DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

To the Point

Prjónuð peysa með v-hálsmáli, köðlum og mynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS 188-6
DROPS Design: Mynstur ai-116
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-350-400-450-500-500 g litur 02, hveiti

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1, A.2, A.3, A.5, A.6 og A.7) Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur), mínus kanta að framan/lykkjur sem ekki á að fækka yfir (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 6. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp og er saumað saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 99-105-114-120-132-144 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-19-19-21-23 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA (jafnt yfir) = 83-89-95-101-111-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 28-31-32-35-38-43 lykkjur, A.1 (= 11-11-13-13-15-15 lykkjur), 3 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 11-11-13-13-15-15 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 28-31-32-35-38-43 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm – passið uppá að það hafið verið prjónuð heil mynstureining af A.1/A.2 á hæðina! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú áfram þannig: Prjónið eins og áður þar til eftir eru 2 lykkjur á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, A.3 (= 10-10-12-12-14-14 lykkjur) yfir fyrstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur í A.1, A.4 (= 5 lykkjur), A.5 (= 10-10-12-12-14-14 lykkjur) yfir síðustu 10-10-12-12-14-14 lykkjur í A.2, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið um 1 lykkju á undan A.3 og á eftir A.5 í annarri hverri umferð (= 14 úrtökur á undan A.3 og á eftir A.5 þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina), JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af 3-3-4-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum (merkir handveg). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 86-92-96-100-108-118 lykkjur í umferð. Setjið nú síðustu 43-46-48-50-54-59 lykkjur (séð frá réttu) á þráð fyrir hægra framstykki = 43-46-48-50-54-59 lykkjur fyrir vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 43-46-48-50-54-59 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), A.6 (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), A.8 (= 8 lykkjur) 2 sinnum á breidd, 3 lykkjur garðaprjón (= að hálsi). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og fækkið um 1 lykkju á undan A.6 í annarri hverri umferð alls 4-5-5-5-6-6 sinnum og í 4. hverri umferð 4-4-4-5-5-5 sinnum (= alls 8-9-9-10-11-11 lykkjur færri við háls) = 35-37-39-40-43-48 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá handveg. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir 16 lykkjur í mynstri A.8 = 30-32-34-35-38-43 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 43-46-48-50-54-59 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig, 3 lykkjur garðaprjón (= að hálsi), A.9 (= 8 lykkjur) 2 sinnum á breidd, A.7 (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og fækkið um 1 lykkju á eftir A.7 í annarri hverri umferð alls 4-5-5-5-6-6 sinnum og í 4. hverri umferð 4-4-4-5-6-6 sinnum (= alls 8-9-9-10-11-11 lykkjur færri í hálsmáli) = 35-37-39-40-43-48 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá handveg. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir 16 lykkjur í mynstri A.9 = 30-32-34-35-38-43 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 99-105-114-120-132-144 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-19-19-21-23 lykkjur jafnt yfir = 83-89-95-101-111-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af 3-3-4-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum (merkir handveg) = 77-83-87-91-99-109 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá handveg er prjónað sléttprjón yfir miðju 23-25-25-27-29-29 lykkjur. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju lykkjur. Fellið nú af miðju 17-19-19-21-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 30-32-34-35-38-43 lykkjur fyrir hvora öxl. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón við háls og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg. Þegar handvegur mælist 18-19-20-21-22-23 cm, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 41-44-47-50-53-56 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-6-6-6-9-9 lykkjur jafnt yfir = 37-38-41-44-44-47 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10-6-6-6-12-11 cm aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 6.-6.-6.-6.-4.-4. hverri umferð alls 13-14-14-14-16-16 sinnum = 63-66-69-72-76-79 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 50-49-49-49-47-45 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið saum undir ermum og haldið síðan áfram niður yfir hlið á fram- og bakstykki niður að stroffi (= 4 cm að klauf). Endurtakið í hinni hliðinni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.05.2018
Leiðrétting: Lengd á hægra- og vinstra framstykki, ásamt bakstykki var gefin upp í 7 stærðum - þetta hefur verið leiðrétti í 6 stærðir
Yfirfarið á vefsvæði: 13.05.2022
Mynsturteikning A.8 og A.9 hefur verið leiðrétt þannig að snúningur á kaðli snúi í rétta átt.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið eða slétt – sjá næstu umferð í mynsturteikningu, svo það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman (frá röngu)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Carol McMillan wrote:

You state that you correct the 7 szes list to 6 but they are not corrected. it still shows 7 lengths for the Back and Righ Front.

31.10.2023 - 21:59

DROPS Design answered:

Thanks for your feedback, US-English pattern will be edited asap. Happy knitting!

03.11.2023 - 07:21

country flag Nini Tielle wrote:

Mijn vraag is overbodig Ik heb gezien waar mijn vergissing is gemaakt

08.10.2022 - 19:41

country flag Nini Tielle wrote:

Voor elke open omslag in A4 minder ik aan de zijkant van A3 en A5 Dus minder ik geen steken De zwarte omslagen zijn extra steken Hoe kan ik dan op 100 steken uitkomen? Heb ik ergens minderingen gemist?

08.10.2022 - 17:54

DROPS Design answered:

Dag Nini,

Je kant op een gegeven moment steken af voor de armsgaten. Daar zitten wellicht de minderingen die je mist.

20.11.2022 - 18:13

country flag Christine wrote:

Il me semble que pour le devant gauche il faut tricoter deux fois A9, et pour le devant droit deux fois A8

31.03.2022 - 17:10

DROPS Design answered:

Bonjour Christine et merci pour votre retour, les diagrammes ont été modifiés pour que les torsades soient alignées dans le bon sens. Bon tricot!

13.05.2022 - 11:45

country flag Jean Berry wrote:

Thank you so much for your answer. Just to clarify, there are four YOs per knit row and only 2 decreases? Jean Berry

21.03.2022 - 17:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Berry, at the beginning of A.4 you increase 4 sts in A.4 and decrease 2 sts (before A.3 and after A.5), but then there will be only 2 increases in A.4 and still the 2 decreases as before. Happy knitting!

22.03.2022 - 10:00

country flag Jean Berry wrote:

In A4 diagram, are their four increases on knit rows or two? I can see a black with circle indicating a YO on either side of the three center knit stitches but what are the blank ovals? On the purl rows, there are more stitiches than YOs if only the black within an oval is done as a YO. If the blank ovals are also YOs, what does that do to the shape of the sweater? Thanks, Jean Berry

21.03.2022 - 04:35

DROPS Design answered:

Hi jean, All the circles are YOs, but the black circles are worked twisted on the next row (no holes), while the open circles are purled/knitted (without twisting) to leave holes. So they are all increases and part of the pattern/shape of the sweater. Happy knitting!

21.03.2022 - 06:57

country flag Helen wrote:

I see mutiple people made remarks about the wrong cable instructions at A4. Why don't you ajust this?

13.02.2021 - 17:28

country flag Helen wrote:

The cables in A4 in the photograph are different from the instruction. That's a pitty because when you follow the instruction (like i did) the 'flower' in the middle doesn't stand out like it should. A8 and 9 are correct but differ from A4. It's a very beautiful design!

13.02.2021 - 13:56

country flag Jane wrote:

Lurer på hvorfor fletten er i forskjellig rettninger på A4 og A8/A9

21.07.2019 - 13:50

country flag Ane wrote:

Hvorfor får jeg ikke se gensere bakfra også? Jeg må jo kunne se :)

09.03.2019 - 21:33

DROPS Design answered:

Hej Ane, Ryggen er strikket i glatstrik, så bare følg opskriften. God fornøjelse!

12.03.2019 - 14:59