 12 ferninga. FRÁGANGUR Á FERNINGUM: Bakstykki: Heklið 4 ferninga saman í einn stóran ferning – sjá mynd með svörtum línum. Leggið 2 ferninga með réttu að hvorum öðrum og heklið þá saman frá röngu í gegnum bæði lögin með litnum grár þannig: Festið enda með 1 fastalykkju í lykkju í horni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í lykkju í hornið. Nú hafa verið heklaðir 2 ferningar saman. Heklið tvo aðra ferninga saman alveg eins. Heklið nú ferningana saman á lengdina þannig að það verða 2 ferningar á breidd og 2 ferningar á hæð þannig: Festið enda með 1 fastalykkju í lykkju í horni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga í næsta ferning, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í lykkju í horni. Hægra og vinstra framstykki: Heklið 4 ferninga saman í eina lengju þannig að það verða 4 x 1 ferningur – sjá teikningu með krossum. Leggið 2 ferninga með réttu að hvorum öðrum og heklið þá saman frá röngu í gegnum bæði lögin með litnum grár þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í lykkju í hornið, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í lykkju í hornið. Nú hafa verið heklaðir 2 ferningar saman. Heklið hina ferningana saman þannig að þeir myndi langa lengju með 1 x 4 ferningum. Heklið hitt framstykkið á sama hátt. BAKSTYKKI: Heklið niður yfir bak þannig: Byrjið með sumarengi og frá réttu. Festið þráðinn með 1 fastalykkju í hornið með hvítri stjörnu – sjá teikningu. Heklið RENDUR-2 og mynstur frá fyrstu umferð í A.3a til A.3c þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hverja og eina af næstu 11 loftlykkjubogum, endið með A.3c í lykkju í horni. Haldið áfram fram og til baka og endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.3a – A.3c þar til stykkið mælist 26 cm frá ferning – stillið af að endað sé eftir umferð sem jafngildir 2. umferð í A.3a – A.3. Heklið nú loftlykkjuboga niður meðfram hlið á umferð með A.3a frá röngu og með grár þannig: Heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2½ cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* jafnt yfir þar til heklaðar hafa verið 10 loftlykkjubogar meðfram hlið á bakstykki upp að fyrsta ferning (með hvítri stjörnu). Klippið frá og endurtakið í hinni hliðinni. Heklið öxl á gagnstæðri hlið á 4 ferningunum þannig: Byrjið með litnum sumarengi og frá réttu. Festið enda með 1 fastalykkju í hornið með svartri stjörnu – sjá teikning. Heklið RENDUR-2 og mynstur frá fyrstu umferð í A.3a – A.3c þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, heklið A.3b um hvern af næstu 11 loftlykkjubogum, endið með A.3c í hornið. Haldið áfram fram og til baka þar til öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina 1 sinni. Heklið nú vinstri öxl frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: A.3c, A.3b alls 3 sinnum, A.3a. Snúið og heklið síðustu umferð til baka frá réttu. Klippið frá og heklið hægri öxl frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Hoppið yfir 4 stuðlahópa fyrir hálsmáli og festið enda (grár) með 1 fastalykkju um næstu loftlykkju. Helklið A.3c, A.3b alls 3 sinnum, A.3a. Snúið og heklið síðustu umferð til baka frá réttu. Klippið frá. Nú er bakstykkið tilbúið. HÆGRA OG VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið nú 1 umferð upp að öxl, meðfram öðrum ferning á enda á lengju með 4 hekluðum ferningum. Byrjið með litnum sumarengi og heklið frá réttu þannig: Festið enda með 1 fastalykkju í hornið, heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hvern og einn af næstu 5 loftlykkjubogum, endið með A.3c í hornið. Klippið frá og festið enda. Heklið vinstra framstykki á sama hátt og hægra framstykki. FRÁGANGUR Á ÖXL: Saumið axlasauma. Byrjið sauminn lengst út á öxl og saumið lykkjur eina og eina inn að hálsmáli. HÆGRI HLIÐ OG ERMI: Byrjið með sumarengi og frá réttu. Festið enda með fastalykkju í horni með hring – sjá teikningu. Heklið RENDUR-2 og mynstur frá fyrstu umferð í A.3a – A.3c þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hvern og einn af næstu 9 loftlykkjubogum, haldið síðan áfram með A.3b um hvern loftlykkjuboga meðfram hvorum af næstu 2 ferningum á bakstykki (= 12 mynstureiningar A.3b), heklið 3 mynstureiningar A.3b jafnt yfir upp að axlasaumi og 1 mynstureining A.3b í síðustu umferð á framstykki, haldið síðan áfram með A.3b í hvern loftlykkjuboga meðfram hverjum af ferningum á framstykki (= 24 mynstureiningar A.3b), endið með A.3c í hornið lengst niður á framstykki. Nú er1 mynstureining A.1a, 49 mynstureiningar A.3b og 1 mynstureining A.3c meðfram hlið á stykki). Þegar allt A.3a – A.3c er lokið á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðirnar alveg eins, nema í 2. umferð í mynsturteikningu eru 8 fyrstu stuðlarnir heklaðir sem þríbrugðnir stuðlar – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, næstu 6 stuðlar sem tvíbrugðnir stuðlar, næstu 22 stuðlar eru heklaðir sem stuðlar eins og áður, næstu 6 stuðlar sem tvíbrugðnir stuðlar, síðustu 8 stuðlarnir sem þríbrugðnir stuðlar (3. umferð er hekluð