DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

English Afternoon

Prjónuð aðsniðin peysa úr DROPS Karisma með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og brugðnum lykkjum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-23
DROPS Design: Mynstur nr u-773
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 gr litur nr 54, beige
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 55, ljós brúnn
50-50-50-100-100-100 gr litur nr 71, silfurbleikur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón/stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í berustykki):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (= 106 l), deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27 l) = 3,92. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út um 1 l til skiptis í 3. og 4. hverri l.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. LESIÐ LEIÐBEININGAR! Byrjun umf = miðja að aftan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 105-108-114-117-120-129 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn. Prjónið stroff (1 l sl, 1 l br) í 3 cm. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið síðan 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 2 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 27-28-34-35-36-39 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING -2 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2 = 132-136-148-152-156-168 l. Prjónið A.1. Í umf 7 er aukið út um 36-38-38-46-48-48 l jafnt yfir = 168-174-186-198-204-216 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umf 15 er aukið út um 34-40-44-48-50-54 l jafnt yfir = 202-214-230-246-254-270 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf 19 er aukið út um 34-38-42-46-58-62 l jafnt yfir = 236-252-272-292-312-332 l. Prjónið út umf í A.1. Prjónið nú A.2 (= 22 l) 12-13-14-15-16-17 sinnum á breiddina, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 28-34-36-38-40-42 l jafnt yfir = 264-286-308-330-352-374 l. ATH: Í umf 13 í mynstri er aukið út um 1 l (= alls 12-13-14-15-16-17 útaukningar í umf) = 276-299-322-345-368-391 l. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umf í mynstri 0-0-0-2-2-2 sinnum til viðbótar. Prjónið nú A.3, JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 6-7-8-15-16-23 l jafnt yfir = 282-306-330-360-384-414 l. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað á hæðina er prjónuð 1 umf í sléttprjóni með litnum beige þar sem aukið er út um 2-2-2-4-4-6 l jafnt yfir = 284-308-332-364-388-420 l. Prjónið nú 0-2-4-4-6-8 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 38-42-46-52-56-64 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-70-74-78-82-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 76-84-92-104-112-128 l (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-78-82-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 38-42-46-52-56-64 l (= hálft bakstykki). Stykkið mælist nú ca 24-25-25-26-27-28 cm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 176-192-208-232-248-280 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki 44-48-52-58-62-70 l inn frá byrjun á umf í hvorri hlið (= hliðar). Prjónamerkin fylgja síðan með í stykkinu. Prjónið nú með litnum ljós brúnn til loka. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú mynstur A.4 (= 8 l) yfir allar l. Þegar allt A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni. Í næstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf 3 sinnum til viðbótar í öllum stærðum = 160-176-192-216-232-264 l. Þegar stykkið mælist 19 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf 3 sinnum til viðbótar í öllum stærðum = 176-192-208-232-248-280 l. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-30 cm er lykkjufjöldinn jafnaður til 180-190-210-230-250-280 l. Nú er prjónað A.5 (= 10 l). Þegar allt mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf þar sem aukið er út um 8-8-9-11-13-14 l jafnt yfir = 188-198-219-241-263-294 l. Prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð með litnum ljós brúnn í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 66-70-74-78-82-82 l fyrir ermi. Setjið til baka l af þræði á hringprjóna/sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 12 nýjar l undir ermi = 78-82-86-90-94-94 l. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt í nýju l undir ermi (= 6 nýjar l hvoru megin við prjónamerkið). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið úrtöku í 5.-4.-4.-3.-4.-4. hverri umf 13-15-17-19-16-16 sinnum til viðbótar = 50-50-50-50-60-60 l. Þegar ermin mælist 30-30-30-29-29-30 cm prjónið A.5 (5-5-5-5-6-6 sinnum í umf). Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 4 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 4-7-7-10-3-6 l jafnt yfir = 54-57-57-60-63-66 l. Prjónið 6 umf garðaprjón. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón áður en stroffið er prjónað (1 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.04.2019
Leiðrétting: Litur nr 71 silfurbleikur

Mynstur

symbols = slétt með beige
symbols = slétt með silfurbleikur
symbols = slétt með natur
symbols = brugðið með beige
symbols = brugðið með natur
symbols = sllétt með ljós brúnn
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 lykkja með beige
symbols = brugðið með ljós brúnn
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Liette wrote:

