DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Let's Relax

Prjónaðir púðar úr 4 þráðum DROPS Snow í garðaprjóni og köðlum eða brugðnum lykkjum. Einnig hægt að prjóna þá úr 2 þráðum DROPS Polaris.

DROPS 163-6
DROPS Design: Mynstur nr ee-542
Garnflokkur E + E + E + E eða F + F
----------------------------------------------------------

PÚÐI MEÐ KÖÐLUM:
Mál:
Ummál: Ca 144 cm (með fyllingu).
Þvermál: Ca 48 cm.
Hæð: 25 cm.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
750 gr litur nr 01, natur
Eða notið:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
1000 gr litur nr 01, natur

PÚÐI MEÐ BRUGÐNUM LYKKJUM SEM FÆRAST TIL:
Mál:
Ummál: Ca 150 cm (með fyllingu).
Þvermál: Ca 48 cm.
Hæð: 25 cm.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
700 gr litur nr 47, ljós beige
Eða notið:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
1000 gr litur nr 06 ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 15 – eða þá stærð sem þarf til að 7 l og 8 umf með sléttprjóni eða 7 l og 12 umf með garðaprjóni með 4 þráðum Snow (eða 2 þræðir Polaris) verði 10 x 10 cm.

1 dúnkoddi (1400 g) eða 2 dúnkoddar (700 g) fyrir fyllingu (best er að nota dún því auðveldast er að forma koddan til). Ódýrasta gerðin hentar vel – við höfum notað sumarkodda sem er ca 1400 gr).

1 koddaver í sama lit og púðinn (til þess að hlífa koddanum og að hann sjáist ekki í gegnum lykkjurnar).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVEIR ÞRÆÐIR:
Notið þráð innan úr dokkunni og utan með. Þegar skipt er um dokku er gott að skipta ekki um báða þræðina í einu – þá verður skiptingin ekki eins þykk.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaðar snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PÚÐI MEÐ KÖÐLUM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna – LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR!

PÚÐI:
Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 15 með 4 þráðum Snow eða 2 þráðum Polaris.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, prjónið 2 l sl í síðustu l = 12 l.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir allar l. ATH: Uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað fyrir framan) svo ekki myndist gat! Setjið eitt prjónamerki í 2., 4., 6., 8., 10. og 12. l.
Haldið síðan áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l á undan hverri l með prjónamerki (= 6 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 60 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umf frá réttu er aukið út um 12 l jafnt yfir = 72 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 6 l) 12 sinnum á breiddina (ATH: Ekki er prjónuð kantlykkja þar sem l eru svo þykkar). Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið fyrstu 5 umf í A.1 (síðasta umf frá réttu). Prjónið nú 1 umf br frá röngu. Haldið nú áfram í garðaprjóni til loka. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 12 l jafnt yfir með því að prjóna 2 l slétt saman = 60 l.
Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið eitt prjónamerki í 1. l, síðan eru sett 5 prjónamerki til viðbótar með 9 l millibili. Nú eru eftir 9 l eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 12 l. Prjónið nú l 2 og 2 slétt saman = 6 l. Klippið frá, skiljið eftir nægilega langan enda til þess að sauma púðann saman í lokin.

FRÁGANGUR:
Þræðið þræðina í gegnum þær l sem eftir eru og herðið vel að, hnýtið hnút og festið þráðinn vel án þess að klippa frá (= botn á púðaveri). Saumið opið, saumið yst í lykkjubogana með 2 þráðum Snow eða 1 þræði Polaris. Púðaverið er fyllt (það getur verið kostur að vera tveir í þessu verki til þess að þetta gangi betur): Leggið 1 kodda (ca 1400 gr) eða 2 kodda (ca 700 gr ofan á hvorn annan) og dragið koddaver yfir. Troðið koddunum í púðaverið. Dragið saman toppinn á púðaverinu / púða. Festið vel.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PÚÐI MEÐ BRUGÐNUM LYKKJUM SEM FÆRAST TIL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna – LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR!

PÚÐI MEÐ BRUGÐNUM LYKKJUM SEM FÆRAST TIL:
Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 15 með 4 þráðum Snow eða 2 þráðum Polaris.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, prjónið 2 l sl í síðustu l = 12 l.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir allar l. ATH: Uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat! Setjið eitt prjónamerki í 2., 4., 6., 8., 10. og 12 l.
Haldið síðan áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l á undan hverri l með prjónamerki í (= 6 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 60 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umf frá réttu er aukið út um 10 l jafnt yfir = 70 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki hér – stykkið er nú mælt héðan!
Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, prjónið síðan A.2 (= 6 l) 11 sinnum á breiddina, 2 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina er haldið áfram með br í mynstri svo að það færist til um 1 l til vinstri (séð frá réttu) í hverri umf.
Þegar stykkið mælist 16 cm frá prjónamerki er haldið áfram þannig: Prjónið síðan garðaprjón til loka, JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er fækkað um 10 l jafnt yfir = 60 l. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið eitt prjónamerki í 1. l, síðan eru sett 5 prjónamerki til viðbótar með 9 l millibili. Nú eru 9 l eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 12 l. Prjónið nú l 2 og 2 slétt saman = 6 l. Klippið frá og látið vera nægilega langan enda til þess að sauma púðann saman í lokin.

