DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 145-8
DROPS Design: Mynstur nr me-060
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL
Yfirvídd: 82/92 - 98/108 - 112/120 - 122/130 cm

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
250-300-300-350 gr litur nr 15, ljós grágrænn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 st og 10 umf verði 10 x 10 cm og 2,5 mynstureiningar af A.1b = 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st í hvorri hlið.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipt út með 3 ll og hver umf endar með 1 st í 3. ll í byrjun fyrri umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 75-84-93-103 ll með Merino Extra Fine með heklunál nr 4.
Snúið við og heklið til baka þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af næstu 3-5-7-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll * , endurtakið frá *-* út umf = 65-73-81-89 fl (fyrsta ll = 1 fl). Haldið áfram með mynstur eftir mynsturteikningu A.1 – byrjið á umf merktri með 1 ör þannig: a yfir fyrstu 4 l, b þar til 5 l eru eftir, síðan c. Nú eru 8-9-10-11 mynstureiningar eftir af mynstri. Endurtakið næstu 4 umf í mynstri til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Jafnframt þegar stykkið mælist 4-5-6-7 cm, aukið út um 1 st í hvorri hlið – SJÁ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 3-6-10-10 cm millibili 4-2-1-1 sinni til viðbótar – útauknu l eru einungis heklaðar í st. Heklið nú mynstur þar til stykkið mælist 20-21-23-24 cm, klippið ekki frá – haldið áfram með kantstykki.

KANTSTYKKI:
Byrjið á að heklað 1 umf með fl efst meðfram bakstykki – heklið 71-76-79-85 fl jafnt yfir, haldið áfram með 36-38-41-43 LAUSAR ll (= handvegur), heklið nú 1 fl í hverja fl meðfram neðri kanti á bakstykki, en hoppið yfir 8-9-10-12 l jafnt yfir = 57-64-71-77 fl), haldið áfram með 36-38-41-43 LAUSAR ll (= handvegur), festið með 1 kl í fyrstu fl efst á bakstykki = 200-216-232-248 l alls, klippið frá. Nú byrja allar umf fyrir miðju efst á bakstykki.
UMFERÐ 1:
Byrjið með 1 kl í miðju fl, heklið nú þannig: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* í kringum allan jakkann og aftur að miðju að aftan, endið umf með 3 ll og 1 kl í fyrstu kl í byrjun umf = 100-108-116-124- ll-bogar í umf.
UMFERÐ 2:
Heklið 1 kl + 1 fl um fyrsta ll-boga, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl.
Heklið nú eins og umf 2 þar til kanturinn mælist ca 5-6-7-8 cm.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG:
Heklið 1 kl + 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl.
Haldið svona áfram með 3 og 4 ll í hvern ll-boga í annað hvert skipti þar til kanturinn mælist ca 9-10-11-12 cm.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG:
Heklið 2 kl + 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl.
Haldið svona áfram með 4 ll í hvern ll-boga þar til kanturinn mælist ca 12-13-15-17 cm.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG:
Heklið 2 kl + 1 fl um fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl.
Haldið svona áfram með 4 og 5 ll í hvern ll-boga í annað hvert skipti þar til kanturinn mælist ca 15-17-19-21 cm.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG:
Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga (það eiga að vera 5 ll-bogar) – sjá einnig í mynstri A.2, þessi umf er sú sem er merkt með 1 ör í mynstri: Heklið 6 ll, 1 st um sama ll-boga, * 3 st um 4-ll-bogann, 1 st + 3 ll + 1 st um næsta 5-ll-bogann*, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 3 st í síðasta 4-ll-bogann og 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
NÆST SÍÐASTA UMFERÐIN ER HEKLUÐ ÞANNIG:
Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta 3-ll-boga, * 1 ll, 1 st í miðjuna á 3 st sem heklaðir voru í 4-ll-bogann frá fyrri umf, 1 ll, 5 st um næsta 3-ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 ll, 1 st í miðjuna á síðustu 3 st, 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
SÍÐASTA UMFERÐIN ER HEKLUÐ ÞANNIG:
Heklið * 3 ll, 1 st í fyrstu ll sem hekluð var, hoppið yfir fyrsta st, 1 fl í næsta st, 3 ll, 2 st í fyrstu ll sem hekluð var, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, 1 st í fyrstu ll sem hekluð var, hoppið yfir 1 st, 1 fl um næstu ll, hoppið yfir st á milli st-hópanna, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Kanturinn mælist ca 20-22-24-26 cm.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Kantur meðfram handveg á bakstykki er heklaður þannig: Heklið 1 kl um fyrsta st, * 3 ll, 1 fl um næsta st *, endurtakið frá *-*.
Meðfram handveg á framstykki er heklað þannig: Heklið * 3 ll, hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, endið á 3 ll og 1 kl í fyrstu kl í byrjun umf.

