DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7568.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 154-1
DROPS Design: Mynstur nr cm-002
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L - XL/XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
400-450-500-550 gr litur nr 13, kórall

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 3 mynstureiningar af A.5 verði 11 cm á breidd.
DROPS PERLUTALA NR 521: 7-7-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7568.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.8.

HEKLLEIÐBEININGAR:
ll-bogarnir koma til með að draga sig meira saman en hekl mynstrið á efri hluta á fram- og bakstykki.
Peysan kemur þar af leiðandi að fá náttúrulegri þrengingu við mitti án þess að l sé fækkað í mynstri.

HNAPPAGAT:
Mælt frá hálsmáli að framan og saumið tölur í vinstri kant að framan:
STÆRÐ S/M: 1, 7, 14, 21, 28, 35 og 41 cm.
STÆRÐ L: 1, 7, 15, 22, 29, 36 og 43 cm.
STÆRÐ XL/XXL: 1, 8, 15, 21, 27, 33, 40 og 47 cm.
STÆRÐ XXXL: 1, 8, 15, 22, 29, 36, 43 og 50 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í stykkjum, ofan frá og niður og er heklað saman í lokin.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 54-66-79-92 ll með Cotton Merino með heklunál nr 3. Haldið áfram með 1 tbst í 4. ll frá heklunálinni = 2 tbst.
Heklið nú þannig: Heklið 1 tbst í hvern af næstu 1-6-5-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 7-8-10-12 sinnum = 45-56-67-78 tbst.
(= umf 1 í mynstri A.4, A.5 og A.6).
Heklið nú þannig:
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.6, heklið síðan A.5 alls 3-4-5-6 sinnum og endið á A.4. Snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið A.4, heklið síðan A.5 alls 3-4-5-6 sinnum og endið á A.6.
Haldið síðan áfram fram og til baka með þetta mynstur, JAFNFRAMT er aukið út fyrir hálsmáli í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) frá umf 6 í mynstri. Þegar umf 8 í mynstri hefur verið heklað frá röngu, klippið frá.
Heklið 12 lausar ll, áður en heklað er frá réttu þannig (= umf 9): Heklið 1 tbst í síðasta tbst í umf 8.
Haldið síðan áfram með mynstur eftir mynsturteikningu A.4, A.5 og A.6 eins og áður. Þegar stykkið mælist 19-21-23-24 cm er sett eitt prjónamerki fyrir handveg á hlið, JAFNFRAMT þegar A.4, A.5 og A.6 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.X endurtekið þar til stykkið mælist ca 27-29-31-33 cm. Stillið af að mynstrið endi á umf með ll-bogum frá röngu. Heklið nú ll-boga með 5 ll í hvern boga frá réttu þannig: Haldið síðan áfram með umf 1 í A.Z. Endurtakið 4 umf í A.Z þar til stykkið mælist alls 51-55-57-61 cm – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
Heklið nú kant með byrjun frá röngu þannig: Byrjið á umf 1 í A.X. Heklið A.6, A.5 3-4-5-6 sinnum á breiddina, A.4. Haldið áfram fram og til baka þar til umf 2 í A.X með tbst-hópa hefur verið hekluð (þ.e.a.s. þar til umf 6 í A.X hefur verið hekluð). Stykkið mælist ca 56-58-62-66 cm. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið og heklið hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og heklið á sama hátt og vinstra framstykki nema spegilmynd. Stillið af eftir vinstra framstykki.

BAKSTYKKI:
Fyrst er hægri öxl hekluð þannig:
Heklið 52-64-77-90 ll með Cotton Merino með heklunál nr 3. Klippið frá og geymið stykkið.
Heklið síðan vinstri öxl þannig:
Heklið 54-66-79-92 ll með Cotton Merino með heklunál nr 3. Haldið áfram með 1 tbst í 4. ll frá heklunálinni = 2 tbst. Heklið nú þannig: Heklið 1 tbst í hverja af næstu 1-6-5-4 ll * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 7-8-10-12 sinnum = 45-56-67-78 tbst fyrir vinstri öxl.
Heklið nú 43 LAUSAR ll, áður en haldið er áfram yfir hægri öxl (þ.e.a.s. ll-umf): Haldið áfram með 1 tbst í 2 fyrstu ll í umf = 2 tbst. Heklið nú þannig: Heklið 1 tbst í hverja af næstu 1-6-5-4 ll * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 7-8-10-12 sinnum = 45-56-67-78 tbst við hægri öxl.
Snúið við (= ranga) og heklið 1 tbst í hverja af þeim 45-56-67-78 næstu tbst, heklið nú 1 tbst í hverja af næstu 43 ll og endið á 1 tbst í hverja af næstu 45-56-67-78 tbst = 133-155-177-199 tbst. ATH! Þessi síðasta umf er umf 1 í mynstri A.1, A.2 og A.3.
Heklið nú í næstu umf (= rétta) þannig: Heklið A.1, heklið nú A.2 alls 11-13-15-17 sinnum og endið á A.3. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 19-21-23-24 cm er sett eitt prjónamerki fyrir handveg í hlið, JAFNFRAMT þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.Y endurtekið þar til stykkið mælist ca 27-29-31-33 cm. Stillið af mynstur eftir framstykkjum. Heklið nú ll-boga með 5 ll í hvern boga frá réttu: - Haldið nú áfram með umf 1 í A.Z. Endurtakið 4 umf í A.Z þar til stykkið mælist alls 51-55-57-61 cm – stillið af eftir framstykkjum.
Heklið kant neðst niðri á bakstykki eins og á framstykkjum. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 56-58-62-66 cm. Saumið axlasauma á framstykkjum og bakstykki saman.