FRÁGANGUR:
Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið vel að, hnýtið hnút og festið þráðinn vel án þess að klippa frá (= botn á púðaveri). Saumið opið, saumið yst í lykkjubogana með 2 þráðum Snow eða 1 þræði Polaris. Púðaverið er fyllt þannig (það getur verið kostur að vera tveir í þessu verki til þess að þetta gangi betur): Leggið 1 kodda (ca 1400 gr) eða 2 kodda (ca 700 gr ofan á hvorn annan) og dragið koddaver yfir. Troðið koddunum í púðaverið. Dragið saman toppinn á púðaverinu / púða. Festið vel.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 163-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag CLERT Annick wrote:

Le pouf à mailles envers décalées m'intéresse, mais j'ai peur du feutrage; de la laine polaris ; pouvez vous me conseiller une autre laine ne présentant pas ce risque, et à tricoter avec le moins de fils possibles ( d'où ma préférence entre polaris et snow). D'avance merci.

15.02.2021 - 14:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Clert, utilisez notre convertisseur pour découvrir les alternatives possibles - et retrouvez ici plus d'infos sur les alternatives, votre magasin DROPS saura vous conseiller si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

16.02.2021 - 08:37

country flag Murielle Pham wrote:

Bonjour, j'ai envie de me faire ce modèle mais en laine feutrée...qu'en pensez vous ? Quelle sera sa taille ?

08.01.2020 - 21:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pham, Si vous souhaitez feutrer ce pouf à la fin, il sera beaucoup plus petit, ou bien il vous faudra recalculer toutes les explications pour qu'il ait la forme/taille souhaité. Ces quelques informations sur le feutrage pourront peut-être vous aider. Bon tricot!

09.01.2020 - 09:38

country flag Ricci wrote:

Bonjour, je voulais savoir s' il était possible de tricoter ces poufs en aiguille circulaire 60 cm. Parce que soit je ne trouve pas soit les boutiques sont en rupture de sock Je vous remercie

13.11.2019 - 14:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ricci, tout à fait, on tricote ici en allers et retours, vos mailles seront juste légèrement plus serrées, mais toujours plus confortable que sur des aiguilles droites. Bon tricot!

13.11.2019 - 14:43

country flag Marie wrote:

Bonjour, Est il possible de tricoter le pouf à torsade avec des aiguilles droites. Je vous remercie de votre réponse

08.11.2019 - 13:41

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, ces 2 poufs se tricotent en allers et retours sur aiguilles circulaires, vous pouvez donc utiliser des aiguilles droites mais vos mailles seront plus serrées (attention à votre tension). Vous trouverez plus d'infos sur le tricot sur aiguilles circulaires ici. Bon tricot!

08.11.2019 - 14:21

country flag Cristina Borghetti wrote:

Buonasera, vorrei eseguire uno dei due pouff, voorei però usare un filato in cotone, è possibile? quale mi consigliate? dove osso trovare il down duvet necessario per l'imbottitura? grazie cristina

17.02.2017 - 16:25

DROPS Design answered:

Buongiorno Cristina, questi pouff sono lavorati con dei filati troppo spessi che non hanno alternative in cotone, sono belli così proprio perché sono molto soffici. Per l'imbottitura può provare su internet o in negozi di tessuti per casa della sua zona. Buon lavoro!

17.02.2017 - 16:48

country flag Joanne wrote:

I am unable to read the comments for this pattern. Is there some way I can view them translated into English? Also in Row 2 of the cable pouffe are all knit stitches worked into the back or just the KYOs?

24.06.2016 - 03:18

DROPS Design answered:

Dear Joanne, on row 2, work only YOs twisted to avoid holes, all other sts will be worked as usual K sts. You are welcome to use any online translator to read comments in all other languages. Happy knitting!

24.06.2016 - 08:49

country flag Rebecca Prinz wrote:

Guten Tag, Würden Sie eher die Eskimo oder die Polaris für ein gleichmäßiges Maschenbild empfehlen? Danke :)

09.05.2016 - 16:44

DROPS Design answered:

Liebe Rebecca, Sie erhalten sowohl mit Eskimo als auch mit Polaris ein sehr gleichmässiges Maschenbild.

09.05.2016 - 20:42

country flag Bente Møller wrote:

Tak, havde nok lidt travl, og fik ikke læst rigtig😅

05.02.2016 - 12:52

country flag Mette wrote:

Hej Bente. Der står: Strik *1 ret, slå om*, gentag *-* 4 gange til, altså i alt 5 gange, og strik 2 masker ret i sidste maske = 12 masker. Håber det lykkes nu. Strikkehilsen fra Mette

05.02.2016 - 00:11

country flag Bente Møller wrote:

Hej. Jeg kan ikke få det til at passe. Slå 6 m op. 1 ret, slå om, g.4 strik 2 ret = 10 m. Men i opskriften står der = 12 m. Og sæt et mærke i 2,4,6,8,10,12 m. Jeg er total på herrens mark😟 Mvh. Bente

04.02.2016 - 18:21