Mynstur

symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 stuðull
symbols = 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 3 loftlykkjum
symbols = 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í fyrstu af 3 loftlykkjum
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Marie Louise Christensen wrote:

Jeg kan ikke forstå, hvorfor jeg i kantstykket skal lave en kædemaske og så en kædemaske og en fastmaske? Overgangen bliver ikke usynlig. Hvorfor kan man ikke bare sætte et mærke og så køre videre? Det kan jeg bare gøre, men jeg vil da lige høre jer ad først.

01.11.2017 - 16:40

DROPS Design answered:

Hej Marie Louise, ellers vil overgangen automatisk flytte sig fra omgang til omgang og derved blive lidt skæv. Men som du skriver er det jo en smags sag, så du må gerne bare fortsætte rundt hvis du vil det :)

15.11.2017 - 14:07

country flag MC wrote:

Beste, Een pracht van een bolero waar ik meteen aan begonnen ben, maar..vanaf (Herhaal dit meerderen elke 3-6-10-10 cm 4-2-1-nog 1 keer) loop ik vast. Als er stond: 4-2-1-1 keer, dan zou ik het snappen. Door het woordje -nog- twijfel ik. Ik doe meerderen na elke 6 cm en dat 2x...heb ik dit juist? Graag uw reactie en alvast bedankt. Met vriendelijke groet, MC

09.02.2016 - 14:13

DROPS Design answered:

Hoi MC. Het is een fout in de vertaling. Het moet "nog 4-2-1-1 keer" zijn. Het patroon is aangepast. Veel haakplezier verder.

09.02.2016 - 16:30

country flag Pernilla Johansson Wallin wrote:

Älskar mönstret, men saknar storlek 34. Hur ska jag göra för att få den anpassad till min storlek? Tack på förhand

08.02.2016 - 12:56

DROPS Design answered:

Hej. Vi har dessvärre inte möjlighet att anpassa mönster, men det kan hända att din återförsäljare kan hjälpa dig med detta. Med vänlig hälsning DROPS Design

26.02.2016 - 09:11

country flag Elizabeth Baker wrote:

Size XXL Aftter round two on the edge piece I end up with 15 chain spaces, is this correct?

19.12.2015 - 17:52

country flag Sharon wrote:

I'm having difficulties with the Vivien bolero pattern as my stitch count is very different from that stated on the pattern. To make the second size, L/XL I started with 85 chain to end up with the 73 dc as per pattern. This finishes up as 79 after the increases are made. Following the section "edge piece" I have 79 not 76 dc. After the 38 chain for the armhole I get the 64 dc by decreasing the 73 original worked chain by 9.

15.05.2015 - 17:13

country flag Rosa Bruna Ricciardi wrote:

Bello anche in cotone,ne ho realizzati 3, 1in cotone.

17.02.2015 - 12:28

country flag STEPH DOS wrote:

Tout d'abord merci pour vos superbes modèles. J'ai commencé ce boléro mais je ne comprends pas comment faire les augmentations (taille s/m). Pouvez-vous m'expliquer comment augmenter pour l'avant dernier rang du graphique A.1. Merci.

06.02.2015 - 09:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dos et merci. Pour augmenter 1 B de chaque côté, crochetez simplement 2 B dans la 2ème B du début du rang et 2 B dans l'avant dernière B à la fin du rang. Continuez ensuite A.1 comme avant (vous aurez d'abord 3 B de chaque côté, puis 4 B et ainsi de suite). Bon crochet!

06.02.2015 - 11:34

country flag Juliane wrote:

Hallo. Tolles Modell. Ich überlege gerade wie das Randteil beginnen soll: am oberen Ende des Rückenteils (in S) habe ich nach der regelmäßigen Zunahme 75 Maschen? Ist das richtig? Anfangs habe ich mit 65 Maschen begonnen und dann insgesamt 5 Mal 2 Stb pro R zugenommen. Was ist mit "gleichmäßig verteilt 71 fM" gemeint? Muss ich irgendwo 4 Maschen überspringen? Ich hoffe meine Fragen sind verständlich. Viele Grüße

18.08.2014 - 21:07

DROPS Design answered:

Liebe Juliane, die Zunahmen haben Sie richtig gemacht. Es ist nicht genau angegeben, wie Sie die 71 fM häkeln sollen, denn Sie enden ja mit irgendeiner R von A.1 und die Reihen von A.1 haben nicht alle die gleiche M-Zahl (wenn Sie alle Stb und Lm zählen). Es geht nun darum, dass Sie in Ihre letzte R von A.1 71 fM häkeln, gleichmäßig verteilt heißt, dass Sie in regelmäßigen Abständen Stb/Lm überspringen, denn Sie haben ja mehr Stb und Lm als 71.

19.08.2014 - 09:49

Gina wrote:

Voorpand = Rand

08.08.2014 - 14:16

country flag Edith Hoekstra wrote:

Ik mis de beschrijving van het voorpand in dit patroon....

07.08.2014 - 17:53