DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Aphrodite

Heklaður toppur úr DROPS Cotton Light með sólfjöðrum og stjörnumynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 162-1
DROPS Design: Mynstur nr cl-038
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
350-350-400-450-450-500 gr litur nr 01, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 st og 10 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, bogalaga (hvít), NR 521: 1 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 – A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st, skiptið út fyrsta st með 3 ll. Umferð með st endar á 1 kl í 3. ll.
Í byrjun á hverri umf með þbst, skiptið út fysta þbst með 5 ll. Umferð endar á 1 kl í 5. ll.
Í byrjun á hveri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umferð með fl endar á 1 kl í ll frá byrjun umf.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í nokkrum stykkjum. Fyrst er framstykkið heklað, síðan 2 þríhyrningar sem eru settir saman í bakstykki, að lokum er fram- og bakstykki heklað niður.

FRAMSTYKKI:
Heklið 175-194-213-237-266-295 ll með heklunál nr 3,5 með Cotton Light. Snúið við og heklið 1 st í fjórðu ll frá heklunálinni (= 2 st), * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* og endið á að hoppa yfir 1 ll, 1 st í hverja af síðustu 2-3-4-4-3-2 ll = 144-160-176-196-220-244 st. Snúið við. Framstykki er nú heklað fram og til baka yfir fyrstu 72-80-88-98-110-122 st í umf. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 st í hvern st, JAFNFRAMT er fækkað um 1 st í hvorri hlið í hverri umf – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið nú lykkjum alls 16-18-19-21-22-24 sinnum í hvorri hlið = 40-44-50-56-66-74 st, stykkið mælist nú ca 17-19-20-22-23-25 cm. Heklið nú einungis yfir fyrstu 10-11-13-15-19-22 st í umf (frá réttu) þannig: Heklið 1 st í hvern st – JAFNFRAMT er fækkað um 1 st í hvorri hlið á stykki = 8-9-11-13-17-20 st. Heklið 1 umf til viðbótar alveg eins = 6-7-9-11-15-18 st. Heklið síðan 1 st í hvern st, nú er úrtaku við miðju að framan lokið, en haldið áfram að fækka um 1 l í hlið (við handveg) í hverri umf 2-3-5-7-11-14 sinnum til viðbótar = 4 st eftir á þræði við öxl í öllum stærðum. Haldið áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 40-44-48-52-56-60 cm frá ll-umf. Klippið frá. Endurtakið í gangstæðri hlið, en heklið nú yfir síðustu 10-11-13-15-19-22 st í umf. Þeir 20-22-24-26-28-30 st fyrir miðju á framstykki sem ekki hefur verið heklað yfir = hálsmál.

BAKSTYKKI:
Bakstykki samanstendur af tveimur þríhyrningum sem eru saumaðir saman.
ÞRÍHYRNINGUR 1: (efri hluti á baki): Heklið 33 ll með heklunál nr 3,5 með Cotton Light. Snúið við og heklið 1 fl í aðra ll frá heklunálinni (= 2 fl), heklið 1 fl í hverja af næstu 3 ll, *hoppið yfir 1 ll,1 fl í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* og endið á að hoppa yfir 1 ll, 1 fl í hverja af síðustu 3 ll = 28 fl. Snúið við og heklið eftir A.1. Klippið frá þegar þríhyrningurinn hefur verið heklaður og leggið hann til hliðar.

ÞRÍHYRNINGUR 2: Hann er heklaður í sömu st-umferð og framstykki. Hoppið yfir 22-26-30-35-41-47 st (= handvegur) eftir síðasta st á framstykki. Heklið 1 fl í hvern af næstu 28 st, snúið við og heklið fram og til baka eftir A.1 (nú eru eftir 22-26-30-35-41-47 st í umf eftir A.1 = handvegur). Þegar þessi þríhyrningur hefur verið heklaður eru þríhyrningarnir saumaðir saman í horni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður, að neðanverðu við ll-umferð á framstykki og bakstykki. Fyrst er heklað fram og til baka, síðan er heklað í hring.

