Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= slétt lykkja frá röngu | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir | |
= miðja að aftan | |
= prjónstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Swing Along |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð jakkapeysa úr DROPS Snow með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-21 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum frá neðri kanti á framstykki að miðju að aftan. Stykkin 2 eru saumuð saman við miðju að aftan. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til fá pláss fyrir allar lykkjurnar. VINSTRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Fitjið upp 50-52-53-56-58-61 l á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið og að miðju að framan): Prjónið 23-25-26-29-21-24 l sléttprjón, A.1 (= 10 l) yfir næstu 20-20-20-20-30-30 l (= alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á breiddina) og A.2 yfir síðustu 7 l. Prjónið mynstrið svona til loka. Í næstu umf frá röngu byrjar útaukning í hlið og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 1 l alls 2 sinnum og 2 l alls 5 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 5 l í lok umf (þessar 5 l eru prjónaðar í garðaprjóni sem kantur á ermi) = 67-69-70-73-75-78 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 14 cm. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 34-34-36-36-38-38 cm. Fitjið LAUST upp 22-22-24-24-26-26 nýjar l fyrir ermi í lok næstu umf frá röngu = 89-91-94-97-101-104 l. Þær 22-22-24-24-26-26 nýjar l eru prjónaðar í garðaprjóni (= 27-27-29-29-31-31 l garðaprjón í hægri hlið séð frá réttu). Prjónið 6 umf eins og áður. Prjónið síðan sléttprjón yfir 27-27-29-29-31-31 l í garðaprjóni (= alls 62-64-67-70-64-67 l sléttprjón 20-20-20-20-30-30 l mynstur A.1 og 7 l mynstur A.2). Í næstu umf frá röngu byrjar útaukning í hlið og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 2 l alls 2 sinnum og 1 l alls 8 sinnum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 3 l í lok umf (þessar 3 l eru prjónaðar í garðaprjóni til loka) = 104-106-109-112-116-119 l. Þegar stykkið mælist 58-60-59-61-61-64 cm fækkið um 1 l fyrir hálsmáli fyrir miðju frá réttu með því að prjóna 2 síðustu l sléttprjón á undan A.1 slétt saman. Fækkið l í 4. hverri umf alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 98-100-102-105-108-111 l. Stykkið mælist ca 71-73-75-77-80-83 cm. Prjónið nú stuttar umf yfir l með byrjun frá hálsmáli (= ranga) þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 10 l sl. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 10 l sl til baka. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 17 l sl, prjónið A.1 (= 1-1-1-1-2-2 sinnum á breiddina), sléttprjón og garðaprjón eins og áður út umf. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið garðaprjón, sléttprjón og A.1 eins og áður þar til 17 l eru eftir á prjóni, endið með 17 l sl. Endurtakið umf 1 til 4 þar til stykkið mælist 78-80-83-85-89-92 cm þar sem stykkið er styst, stillið af þannig að næsta umf sé frá röngu. UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið sl yfir fyrstu 17 l, snúið við. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið sl til baka. UMFERÐ 3 (= frá röngu): Prjónið sl yfir fyrstu 15 l, snúið við. UMFERÐ 4 (= frá réttu): Prjónið sl til baka. Prjónið yfir 2 l færri í hvert skipti sem snúið er við. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf með garðaprjóni yfir síðustu 3 l, prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l (= miðja að aftan) JAFNFRAMT sem í umf frá röngu er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 5. og 6. l og á milli 13. og 14. l (= 2 l fleiri, þetta er gert svo að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Fellið af með sl. HÆGRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Prjónið eins og vinstra framstykki/bakstykki nema gagnstætt. Prjónið A.3 í stað A.2 og A.4 í stað A.1. Fækkið l og fitjið upp l í vinstri hlið á stykki (þ.e.a.s. í lok hverrar umf frá réttu). ATH: Fellt er af fyrir hálsmáli á eftir A.4 (frá réttu). Fellið af með því að taka 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. FRÁGANGUR: Saumið saman bæði stykkin við miðju að aftan yst í lykkjubogana. Saumið saman A við B – sjá mynsturteikningu – saumið í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Tölum er hneppt í gegnum göt í A.3 í hægri kanti að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6934 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (38)
Anne wrote:
Has anyone put a pocket on the front? If so how?
10.08.2020 - 15:02DROPS Design answered:
Dear Anne, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request but you are welcome to contact your DROPS store for any individual assistance - you could be inspired but our patterns with pockets. Happy Knitting!
10.08.2020 - 16:41Lynette wrote:
Please help I'm stuck at right front turning sts on right side won't work at collar I did left side no problem but am having difficult reversing final piece
12.06.2020 - 00:16DROPS Design answered:
Dear Lynette, the short rows on right front piece/back piece will be worked starting from RS (instead of from WS on left piece). Happy knitting!
