Vintage Vibe |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað í vinkil með gatamynstri, röndum og garðaprjóni
DROPS 194-24 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.25. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MÁL: Öll mál eru gerð meðfram kantlykkjum í hlið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í vinkil í tveimur alveg eins stykkjum og saumað saman í miðju í lokin. Stykkin eru prjónuð frá skammhlið að miðju á stykki með mismunandi einingum með röndum, gatamynstri og sléttprjóni í vinkil. Í lokin er stykkinu skipt upp og prjónað er fram og til baka einungis yfir helming af lykkjum. Þetta er gert samtímis sem lykkjum er fækkað í hvorri hlið til að fá rétt endalok mitt í stykkinu. STYKKI 1: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 3 með litnum milligrár. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja, setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= alls 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur að lykkju með prjónamerki, uppslátturinn er prjónaður slétt, það eiga að myndast göt, prjónið lykkju með prjónamerki brugðið, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. UMFERÐ 3: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= alls 4 lykkjur fleiri). Endurtakið umferð 2 og 3, þ.e.a.s. aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð frá réttu, miðjulykkja er prjónuð í sléttprjóni og aðrar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram þar til 139-163 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju með því að prjóna 2 lykkjur í sömu lykkju = 141-165 lykkjur (= 70-82 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju). Haldið nú áfram að auka út hvoru megin við miðjulykkju, en lykkjum er fækkað innan við 2 kantlykjur í hvorri hlið á stykki, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami, þannig: HLUTI 1 (gatamynstur og garðaprjón): Prjónið með litnum milligrár þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 (= 5 lykkjur), prjónið A.2 (= 2 lykkjur) þar til eftir er 1 lykkja á undan miðjulykkju (= 31-37 sinnum á breidd), A.3 (= 1 lykkja), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.4 (= 2 lykkjur), prjónið A.2 þar til 8 lykkjur eru eftir (= 30-36 sinnum á breidd), A.5 (= 6 lykkjur) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1 til A.5 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 2 cm – lesið MÁL að ofan. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.6 (= 5 lykkjur), prjónið A.7 (= 2 lykkjur) þar til eftir er 1 lykkja á undan miðjulykkju (= 31-37 sinnum á breidd), A.8 (= 1 lykkja), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.9 (= 2 lykkjur), prjónið A.7 þar til 8 lykkjur eru eftir (= 30-36 sinnum á breidd), A.10 (= 6 lykkjur) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.6 til A.10 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 4 cm. HLUTI 2 (gatamynstur): Prjónið með litnum natur þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.11 (= 9 lykkjur), prjónið A.12 (= 12 lykkjur) þar til 11 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 4-5 sinnum á breidd), A.13 (= 11 lykkjur), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), A.14 (= 10 lykkjur), prjónið A.12 þar til 12 lykkjur eru eftir (= 4-5 sinnum á breidd), A.15 (= 10 lykkjur) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.11 til A.15 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 7 cm. HLUTI 3 (garðaprjón og gatamynstur): Prjónið með litnum milligrár þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.6 yfir 5 lykkjur, prjónið A.7 þar til 1 lykkja er eftir á unda miðjulykkju (= 31-37 sinnum á breidd), A.8 yfir 1 lykkju, 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.9 yfir 2 lykkjur, prjónið A.7 þar til 8 lykkjur eru eftir (= 30-36 sinnum á breiddina), A.10 yfir 6 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.6 til A.10 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 9 cm. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 5 lykkjur, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju (= 31-37 sinnum á breidd), A.3 yfir 1 lykkju, 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), A.4 yfir 2 lykkjur, prjónið A.2 þar til 8 lykkjur eru eftir (= 30-36 sinnum á breidd), A.5 yfir 6 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1 til A.5 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 11 cm. HLUTI 4 (rendur og garðaprjón): Haldið áfram í garðaprjóni og miðjulykkju í sléttprjóni, eins og A.6 til A.10 (eins og í 3. hluta, mynsturteikning er endurtekin á hæðina), en rendur eru prjónaðar þannig: Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós bleikfjólublár, 2 umferðir garðaprjón með litnum milligrár *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 8 umferðir garðaprjón), * 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós bleikfjólublár, 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós grár *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (= 8 umferðir garðaprjón), prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós bleikfjólublár. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, mælist stykkið ca 19 cm. HLUTI 5 (gatamynstur): Prjónið með litnum ljós grár þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.16 (= 9 lykkjur), prjónið A.17 (= 6 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 9-11 sinnum á breidd), A.18 (= 5 lykkjur), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), A.19 (= 4 lykkjur), prjónið A.17 þar til eftir eru 12 lykkjur (= 9-11 sinnum á breidd), A.20 (= 10 lykkjur) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.16 til A.20 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 22 cm. HLUTI 6 (gatamynstur): Prjónið með litnum natur þannig: Haldið áfram með úrtöku og útaukningu eins og áður, en prjónið 2 umferðir sléttprjón með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.21 (= 15 lykkjur), prjónið A.22 (= 12 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 4-5 sinnum á breidd), A.23 (= 5 lykkjur), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), A.24 (= 4 lykkjur), prjónið A.22 þar til 18 lykkjur eru eftir (= 4-5 sinnum á breidd), A.25 (= 16 lykkjur) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Endurtakið A.21 til A.25 á hæðina, alls 3 sinnum. Stykkið mælist ca 36 cm. Haldið áfram með úrtöku og útaukningu eins og áður, en prjónið 2 umferðir sléttprjón með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. HLUTI 7 (rendur og garðaprjón): Haldið áfram í garðaprjóni og miðjlykkju í sléttprjóni eins og A.6 til A.10 (eins og í 3 hluta, mynsturteikning er endurtekin á hæðina), en rendur eru prjónaðar þannig: Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós bleikfjólublár, 2 umferðir garðaprjón með litnum milligrár *, prjónið frá *-* alls 11 sinnum (= 44 umferðir í garðaprjóni). Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, mælist stykkið ca 50 cm. HLUTI 8 (sléttprjón): Prjónið með litnum ljós bleikfjólublár þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, fækkið lykkjum eins og áður, prjónið sléttprjón að miðjulykkju, aukið út eins og áður og prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, fækkið lykkjum eins og áður og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 56 cm. HLUTI 9 (rendur og garðaprjón): Haldið áfram í garðaprjóni og miðjulykkju í sléttprjóni, eins og A.6 til A.10 (eins og í 3. hluta, mynsturteikning er endurtekin á hæðina), en prjónið rendur þannig: Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum natur, 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós grár *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum (= 16 umferðir garðaprjón). Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, mælist stykkið ca 67 cm. HLUTI 10 (rendur og garðaprjón): Haldið áfram í garðaprjóni og miðjulykkju í sléttprjóni, eins og A.6 til A.10 (eins og í 3. hluta, mynsturteikning er endurtekin á hæðina) en prjónið rendur þannig: Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós bleikfjólublár, 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós grár *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum (= 20 umferðir garðaprjón). Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós bleikfjólublár, 2 umferðir garðaprjón með litnum milligrár *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (= 16 umferðir garðaprjón). Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar, mælist stykkið ca 79 cm. HÆGRI HLIÐ: Prjónið nú fram og til baka yfir helming af lykkjum og fækkað er um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu til loka. HLUTI 11 (gatamynstur og garðaprjón): Prjónið með litnum milligrár þannig: Prjónið sléttar lykkjur eins og áður fram að miðjulykkju (þ.e.a.s. fækkað er um 1 lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri eins og áður), prjónið 1 lykkju í miðjulykkju, en látið miðjulykkjuna verða eftir á vinstri prjóni (þ.e.a.s. miðjulykkjan verður 2 lykkjur) = 71-83 lykkjur. Setjið afgang af lykkjum á þráð fyrir vinstri hlið. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 5 lykkjur, prjónið A.2 þar til eftir eru 6 lykkjur (= 29-35 sinnum á breidd) og endið með A.5 yfir síðustu 6 lykkjur, en síðasta lykkjan í A.5 er prjónuð slétt frá röngu (þ.e.a.s. lykkjan er prjónuð eins og lykkja í garðaprjóni). Þegar A.1, A.2 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 63-75 lykkjur á prjóni. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.6 yfir næstu 5 lykkjur, A.7 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 25-31 sinnum á breidd) og endið með A.10 yfir síðustu 6 lykkjur, en síðasta lykkjan í A.10 er prjónuð slétt frá röngu (þ.e.a.s. lykkjan er prjónuð eins og lykkja í garðaprjóni). Haldið svona áfram með mynstur þar til 57-69 lykkjur eru eftir á prjóni (= 6 umferðir garðaprjón). HLUTI 12 (gatamynstur): Prjónið með litnum natur þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.11 yfir næstu 9 lykkjur, A.12 þar til 10 lykkjur eru eftir (= alls 3-4 sinnum) og endið með A.15 yfir síðustu 10 lykkjur. Þegar A.11, A.12 og A.15 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 47-59 lykkjur á prjóni. HLUTI 13 (gatamynstur og garðaprjón): Prjónið með litnum milligrár til loka. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.6 yfir næstu 5 lykkjur, A.7 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 17-23 sinnum á breidd) og endið með A.10 yfir síðustu 6 lykkjur, en síðasta lykkjan í A.10 er prjónuð slétt frá röngu (þ.e.a.s. lykkjan er prjónuð eins og lykkja í garðaprjóni). Þegar A.6, A.7 og A.10 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 39-51 lykkjur á prjóni. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 5 lykkjur, prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 13-19 sinnum á breidd) og endið með A.5 yfir síðustu 6 lykkjur, en síðasta lykkjan í A.5 er prjónuð slétt frá röngu (þ.e.a.s. lykkjan er prjónuð eins og lykkja í garðaprjóni). Þegar A.1, A.2 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 31-43 lykkjur á prjóni. Prjónið nú stykkið til loka í garðaprjóni með 1 lykkju sléttprjóni innan við 2 kantlykkjur og lykkjum er fækkað í hvorri hlið á stykki eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið 3 lykkjur slétt saman, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna og herðið að. Festið enda vel. VINSTRI HLIÐ: Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjóninn = 71-83 lykkjur. HLUTI 11 (gatamynstur og garðaprjón): Prjónið með litnum milligrár. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 5 lykkjur, en fyrsta lykkja í A.1 er prjónuð slétt frá röngu (þ.e.a.s. lykkjan er prjónuð eins og lykkja í garðaprjóni), prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 29-35 sinnum á breidd) og endið með A.5 yfir síðustu 6 lykkjur. Þegar A.1, A.2 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 63-75 lykkjur á prjóni. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.6 yfir næstu 5 lykkjur, en fyrsta lykkjan í A.6 er prjónuð slétt frá röngu (þ.e.a.s. lykkjan er prjónuð eins og lykkja í garðaprjóni), A.7 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 25-31 sinnum á breidd) og endið með A.10 yfir síðustu 6 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til 57-69 lykkjur eru á prjóni (= 6 umferðir garðaprjón). HLUTI 12 (gatamynstur): Prjónið með litnum natur þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.11 yfir næstu 9 lykkjur, A.12 þar til 10 lykkjur eru eftir (= alls 3-4 sinnum) og endið með A.15 yfir síðustu 10 lykkjur. Þegar A.11, A.12 og A.15 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 47-59 lykkjur á prjóni. HLUTI 13 (gatamynstur og garðaprjón): Prjónið með litnum milligrár til loka. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.6 yfir næstu 5 lykkjur, en fyrsta lykkjan í A.6 er prjónuð slétt frá röngu (þ.e.a.s. lykkjan er prjónuð eins og lykkja í garðaprjóni), A.7 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 17-23 sinnum á breidd) og endið með A.10 yfir síðustu 6 lykkjur. Þegar A.6, A.7 og A.10 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 39-51 lykkjur á prjóni. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 5 lykkjur, en fyrsta lykkjan í A.1 er prjónuð slétt frá röngu (þ.e.a.s. lykkjan er prjónuð eins og lykkja í garðaprjóni), prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 13-19 sinnum á breidd) og endið með A.5 yfir síðustu 6 lykkjur. Þegar A.1, A.2 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 31-43 lykkjur á prjóni. Prjónið nú stykkið til loka í garðaprjóni, með 1 lykkju sléttprjón innan við 2 kantlykkjur og lykkjum er fækkað í hvorri hlið á stykki eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið 3 lykkjur slétt saman, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna og herðið að. Festið vel. Stykki 1 mælist ca 99-102 cm alls. STYKKI 2: Prjónið á sama hátt og stykki 1. FRÁGANGUR: Saumið saman stykki 1 og 2. Saumið í skammhlið í lokin á hvoru stykki, saumið í ystu lykkjubogana með litnum milligrár. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Marion wrote:
Bonjour. à la 11è section, côté gauche, l'envers du tricot se présente avec 2 m mousse en début de rang et se termine par la m centrale. Comment donc, au tour suivant sur l'endroit, on commence par les 2 m mousse? Merci pour votre aide!
30.11.2022 - 11:58DROPS Design answered:
Bonjour Marion, vous tricotez les mailles sur l'aiguille à l'endroit sur l'envers et tricotez ensuite sur l'endroit en commençant par les 2 m point mousse, puis A.1 etc.. ou bien ai-je mal compris votre question?
30.11.2022 - 16:47Rousseau wrote:
Merci pour tous ces jolis modèles. Après deux lectures des explications, le montage du tricot se fait rapidement car on voit les différentes parties s'assembler si facilement que l'on a envie de tout tricoter en une fois. Très apprécié par mon entourage qui le trouve très beau.
29.04.2021 - 11:51Camille wrote:
Ce modèle est magnifique !!! Les explications sont un peu difficile à comprendre à cause des nombreux petits diagrammes, mais une fois les premières sections réalisés tout va bien.
29.09.2019 - 15:23Marion wrote:
Bonjour, vous indiquez deux fois le même grammage pour chaque couleur. Que faut-il comprendre? Merci pour votre aide :)
01.05.2019 - 13:26DROPS Design answered:
Bonjour Marion, cette étole peut être tricotée dans deux tailles différents - cf dimensions, ainsi, le détail est donné dans les 2 tailles (en l’occurrence la même quantité). Bon tricot!
02.05.2019 - 09:40Mareike wrote:
Ich habe diese wunderschöne Stola gestrickt, allerdings ist in der Anleitung ein Fehler. Es müsste heißen: "1 Masche wie zum Rechtsstricken abheben, 2 Maschen rechts zusammen stricken, die abgehobene Masche über die gestrickte ziehen"
22.11.2018 - 07:27DROPS Design answered:
Liebe Mareike, Danke für den Hinweis, deutsche Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
22.11.2018 - 09:31Elżbieta wrote:
Uwielbiam pastelowe kolory
20.07.2018 - 20:28Dewasmes wrote:
Lavande
14.07.2018 - 08:35Wilma wrote:
Supermooi patroon
12.06.2018 - 15:51Isabel Pinho wrote:
Cores fantásticas.
05.06.2018 - 16:18