Frá réttu: Byrjið í fyrstu ll, heklið 3 ll (= 1 st) síðan er heklaður 1 st í neðri kant á hverjum st frá st-umferð = 144-160-176-196-220-244 st.
RÖÐ 1: (ranga):
Heklið 1 fl í hvern st, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 144-168-180-192-216-240 fl.
RÖÐ 2 (rétta): Heklið A.2 A (= 6 l). Heklið A.2 B yfir næstu 132-156-168-180-204-228 , heklið A.2 C (= 6 l). Heklið A.2 fram og til baka einu sinni á hæðina. Í síðustu umf í A.2 er hekluð 1 kl í byrjun umf, stykkið er nú heklað áfram í hring.

UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, hoppið yfir 2 fyrstu st, heklið eftir A.3A þannig: Heklið um hvern ll-boga þannig: 1 st + 2 ll + 1 st + 2 ll. Í hvern st-hóp er heklað þannig: 1 st í 2. st, 2 ll, 1 st í 4. st, 2 ll, 1 st í 6. st, 2 ll, EN 4-2-5-8-6-12 sinnum jafnt yfir í umf er heklað eftir A.3 B: Heklið um hvern ll-boga þannig: 1 st + 2 ll + 1 st + 2 ll. Í hvern st-hóp er heklað þannig: 1 st í 2. st, 2 ll, 1 st í 3. st, 2 ll, 1 st í 5. st, 2 ll, 1 st í 6. st, 2 ll (heklið 4 st um sólfjöður í stað 3) = 64-72-80-88-96-112 st með 2 l á milli stuðla. Endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

Heklið nú áfram eftir A.4 (8-9-10-11-12-14 mynstureiningar á breiddina).

Heklið A.4 1 sinni á hæðina, nú eru 72-81-90-99-108-126 st með 2 ll á milli stuðla í umf. Heklið eina umf með 1 st + 2 ll í hvern st, JAFNFRAMT er aukið út um 0-3-0-3-0-0 st jafnt yfir, aukið út með því að hekla 1 st + 2 ll + 1 st + 2 ll í einn st = 72-84-90-102-108-126 st. Heklið síðan áfram eftir mynstri A.5 (12-14-15-17-18-21 mynstureiningar á breiddina). Heklið nú mynstur A.5 einu sinni á hæðina. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist nú ca 31 cm í öllum stærðum frá ll-umf undir brjóstum og 63-65-67-69-71-73 cm alls.

FRÁGANGUR:
Saumið niður band á öxl hvoru megin við efsta þríhyrninginn á bakstykki (þeir st frá bandi eru saumaðir við síðustu fl á hvorri hlið á þríhyrningi – ATH! Mátið toppinn fyrst og jafnið til lengdina á bandinu.

HEKLAÐUR KANTUR:
Í kringum hálsmál er heklaður kantur þannig:
UMFERÐ 1 : Heklið ll, 1 fl, * 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í ll í byrjun umf – passið uppá að heklaður sé fjöldi fl/ll sem er deilanlegur með 4.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, * 1 fl í fyrstu fl, 3 ll, 1 kl um sömu fl, heklið 1 fl um næstu ll, 1 fl í næstu fl, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu ll í umf. Klippið frá og festið enda.

Í kringum handveg eru heklað þannig (passið uppá að kanturinn verði ekki of laus):

HANDVEGUR EKKI MEÐ OPI:
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 fl, * 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í ll í byrjun umf – passið uppá að heklaður sé fjöldi fl/ll sem er deilanlegur með 4.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í næstu fl, * 2 ll, hoppið yfir 1 ll og 1 fl, 1 st um næstu ll, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-*, endið á 2 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, heklið 1 fl í hvern st og 2 fl um hvern ll-boga, endið á 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, * 1 fl í fyrstu fl, 3 ll, 1 kl í sömu fl, heklið 1 fl í hverja og eina af 3 næstu fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu ll í umf.
Klippið frá og festið enda.

