DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 161-26
DROPS Design: Mynstur nr de-138
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
350-400-400-450-500-550 gr litur nr 04, ljós blár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 621: 5-5-5-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að prjóna 2 l í fyrstu l, en þegar aukið er út við x er aukið út þannig: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist göt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat= fellið af fjórðu l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá neðri brún í kanti að framan):
Stærð S: 20, 27, 34, 41 og 48 cm.
Stærð M: 20, 27, 35, 42 og 50 cm.
Stærð L: 20, 27, 35, 42 og 50 cm.
Stærð XL: 20, 26, 33, 39, 46 og 52 cm.
Stærð XXL: 20, 26, 33, 39, 46 og 52 cm.
Stærð XXXL: 20, 27, 34, 41, 48 og 54 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í stykkjum og í mismunandi áttir. Örvar í mynsturteikningu sýna prjónstefnu. Öll peysan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Bakstykkið er prjónað í 2 stykkjum og saumað saman við miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki héðan.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með Delight.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
AUKIÐ ÚT í hverri umf í hvorri hlið Á STYKKI JAFNFRAMT ER LYKKJUM FÆKKAÐ.
ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l í byrjun hverrar umf frá réttu (= y- sjá mynsturteikningu) og í byrjun hverrar umf frá röngu (= x) – LESIÐ ÚTAUKNING.
Endurtakið útaukningu við miðju að aftan (= y) þar til stykkið mælist 38 cm í öllum stærðum (mælt meðfram y). Endurtakið útaukningu í kanti að neðan (= x) þar til stykkið mælist 26-28-30-32½-35½-38½ cm mælt meðfram x. ATH! Í stærð XXXL er útaukning við miðju að aftan (= y) lokið á undan útaukningu á kanti að neðan (= x).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ÚRTAKA Í HLIÐ:
Þegar útaukningu í kanti að neðan (= x) er lokið er lykkjum fækkað í hlið (= z) þannig: Fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA – í byrjun á hverri umf frá röngu. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá röngu til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm meðfram z – er fækkað um 1 l í byrjun á næstu umf frá röngu innan við 4 l (eftir úrtöku). Endurtakið úrtöku með 3½ cm millibili alls 10 sinnum.
ÚRTAKA VIÐ MIÐJU AÐ AFTAN:
Þegar útaukning við miðju að aftan (= y) er lokið er fækkað um 1 l í byrjun á næstu umf frá réttu. Endurtakið úrtöku í byrjun á hverri umf frá réttu þar til 3 l eru eftir. Fellið af.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. öll úrtaka/útaukning er útskýrð í byrjun umf frá réttu er nú gerð í byrjun umf frá röngu og öfugt.

FRÁGANGUR Á BAKSTYKKI:
Saumið saman vinstra og hægra bakstykki við miðju að aftan yst í lykkjubogann.

BERUSTYKKI AÐ AFTAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni til loka. Prjónið upp (frá réttu) 1 l í hverri rönd í garðaprjóni á bakstykki – sjá strikaða línu í mynsturteikningu (eins og á framstykki). Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 96-106-116-128-142-156 l. Fitjið upp 1 l í lok næstu 2 umf (= kantlykkja) = 98-108-118-130-144-158 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 3-4-5-6-7-8 cm frá uppfitjunarkanti. Fitjið upp 6-2-11-7-13-9 nýjar l í hvorri hlið á ermi. Fitjið nú upp í hvorri hlið í annarri hverri umf: 5 l 7-7-5-5-3-3 sinnum og 12 l 1 sinnum = 204-206-214-218-224-230 l. Þegar stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti eru felldar af miðju 36-38-40-40-42-46 l fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 83-83-86-88-90-91 l á hvorri öxl/ermi. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Handvegurinn mælist nú ca 14-15-17-18-20-21 cm – fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Framstykkið er prjónað á ská (eins og hægra bakstykki + kantur að framan), þ.e.a.s. prjónað er þannig: Fitjið upp 10-10-10-10-11-11 l (= 3 l + 7-7-7-7-8-8 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið eins og HÆGRA BAKSTYKKI, en aukið út innan við síðustu 7-7-7-7-8-8 l frá röngu (= kantur að framan). ATH! Þegar úrtaka frá réttu byrjar eru þessar 7-7-7-7-8-8 kantlykkjur að framan felldar af.

BERUSTYKKI (VINSTRA FRAMSTYKKI):
Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni. Prjónið upp (frá réttu) 1 l í hverja rönd í garðaprjóni og 1 l í hverri kantlykkju að framan í miðju – sjá strikaða línu í mynsturteikningu. Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður til 55-61-65-71-79-86 l. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l í hlið (= kantlykkja) = 56-62-66-72-80-87 l.
Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 3-4-5-6-7-8 cm frá uppfitjunarkanti. Fitjið upp 6-2-11-7-13-9 nýjar l í lok næstu umf frá röngu fyrir ermi. Fitjið síðan upp frá hlið í annarri hverri umf: 5 l 7-7-5-5-3-3 sinnum og 12 l 1 sinni = 109-111-114-116-120-123 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 11-13-13-15-15-17 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið nú af 18-18-18-18-20-22 l við miðju framan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í annarri hverri umf við hálsmál 2 l 4-5-5-5-5-5 sinnum = 83-83-86-88-90-91 l eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af eftir bakstykki. Fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Framstykkið er prjónað á ská (eins og vinstra bakstykki + kantur að framan), þ.e.a.s. prjónað er þannig:
Fitjið upp 10-10-10-10-11-11 l (= 7-7-7-7-8-8 kantur að framan + 3 l) á hringprjóna nr 3,5 með Delight.
Prjónið eins og VINSTRA BAKSTYKKI – ATH! Útaukningin er nú eftir fyrstu 7-7-7-7-8-8 l frá réttu (= kantur að framan). Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, á kanti að framan.