Bonjour je voudrais savoir les mesures sur le dessin est-ce en pouces ou en centimètres et comment savoir l'aisance que l'on doit mettre pour avoir une belle tombée PS: je fais toujours l'échantillon Merci et bonne journée

09.02.2024 - 16:02

DROPS Design answered:

Bonjour Liette, les mesures du schéma sont indiquées en cm; pour trouver votre taille (et l'aisance souhaitée), mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma; retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

12.02.2024 - 07:09

country flag Eveline De Leeuw wrote:

English Afternoon 164-23. opm.2: ook bij de telkleuren uitleg staan de kleuren anders vermeld dan in het oorspronkelijke patroon... (denk ik)

06.10.2022 - 13:04

country flag Eveline De Leeuw wrote:

English Afternoon 164-23: ik denk dat er een vertaalfout is gemaakt met de beginkleur, deze zegt in NL patroon lichtbruin (2e kleur) maar er moet mijns inziens opgezet worden met de hoofdkleur, dit is beige. Ik heb het Noorse patroon erbij gehaald en daar is de beginkleur inderdaad de hoofdkleur (lys brunmelert). Ter info

06.10.2022 - 12:58

country flag Helene wrote:

Slet venligst den sidste besked fra mig. Jeg har fundet ud af, hvilken fejl, jeg begik, og er startet forfra.

11.11.2020 - 23:15

country flag Helene wrote:

Hej. Jeg er i gang med at strikke denne trøje, og jeg er næsten færdig med A.1. Jeg læser diagrammerne ovenfra og ned. Når jeg kigger på diagram A. 2 og sammenligner med billedet af den færdige trøje, ser det ud til at diagrammet vender på hovedet. Den nærmest rombeformede figur er ifølge diagrammert den sidste figur i A.2. Men på billedet er det næstsidste figur. Begår jeg en fejl, når jeg læser diagrammerne ovenfra og ned? Med venlig hilsen Helene

11.11.2020 - 13:49

DROPS Design answered:

Hej Helene. Så fint att det du kom på hur du ska göra. Mvh DROPS Design

13.11.2020 - 10:45

country flag Jacqueline Donovan wrote:

The wool requirements state 4 colours, 55, 54, 71 & 01. In the diagram, silver pink is mentioned but not in the requirements??? Can yiu advise please? Kind regards, Jacquie

29.03.2019 - 22:54

DROPS Design answered:

Dear Jaquie, there is a typo under colour no 71, it should be silver pink instead of light beige, pattern will be edited, thanks for the tip! Happy knitting!

01.04.2019 - 11:48

country flag Hildegunn Nesjan wrote:

Strikket denne i str L, og er veldig fornøyd med resultatet. Men jeg fikk ikke den oppgitte garnmengde til å stemme. Brukte 400g av farge 53, og 150g av farge 54.

12.08.2017 - 08:16

country flag Jo Janssen V D Rijt wrote:

Hoe komt t dat ik n patroon niet kan printen heb n hp laserprinter

13.11.2016 - 14:40

DROPS Design answered:

Hoi Jo. Ik kan het patroon printen, ik denk dat het probleem dan ligt bij jou printer / instellingen. Hier kan ik helaas niet mee helpen.

14.11.2016 - 14:32

country flag Loes wrote:

Welk blokje in het tel patroon wordt gebruikt voor de kleur beige. Er wordt toch met 4 kleuren gewerkt?

01.11.2016 - 18:21

DROPS Design answered:

Hoi Loes. De kleurnamen waren aangepast, maar vergeten in de vertaling voor de symbolen. Ik heb het nu aangepast. Bedankt.

02.11.2016 - 12:22

country flag Stine Bjørnsdatter Nygård wrote:

Er det riktig at bol og ermer skal strikkes i lys brunmelert? Jeg får det ikke til å stemme med bildet og garnmengden. Jeg tror bol og ermer skal være i beige melert (eller den bunnfargen man måtte velge). Tar jeg helt feil?

10.08.2015 - 22:06

DROPS Design answered:

Hej. Färgerna är riktiga men garnmängden var tidigare fel, detta har nu rättats. Mvh DROPS Design

12.08.2015 - 08:38