HANDVEGUR MEÐ OPI:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Heklið 1 ll, 1 fl, * 1 ll, hoppið yfir 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* passið uppá að heklaður sé fjöldi fl/ll sem er deilanlegur með 4 + 2. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í næstu fl, * 2 ll, hoppið yfir 1 ll og 1 fl, 1 st um næstu ll, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-*. Snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, heklið 1 fl í hvern st og 2 fl um hvern ll-boga. Snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, * 1 fl í næstu fl, 3 ll, 1 kl um sömu fl, heklið 1 fl í hverja og eina af 3 næstu fl *, endurtakið frá *-* 1 fl í næstu fl, 3 ll, 1 kl í sömu fl, 1 fl í næstu fl. Klippið frá og festið enda.
Saumið tölu efst í klauf, hneppið í gegnum fyrsta st í gangstæðri hlið.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þannig að hún kemur til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í umf með st undir brjóstum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.05.2015
Táknin í fyrstu röð í A.1 hafa breyst til: fl í l að neðan (ekki fl um l að neðan)
Yfirfarið á vefsvæði: 25.06.2015
undir FRAM- OG BAKSTYKKI og UMFERÐ 1: UMFERÐ 1: Heklið kl fram að 1. ll boga, eftir það er heklað eftir A.3 A...
Yfirfarið á vefsvæði: 02.07.2015
HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með þbst, skiptið út fyrsta þbst með 5 ll. Umf endar á 1 kl í 5. ll + nýtt mynstur A.5 (fjöldi st í l er skipt út fyrir st um l).
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2019
LEIÐRÉTTING: FRAM- OG BAKSTYKKI: UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, hoppið yfir 2 fyrstu st, heklið eftir A.3A þannig: Heklið um hvern ll-boga þannig: 1 st + 2 ll + 1 st + 2 ll. Í hvern st-hóp er heklað þannig: 1 st í 2. st, 2 ll, 1 st í 4. st, 2 ll, 1 st í 6. st, 2 ll, EN 4-2-5-8-6-12 sinnum jafnt yfir í umf er heklað eftir A.3 B:

Mynstur

symbols = ll
symbols = ll
symbols = fl í l að neðan
symbols = fl um l að neðan
symbols = st í l
symbols = st um l
symbols = tbst í l
symbols = þbst í l
symbols = 5 faldur stuðull í l
symbols = 8 ll
symbols = Heklið 1 st í næsta st – en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í hvern og einn af næstu 2 st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni.
symbols = Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st – en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í sömu l, dragið bandið í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
symbols = sýnir síðustu umf frá fyrra mynstri
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Aphrodite

Zaji-Kali, United States

162-1 Aphrodite

Elanor, United Kingdom

Aphrodite top

TwoHandyPaws, France

162-1 Aphrodite

NuF, Austria

162-1 Aphrodite

oOSeleneOo, Italy

Aphrodite summer top

Marit, Netherlands

Aphrodite top

Anneli, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (343)

country flag Ian J. McDonald wrote:

I understand that I would be increasing by 2 as I did the A3B 2 times or on every 4th fan in a series of 11 fans plus the 2 half fans on the ends (12 fans all together). It says that I should have 64 sts + the 2 ch, but I Have 62. Is this correct? If not what could I be doing wrong?

25.07.2018 - 18:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs MacDonald, you can increase 2 more dc evenly to get the correct number of sts for next diagram. Happy crocheting!

26.07.2018 - 09:52

country flag Ian wrote:

Thank you for the help. I completed this point: BUT 2-0-3-6-4-10 times evenly on round work according to A.3 B: Work as follows in every ch-space: 1 dc + 2 ch + 1 dc + 2 ch. In every dc-group work as follows: 1 dc in 2nd dc, ch 2, 1 dc in 3rd dc, ch 2, 1 dc in 5th dc, ch 2, 1 dc in 6th dc, 2 ch (work 4 dc in fan instead of 3) = 64-72-80-88-96-112. At the end I am left with 62. Don’t know what I am doing wrong. How many fans are there after completing A2? Seems I am short.

25.07.2018 - 15:25

DROPS Design answered:

Dear Ian, when working A.3B you will increase 1 dc = you work A.3B 2 times in the row ie you will increase 2 dc. Happy crocheting!

25.07.2018 - 15:49

country flag Janni wrote:

Hej Er lidt fortvivltet over at sidde fast i arbejdet allerede i starten. Kan i forklare mig hvordan man laver forstykket. Når jeg hækler efter størrelse m. kan den næsten nå hele vejen rundt om mig. Det er vel ikke meningen. Og jeg har problemer med at få det pænt når man starter med at hækle over de første 80 st. Håber i kan hjælpe. På forhånd tak

18.07.2018 - 14:06

DROPS Design answered:

Hei Janni. Du begynner med å hekle 194 luftmasker, som på første omgang blir til 160 staver. Dette er på undersiden av bysten og du hekler oppover mot halsen. Denne luftmaskeraden skal gå hele veien rundt: Forstykket hekles kun over de første 80 stavene (altså halvparten av den originale luftmaskeraden) mens de resterende 80 stavene senere plukkes opp til bakstykket – se 2 TREKANT. Med heklefastheten på 20 staver = 10 cm vil forstykket måle 40 cm i bredden før du begynner å felle i hver side. God fornøyelse.

