DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7326.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mina

Prjónaður toppur með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Nord.

DROPS 191-17
DROPS Design: Mynstur no-008
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-400 g litur 03, perlugrár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 06, dökk grár
50-50-50-50-50-50 g litur 16, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 13, bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 2,5 – fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Nord 07, 01, 16, 08, 13.
B) DROPS Nord 03, 08, 17, 01, 16.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7326.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 114 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 11,4.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 10. og 11. hverja lykkju og 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 11. og 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Alls er aukið út um 8 lykkjur í hverri útaukningsumferð.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 8 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 16 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.
Kantur á ermum er prjónaður í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verður aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu neðar í uppskrift.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 114-117-123-129-135-141 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum perlugrár.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-9-11-9-7-9 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 104-108-112-120-128-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram og prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið 9-10-11-12-13-14 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 18-20-22-24-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 27-30-33-36-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-40-44-48-52-56 lykkjur brugðið.
Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 9-10-11-12-13-14 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir miðju 72-80-88-96-104-112 lykkjur og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
= 104-108-112-120-128-132 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 26-27-28-30-32-33 mynstureiningar með 4 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Ör-1: Aukið út um 20-24-24-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 124-132-136-152-160-164 lykkjur.
Ör-2: Aukið út um 4-4-4-16-14-16 lykkjur jafnt yfir = 128-136-140-168-174-180 lykkjur.
Nú er pláss fyrir 32-34-35-28-29-30 mynstureiningar með 4-4-4-6-6-6 lykkjur. Síðan er aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Ör-3: Nú eru 256-272-280-280-290-300 lykkjur í umferð hver mynstureining nær yfir 8-8-8-10-10-10 lykkjur, aukið JAFNFRAMT út um 8-4-8-14-16-12 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 264-276-288-294-306-312 lykkjur. Útaukningu er nú lokið S, M og L.
Ör-4 (á einungis við um XL, XXL og XXXL): Aukið út um 10-6-8 lykkjur jafnt yfir.
Nú eru 264-276-288-304-312-320 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan áfram þar til A.1 hefur alveg verið prjónað til loka. Prjónið síðan 1 umferð slétt með litnum perlugrár þar sem aukið er út um 4-0-4-4-4-0 lykkjur jafnt yfir = 268-276-292-308-316-320 lykkjur.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 40-41-43-47-50-53 lykkjur í umferð (= ½ bakstykki), 2. prjónamerkið er sett á eftir næstu 54-56-60-60-58-54 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerkið er sett á eftir næstu 80-82-86-94-100-106 lykkjur (= framstykki) og fjórða prjónamerkið er sett á eftir næstu 54-56-60-60-58-54 lykkjur (= ermi). Nú eru 40-41-43-47-50-53 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki).
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og litnum perlugrár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-9-11-13-16-19 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin = 308-348-380-412-444-472 lykkjur.
Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 45-50-54-60-66-72 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 64-74-82-86-90-92 lykkjur á þráð fyrir kant á ermum, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-100-108-120-132-144 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 64-74-82-86-90-92 lykkjur á þráð fyrir kant á ermum, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 45-50-54-60-66-72 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og kantar á ermum er nú prjónað hvert fyrir sig til loka.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-220-240-264-292-320 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp = 100-110-120-132-146-160 lykkjur á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og litnum perlugrár. Þegar stykkið mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3½-3½-3½-2½-2½-2½ cm millibili alls 10-10-10-12-12-12 sinnum í hvorri hlið = 240-260-280-312-340-368 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 35 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 48-52-56-60-68-76 lykkjur jafnt yfir = 288-312-336-372-408-444 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Toppurinn mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

KANTUR Á ERMI:
Setjið 64-74-82-86-90-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-84-94-98-104-108 lykkjur. Prjónið 2-2-3-3-4-4 sléttar umferðir og aukið JAFNFRAMT út 1-0-2-1-1-0 lykkjur í fyrstu umferð = 75-84-96-99-105-108 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón/hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt.

Mynstur

symbols = natur
symbols = perlugrár
symbols = dökk grár
symbols = gallabuxnablár
symbols = bleikfjólublár
symbols = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með perlugrár. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Mina

Anette Jensen, Denmark

Mina

Khairieh, Jordan

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Anette Jensen wrote:

Lad være med at følge pilene. De passer ikke med mønsteret. Følg i stedet de prikker der i diagrammet, så passer det :-)

13.08.2022 - 16:58

country flag Astrid wrote:

Beste mensen ik ben aan het breien en nu bijna bij de onderkant aangekomen, mijn vraag is is dat ook de boordsteek. Ik snap het niet helemaal met ribbel/ribbelsteek. Kunt u het duidelijker omschrijven. M vr gr astrid

03.04.2019 - 22:29

DROPS Design answered:

Dag Astrid,

De boordsteek bestaat uit het herhalen van steeds 1 steek recht en 2 steken in ribbelsteek. Omdat je in de rondte breit, brei je de steek recht op elke toer recht en de ribbelsteken brei je de ene toer averecht en de andere toer recht en averecht.

04.04.2019 - 07:57

country flag Agnès wrote:

Hallo, ich verstehe die Zunahmen beim Pfeil 3 nicht. Welches Diagramm ist gemeint? Bei Pfeil 1 und 2 steht die Anzahl der Maschen, bei Pfeil 3 habe ich zuerst 128 und dann auf einmal 256. Bitte helfen Sie mir weiter! Herzlichen Dank, Agnès

20.08.2018 - 08:48

country flag Monika Ölén Krüger wrote:

Jag har DROPS ♥ You #6 kan jag anväda det till denna fina jumper

14.06.2018 - 11:53

country flag Tessa Gotiet wrote:

Si vous pouviez le faire avec les manches longues ce serait génial merci

19.12.2017 - 14:25

country flag Laila wrote:

Jeg vil virkelig gerne lave denne her

11.12.2017 - 18:02

country flag Claudia wrote:

Please also with long sleeves

11.12.2017 - 14:18