12.06.2020 - 07:58Blue Kira wrote:
Bonjour. J'adore tes projets mais je travaille avec des tricotins. Alors je me demandais s'il vous serait possible de m'aider à le faire avec mon tricotin. Merci in advance
14.07.2019 - 14:31DROPS Design answered:
Bonjour Blue Kira, nos modèles sont tous écrits pour des aiguilles à tricoter classiques, pour toute assistance complémentaire avec un tricotin, merci de bien vouloir contacter votre magasin et/ou un forum adapté, merci pour votre compréhension. Bon tricot!
15.07.2019 - 10:18Nadine wrote:
Bonjour, j'en suis arrivée aux premiers rangs raccourcis, c'est la panique. Au rang 1, je dois tricoter 10 m end, elle se place au dessus de quelle maille ? Je pense qu'une fois répondu à cette question tout devrait aller 😄😄😄
20.04.2019 - 18:37DROPS Design answered:
Bonjour Nadine, vous tricotez les rangs raccourcis en commençant sur l'envers, donc en début de rang sur l'envers, tricotez 10 mailles endroit (= les 10 premières mailles du rang), tournez, et tricotez ces 10 mailles à l'endroit (= rang retour). Au 3ème rang, tricotez les 17 premières m à l'end, puis A.1, jersey et point mousse comme avant = tout le rang = toutes les mailles. Tournez et tricotez le rang 4 sur l'endroit comme avant (rang suivant de A.1 en suivant le diagramme). Bon tricot!
23.04.2019 - 12:46Joan wrote:
Is the total overall length of the pattern knitted for XL 86" ? I have been knitting for over 60 years and find this pattern - Does the 3 stand for 3" or the 3 rows??
27.08.2017 - 23:53DROPS Design answered:
Dear Joan, the total length of the pattern knitted for XL is 86 cm. As for '3', please precise where it is in the pattern. Happy knitting!
28.08.2017 - 09:30Sylvie wrote:
Je vous remercie pour votre réponse je vais pouvoir me remettre à mon ouvrage
17.07.2017 - 14:03Sylvie wrote:
Merci beaucoup pour votre réponse. mais à quel rang on tricote toutes les mailles (inclus les 3 mailles au point mousse des manches)
17.07.2017 - 10:50DROPS Design answered:
Bonjour Sylvie, vous diminuez d'abord le nombre de mailles tricotées (2 m en moins par rang raccourci) jusqu'à ce que vous ayez tricoté 2 rangs sur les 3 dernières mailles, puis vous tricotez 2 rangs (= 1 côte mousse) sur toutes les mailles. Bon tricot!
17.07.2017 - 12:14Sylvie wrote:
Bonjour, je suis arrivée au niveau des 2ème rangs raccourcis. Sur l'envers on doit tric les 17 premières mailles endroit, tourner et tric le rg retour à l'endroit ; alors que les 17 mailles tricotées en tournant on se retrouve toujours avec les mêmes 17 mailles et on ne peut pas pas tricoter tout le rang en entier. Je suis désolée mais je n'ai pas du tout compris et j'espère vous avoir bien expliqué mon problème. Merci beaucoup de bien vouloir m'aider à finir ce modèle qui est magnifique.
16.07.2017 - 11:40DROPS Design answered:
Bonjour Sylvie, ce sont des rangs raccourcis, donc vous allez uniquement tricoter les mailles indiquées: au 1er rang, vous tricotez 17 m, au 2ème rang, vous tricotez ces 17 m, au 3ème rang, vous tricotez 15 m, au 4ème rang, vous tricotez 15 m, au 5ème rang vous tricotez 13 m, au 6ème rang, vous tricotez ces 13 m et ainsi de suite, vous tricotez 2 rangs (1 sur l'envers + 1 sur l'endroit) sur le même nombre de mailles à chaque fois, toujours avec 2 m en moins à chaque fois = 11 m au 7ème et 8ème rang, 9 m au 9ème et 10ème rang etc. Bon tricot!
17.07.2017 - 09:23Susan wrote:
Just starting to knit Left front piece. It says to work pattern like this until finished measurements. Where are the finished measurements listed?? Thank You.
16.05.2017 - 14:09DROPS Design answered:
Dear Susan, the finished measurements you will find at the bottom of the page (see the schematic drawing). Happy knitting!
16.05.2017 - 14:29Sylba wrote:
Bonjour , il est écrit "Quand 1 côte mousse a été tricotée sur les 3 m du bord, tricoter 1 ..."faut-il faire des rangs raccourci jusqu'à qu'il ne reste que 3 m puis faire une cote mousse, car au final les côtes mousse sur les 3 dernière m, on l'a dès le 2 ieme rang.
19.04.2017 - 10:48DROPS Design answered:
Bonjour Sylba, vous tricotez les rangs raccourcis avec 2 m de moins à chaque fois jusqu'aux 3 m point mousse, tricotez 1 côte mousse sur ces 3 mailles (= 2 rangs), puis 1 côte mousse sur toutes les mailles en augmentant 2 m sur l'envers. Bon tricot!
19.04.2017 - 13:39