Liljesjal |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónað sjal með röndum og gatamynstri, prjónað ofan frá og niður úr DROPS Air.
DROPS 191-7 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um þegar aukið er út jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður frá miðju að aftan. Vegna lykkjufjöldans er prjónað fram og til baka á hringprjóna, en til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar er gott að skipta lykkjunum yfir á nokkra hringprjóna eins og útskýrt er undir DROPS HRINGPRJÓNAR. SJAL: Fitjið upp 9 lykkjur á hringprjón 5,5 með litnum ljós grágrænn. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn – lesið ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið miðj lykkju í sléttprjóni (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 13 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur eins og útskýrt er að neðan með 2 kantlykkjur í garðaprjóni hvoru megin við miðjulykkju í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1A (= 1 lykkja), A.1B (= 2 lykkjur), A.1C (= 1 lykkja), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), A.1A (= 1 lykkja), A.1B (= 2 lykkjur), A.1C (= 1 lykkja) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. JAFNFRAMT í 25. umferð í A.1 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju þannig að það verða áfram jafn margar lykkjur hvoru megin við miðjulykkju – lesið ÚTAUKNING-2). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 73 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn natur. Prjónið A.2 með litnum natur þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2A (= 1 lykkja), endurtakið A.2B þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju (= 16 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.2C (= 1 lykkja), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.2A (= 1 lykkja), endurtakið A.2B þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 16 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.2C (= 1 lykkja) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. JAFNFRAMT í 11. umferð í A.2 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 3 lykkjur á undan miðjulykkju og 3 lykkjur á eftir miðjulykkju þannig að það verða áfram jafn margar lykkjur hvoru megin við miðjulykkju). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 107 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21 cm mælt meðfram miðjulykkju. Skiptið yfir í litinn þoka. Prjónið A.3 með litnum þoka þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.3A (= 7 lykkjur), endurtakið A.3B þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3C (= 8 lykkjur), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.3A (= 7 lykkjur), endurtakið A.3B þar til 10 lykkjur eru eftir á prjóni (= 3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3C (= 8 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 25. umferð í A.3 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 169 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Prjónið A.2 aftur alveg eins og útskýrt er að ofan, en með litnum ljós grágrænn (nú er pláss fyrir 40 mynstureiningar með A.2B hvoru megin við miðju). JAFNFRAMT í 11. umferð í A.2 er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 3 lykkjur á undan miðjulykkju og 3 lykkjur á eftir miðjulykkju). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 203 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn fjólublá þoka. Prjónið A.4 með litnum fjólublá þoka þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4A (= 1 lykkja), endurtakið A.4B þar til 2 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 8 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.4C (= 2 lykkjur), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), A.4A (= 1 lykkja), endurtakið A.4B þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni (= 8 lykkjur með 12 lykkjur), A.4C (= 2 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 13. umferð í A.4 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 237 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 49 cm mælt meðfram miðjulykkju. Skiptið yfir í litinn natur. Prjónið A.5 með litnum natur þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.5A (= 1 lykkja), endurtakið A.5B þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju (= 57 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.5C (= 1 lykkja), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.5A (= 1 lykkja), endurtakið A.5B þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 57 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.5C (= 1 lykkja) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 5. umferð í A.5 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 251 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Prjónið A.6 með litnum ljós grágrænn þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.6A (= 7 lykkjur), endurtakið A.6B þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 9 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.6C (= 8 lykkjur), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.6A (= 7 lykkjur), endurtakið A.6B þar til 10 lykkjur eru eftir á prjóni (= 9 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.6C (= 8 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 37. umferð í A.6 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka eru 333 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 78 cm meðfram miðjulykkju. Skiptið yfir í litinn natur. Prjónið A.7 með litnum natur þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.7A (= 1 lykkja), endurtakið A.7B þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju (= 81 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.7C (= 1 lykkja), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.7A (= 1 lykkja), endurtakið A.7B þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 81 mynstureining með 2 lykkjum), A.7C (= 1 lykkja) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 7. umferð í A.7 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 2 lykkjur á undan miðjulykkju og 2 lykkjur á eftir miðjulykkju). Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka eru 357 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn þoka. Prjónið A.8 þannig með litnum þoka: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.8A (= 16 lykkjur), endurtakið A.8B þar til 16 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 9 mynstureiningar með 16 lykkjum), A.8C (= 16 lykkjur), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.8A (= 16 lykkjur), endurtakið A.8B þar til 18 lykkjur eru eftir á prjóni (= 9 mynstureiningar með 16 lykkjum), A.8C (= 16 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka eru 385 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Prjónið A.5 aftur alveg eins og útskýrt var áður í uppskrift, en með litnum ljós grágrænn (nú er pláss fyrir 94 mynstureiningar með A.5B hvoru megin við miðju). JAFNFRAMT í 5. umferð í A.5 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 14 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 7 lykkjur á undan miðjulykkju og 7 lykkjur á eftir miðjulykkju). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 411 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn fjólublá þoka. Prjónið A.9 með litnum fjólublá þoka þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.9A (= 11 lykkjur), endurtakið A.9B þar til 12 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 15 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.9C (= 12 lykkjur), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.9A (= 11 lykkjur), endurtakið A.9B þar til 14 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.9C (= 12 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka eru 523 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 104 cm meðfram miðjulykkju. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (29)
Hansi Koekkoek wrote:
Het patroon eindigt met 463 steken, maar in de 17e naald van A. 9B moeten er 2 omslagen worden gemaakt. Volgens mij komen er dan nog 60 steken bij - 2 x 15 herhalingen van 12 steken. Het totaal aantal steken zou dan 523 moeten zijn. Klopt dit? Alvast dank voor uw antwoord.
