DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mina Cardigan

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Flora.

DROPS 191-21
DROPS Design: Mynstur fl-024
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-400-450-500 g litur 03, ljós grár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 05, dökk grár
50-50-50-50-50-50 g litur 13, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 19, kórall

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 8-8-8-8-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan):
Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum á berustykki, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynstur fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 125 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 11,5.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 10. og 11. hverja lykkju og 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 11. og 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Lykkjum er ekki fækkað/fjölgað yfir kanta að framan.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Aukið er út um alls 8 lykkjur í hveri útaukningsumferð.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 8 lykkjum á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 16 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo að ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist 1½-2 cm. Fellið síðan af 7-7-7-7-8-8 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8½-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykki verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun aðeins neðan í uppskrift.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 125-128-134-140-146-152 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með litnum ljós grár.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-9-11-9-7-9 lykkjur jafnt yfir -lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 115-119-123-131-139-143 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram með að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið 9-10-11-12-13-14 lykkjur slétt fram hjá lykkju með prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 19-21-23-25-27-29 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 28-31-34-37-40-43 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 37-41-45-49-53-57 lykkjur brugðið.
Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 9-10-11-12-13-14 lykkjur fleiri í hvert skipti þar til prjónað hefur verið yfir miðju 73-81-89-97-105-113 lykkjur og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt).

BERUSTYKKI:
= 115-119-123-131-139-143 lykkjur. LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2!
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 26-27-28-30-32-33 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Ör-1: Aukið út um 20-20-20-32-32-36 lykkjur jafnt yfir = 135-139-143-163-171-179 lykkjur.
Ör-2: Aukið út um 8-8-8-16-14-12 lykkjur jafnt yfir = 143-147-151-179-185-191 lykkjur.
Nú er pláss fyrir 33-34-35-28-29-30 mynstureiningar með A.1A með 4-4-4-6-6-6 lykkjum. Aukið síðan út eins og útskýrt er í A.1A.
Ör-3: Nú eru 275-283-291-291-301-311 lykkjur í umferð og hver mynstureining með A.1A nær yfir 8-8-8-10-10-10 lykkjur. Aukið JAFNFRAMT út um 18-16-20-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 293-299-311-317-329-341 lykkjur.
Ör-4: Aukið út um 6-6-6-14-10-6 lykkjur jafnt yfir = 299-305-317-331-339-347 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til A.1 hefur verið prjónað alveg til loka. Prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu með litnum ljós grár þar sem aukið er út um 0-0-4-6-6-4 lykkjur jafnt yfir (kantar að framan eru prjónaðar slétt og ekki er aukið út yfir kanta að framan)= 299-305-321-337-345-351 lykkjur.
Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur): Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 50-51-53-57-60-63 lykkjur í umferð, 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 55-56-60-60-58-55 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 89-91-95-103-109-115 lykkjur (= bakstykki) og fjórða prjónamerki er sett á eftir næstu 55-56-60-60-58-55 lykkjur (= ermi).
Nú eru 50-51-53-57-60-63 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með ljós grár og með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-9-11-13-16-19 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin = 339-377-409-441-473-503 lykkjur.
Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 55-60-64-70-76-82 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-117-129-141-153 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 55-60-64-70-76-82 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 229-249-269-293-321-349 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 60-65-70-76-83-90 lykkjur inn frá hvorri hlið (nú eru 109-119-129-141-155-169 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki).
Haldið áfram í sléttprjóni, með litnum ljós grár og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 12 sinnum í hvorri hlið = 277-297-317-341-369-397 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 35 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 55-59-63-66-74-79 lykkjur jafnt yfir (kantar að framan eru prjónaðir slétt og ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 332-356-380-407-443-476 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af frá réttu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 65-74-82-86-90-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-84-94-98-104-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-2-3-2-3-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 10.-7.-5.-5.-4.-4. hverri umferð alls 13-17-21-22-23-24 sinnum = 49-50-52-54-58-61 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 41-40-38-36-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-11-12-11-11 lykkjur jafnt yfir = 57-60-63-66-69-72 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = natur
symbols = ljós grár
symbols = dökk grár
symbols = gallabuxnablár
symbols = kórall
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með ljós grár. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Lise Grignon wrote:

Bonjour, je suis du Québec et j’ai un problème. Je tricote Le modèle fl-024 et après la flèche 4 et 339 mailles; le patron ne concorde plus. Devrais-je défaire jusqu’à la flèche 4 et augmenter plus de mailles? Merci en avance. Lise Grignon

07.08.2022 - 02:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Grignon, continuez les diagrammes ainsi (vu sur l'endroit): 5 m point mousse, répétez 41 fois les 8 mailles de A.1A, tricotez A.1B et terminez par 5 m point mousse, soit: 5+ (8*41) + 1 +5= 339 mailles. Bon tricot!

08.08.2022 - 07:37

country flag Heléne wrote:

Jag förstår inte hur resåren längst ner på koftan ska stickas.. vad är det för skillnad på en rät maska och rätstickning? Det blir ju bara rätstickning av det, ingen resår???

