DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Toulouse

Heklaður kjóll úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri og hringlaga berustykki, heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 165-36
DROPS Design: Mynstur nr cm-035
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
500-550-650-700-750-850 gr litur nr 23, ljós fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st og 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með st eru fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í 1 st.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. A.1 sýnir hvernig mynstrið byrjar og endar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður með byrjun fyrir miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Heklið 128-138-138-163-168-173 ll með heklunál nr 4 með Cotton Merino og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið næstu umf þannig: Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í fyrstu ll frá ll-hring, 1 st í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja og eina af 4 næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. Ll frá byrjun umf = 104-112-112-132-136-140 st. Í næstu umf er aukið út um 16-20-20-24-44-52 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNINGU = 120-132-132-156-180-192 st.

Heklið síðan þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 6 st, A.2 yfir næstu 12-12-12-18-24-24 st (= alls 2-2-2-3-4-4 sinnum), A.3 yfir næstu 12 st (= alls 2 sinnum), A.2 yfir næstu 6-6-6-12-12-12 st (= 1-1-1-2-2-2 sinnum), A.3 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum), A.2 yfir næstu 30-36-36-42-54-60 st (= 5-6-6-7-9-10 sinnum), A.3 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum), A.2 yfir næstu 6-6-6-12-12-12 st (= 1-1-1-2-2-2 sinnum), A.3 yfir næstu 12 st (= 2 sinnu), A.2 yfir síðustu 12-18-18-18-24-30 st (= 2-3-3-3-4-5 sinnum). ATH: Í stærð S+XL+XXL byrjar umf aðeins nær annarri hliðinni svo að mynstrið gangi jafnt upp. Haldið svona áfram með mynstrið. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1/A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er það endurtekið síðan á hæðina.

Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 240-252-292-316-340-352 st í umf. Stykkið mælist ca 18-18-20-20-22-22 cm (mælt frá kanti í hálsmáli).

Heklið nú þannig (= 6. umf í A.1/A.2): Heklið 1 st í hvern af fyrstu 39-39-44-50-56-56 st (= hálft bakstykki), heklið 6-6-8-8-8-8 ll, hoppið yfir 48-48-58-64-64-64 st (= handvegur), heklið 1 st í hvern af næstu 72-78-88-94-106-112 st (= framstykki), heklið 6-6-8-8-8-8 ll, hoppið yfir 48-48-58-64-64-64 st (= handvegur), heklið 1 st í hvern af síðustu 33-39-44-44-50-56 st = 144-156-176-188-212-224 st og 6-6-8-8-8-8 ll í hvora hlið á stykki (= alls 156-168-192-204-228-240 l). Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið næstu umf þannig (= umf 7 í A.1/A.2): Heklið A.1 1 sinni, síðan er heklað A.2 yfir þær 150-162-186-198-222-234 st/ll sem eftir eru (= alls 25-27-31-33-37-39 sinnum á breiddina). Haldið áfram að hekla mynstur á hæðina. JAFNFRAMT í umf með ör í mynstri er aukið út um 12 st jafnt yfir (þ.e.a.s. heklaðir eru 2 st í 13.-14.-16.-17.-19.-20. hvern st)= 168-180-204-216-240-252 st. A.2 er nú endurtekið 2 sinnum til viðbótar á breiddina. Endurtakið útaukningu í 10. hverjum cm, stillið af að aukið er út í einni umf með st, 3 sinnum til viðbótar = 204-216-240-252-276-288 st. Í hvert skipti sem aukið er út er A.2 endurtekið 2 sinnum til viðbótar á breiddina. Eftir síðustu útaukningu er A.2 endurtekið alls 33-35-39-41-45-47 sinnum á breiddina. Þegar stykkið mælist ca 44-46-46-48-48-50 cm (frá prjónamerki) – passið uppá að síðasta umf er umf með st, heklið A.y alls 3 sinnum á hæðina. Heklið síðan A.z 1 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 78-80-82-84-86-88 cm alls frá kanti í hálsi. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Á ERMUM:
Kanturinn er heklaður í hring. Byrjið mitt undir ermi. Heklið 1 kl í 4. ll mitt undir ermi, 3 ll, 1 st í hverja og eina af næstu 2-2-4-4-4-4 ll, 1 st í hvern af 48-48-58-64-64-64 st fyrir ermi JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-4-4-0-0 st jafnt yfir og 1 st í hverja af síðustu 3 ll sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-48-62-68-72-72 st. Heklið 2 umf með 1 st í hvern st. Klippið frá og festið enda. Heklið kant á hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = ll
symbols = kl
symbols = fl í l
symbols = fl um ll
symbols = st í l
symbols = st um l
symbols = umf byrjar á 4 ll og endar á 1 kl í 4. ll
symbols = umf byrjar á 3 ll og endar á 1 kl í 3. ll
symbols = fyrsta umf er útskýrð í mynstri
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Anette Schwarz wrote:

Hallo liebes Drops- Team, Wie kommt es, dass ich für die Anleitung für dieses Kleid auf einer anderen Webseite 3€ bezahlen muss? Lg

11.07.2023 - 11:08

DROPS Design answered:

Liebe Anette, Alle unsere Modelle sind kostenlos auf unserer Website verfügbar. Sie können sie hier einsehen und als PDF herunterladen. Viele Spass beim häkeln!

27.07.2023 - 10:06

country flag Ute Wilson-Oertel wrote:

Hi, the size is XL . The pattern A3 confuses me, I do not know how to proceed or how it repeats itself . It would help me, if I knew how the pattern is continuing. Thanks a lot

27.02.2023 - 10:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wilson-Oertel, you just have to work all diagrams at the same time in this order: A.1 over the first 6 tr, A.2 over the next 18 tr (= 3 times in total), A.3 over the next 12 tr (= 2 times in total), A.2 over the next 12 tr (= 2 times), A.3 over the next 12 tr (= 2 times), A.2 over the next 42 tr (= 7 times), A.3 over the next 12 tr (= 2 times), A.2 over the next 12 tr (= 2 times), A.3 over the next 12 tr (= 2 times), A.2 over the last 18 tr (= 3 times) = 156 trebles. Then work 2nd row all diagrams, 3rd row all diagrams etc... You should increase only in A.3 - insert markers between diagrams/repeats can help you tracking the number of sts. Can this help?

27.02.2023 - 11:25

country flag Ute Wilson-Oertel wrote:

Hallo, A3 habe ich Probleme. Bei den Reihen mit den Stäbchen, weiß ich nicht wie es danach weiter geht, da es abgehackt ist und ich nicht weiß, ob der Anfang mitgezählt wird. Eine Reihe beginnt mit 5 Stäbchen ,dann werden am Ende 8 Stäbchen angezeigt und dann? Wie fahre ich weiter? Danke

26.02.2023 - 13:19

country flag Ute Wilson-Oertel wrote:

Hallo, A3 habe ich Probleme. Bei den Reihen mit den Stäbchen, weiß ich nicht wie es danach weiter geht, da es abgehackt ist und ich nicht weiß, ob der Anfang mitgezählt wird. Z.B. Reihe 13 beginnt mit 5 Stäbchen ,dann werden am Ende 8 Stäbchen angezeigt und dann? Wie fahre ich weiter? Danke

26.02.2023 - 13:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wilson-Oertel, können Sie uns bitte mitteilen, welche Größe Sie häkeln? Da es sind 3 verschieden A.3, würde es uns helfen, Ihnen dann weiterzuhelfen. Danke im voraus für Ihr Verständnis.

27.02.2023 - 10:28

country flag Tracey wrote:

I completed 3 rd row now. So now it asking when a1 a2 have been worked 1 time vertically repeat them upwards. So do I do a1 row then a2. Then a1 then a2. Or just go up on a2 chart thanks.

29.11.2019 - 14:40

DROPS Design answered:

Dear Tracey, you continue working the same diagrams as for previous round, ie A.1, A.2, A.3 , etc... in the same order as before, working each row in each diagram. You are increasing stitches in A.3, while the number of stitches in A.1 and A.2 will remain the same. Happy crocheting!

