DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Apple Blossom

Prjónuð tunika úr DROPS Safran, prjónuð frá hlið með garðaprjóni og gatamynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 139-4
DROPS Design: Mynstur nr E-181
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 g nr 01, ljós bleikur.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur x 44 umferðir garðaprjón verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KANTMYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= rétta):
3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt (= 17 lykkjur).
UMFERÐ 2 (= ranga):
3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt (= 17 lykkjur).
UMFERÐ 3-4: Prjónið eins og umferð 1 og 2.
UMFERÐ 5:
3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkju brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (= 18 lykkjur).
UMFERÐ 6:
4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt (= 18 lykkjur).
UMFERÐ 7:
3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt, 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt (= 19 lykkjur).
UMFERÐ 8:
5 lykkjur slétt, 7 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt (= 19 lykkjur).
UMFERÐ 9:
3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 lykkjur slétt (= 21 lykkja).
UMFERÐ 10:
Fellið af 4 lykkjur (1 lykkja er nú á hægri prjóni), 2 lykkjur slétt, 7 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt (= 17 lykkjur):
Endurtakið þessar 10 umferðir.

GATAMYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjur eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

STUTTAR UMFERÐIR:
Umferð 1 er prjónuð frá neðri kanti (= frá röngu). * Prjónið að 1. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið að 2. prjónamerki, snúið, prjónið til baka, prjónið að 3. prjónamerki, snúið, prjónið til baka, prjónið að 1. prjónamerki, snúið, prjónið til baka, prjónið að 4. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur. * Endurtakið frá *-*, þ.e.a.s. að það eru 12 umferðir neðst og 2 umferðir efst í 1. mynstureiningu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið frá miðju að aftan og saumað saman í lokin. Til að fá pláss fyrir allar lykkjur, prjónið fram og til baka á hringprjón.

TUNIKA:
Fitjið LAUST upp 161-166-170-175-180-185 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð ofan frá þannig (= rétta): 16-18-19-21-23-25 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, M.1 (= 25 lykkjur), 103-106-109-112-115-118 lykkjur garðaprjón og síðan KANTMYNSTUR yfir síðustu 17 lykkjur – sjá útskýringu að ofan!
Prjónið nú frá neðri kanti þannig (= ranga) jafnframt eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Kantmynstur yfir fyrstu 17 lykkjur, setjið 1. prjónamerki, prjónið 65-65-67-67-69-69 lykkjur garðaprjón, setjið 2. prjónamerki, prjónið 38-41-42-45-46-49 lykkjur garðaprjón, setjið 3. prjónamerki, prjónið M.1 og prjónið 8-10-11-13-15-17 lykkjur garðaprjón, setjið 4. prjónamerki, nú eru 8 lykkjur eftir síðasta prjónamerki. Snúið og prjónið 1 umferð til baka eins og umferð 1. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT er prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR með byrjun frá röngu – sjá útskýringu að ofan!
Þegar stykkið mælist ca 19-20-22-23-26-28 cm mælt á milli 2. og 3. prjónamerkis – mælt frá uppfitjunarkanti og út (stillið af eftir heila mynstureiningu með stuttum umferðum) prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið þar til 3-3-4-4-5-5 lykkjur eru eftir á undan 3. prjónamerki (það eiga að vera 44-46-48-50-53-55 lykkjur eftir), setjið þær lykkjur sem nýlega voru prjónaðar á þráð. Prjónið út umferðina eins og áður, snúið og prjónið til baka eins og áður yfir 44-46-48-50-53-55 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka einungis yfir lykkjur á prjóni (= vinstri ermi).

VINSTRI ERMI:
Prjónið mynstur og garðaprjón eins og áður með stuttum umferðum þannig: * Prjónið að 3. prjónamerki (= 3-3-4-4-5-5 lykkjur), snúið og prjónið til baka, prjónið að 4. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til ermin mælist ca 26-28-30-32-34-36 cm í neðri kanti – endið eftir 1 umferð frá réttu. Setjið lykkjur á þráð.

VINSTRA HLIÐARSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur frá fyrri þræði á prjóninn og prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður. Prjónið síðan mynstur eins og áður og stuttar umferðir þannig: * Prjónið að 1. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið að 2. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 2-4-4-6-6-8 cm efst undir ermi – endið eftir 1 umferð frá réttu yfir allar lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið allar lykkjur sem eru á prjóni + að lykkjur af þræði eru prjónaðar til baka inn á hringprjón (þessi umferð er prjónuð frá röngu án þess að prjóna stuttar umferðir). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð til baka frá réttu með mynstri eins og áður. Haldið síðan áfram með mynstur, garðaprjón og stuttar umferðir eins og áður þar til stykkið mælist 38-40-44-46-52-56 cm mælt á milli 2. og 3. prjónamerkis (stillið af eftir heila mynstureiningu með stuttum umferðum). Prjónið nú næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið þar til 3-3-4-4-5-5 lykkjur eru eftir á undan 3. prjónamerki, það eiga nú að vera 44-46-48-50-53-55 lykkjur eftir, setjið lykkjur sem nýlega voru prjónaðar á þráð. Prjónið út umferðina eins og áður, snúið og prjónið til baka eins og áður yfir 44-46-48-50-53-55 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka einungis yfir lykkjur á prjóni (= hægri ermi).

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og ermi.