BERUSTYKKI (HÆGRA FRAMSTYKKI):
Prjónið á sama hátt og VINSTRA FRAMSTYKKI, nema spegilmynd – þ.e.a.s. fitjið upp l fyrir ermi í lok umf frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaum/saum ofan á ermum, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið hliðarsaum og saum undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í ca 1 cm frá kanti á vinstri kant að framan.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu, ca 106-129 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka og fellið síðan laust af með sl frá röngu.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = Takið upp l hér
symbols = neðri kantur
symbols = miðja framan/miðja aftan
symbols = hlið
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Rosemarie Lucht wrote:

Vielen Dank für die super Anleitung. Habe diese Jacke gestrickt und es passt einfach alles und sieht klasse aus.

19.11.2015 - 19:22

country flag Giesen Brigitte wrote:

Stricke dieses Modell gerade ich denke die Zunahmen für die Ärmel sind verkehrt geschrieben den plötzlich 13 Maschen dazu anschlagen sieht seltsam aus. l.G. Giesen Brigitte

17.04.2015 - 12:18

DROPS Design answered:

Die Anleitung ist korrekt, die Ärmel werden auf diese Weise angestrickt. Sie schlagen beim Rückenteil beidseitig in jeder 2. R (also am Ende jeder R) die genannte Anzahl M an, um die Ärmel zu bilden. Im Video "Seitlich neue M anschlagen" (im Kopf neben dem Foto zu finden) können Sie sich noch einmal anschauen, wie das funktioniert, falls Sie nicht sicher sind.

20.04.2015 - 11:23

Liisa Salonen wrote:

Vasemmassa etukappaleessa pitäisi nurjan puolen lisäys olla reunuksen seitsemän silmukan jälkeen, eikä ennen seitsemää viimeistä, kun kerran aloitetaan 3 silmukkaa plus 7 reunusilmukkaa oikealla puolella.

02.04.2015 - 07:50

DROPS Design answered:

Kiitos! Ohje on korjattu.

18.01.2016 - 17:37

country flag Liisa Salonen wrote:

Alku näytti vaikealle, en osannut hahmottaa, miten vasemman takakappaleen sivuista (y) voi muodustua oikein mittaiset mutta nyt molemmat takaosat valmiina, juuri oikeissa mitoissaan. Mutta neulomaan jouduin pöyröpuikolla 2.5 cm, muuten ei onnistunut.

29.03.2015 - 08:01

country flag Renate Guhse wrote:

Ich habe jetzt das Rückenteil fertig gestrickt. Auf dem Bild sieht es auf der Vorderseite so aus, als ob die Kante in der Mitte unten gerundet ist. In der Beschreibung steht dazu nichts, es soll wie das Rückenteil gestrickt werden. Wie bekomme ich die Ecken rund?

27.03.2015 - 22:09

DROPS Design answered:

Es gibt keine andere Rundung als die vom Rückenteil. Durch die Blenden, die diagonale Art des Strickens und dadurch, dass Sie die Vorderteile in der Mitte ja nicht zusammennähen, fällt die Jacke so wie auf dem Foto, also etwas "rund", eine wirkliche Rundung ist jedoch nicht vorhanden.

28.03.2015 - 10:31

country flag Frederique wrote:

Bonjour Je ne comprends pas les explications de départ de ce magnifique modèle ! qui peut m'aider ? bonne journée

24.03.2015 - 08:19

DROPS Design answered:

Bonjour Frédérique, suivez bien les instructions en regardant les indications du schéma (flèches et lettres) - pour toute assistance personnalisée à la réalisation de ce modèle, merci de vous adresser à votre magasin DROPS ou au forum DROPS. Bon tricot!

24.03.2015 - 09:43

country flag Liisa Salonen wrote:

Koossa L alareunan x lisäykset loppuvat ennen takakeskiosan y lisäyksiä, onko se oikein? Aloitanko heti kun alareuna on 30 cm pitkä kavennukset, vaiko vasta, kun takakeski on 38 cm pituinen? Ihana malli muuten!

24.03.2015 - 07:14

DROPS Design answered:

Olet neulonut aivan oikein. Nyt kun alareunan lisäykset on tehty, voit aloittaa kavennukset.

05.06.2015 - 14:06

country flag CLAREDICK wrote:

Great pattern

02.02.2015 - 09:28

country flag Lena Malmström wrote:

Riktigt snygg

23.01.2015 - 19:39

country flag Brotteaux wrote:

Super le jeu des rayure.j'adore.

13.01.2015 - 05:00