29.11.2019 - 15:48

country flag Tracey wrote:

Hi I have done 1 row as 4 tr and skip stitch. 4 tr. to end. Then second row I increased so I have 120 now. Instead of 104. So I know that right. But now it says continue to work as follows. Work a1 over the first 6 tr. is that 1 row Cause if I do 30 times tr 5 times. And the other stitches aswell. It not going to fit on the same row. As I only got 120 sts. As I’m doing the small size. Plz help with diagram. I’m still learning to do crochet.

29.11.2019 - 12:25

DROPS Design answered:

Dear Tracey, work first row each diagram at a time, ie row 1 in A.1 over the first 6 sts, then repeat row 1 in A.2 a total of 2 times (= over the next 12 sts), row 1 in A.3 over the next 12 sts (= 2 times in width), and so on. On next round, work row 2 each diagram, then row 3 and so on. read more here. Happy crocheting!

29.11.2019 - 13:00

Irma wrote:

: Work A.1 over the first 6 dc, A.2 over the next 12-12-12-18-24-24 dc (= 2-2-2-3-4-4 times in total), A.3 over the next 12 dc (= 2 times in total), A.2 over the next 6-6-6-12-12-12 dc (= 1-1-1-2-2-2 times), A.3 over the next 12 dc (= 2 times), ............... A.3 over the next 12 dc (= 2 times), A.2 over the last 12-18-18-18-24-30 dc (= 2-3-3-3-4-5 times) After above round how many stitches should i have for xl.

28.09.2017 - 15:45

DROPS Design answered:

Dear Irma, after this round, you will still have 156 sts in XL,ie as before since you work 1 st in the st from previous row, see diagram. Happy crocheting!

28.09.2017 - 17:22

country flag Afshan Raheel wrote:

How many stitches after row 2?

27.09.2017 - 18:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Afsha, after row 1 you will have the same number of sts as you will not increase in row 1 - It can be a good idea to insert a marker between each repetition so that you can easily follow your work and the diagram. Happy crocheting!

28.09.2017 - 09:31

country flag Afsha Raheel wrote:

Plz help me with 2nd row of yoke. It will be double crochet in each stich ? If we do not divide in a1 a2 a3? And 3rd row. What is above a1 6 dc? If its according to diagram then what does row 2 mentions a2 4 time a3 2 time????

27.09.2017 - 18:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Afsha, on 2nd round on yoke you will work 1st row in each diagram as stated, ie in the 2 larger sizes you will work 2nd round as follows: A.1 over the first 6dc, A.2 over the next 24dc (= 4times in total = repeat 4 times in width row 1 in A.2)), A.3 over the next 12dc (= 2times in total), A.2 over the next 12 dc (= 2 times), A.3 over the next 12 dc (= 2 times), A.2 over the next 54-60 dc (= 9-10 times), A.3 over the next 12 dc (= 2 times), A.2 over the next 12 dc (= 2 times), A.3 over the next 12 dc (= 2 times), A.2 over the last 24-30 dc (= 4-5 times). Happy crocheting!

28.09.2017 - 09:30

Asraa wrote:

Hi. I have just completed A3 and the 5th rounds of A1 and A2 for the size medium. However the count of my tr stitches is only 196.If I count the chain stitches in between then the stitch count goes well over 252. However if I apply some mathematics and get the stitch by multiplying the number of tr stitches in each mode (A1,A2,A3) by the number of times they are repeated it comes out as 196= 2 (for A1) +26(for A2) +168(for A3). Kindly help me with this.

30.08.2017 - 19:22

DROPS Design answered:

Dear Asraa, by the time you finish the last row of pattern A.3 you should have the following stitch counts: A.1 (6 sts), A.2 (12 sts), A.3 (2 x 21= 42 sts), A.2 (6 sts), A.3 (42 sts), A.2 (36 sts), A.3 (42 sts), A.2 (6 sts), A.3 (42 sts) A.2 (18 sts) that adds up to 252 sts, hich is the number of stitches you have to continue to work with. I hope this helps. Happy Crocheting!

31.08.2017 - 06:12