Benedicte |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa með blöðruermum, gatamynstri og klauf í hliðum. Stykkið er prjónað úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu og lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku mitt í stykki á ermum): Þegar fækka á 3-3-3-4-4-4 lykkjur jafnt yfir er fallegra ef úrtökurnar deilast þannig að fækkað er um 1 lykkju yfir hverja og eina af miðju 3-3-3-4-4-4 mynstureiningum með A.1. Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA-3 (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu og lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hvorri hlið: Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING-1 (á við um neðst niðri á ermum): Prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju með því að prjóna 1 lykkju bæði framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri). ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir neðst niðri á ermum): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 3,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð (rétta) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman og í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 81-87-93-102-113-121 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir klauf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm endar klaufin. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 30-32-34-31-33-35 cm byrjar gatamynstrið og næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-4-7-6-6-10 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 2-5-8-7-7-11 lykkjur á prjóni (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 11 lykkjum), prjónið 1-4-7-6-6-10 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram svona með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-34-35-36-37-38 cm fellið af 1-2-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 79-83-85-94-101-109 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 0-2-3-2-0-4 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 40-42-43-45-46-48 cm setjið miðju 25-25-25-28-31-31 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli = 27-29-30-33-35-39 lykkjur eftir á hvorri öxl. Axirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum = 23-25-26-29-31-35 lykkjur eftir – ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni (á við um XL, XXL og XXXL). Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 81-87-93-102-113-121 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir klauf. Þegar stykkið mælist 10 cm endar klaufin. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 30-32-34-31-33-35 cm byrjar gatamynstur og næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-4-7-6-6-10 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 2-5-8-7-7-11 lykkjur á prjóni (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 11 lykkjum), prjónið 1-4-7-6-6-10 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-34-35-36-37-38 cm fellið af 1-2-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 79-83-85-94-101-109 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 0-4 lykkjum í sléttprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fellið af miðju 31-31-31-34-37-37 lykkjurnar fyrir hálsmáli = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á hvorri öxl. Axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1 = 23-25-26-29-31-35 lykkjur eftir – ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni (á við um XL, XXL og XXXL). Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Í 2 næstu umferðum er aukið út eins og útskýrt er að neðan. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur í hverja lykkju þar til eftir er 1 lykkja á prjóni – sjá ÚTAUKNING-1, endið með 1 kantlykkju garðaprjón = 62-62-70-70-78-78 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og aukið JAFNFRAMT úr 17-17-9-20-12-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING-2, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 79-79-79-90-90-90 lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón án útaukningar, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= 7-7-7-8-8-8 mynstureiningar með 11 lykkjum), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 31 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum og þar til eftir eru ca 23-23-23-21-20-18 cm til loka. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist alls 32 cm í öllum stærðum, fækkið um 3-3-3-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum = 70-70-70-78-78-78 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón án úrtöku. Þegar stykkið mælist 41 cm í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona með 1½-2-2-1-1-1 cm millibili alls 7-6-5-7-5-4 sinnum = 56-58-60-64-68-70 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón án úrtöku þar til stykkið mælist 53-53-51-49-47-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja hvar sauma á ermina í handveg. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-54-54-52-51-49 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður að klauf – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Saumið ermasauma neðan frá og upp að prjónamerki – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Prjónamerkin á ermum eiga að passa við botn á handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 104 til 116 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stutta hringprjón 4,5 með Air – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3-3½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (33)
Bourguignon wrote:
J'aime beaucoup ce modèle et sa couleur jaune éclatante ainsi que son point fantaisie. Je voulais le mettre dans mes favoris, mais je ne trouve plus la rubrique "mes préférés"! Elle a disparue!! C'est vraiment dommage, je pouvais sélectionner les ouvrages qui me plaisaient.
18.01.2019 - 19:00MILDRED MENDIVELSO wrote:
Informacion para vender
18.01.2019 - 16:27Vera wrote:
Where has the 'Favorites' gone.....I now have to trawl through again to find my next project?
17.01.2019 - 10:06DROPS Design answered:
Dear Vera, the "Favorites" section will be back in a few days, thanks for your comprehension!
17.01.2019 - 15:14Agnieszka Cielińska wrote:
Lemon curd
13.01.2019 - 18:49Fiorella wrote:
Sbuffi di sole
12.01.2019 - 23:37Hanka wrote:
Meeeeega schönes Modell :-))))))))
12.01.2019 - 19:40Maureen wrote:
Suggested name = Cuddles
11.01.2019 - 18:16Gonny wrote:
I love those big, oversized sleeves and that it is an a-line model. I like that this pattern doesn't seem to have a p1k1 border at the bottom.
29.12.2018 - 07:24Dianne wrote:
Love the sleeves to give this garment a different look.
21.12.2018 - 23:12Chiara wrote:
Vi prego votatelo! E' uno spettacolo il modello, ed anche la air!
18.12.2018 - 12:08