25.07.2018 - 15:58

country flag Ian wrote:

Thank you for the response. Was not sure about the turning as the pattern does not indicate this on the next instruction. Hope things go smoothly from now on, although I have to say, the cotton light yarn does split a lot and a tapered hook does not work well with it. I am slow going with this pattern. It is a lovel too though.

10.07.2018 - 15:12

country flag Ian wrote:

Hello, i am wondering what this mean, (Work A.2 back and forth one time vertically.), does it mean to finish A2 to the end row and then start the rounds? Following from Row 1 (WS), from going back and forth to the end, it seems the last row of A2 I am ending on the wrong side, which means my the rounds are worked on the wrong side? Is this correct?

10.07.2018 - 04:25

DROPS Design answered:

Dear Ian, correct, when you have crocheted A.2 one time in height back and forth (= in rows), work now A.3 in the round. At the end of A.2 (=WS), turn to start A.3 from RS and work A.3 in the round increasing evenly if required in your size. Hapy crocheting!

10.07.2018 - 08:53

country flag Therese wrote:

På varv 2, A5 läser jag att det, enligt mönstret, ska börjas med en stolpe. Ska detta göras i början av varje rapport, eller ska det bara göras en stolpe i början på hela varvet (alltså bara 1 gång). Gör jag en stolpe i början på varje rapport får jag 5 stolpar "i rad", iom att den enskilda stolpen hamnar mellan de stolpar som stickas "ihop" och jag ser inte att instruktören i filmen ni lagt upp för A5 får samma mönster.

02.07.2018 - 19:37

DROPS Design answered:

Hej Therese, jo du måste virka alla stolpar i diagrammet. Ja du får 5 st i rad, men de virkas i 3 olika st från varvet under med 2 lm mellan varje. Lycka till!

03.07.2018 - 11:07

country flag Belen Espejo wrote:

Hola, Estoy tratando de seguir el patron, pero no tengo mucha experiencia. Me podrian aclarar que es sisa con abertura y sisa sin abertura?. Muchas gracias.

29.06.2018 - 20:32

DROPS Design answered:

Hola Belen. El remate de la sisa sin abertura se trabaja en redondo, el remate con abertura se trabaja de ida y vuelta. Sirve para ajustar mejor el top atando con un botón en la parte superior.

30.06.2018 - 19:01

country flag CHANTALE SEREDIAK wrote:

Bonjour .j'ai terminé mon ouvrage,j'arrive à faire la bordure d'emmanchures :je voudrai savoir pourquoi faire une emmanchure avec fente? est ce que je peux la coudre ?Bien cordialement

24.06.2018 - 08:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Serediak, sur l'un des côtés (et donc sous une des emmanchures), on va crocheter une bordure boutonnée pour fermer l'ouvrage. c'est également de ce côté-ci que vous avez commencé le bas en allers et retours avant de continuer en rond. Bon crochet!

25.06.2018 - 09:35

country flag Haylie wrote:

I don’t understand what it’s sayinf when it says. Work 1 dc in every dc at the same time dec 1 dc In each side on every row.

17.06.2018 - 07:51

DROPS Design answered:

Dear Haylie, continue working dc in rows but dec 1 dc at the beg of the row and dec 1 st at the end of the row as you did before. Happy crocheting!

18.06.2018 - 09:41

country flag Heather wrote:

In response to your reply I was talking about the T shaped symbol with the three lines through it at the beginning of the row. On the video she chains 4 but isn\'t this where you wrap a number of loops round the hook and insert it somewhere? She does not show this on the video.

12.06.2018 - 12:27

DROPS Design answered:

Dear Heather, these 4 chains replace the first triple tr (Uk-English)/dtr (US-English) on the round - this triple tr/dtr is then worked in the tr/dc from previous round (in next repeats). Happy crocheting!

12.06.2018 - 14:54