DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ava

Prjónaður toppur úr DROPS Safran í garðaprjóni og gatamynstri, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S-XXXL

DROPS 161-14
DROPS Design: Mynstur nr e-228
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
300-350-350-400-450-450 gr nr 50, ljós ísblár

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 2,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.7. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. Í mynstureiningu í garðaprjóni er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig þar til garðaprjón er lokið. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er í hring.

FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 102-102-110-110-117-123 l á hringprjóna nr 3 með Safran. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Setjið 1 prjónamerki í 28.-28.-31.-31.-33.-36. l inn frá hvorri hlið (= 46-46-48-48-51-51 l á milli prjónamerkja). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Haldið áfram í GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við 2 l með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 14-17-17-19-19-22 sinnum = 158-170-178-186-193-211 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu eftir síðustu útaukningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 6-7-7-8-8-9 cm. Næsta umf er prjónuð þannig (frá réttu): Fellið laust af fyrstu 41-44-47-49-51-57 l (= band yfir öxl / hlýri), prjónið sl yfir næstu 76-82-84-88-91-97 l (fyrstu af þessum l eru nú þegar á hægri prjóni) og fellið laust af síðustu 41-44-47-49-51-57 l (= band yfir öxl / hlýri), klippið frá. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Fitjið upp 7-9-13-16-20-24 nýjar l í byrjun umf, prjónið 76-82-84-88-91-97 l af prjóni og fitjið upp 7-9-13-16-20-24 nýjar l í lok umf = 90-100-110-120-131-145 l. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka í 8-8-9-9-10-10 cm – JAFNFRAMT eftir 7-7-8-8-9-9 cm, fellið af 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 næst síðustu l slétt saman frá réttu = 88-98-108-118-129-143 l. Stillið af að síðasta umf er umf frá röngu. Geymið stykkið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið sléttprjón yfir allar l á bakstykki og haldið síðan áfram yfir l á framstykki = 176-196-216-236-258-286 l. Haldið nú áfram hringinn. Prjónið A.1, A.2 þar til 6 l eru eftir í umf, fækkið um 1-3-5-1-5-3 l jafnt yfir í fyrstu umf í A.2, A.3 = 175-193-211-235-253-283 l. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.4, aukið út um 15-11-9-9-11-9 l jafnt yfir í fyrstu umf = 190-204-220-244-264-292 l. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.5, aukið út um 14-12-8-8-12-8 l jafnt yfir í fyrstu umf = 204-216-228-252-276-300 l. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.6, aukið út um 24-30-32-32-28-32 l jafnt yfir í fyrstu umf = 228-246-260-284-304-332 l. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.7, aukið út um 4-10-12-12-8-12 l jafnt yfir = 232-256-272-296-312-344 l. Endurtakið A.X alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á hæðina (aukið einungis út í fyrsta sinn sem A.X er prjónað) og haldið áfram með restina í umf A.7. Prjónið nú mismunandi eftir stærðum þannig:
S: Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í næst síðustu umf er aukið út um 9 l jafnt yfir = 241 l.
M, L, XL, XXL og XXXL: Prjónið A.4, aukið út um 15-29-29-31-29 l jafnt yfir í fyrstu umf = 271-301-325-343-373 l.
ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið A.1, A.2 þar til 6 l eru eftir, A.3 (ATH: Aukið ekki út í fyrstu umf). Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru prjónaðar 2 umf í sléttprjóni, JAFNFRAMT er aukið út um 19-20-27-29-26-33 l jafnt yfir = 260-291-328-354-369-406 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan, í 2 cm. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saum undir ermum yst í lykkjubogann.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, sláið uppá prjóninn
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = útaukning: Í fyrstu umf í mynstri er aukið út jafnt yfir - sjá skýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sommarlinne

Sara, Sweden

Ava 161-14

Regina, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Margareta E wrote:

Tack för snabbt svar! Jag var så inställd på att öka med siffra nr 2 för storlek M och tänkte inte på att storlek S hade en egen rad! Nu stämmer det även för mig! ☀️

03.06.2022 - 17:28

country flag Margareta E wrote:

Har läst mönstret många gånger efter att ha stickat fram tom A7 - maskantalet är 256 m och det har stämt med mönstret! Därefter skall det ökas 29 m och enligt er uträkning blir det då 301 m i storlek M - men 256 + 29 blir 285. Ser nu längre ned att det skall ökas 20 m ytterligare och skall då vara totalt 291 alltså FÄRRE än 301 m. Något måste vara fel…

02.06.2022 - 19:13

DROPS Design answered:

Hej Margareta, i M ökar du 15 m (inte 29) = 271 m :)

03.06.2022 - 12:53

country flag Gro Helen Horn wrote:

Forstår ikke den første mønsterbården. Dette med A1 til A3 Strikk A1 A2 til det er 6 masker igjen? Hva er A1 A2 hvor begynner og slutter man?

