DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 109-8
DROPS design: Mynstur nr EE-176
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS Snow frá Garnstudio
900-1000-1050-1200-1300-1400 g nr 39, blár

DROPS PRJÓNAR NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HORNATALA, dökk nr 536: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sl yfir sl og br yfir br.
UMFERÐ 3: br yfir sl og sl yfir br.
UMFERÐ 4. Br yfir br og sl yfir sl.
Endurtakið umf 1-4.

MYNSTUR:
Sjá teikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af fimmtu kantlykkju að framan. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l yfir þá l sem felld var af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 37, 44, 50, 57 og 63 cm.
STÆRÐ M: 37, 44, 51, 58 og 65 cm.
STÆRÐ L: 37, 45, 52, 59 og 67 cm.
STÆRÐ XL: 37, 43, 50, 56, 63 og 69 cm.
STÆRÐ XXL: 37, 44, 51, 58, 65 og 71 cm.
STÆRÐ XXXL: 37, 44, 51, 58, 65 og 73 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 58-62-66-74-78-86 l (meðtalin 1 kantlykkja á báðum hliðum) á prjóna nr 8 með Snow. Prjónið M.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram að prjóna sléttprjón, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er fellt af í hvorri hlið, endurtakið með 6 cm millibili alls 4 sinnum = 50-54-58-66-70-78 l. Þegar stykkið mælist 35 cm prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með 1 kantlykkju í hvorri hlið.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir 5 síðustu l í hvorri hlið, aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umf þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm eru felldar af 3 síðustu l í hvorri hlið fyrir handveg. Haldið áfram að prjóna 2 síðustu l í hvorri hlið í garðaprjóni til loka. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 2 l 1-2-2-4-4-6 sinnum = 40-40-44-44-48-48 l. Haldið áfram að prjóna tvöfalt perluprjón með 2 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 12-12-14-14-16-16 l fyrir hálsmáli, hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l til viðbótar við hálsmál = 13-13-14-14-15-15 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 35-37-39-43-45-49 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 10 kantlykkjur við miðju að framan) á prjóna nr 8 með Snow. Prjónið M.1. Haldið síðan áfram að prjóna sléttprjón með 10 l garðaprjón við miðju að framan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er fellt af frá hlið á sama hátt og á bakstykki = 31-33-35-39-41-45 l. Þegar stykkið mælist 35 cm eru prjónaðar 8 umf garðaprjón yfir allar l. Prjónið síðan tvöfalt perluprjón með 1 kantlykkju í hlið og 10 kantlykkjum í garðaprjóni fyrir miðju að framan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir 5 síðustu l í hlið, aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umf þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm fellið af 3 síðustu l í hlið fyrir handveg. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 26-26-28-28-30-30 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm setjið síðustu 10-10-11-11-12-12 l á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í annarri hverri umf þannig: 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 13-13-14-14-15-15 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. Munið eftir HNAPPAGAT!

ERMI:
Fitjið upp 30-31-31-33-33-33 l á prjóna nr 8 með Snow. Prjónið M.1. Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið með 6-6-5-4,5-4-3 cm millibili alls 7-7-8-8-9-10 sinnum = 44-45-47-49-51-53 l. Þegar stykkið mælist 49-48-48-45-45-42 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla – fellið af 3 l í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Fellið síðan af í annarri hverri umf þannig: 2 l 1 sinni, 1 l 1-2-2-5-5-7 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-55-55-56-56-57 cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af, ermin mælist ca 56-56-57-57-57-58 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið ermar í. Saumið hliðarsauma og ermasauma í eitt innan við kantlykkju. Saumið tölur í.

HETTA:
Takið upp ca 48 til 56 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði) á prjóna nr 8 með Snow.
ATH! Kantlykkjur að framan halda áfram í garðaprjóni til loka. Prjónið 1 umf garðaprjón frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Prjónið síðan 4 umf garðaprjón yfir allar l.
Eftir þetta er prjónað tvöfalt perluprjón með 10 l garðaprjón í hvorri hlið þar til hettan mælist ca 32-32-34-34-34 cm. Fellið af. Brjótið hettuna saman tvöfalda og saumið toppinn saman með lykkjuspori.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 109-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (69)

country flag Olivia wrote:

Merci beaucoup pour votre réponse rapide. Je ne saisis toujours pas car on a déjà 10 m de point mousse sur un côté… pourquoi doit on faire 5m au point mousse de chaque côté?

21.10.2022 - 17:47

DROPS Design answered:

Bonjour Olivia, vous avez tricoté auparavant les mailles du dos en jersey avec 1 maille point mousse de chaque côté, vous tricotez ensuite 5 mailles point mousse de chaque côté, puis, après 4 rangs, rabattez 3 mailles point mousse de chaque côté = il reste 2 mailles point mousse de chaque côté pour la bordure des emmanchures. Bon tricot!