03.07.2018 - 15:04Gerda Santos wrote:
Gostaria de comprar as lãs DROPS AIR?? Como faço??\r\n\r\nQual o site de contato para compra?\r\n\r\nE os valores ???\r\n\r\nMeu endereço \r\n\r\nRua: São Pedro , 61 \r\n\r\nCabral - Curitiba - Paraná _ Brasil
22.06.2018 - 15:33DROPS Design answered:
Por enquanto, não existe nenhuma loja DROPS no Brasil. Para comprar os nossos fios, clique em lojas que vendem nossos fios para o mundo inteiro e bastará encomendar de uma dessas lojas. Bom Tricô!
25.06.2018 - 16:36Freres wrote:
Bonjour, J'ai commencé le châle et je n'ai pas le même résultat que sur la photo .Même les motifs ne correspondent pas . N'y aurait-il pas un souci avec les explications ? Merci d'avance,
21.06.2018 - 21:32DROPS Design answered:
Bonjour Mme Freres, les diagrammes correspondent bien aux différents motifs du châle. Commencez bien les diagrammes en commençant en bas à droite sur l'endroit et de droite à gauche sur l'endroit (= de gauche à droite sur l'envers) en veillant à bien tricoter à l'endroit sur l'envers les rangs avec un point noir dans A.1A à C. Bon tricot!
22.06.2018 - 08:49Karin Jensen wrote:
Hej\r\nEfter tegnforklaring skal det være omslag\r\nMen skal det ikke være dobbelt omslag.
25.05.2018 - 19:54DROPS Design answered:
Hei Karin. Det har du helt rett i - det var en feil i den danske versjonen av oppskriften. Dette er nå blitt rettet. Takk for beskjed og god fornøyelse
30.05.2018 - 11:56Karin Jensen wrote:
Hej\r\nEr klar til at strikke sjalet, i dette lækre garn. \r\nEr i tvivl om det skal være dobbelt omslag? \r\nTak!
25.05.2018 - 19:46Brigitte wrote:
Liebes DROPS-Team, bei dieser Anleitung findet sich auf der Überblicksseite ein Diamant als Zeichen. Was bedeutet das? (Manchmal findet sich dort auch eine Uhr. Was bedeutet diese?) Ich habe nichts dazu auf der Homepage gefunden. Danke!! :-)
23.05.2018 - 23:52DROPS Design answered:
Liebe Brigitte, Die Modellen mit einem Diamant sind diejenigen, die Sie auf unserer Startseite sehen können. Viel Spaß beim stricken!
24.05.2018 - 09:38Kirsten Mogensen wrote:
Hej, Jeg har forelsket mig i dette sjal, og vil gerne strikke det, men når jeg printer opskriften ud får jeg ikke diagrammerne over hulmønstret.
22.05.2018 - 10:26DROPS Design answered:
Hej Kirsten, jo diagrammerne er nederst i opskriften, du ser dem også på skærmen når du klikker på "skriv ud" God fornøjelse!
30.05.2018 - 15:51Susanne wrote:
Hur mycket garn går åt om man vill göra sjalen enfärgad?
22.05.2018 - 09:45DROPS Design answered:
Hei Susanne. Vi har dessverre ikke mulighet til å oppgi garnmengde dersom det kun strikkes med en farge. Du kan regne med at det går med litt mindre garn enn hva som er oppgitt sammenlagt til flerfarget. God fornøyelse
24.05.2018 - 09:36Yvonne wrote:
Prachtige kleurencombinatie.
17.12.2017 - 16:25