HÆGRA HLIÐARSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra hliðarstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið allar lykkjur sem eru á prjóni + lykkjur af þræði eru prjónaðar til baka inn á hringprjóninn. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið nú áfram með mynstur, garðaprjón og stuttar umferðir eins og áður.
Þegar stykkið mælist ca 19-20-22-23-26-28 cm mælt á milli 2. og 3. prjónamerkis (stillið af eftir 1 heila mynstureiningu af KANTMYNSTRI og einnig eftir M.1 ef það passar). Fellið síðan LAUST af – það er mikilvægt að affellingarkanturinn verði ekki stífur – ef hann er það, þá kemur flíkin ekki að falla fallega.

FRÁGANGUR:
Saumið saum við miðju að aftan – saumið affellingarkantinn að uppfitjunarkanti kant í kant með 1 spori í hverja lykkju.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 3 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 139-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Ada wrote:

Klopt het dat in de 2e naald de laatste 8 steken niet gebreid moeten worden? En in de 4e, 6e, enz. ook niet?

22.07.2021 - 22:09

DROPS Design answered:

Dag Ada,

Nee, in de tweede naald van het patroon worden alle steken gewoon gebreid, ook in de andere naalden.

20.08.2021 - 11:27

country flag Debra wrote:

I am really confused! I do have 8sts after my last maker and I think I am supposed to turn. Am I working the row 1 pattern all the way back across? Then I am really confused about the short row pattern. I have done short rows before, but this is really confusing. Are top rows the same as right side and bottom rows the same as wrong side? Am I following the entire short row instructions all at one time or what?

23.04.2018 - 17:06

DROPS Design answered:

Dear Debra, the first row from WS is worked in pattern as the first row from RS (= work garter st over garter st and row 2 in M.1 over sts in M.1, row 2 edge pattern over the 17 sts). Continue as pattern is established (continuing pattern/diagram) knitting short rows at the same time. Happy knitting!

24.04.2018 - 09:28

country flag Valerie TURCQ wrote:

Parfait ! superbe rendu... un peu compliqué à suivre entre points ajourés et rangs raccourcis mais avec la patience on y arrive. Merci Drops !

28.05.2017 - 12:10

Ann Lykke Bollmann wrote:

Hvordan syr man sammen, så det bliver pænt?

07.11.2016 - 05:58

DROPS Design answered:

Hej Ann. Der er flere forskellige methoder, men maaske den her kan hjaelpe dig videre:

07.11.2016 - 12:10

country flag Jill wrote:

I am very confused on the short rows. Can you explain it any better for me to understand?

03.10.2016 - 04:08

DROPS Design answered:

Dear Jill, short rows are worked beg from WS: *work 2 rows over the sts from bottom to 1st marker, 2 rows over sts from bottom to 2nd marker, 2 rows over sts from bottom to 3rd marker, 2 rows over sts from bottom to 4th marker (work M.1 as in diagram), 2 rows over all sts (work M.1 as in diagram)* = You have now worked 12 rows over the sts on the bottom and 2 rows over the sts at the very top (= work M.1 when working sts in M.1). Happy knitting!

03.10.2016 - 10:18

country flag Jill wrote:

When I get to the edge pattern on row 1, everything seems to work out alright as far as my stitches go. But then I go to row 2, and I have an extra stitch....18 stitches instead of 17 stitches. I don't know what I am doing wrong, and I have ripped it out and redone it three times and I get the same result every time.

08.07.2016 - 19:18

DROPS Design answered:

Dear Jill, on row 2 in edge pattern, you work over the 18 sts from row 1 as follows: K 3, P 3, K 1, P 3, K 2, 1 YO, P 2 tog, 1 YO, P 2 tog, K 1 (= 17 sts). Do not hesitate to swatch only the edge pattern sts to train yourself on less sts. Happy knitting!

11.07.2016 - 08:34

country flag ENCARNACION RIOS BARCENA wrote:

Se podría ver mejor la parte baja de la túnica? lo estoy haciendo siguiendo el patrón pero tengo alguna duda de cómo se unen las ondas-picos. Viéndolo mejoraría las dudas pero no puedo ampliar la parte baja. Patrón 139-4 el que lleva la botonadura al frente. Gracias. Sois muy generosos y con vosotros se aprende un montón viendo los videos sobretodo.

17.01.2015 - 15:05

DROPS Design answered:

Hola Encarnación, el modelo 139-4 que indicas no tiene botonadura. El modelo 139-3 si la tiene. Puedes intentar descargar la foto y ampliarla pero no se si tendrá suficiente calidad. Si no te ayuda puedes concretarme la duda que tienes para poder ayudarte.

18.01.2015 - 00:12

country flag Tanja wrote:

Hallo nochmal, ich habe jetzt "nach Gefühl" gestrickt... :-) Ich glaube es passt so. Trotzdem vielen Dank!

28.05.2013 - 10:27

country flag Tanja wrote:

So, zur 2. Frage habe ich eine Lösung gefunden: Es sind immer sechs Reihen, die sich wiederholen. Man sollte erst probieren, bevor man fragt... ;-)

26.05.2013 - 14:24

country flag Tanja wrote:

2. Frage: Wie stricke ich den Ärmel richtig? Bis zur 3. Markierung, drehen und BIS ZUM ENDE DER R also inklusive der 8 Hals-M oder ist in dieser Rückreihe bereits das Stricken bis zur 4. Markierung/ Wenden enthalten? Die 2 R über alle M beginnen gleich beim Wenden der Arbeit, wenn ich auf der einen Seite wieder über die Markierung stricke? Wie ist es mit den zwei R über alle M zu verstehen? Ist der Rapport im Ärmel immer über 5 R zu sehen? Vielen Dank für die Bearbeitung!

25.05.2013 - 13:58