24.10.2022 - 10:14

country flag Olivia wrote:

Bonjour ! Je ne comprends pas bien: “ En même temps, à 49-50-51-52-53-54 cm de hauteur totale, tricoter 4 rangs au point mousse sur les 5 m de chaque côté, tricoter les autres mailles comme avant”. Ça veut dire qu’on laisse tomber les 10 m de bordure pour en faire seulement 5? Merci

21.10.2022 - 11:44

DROPS Design answered:

Bonjour Olivia, non pas vraiment, vous allez tricoter 5 mailles au point mousse de chaque côté mais toutes les autres comme avant et ce, pendant 4 rangs, puis vous rabattrez les 3 mailles de chaque côté = il vous restera 2 des 5 mailles point mousse. Bon tricot!

21.10.2022 - 16:05

country flag Claude Caron wrote:

À mon message précédent,j’aurais dû écrire que c’est le small que j’ai fait le dos et un côté et que je trouve un peu petit. Merci et désolée!

27.01.2022 - 17:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Caron, avez-vous bien le bon échantillon en largeur? Est-ce trop petit en largeur ou en hauteur? Vous pouvez ajuster la hauteur (il vous faudra naturellement plus de laine) en adaptant si besoin à vos envies. Calculez à partir de la hauteur d'emmanchures souhaitées quand les former. Bon tricot!

27.01.2022 - 17:47

country flag Claude Caron wrote:

Puis-je faire le médium en suivant les hauteurs du small? J’aimerais avoir environ 68 cm de long, est ce que ça va affecter la longueur de l’emmanchure? J’ai fait le dos ainsi qu’un côté et je trouve que c’est un peu petit en largeur Merci beaucoup!

27.01.2022 - 15:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Caron, vous pouvez tout à fait adapter la longueur à celle que vous souhaitez, en fonction de la hauteur d'emmanchures souhaitées, conservez soit la taille S soit la taille M (pour les longueurs). Bon tricot!

27.01.2022 - 17:36

country flag Anna wrote:

Жаль,что нет на русском языке.

09.06.2021 - 19:31

country flag Anette Jørgensen wrote:

Jeg er nået til ærmerne i denne lækre jakke og jeg forstår ikke helt hvordan jeg tager ind i ærmegabskublen. Der står. - lukkes der 3 m af i hver side til ærmekuppel. Videre lukkes der af på hver 2.p således: 2 m 1 gang, 1 m 1-2-2-5-5-7 gange. Hvis jeg lukker hver anden så er det ikke ligeligt fordelt, er det meningen- eller skal det opfattes som hver anden i hver side, eller hver 4? - jeg antager at man kun lukker af i starten at pinden.

23.01.2021 - 22:21

DROPS Design answered:

Hei Anette. Ja, det felles i starten av pinnen. Om du strikker den minste størrelsen skal du felle 3 masker i begynnelsen av pinnen, strikk pinnen ut, snu, fell 3 masker, strikk pinnen ut. Deretter felles det på hver 2.pinne. 2 masker 1 gang, 1 maske 1 gang. Videre felles det 2 masker i hver side til arbeidet måler 55 cm, deretter felles det 3 masker 1 gang i hver side. mvh DROPS design

01.02.2021 - 09:20

country flag Dorothea wrote:

Guten Tag, ich möchte diese schöne Jacke in L stricken, hätte aber gerne auch weiter unten Knöpfe. Wenn ich noch zwei weitere Knöpfe anbringen möchte, wie müssten dann die Knopflöcher platziert sein? Bei 22cm und 30cm etwa? Vielen Dank!

17.06.2020 - 17:25

DROPS Design answered:

Liebe Dorothea, wenn Sie 7 cm zwischen den Knopflöchern behalten möchten, dann beginnen Sie mit 23 cm dann 30 cm (dann 37, 45 usw). Viel Spaß beim stricken!

18.06.2020 - 09:18

country flag Karin wrote:

Sind beim Rückenteil die 10 cm nach denen jeweils 1 Masche abgekettet werden soll, von Anfang an zu messen oder erst nach M1? Genauso die 35 cm nach denen Krausrippe gestrickt wird. Werden die 35 cm von Anfang gemessen oder nach M1? Vielen Dank schon mal. :-)

08.02.2018 - 09:01

DROPS Design answered:

Liebe Karin, die 10 und 35 cm sind von der Anschlagskante gemessen. Viel Spaß beim stricken!

08.02.2018 - 09:17

country flag Karin wrote:

Sind beim Rückenteil die 10 cm nach denen jeweils 1 Masche abgekettet werden soll, von Anfang an zu messen oder erst nach M1? Genauso die 35 cm nach denen Krausrippe gestrickt wird. Werden die 35 cm von Anfang gemessen oder nach M1? Vielen Dank schon mal. :-)

08.02.2018 - 08:59

country flag Yvonne wrote:

This is for the sleeves, whats the stitch count just before the cast off the remaining stitches at 56 cm?

28.03.2017 - 05:54

DROPS Design answered:

Dear Yvonne, number of remaining sts will depend on your number of rows, ie cast off on each side every other row (= at the beg of every row on each side both from RS and from WS): 3 sts 1 time, 2 sts 1 time, 1 st 5-5 times, then cast off 2 sts each side until piece measures 56-56 cm, and now cast off 3 sts 1 time each side. Happy knitting!

28.03.2017 - 09:24