ERMI:
Ermar eru heklaðar fram og til baka frá fram- og bakstykki og út.
UMFERÐ 1: Byrjið við annað prjónamerkið og heklið upp ll-boga meðfram haldveg þannig: * 5 ll, hoppið fram ca 1½ cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* þar til alls 22-26-27-28 ll-bogar eru á milli beggja prjónamerkja. Haldið síðan áfram með mynstur frá umf 2 í mynstri A.Z, JAFNFRAMT í byrjun á næstu 2 umf er fækkað um 1 ll-boga í hlið – Sjá mynsturteikningu A.7 fyrir vinstri hlið á ermi og A.8 fyrir hægri hlið á ermi. Nú eru 20-24-25-26 ll-bogar eftir. Endurtakið sömu úrtöku í byrjun á næstu 2-4-4-4 umf = 18-20-21-22 ll-bogar eftir. Haldið síðan áfram með ll-boga eins og áður, JAFNFRAMT er fækkað þannig:
Í S/M er fækkað um 1 ll-boga hvoru megin á ermi þegar stykkið mælist 15 cm og í stærð L-XL/XXL-XXXL er fækkað um 1 ll-boga í hvorri hlið þegar stykkið mælist 13-12-11 cm og 1 ll-bogi í hvorri hlið þegar stykkið mælist 19-18-15 cm = 16-16-17-18 ll-bogar eftir. Haldið áfram þar til stykkið mælist 27-25-23-20 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) og stillið af þannig að endað er í næst síðustu umf í A.Z, (þ.e.a.s. ein umf með heilum ll-bogum í hvorri hlið á stykki). Heklið nú kant þannig: Byrjið á umf 1 í A.X (= umf með ll-bogum og hálfum ll-bogum í hvorri hlið á stykki) og heklið þetta mynstur yfir alla ll-bogana neðst á ermi. Haldið áfram fram og til baka þar til umf 6 í A.X hefur verið hekluð (þ.e.a.s. 2. umf með tbst-hópum). Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Heklið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt þannig: Heklið 1 fl í framstykki, 3 ll, 1 fl í bakstykki, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í framstykki, 3 ll, hoppið yfir 1 cm, 1 fl í bakstykki *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl í annarri hlið á ermi, 3 ll, 1 fl í hina hliðina á ermi.

HÁLSMÁL OG KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið nú kant meðfram kanti að framan og hálsmáli. Byrjið neðst á hægra framstykki og heklið þannig: Festið endann með einni fl, * 3 ll, hoppið 1 cm fram, 1 fl *, endurtakið frá *-* meðfram hægri kant að framan, hálsmáli og vinstri kanti að framan.
Saumið tölur í á vinstri kant að framan – sjá HNAPPAGAT. Hneppið í gegnum gat í hægra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.02.2014
Nýr texti undir: VINSTRA FRAMSTYKKI, BAKSTYKKI, ERMAR, FRÁGANGUR og í 6. mynsturtexta
Yfirfarið á vefsvæði: 05.03.2014
undir VINSTRA FRAMSTYKKI (fyrst er A.4 heklað og að lokum A.6): UMFERÐ 3: Heklið A.4, síðan er A.5 heklað alls 3-4-5-6 sinnum, endið á A.6.
Yfirfarið á vefsvæði: 30.04.2014
Nýtt mynstur: Breyting í röð 3 og 4 í A.1, A.2 og A.3
Yfirfarið á vefsvæði: 09.03.2023
Ný mynsturteikning: Uppfærsla á 12. og 14. umferð í A.1, A.2 og A.3 og A.4, A.5 og A.6
Yfirfarið á vefsvæði: 09.03.2023
Ný mynsturteikning: Uppfærsla í 12. og 14. umferð í A.1, A.2 og A.3 og A.4, A.5 og A.6

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 tbst
symbols = 1 fl um bogann
symbols = 1 fl í l
symbols = 1 lykkja: 1 fl, 3 ll, 1 fl
symbols = 1. ll-röð - sjá skýringu í uppskrift
symbols = Þegar 8. röð hefur verið hekluð til loka, klippið frá og heklið nýja ll fyrir hálsmáli
symbols = Þegar allt mynstur A.4, A.5 og A.6 hefur verið heklað til loka 1 sinni á hæðina er mynstur A.X endurtekið frá 1 RÖÐ í þessu mynstri.
symbols = Þegar kantur er heklaður á búk og á ermum er byrjað í þessari röð.
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (179)

country flag Jo Murphy wrote:

Nice pattern, but I can understand where some people may have a problem. Your diagrams for the front and back are different. In AX there are 4 dtr at each end of the row but in AY there is 3 at the beginning and 4 at the end. Also the number of turning chain for rows 12 and 14 is 8 in AX but for the back there are 7 on row 4, 6 on row 6 and then changes to 8 for row 12 and 7 for row 14 in AY. Is this correct?

