DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4070.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

See You In Dublin

Prjónað pils úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-37
DROPS Design: Mynstur no-016
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-450 g litur 19, skógargrænn

PRJÓNFESTA:
Stykkið kemur til með að teygjast þegar það er notað, þess vegna eru gefnar upp 2 prjónfestur.
Prjónfesta 1:
Þegar stykkið er prjónað og liggur flatt: 24 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæðina (mælt í sléttri lykkju) með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
Prjónfesta 2:
Þegar stykkið er mátað: 20 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð (mælt í sléttu lykkju) með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 60 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

FYLGIHLUTIR: Ca 70-120 cm teygja.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4070.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PRJÓNFESTA:
Áferðin á stykkinu kemur til með að teygjast í mitti þegar stykkið er mátað, þess vegna eru gefnar upp 2 prjónfestur.
Prjónfesta 1 á við þegar stykkið er prjónað og liggur flatt.
Það er þessi prjónfesta sem stykkið á að hafa á meðan það er prjónað.
Prjónfesta 2 er prjónfesta á pilsi í mitti þegar stykkið er mátað.
Prjónfestan á hæðina er gefin upp eftir sléttri lykkju, sem er prjónuð yfir 1 umferð færri en brugðna lykkjan, þar sem sléttu lykkjunni er steypt yfir á hægri prjón í annarri hverri umferð. Þ.e.a.s. 24 umferðir á hæðina mælt í sléttri lykkju á 10 cm jafngildir 48 umferðum mælt í brugðnu lykkjunni á 10 cm á hæðina.
Málin á teikningu eru gefin upp í cm þegar stykkið er mátað.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 172 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 6,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman.
Prjónið 5 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppslátt þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa yfir uppsláttinn og sléttu lykkjuna sem var prjónað af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sléttu lykkjuna og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður faldur sem teygja er dregin í gegn í lokin. Síðan er prjónað áfram í stroffprjóni og klukkuprjóni. Áferðin á stykkinu er gefin upp öðru vísi þegar stykkið er máta – sjá PRJÓNFESTA!

FALDUR:
Fitjið upp 172-188-202-228-250-292 lykkjur á hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón. Prjónið 1 umferð og aukið út um 26-28-32-36-38-44 lykkjur jafnt yfir (= uppábrot) – sjá ÚTAUKNING-1 = 198-216-234-264-288-336 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

PILS:
Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 yfir allar lykkjurnar (= 66-72-78-88-96-112 sinnum hringinn). Þegar fyrsta umferð í A.1 hefur verið prjónuð eru 132-144-156-176-192-224 lykkjur í umferð. Uppslátturinn er ekki talinn með sem lykkja. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki, setjið 1 prjónamerki í 11.-12.-13.-11.-12.-14. hverja lykkju slétt (= 6-6-6-8-8-8 prjónamerki). Aukið síðan út um 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 24-24-24-32-32-32 lykkjur fleiri).
Haldið áfram hringinn með mynstri, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur. Aukið svona út með 4-4-4-4½-4½-4½ cm millibili þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá prjónamerki. Nú eru ca 348-384-396-464-512-544 lykkjur í umferð. Stillið af að síðasta umferð sé umferð með uppslætti. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, EN uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja með sléttum lykkjum, þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá faldinn að röngu og saumið fallega niður, en skiljið eftir smá op til að þræða teygju í gegn.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.09.2018
Leiðrétting: Stykkið er prjónað með klukkuprjóni (áður hálfu klukkuprjóni)

Mynstur

symbols = 1 lykkja brugðin
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið 1 lykkju laust yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið
symbols = uppsláttur og slétt lykkja er prjónað slétt saman
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Kristen wrote:

No you misunderstand what I'm saying. The wrong side of the pattern is showing up on the outside when I switch to the A1 pattern. The hem is accurate with the rib on the outside of the skirt, but once I begin A1 and *P2 tog, then yarn over, slip 1 as if to P* and then continue on with the false english rib, the rib pattern is sowing up on the inside of the skirt. I pulled the whole project and started again and once I get to this point it happened again.

23.02.2020 - 18:51

DROPS Design answered:

Dear Kristen, sorry I may still misundertand what you mean here. After you have worked the first 3 rows in A.1 you should continue working A.1a = round 1: P1, Ktog YO and slipped st - round 2: P1, YO, slip st as if to P. Ie the first st in A.1 will always be purled and the 2nd st in A.1 (= the k stitch from the rib) will be worked alternately slipped with YO and knit tog with YO. Happy knitting!