19.04.2021 - 14:50

DROPS Design answered:

Hei Helene. Slik det er forklart blir det en veldig fin vrangbordt. Husk å lese forklaringen til Rätstickning (stickas fram och tillbaka): Maskorna stickas räta på alla varv. Se gjerne video: Hur man stickar ett enkelt och fint strukturmönster som ligner på vrangborden i oppskriften. mvh DROPS design

19.04.2021 - 15:33

country flag Anja wrote:

Ska man inte byta till stickor 2,5 för resåren som avslutar fram- och bakstycke?

02.02.2021 - 22:26

DROPS Design answered:

Hej Anja. Resåren längst ner på tröjan ska göras med * 1 rätmaska, 2 maskor i rätstickning * (till skillnad från övriga resårer som är 1 rätmaska, 2 avigmaskor) så här ska det inte bytas till en mindre sticka. Mvh DROPS Design

03.02.2021 - 08:00

country flag Anja wrote:

Se upp med resåren som avslutar fram och bakstycket. Enligt mönstret ska den bara stickas i räta maskor.

31.01.2021 - 12:00

country flag Helena wrote:

Bzw. Ich habe mir jetzt noch einmal das Muster im Bild angeschaut. Die 8. letzte Reihe müsste auch schon über 8 Maschen gehen, oder? Dh immer 7 M weiß, 1M blau. Stimmt das?

18.01.2021 - 09:38

DROPS Design answered:

Liebe Helena, sorry für die verspäte Antwort, Ihre Frage wurde leider übersehen, ja genau, A.1 wird bei der letzten Reihen über 8 Maschen gestrickt, so wiederholen Sie 40 Mal diese 8 M: 5 Blende-Maschen, A.1A (= 8M x 40 = 320 M), A.1B ( 1 M), 5 Blende-Maschen. Viel Spaß beim stricken!

26.04.2021 - 14:03

country flag Helena wrote:

Liebes Dropsteam, leider geht bei mir in Größe XL nach dem 4. Pfeil in der Passe das Muster nicht mehr auf. Ich habe dann 331 M insgesamt. Minus 10 BlendenM=321M, Minus 1M für A.1B= 320M übrig für A.1A. Der Rapport von A.1A ist 6M breit, was aber mit den 320 M nicht aufgeht. Es bleiben dann zwei M übrig. Können Sie mir weiter helfen? Vielen Dank und liebe Grüße

18.01.2021 - 09:06

country flag Lis Søderberg wrote:

Tak for hurtigt svar på mit spørgsmål fra i går. Jeg har skrevet forkert, det størrelse XL og maskerne passer, og det er det rigtige diagram jeg bruger. Jeg er ved pind 46 og 47. På pind 46 er hver 6. maske jeansblå, og på pind 47 er hver 4. maske koral. På billedet kan jeg se, at den jeansblå maske skal ligge under hver anden koral. Det syntes jeg ikke jeg kan få til at passe. Hver 6. maske kan ikke rigtig gå op i hver anden 4. maske på næste pind.

21.10.2019 - 14:49

DROPS Design answered:

Hej Lis, det kan være en anden størrelse du ser på billedet, så det kan du ikke regne med. Det er vigtigt at du følger diagrammet, så antallet masker går op på omgangen. God fornøjelse!

21.10.2019 - 16:59

country flag Lis Søderberg wrote:

Jeg strikker trøjen i str xxl, og syntes ikke at diagrammet passer efter udtagning . Jeg har nu ialt 331 masker. På 3. pind efter udtagning strikkes jeansblå på hver 6. maske, og på pind 4 strikkes koral på hver 4. maske. Det ser meget usymetrisk ud, slet ikke som på billedet, hvor den blå ligger lige under hver anden koral. Jeg kan ikke se hvordan det skal komme til at passe? Jeg har løst det ved at droppe den jeansblå på 3.pind.,

20.10.2019 - 14:33

DROPS Design answered:

Hei Lis. Litt uskikker på hvor du er i oppskriften. Husk at det både er markert med økepinne (pil i diagrammet) og økninger (kast i diagrammet. I oppskriften er det ved Pil. 4 331 masker, men det er i størrelse XL, i str XXL skal det være 339 masker. Husk også velge riktig diagram til din størrelse. Første gang det skal strikkes med jeansblå (A.1A) er på rad 20 og det er da 8 masker med lys grå mellom jeansblå. mvh DROPS design

21.10.2019 - 12:15

country flag Lene Bangsgaard wrote:

Kan denne model strikkes i Drops air garn?

16.03.2019 - 08:14

DROPS Design answered:

Hei Lene. Denne genseren er strikket i garn fra garngruppe A, som har en helt annen strikkefatshet enn Air, som tilhører garngruppe C. Air er mye tykkere enn Flora så da vil genseren bli altfor stor, dessverre. Du kan bytte med andre garn innenfor garngruppe A om du vil strikke i et annet garn. God fornøyelse

21.03.2019 - 14:56

country flag Deb Weber wrote:

Under neck edge, it states cast on 125 stitches (including 5 band stitches). Do I cast on 125 or 135?

20.01.2019 - 22:29

DROPS Design answered:

Dear Deb, you cast on 125 stitches. From these there will be 5 that will be knitted as the buttonband of the piece, but the number of the band stitches included in the given number that sou should cast on. Happy Knitting!

20.01.2019 - 22:39