15.02.2023 - 23:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Murphy, diagrams have been edited, thanks for your feedback. Happy crocheting!

09.03.2023 - 15:38

country flag Linda wrote:

Beste, als ik het aantal steken van de beide voorpanden optel kom ik op 136 ( maat L) steken (op het breedste stuk). Bij het rugpand wordt er gesproken over 155 steken, waardoor het rugpand een stuk breder wordt. Klopt dit?

15.06.2022 - 15:21

DROPS Design answered:

Dag Linda,

Na de eerste toer heb je op beide voorpanden 56 steken, maar daarna haak je verder in patroon en komen er steken bij aan de zijde van A.4.

16.06.2022 - 22:15

country flag Ve Adams wrote:

Could someone explain to me in words how I go about rows 3 and 4 in the A4, A5 and A6 section. I keep looking and looking at it and just can't figure out how to even start. Thanks

18.02.2022 - 09:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Adams, each stitch is represented by a symbol, when reading diagrams, refers first to the diagram key to know how to crochet, then work - from RS: A.4, then repeat A.5 and finish with A.6 and from WS: work A.6, repeat A.5 and finish with A.4 - reading from the left towards the right. This lesson explains how to crochet diagrams. Happy crocheting!

18.02.2022 - 14:18

country flag Ve Adams wrote:

Row 2 of left front piece states to do A6 then A5 then A4. So why is row 3 A6, A5, A4? As I've turned so shouldn't it be A4, A5 then A6?

16.02.2022 - 18:47

DROPS Design answered:

Hi Ve, You are quite right, when working back you reverse the pattern. Happy knitting!

17.02.2022 - 06:48

country flag Jo wrote:

I have crocheted one of your patterns before and found it difficult to follow and not clear instructions. A friend gave up on it because she found it too difficult to follow. Then I liked this one and find it too is not easy to follow. Sorry, but I’m giving up on this one.

21.09.2021 - 12:07

country flag Carol Anne Dashwood wrote:

I would love to make this blush top but it looks so difficult. What does A1 A2 A3 A5 etc. mean? Is this for advanced skill crochet as i am beginner intermediate but just love this design Carol

24.05.2021 - 19:06

DROPS Design answered:

Dear Carol Anne, this is actually not that complicated piece, and intermediate crocheter can easily do it. A.1, A.2 etc are elements of the pattern, like A.1 is what you start with, A.2 is the part you repeat, A.3 is how you finish a row. A.4-A.5 shows how you shape the neckline. There are a few tutorial you can use, they are linked below the pattern, and you can always ask for help in the store you bought your DROPS yarn from. Happy Crafting!

24.05.2021 - 20:49

country flag Helle Nordal wrote:

Jeg er ved at hækle Summer Blush, men kan ikke få diagram A6, A5 og A4 til at passe med maskeantallet, da jeg skal gentage A6 og A5 6 gange, og det får jeg til at blive mere end 92 masker

11.03.2021 - 15:47

DROPS Design answered:

Hej Helle, første række er forklaret i opskriften, når du har hæklet den har du 78 dbl-st. Nu starter du med A6, og gentager kun A5 6 gange og afslutter med A4. God fornøjelse!

12.03.2021 - 08:57

country flag Susan Williamson wrote:

I have made the two fronts and am now working on the back, but it is so big. I am usually a medium but I have now started it in small - but it is still way too big. I have also gone down a crochet hook size and my crochet is tight, rather than loose, but I can't get three repeats to anything like 11cm. Is anyone else having this problem with this pattern?

31.07.2020 - 18:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Williamson, are you working with DROPS Cotton Merino? Read more about tension here. Happy crocheting!

03.08.2020 - 07:29

country flag Cinzia wrote:

All'inizio della spiegazione di DAVANTI SINISTRO non capisco cosa devo fare con la dicitura : "1 m.a.d in ognuna delle 1-6-5-4 cat successive" ; non vedo la corrispondenza col disegno! Grazie

15.07.2020 - 22:51

DROPS Design answered:

Buongiorno Cinzia, a seconda della taglia deve lavorare 1 maglia alta doppia nella catenella successiva per la taglia S/M, nelle 6 cat successive per la taglia L, nelle 5 catenelle successive per la taglia XL/XXL, nelle 4 catenelle successive per la taglia XXXL. Buon lavoro!

25.09.2020 - 09:26

country flag Annemarie Kappen wrote:

Hoi, ik heb hetzelfde probleem, ook achterpand breder dan voorpanden. Endat terwijl ik met de zelfde haaknaald gebruik. De fout moet dan in het patroon zitten

24.06.2020 - 13:53