12.06.2021 - 13:12

DROPS Design answered:

Hei Gro. Du strikker A.1 (1 rapport = 7 masker), så strikker/gjentar du diagram A.2 ( 1 rapport = 6 masker) til det gjenstår 6 masker på omgangen (når du strikker A.2 skal du også felle 1-3-5-1-5-3 m jevnt fordelt). Når du har 6 masker igjen på omgangen strikker du etter diagram A.3 (1 rapport = 6 masker). mvh DROPS design

14.06.2021 - 14:24

country flag Charlotte wrote:

Jag förstår inte riktigt i början på fram- och bakstycke. Man ska öka varannat varv 17 ggr och det blir ju 34 varv. Ändå så ska arbetet mäta 7 cm efter ökningarna. Det stämmer inte, det blir mer än 10 cm

04.07.2020 - 18:06

DROPS Design answered:

Hej Charlotte. Eftersom det är rätstickning här i början så får du fler varv per 10 cm än i slätstickning och då ska det stämma att arbetet ska mäta ca 7 cm efter ökningarna. Mvh DROPS Design

06.07.2020 - 08:49

country flag Ruth wrote:

Thank you so much for answering my question so quickly. Now I can continue knitting. Once again a thank you.

08.05.2019 - 15:05

country flag Ruth wrote:

I am making this pattern and can not understand how to start the body. I have 258 stitches picked up. If I then repeat A1and A2 19 times that is 247 stitches. This leaves me 11 stitches not 6. Please can you advise me? Thank you .

08.05.2019 - 14:12

DROPS Design answered:

Dear Ruth, work the 258 sts as follows: A.1 (= 7 sts), then repeat A.2 a total of 40 times in width while decreasing 5 stitches evenly and finish round with A.3 (= 6 sts) = 7 + 40 x 6 + 6 = 253 sts. Happy knitting!

08.05.2019 - 14:34

country flag Monika Ölén Krüger wrote:

Kan jag använda drops

14.06.2018 - 12:02

country flag Nadine wrote:

Hallo, ich habe schon ganz am Anfang ein Problem. Ich habe 102 Maschen aufgenommen und wenn ich jetzt 14mal 2 Maschen zunehme, komme ich nicht auf 158 Maschen. Habe ich was falsch verstanden? Vielen Dank für eine Antwort

24.03.2018 - 15:46

DROPS Design answered:

Liebe Nadine, Sie nehmen ja nicht 14 x 2 Maschen, sondern 14 x 4 Maschen zu - an jedem Markierer 2 Maschen, Sie haben ja 2 Markierer in der Arbeit. D.h. Sie nehmen insgesamt 56 Maschen zu, dann kommen Sie auf 158 Maschen.

02.04.2018 - 10:10

J.Miranda wrote:

I am currently "Stuck" at the pattern right here: M, L, XL, XXL and XXXL: Work A.4, inc. 29 sts. evenly on first round = 325 sts. then work A4 - on the 5th line of a$ is K2Tog; yo - problem is 325 is not an even number so at end I cannot K2 Tog because I am left with one stitch...what is the correct action on completing this row correctly?

19.07.2016 - 21:33

DROPS Design answered:

Dear Miranda, when working the round with (K2 tog, YO), K the last st at the end of round. Happy knitting!

20.07.2016 - 08:51

country flag Jen wrote:

Thank you for the toutorial attached, it was helpful indeed. However i think i am still confused on line 5 of A.1,A.2 and A.3 - I'm not certain of the pattern exactly if i am supposed to knit A.1 then A.2 37 times then A.3 at the end and if so how do I split that since the stitches between A.1, A.2 and A.3 are 1 yo, sl 1 as if to k, k2 tog,psso, 1 yo? Thanks for any assistance you can provide on that part.

07.04.2016 - 01:42

DROPS Design answered:

Dear Jen, on row 5, the last 2 sts in A.1 will be worked tog with the first st in A.2, the YO will then belong to A.2 - when working A.2, work the last 2 sts in A.2 tog with the next st in next A.2 and then with the first st in A.3. Happy knitting!

07.04.2016 - 09:15