24.02.2020 - 09:36

country flag Kristen wrote:

When I switched from knitting the rib to the English rib (purl 2, knit 1 - > A1 pattern) the wrong side is lining up with the original ribbing, so that the English rib is showing up on the INSIDE of the garment, and the wrong side is showing up on the outside. I'm confused about what has happened. I feel like I'm following the pattern exactly.

05.02.2020 - 23:28

DROPS Design answered:

Dear Kristen, on first row in A.1 you first work:*P2 tog, then yarn over, slip 1 as if to P* then you should get the correct stitches to work: *P1, Knit together yo and slipped stitch* - see video. Happy knitting!

06.02.2020 - 10:22

country flag Sissel wrote:

Hej, jeg tænker lige som Paula på miljøet i forhold til polyamid, men jeg tænker også på om rent uld vil gøre at nederdelen hurtigere bliver slidt og/eller bliver filtet til især på siddefladen?

12.12.2019 - 20:48

DROPS Design answered:

Hej Sissel, garn med polyamid vil være mere slidstærkt end det uden, men vi har også nederdele i ren Alpaca... :)

16.12.2019 - 15:36

country flag Paula wrote:

Hei, jeg vil gjerne strikke dette skjørtet med ren ullgarn, et miljøvennlig alternativ, vil med andre ord unngå polyamid. Har forsøkt å finne garnalternativ på kalkulatoren, men fant ingen. Har du noen forslag til alternativ? Mvh Paula

05.12.2019 - 19:28

DROPS Design answered:

Hej Paula, jo men du kan vælge både, Drops Alpaca, BabyAlpaca Silk, Baby Merino og Flora ingen af dem indeholder polyamid :)

06.12.2019 - 08:05

country flag Sue wrote:

Hi. I have watched repeatedly the video for false English rib but I still can’t work out what is happening with the purl stitch on row 1. Is it knitted into twice somehow? Or through the back loop twisted? I don’t knit continental style so find it very difficult to follow. The written instructions don’t seem to give specific instructions on how to knit this stitch. Thanks.

27.10.2019 - 11:47

DROPS Design answered:

Hello Sue! Purl stitches are just purled. Happy knitting!

30.10.2019 - 14:47

country flag Renee wrote:

I'm having trouble understanding why there are two gauges and what worn means on the second gauge. Could you please clarify these two things?

29.06.2019 - 16:01

DROPS Design answered:

Dear Renee, the pattern the piece is knitted in streches over time, so the first gauge is given, what you should get, when you first knitted the piece and it is fat on a surface. The second gauge given imeasured after the piece is worn for a while and slightly streched. Happpy Knitting!

30.06.2019 - 01:10

country flag Ingrid Mørkeseth wrote:

I understand that, but the very first increase has to be from a knit stitch, not a purl stitch.. If I increase every 11th stitch half of them will be increased from a purl stitch. It has to be an even number, like it is for most of the sizes..

25.03.2019 - 17:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mørkeseth, marker should be inserted in every 11th knit stitch, not in every 11th stitch, so that the stitch with a marker with will a knit stitch. Happy knitting!

05.04.2019 - 08:29

country flag Ingrid wrote:

Hey! The first rounds of increases is every 11th stitch for my size. But then every other increase will be in a purled stitch, which doesn't work with the pattern. All the increases need to be done on an even numbered repeat.

23.03.2019 - 12:25

DROPS Design answered:

Dear Ingrid, you increase 4 sts but the marker should be kept in the middle of the 5 new sts on needle as shown in this video = knit stitch. Happy knitting!

25.03.2019 - 09:52

country flag Arnoux Guylaine wrote:

Bonjour es ce que je peut realisèe ce modele avec des aiguylles droite merci

26.02.2019 - 15:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Arnoux, vous trouverez ici quelques informations pour ajuster un modèle sur aiguilles droites, dans le cas présent, il vous faudra également ajuster le point fantaisie qui est ici décrit en rond (= tous les tours sur l'endroit). Bon tricot!

26.02.2019 - 15:48

country flag Joke Boukema wrote:

Hallo, ik begrijp het telpatroon niet. Betekent het dat A.1a uit 2 naalden bestaat en A.1 uit 5 naalden? Dus dat je na A.1 vijf keer rond gebreid hebt?

21.02.2019 - 19:09

DROPS Design answered:

Dag Joke,

Klopt zoals je het zegt Je breit eerst inderdaad A.1 helemaal en deze bestaat uit 5 naalden. (De steken in A.1 herhaal je steeds in de breedte). Daarna herhaal je steeds de laatste 2 naalden van A.1, dit is dus A.1a .

22.02.2019 - 14:01