eins og útskýrt er í mynsturteikningu). Haldið svona áfram (þ.e.a.s. í 2. umferð í mynsturteikningu eru heklaðir þríbrugðnir stuðlar og tvíbrugðnir stuðlar í byrjun og í lok umferðar eins og útskýrt er að ofan og 3. umferð er hekluð eins og áður) fram og til baka þar til stykkið mælist 13-17-25 cm lengst niðri á framstykki og bakstykki – stillið af að endað sé eftir 3. umferð í mynsturteikningu. Klippið frá. Nú er ermin hekluð með byrjun frá röngu: Hoppið yfir fyrstu 15-15-14 stuðlahópana (= A.3a/A.3b). Festið enda (grár) með 1 fastalykkju um næstu loftlykkju, heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull um sömu loftlykkju (= A.3c), A.3b alls 19 sinnum, A.3c. Snúið og heklið 3. umferð til baka frá réttu – RENDUR-2 halda áfram eins og áður. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stykkið mælist ca 48-50-52 cm frá ferningum – stillið af að endað sé eftir eina umferð frá réttu. Klippið frá. VINSTRI HLIÐ OG ERMI: Vinstri hlið og ermi er heklað á sama hátt og hægri hlið og ermi, en byrjað er frá réttu í horni neðst niðri á framstykki í stað bakstykkis – stillið af mál eftir hægri hlið og ermi. FRÁGANGUR: Brjótið uppá peysuna þannig að réttan liggi að réttu og heklið í gegnum bæði lögin frá röngu með litnum sumarengi þannig: Byrjið neðst niðri á ermi með fastalykkju, * heklið 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* undir ermi og niður meðfram hlið. Klippið frá. Endurtakið á hinni hliðinni. KANTUR NEÐST NIÐRI Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu neðst niðri á framstykki að miðju að framan og heklið með litnum sumarengi þannig: Festið enda með 1 fastalykkju í lykkju í horni, heklið A.3a um fyrsta loftlykkjuboga, A.3b um hvern af næstu 5 loftlykkjubogum, heklið A.3b jafnt yfir 11-14-20 sinnum meðfram hlið á stykki fram að stykki á bakstykki sem heklað var niður yfir 4 ferninga að aftan, heklið A.3b alls 12 sinnum eins og áður yfir næstu 12 mynstureiningar á bakstykki, heklið A.3b alls 6 sinnum meðfram ferning og endið með A.3c um lykkju í horni. Nú er 1 mynstureining A.3a, 45-51-63 mynstureiningar A.3b og 1 mynstureining A.3c í umferð. Haldið áfram fram og til baka með 2 síðustu umferðum í mynsturteikningu (RENDUR-2 halda áfram eins og áður) þar til kantur mælist 4-8-12 cm frá ferningum á framstykki – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu. Klippið frá. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Kantur í hálsmáli er heklaður fram og til baka í 1 hluta frá vinstra framstykki og saumað við hálsmál aftan í hnakka og hægra framstykki í lokin. Allur kantur í hálsmáli er heklaður með litnum sumarengi. Byrjið frá réttu með 1 fastalykkju lengst inn við vinstri axlasaum (að hálsmáli) á vinstra framstykki og heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: A.4a, A.4b, A.4c (2. Umferð er hekluð frá réttu og 3. umferð er hekluð frá röngu). Haldið áfram fram og til baka svona og endurtakið síðustu 2 umferðirnar þar til heklaðar hafa verið 20 umferðir á hæðina. Heklið síðan 1 umferð til viðbótar að næst síðustu umferð í mynsturteikningu. Klippið frá. Saumið síðustu umferð sem var hekluð við kant efst á hægra framstykki og saumið kraga niður meðfram hálsmál aftan í hnakka (saumið með smáu spori svo að saumurinn verði ekki þykkur). KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu með litnum sumarengi í horni neðst niðri á framstykki. Heklið 1 fastalykkju um neðstu umferð á kanti, heklið 4 loftlykkjur, 3 stuðlar um næsta umferð meðfram kanti (= A.3a), heklið 0-1-2 mynstureiningar A.3b jafnt yfir upp að fyrsta ferning, haldið síðan áfram með A.3b um hvern loftlykkjuboga meðfram hverjum af 4 ferningum á hægra framstykki (= 6 mynstureiningar A.3b meðfram hverjum af ferningum), haldið síðan áfram með 1 mynstureiningu A.3b um hverja af umferð meðfram kanti í hálsmáli (= 20 mynstureiningar), haldið síðan áfram niður yfir vinstra kant að framan á sama hátt og á hægri kanti að framan. Þegar allt A.3a til A.3b hefur verið heklað til loka á hæðina er kanturinn tilbúinn. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (49)
María José Rodríguez Zoido wrote:
Quisiera saber qué color es para comprarlo y tenerlo preparado para cuando esté el patrón. Me encanta este modelo
16.01.2019 - 19:01Angelita wrote:
Super
12.01.2019 - 15:15Eva Lindh wrote:
Jätte snygg! Skynda er att ge oss beskrivningen! Jag har redan beställt garnet! Med vänlig hälsning Eva
12.01.2019 - 01:07Chantal Magnan wrote:
Très original avec un jean et un t-shirt blanc comme sur la photo !
11.01.2019 - 19:11Christine wrote:
J'adoooore ! j'attends les explications pour le faire ;-)
11.01.2019 - 15:19Ge Asteenks wrote:
Wat een mooi patroon ,die ga ik zeker maken
09.01.2019 - 18:12Adelaide Saraiva wrote:
Também quero fazer este modelo. muito bonito. Parabéns pela coleção.
08.01.2019 - 01:59Brigitte Wipfler wrote:
Einfach toll .Möchte es Nacharbeiten.Wo finde ich die Anleitung?
21.12.2018 - 08:31Anneli Seppä wrote:
Ehdoton ykkönen! Tämä ohje on pakko saada!
14.12.2018 - 18:09