DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7590.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Desert Delight

Prjónaður kjóll með hringlaga berustykki úr DROPS Safran og DROPS Alpaca. Stærð XS/S-XXL

DROPS 95-10
DROPS Design
Garnflokkur A+A
----------------------------------------------------------

Stærð: XS - S - M - L - XL – XXL

Efni:
DROPS Safran frá Garnstudio
250-250-300-300-350-350 gr 23, brúnn
og einnig:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
200-200-250-250-300-300 gr 3800, bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l x 19 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7590.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið l á eftir 1. og 3. prjónamerki + prjónamerki í hliðum þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið l á undan 2. og 4. prjónamerki + prjónamerki í hliðum þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

MÆLING:
Stykkið er mælt þegar það liggur flatt.
Lengdin á kjólnum teygist ca 6-10 cm miðað við lengd á teikningu þegar kjóllinn er mátaður.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA.
Kjólinn er prjónaður í hring – lesið MÆLING – að ofan!

KJÓLL:
Leggið saman hringprjón nr 6 tvöfaldan (eða notið 2 st hringprjóna) og fitjið upp 180-200-220-240-260-280 l á 2 prjóna með 1 þræði Safran + 1 þræði Alpaca (þetta er gert til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Dragið út annan prjóninn og prjónið 1 umf sl, 1 umf br og 1 umf sl. Prjónið síðan M.1 – byrjun umf = á hlið á kjól.
Þegar M.1 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina (stykkið mælist ca 21 cm) setjið 1 prjónamerki mitt í hverja einingu – sjá ör í M.1 = 9-10-11-12-13-14 prjónamerki. Prjónið áfram í sléttprjóni upp. JAFNFRAMT í 2. og 4. umf á eftir M.1 er M.2 prjónað yfir hvert prjónamerki = 144-160-176-192-208-224 l eftir á prjóni – takið í burtu prjónamerkin á eftir síðustu úrtöku.
Þegar stykkið mælist 25-25-25-26-26-26 cm (frá neðsta horni) setjið 6 ný prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 22-26-28-31-34-37 l, setjið 1 prjónamerki á undan næstu l (= 1. prjónamerki), prjónið 28-28-32-34-36-38 l, setjið 1 prjónamerki á undan næstu l (= 2. prjónamerki), prjónið 22-26-28-31-34-37 l, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið 22-26-28-31-34-37 l, setjið 1 prjónamerki á undan næstu l (= 3. prjónamerki), prjónið 28-28-32-34-36-38 l, setjið 1 prjónamerki á undan næstu l (= 4. prjónamerki), prjónið 22-26-28-31-34-37 l og setjið 1 prjónamerki á undan næstu l (= hlið). Fækkið nú um 1 l báðum megin við prjónamerki í hvorri hlið á kjólnum (ekki er l fækkað við 2 prjónamerkin að framan og að aftan) – sjá ÚRTAKA: Fækkið l svona í 5.-5.-5.-6.-6.-7. hverri umf alls 8-9-9-9-9-9 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 31-32-33-35-36-37 cm (frá neðsta horni) fækkið að auki um 1 l á eftir 1. og 3. prjónamerki og 1. l á undan 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚRTAKA – í 6.-6.-8.-8.-8.-8. hverri umf alls 4-4-5-5-5-5 sinnum.
Eftir alla úrtöku að framan, aftan og í hliðum eru 96-108-120-136-152-168 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 50-51-52-54-56-58 cm er aukið út eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – aukið út um 1 l með því að taka upp l frá fyrri umf og prjóna hana í sléttprjóni. Aukið út um 1 l í 2.-2.-2.-3.-3.-3. hverri umf alls 6-6-6-5-5-5 sinnum = 120-132-144-156-172-188 l.
Eftir síðustu útaukningu eru prjónamerkin að framan og að aftan tekin í burtu. Þegar stykkið mælist 67-69-71-73-75-77 cm fellið af 8-8-8-10-10-10 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4-4-4-5-5-5 l hvoru megin við bæði prjónamerkin í hliðum)= 52-58-64-68-76-84 l eftir á fram- og bakstykki.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring.
Fitjið upp 40-42-44-48-50-54 l á 2 prjóna nr 6 með 1 þræði Safran + 1 þræði Alpaca.
Dragið út annan prjóninn og prjónið 1 umf sl, 1 umf br og 1 umf sl. Prjónið síðan næstu umf þannig: 0-1-2-4-0-2 l í sléttprjóni, M.3 yfir næstu 40-40-40-40-50-50 l og 0-1-2-4-0-2 l í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til M.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina (stykkið mælist ca 5 cm). Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT eru felldar af 8-8-8-10-10-10 l mitt undir ermi = 32-34-36-38-40-44 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

AXLASTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 168-184-200-212-232-256 l.
Prjónið nú þannig:
STÆRÐ XS: Prjónið 5 cm sléttprjón – JAFNFRAMT í 3. og 7. umf er fækkað um 14 l jafnt yfir = 140 l.
STÆRÐ S: Prjónið 6 cm sléttprjón – JAFNFRAMT í 3. og 8. umf er fækkað um 12 l jafnt yfir = 160 l.
STÆRÐ M: Prjónið 7 cm sléttprjón – JAFNFRAMT í 4. og 9. umf er fækkað um 10 l jafnt yfir = 180 l.
STÆRÐ L: Prjónið 8 cm sléttprjón – JAFNFRAMT í 3., 6., 9. og 12. umf er fækkað um 8 l jafnt yfir = 180 l.
STÆRÐ XL: Prjónið 9 cm sléttprjón – JAFNFRAMT í 3., 7., 10. og 14. umf er fækkað um 8 l jafnt yfir = 200 l.
STÆRÐ XXL: Prjónið 10 cm sléttprjón – JAFNFRAMT í 4.,8.,12. og 16. umf er fækkað um 9 l jafnt yfir = 220 l.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar axlastykkið mælist 5-6-7-8-9-10 cm er stykkið prjónað og l fækkað eftir M.4.
Þegar M.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 112-128-144-144-160-176 l á prjóni. Prjónið 2 umf slétt JAFNFRAMT þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 111-123-144-144-159-171 l í síðustu umf. Prjónið 1 umf br og 2 umf sl, prjónið síðan kant með gataumferð þannig: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 74-82-96-96-106-114 l eftir á prjóni. Prjónið 2 umf slétt – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 74-82-86-90-94-98 l í síðustu umf. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl, fellið síðan laust af með br. Stykkið mælist ca 83-86-89-92-95-98 cm þegar það liggur flatt – ATH: Stykkið teygist um ca 6-10 cm þegar flíkin er mátuð.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman
symbols = engin lykkja, þessi lykkja hefur verið felld af
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 95-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Aisa wrote:

Går det an å stikke denne med lange ermer? Hvor mange garnnøster trengs i så fall til str. XS?

03.12.2023 - 18:25

DROPS Design answered:

Hei Aisa. Du kan fint strikke den med lange ermer, ta en titt på oppskrift 95-8 og gjør tilpassninger til både lengde og maskeantall. Siden vi ikke har strikket den med lange ermer har vi ikke en nøyaktig garnmengde, men vil tippe 2-3 nøster mer. mvh DROPS Design

04.12.2023 - 10:27

country flag Melanie wrote:

Ich verstehe diesen Satz nicht: Gleichzeitig auf der 2. und 4. R nach M.1 wird M.2 über jeden Markierungsfaden gestrickt. Soll ich eine Runde rechts Stricken, dann mit dem M.2 Muster beginnen und in der 4. Runde ebenfalls das Muster M.2 beginnen, obwohl das erste Mal M.2 noch nicht abgeschlossen ist? Vielen Dank für die Unterstützung!

02.04.2023 - 08:45

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, wenn M.1 fertig ist, stricken Sie M.2 so daß die Markierung in jedem M.1 die mittelre Masche in M.2 wird (so wird man 2 Maschen in jedem M.1 abnehmen). dann stricken Sie 3 Runden rechts, und bei der nächsten Runde stricken Sie M.2 wie zuvor (es sind 2 Maschen in jedem M.2 abgenommen). Viel Spaß beim stricken!

11.04.2023 - 10:36

country flag Miriam wrote:

Buon pomeriggio, volevo sapere se questo modello è lavorato topdown, grazie

06.03.2023 - 16:29

DROPS Design answered:

Buonasera Miriam, il vestito è lavorato dal basso verso l'alto. Buon lavoro!

06.03.2023 - 20:44

country flag Nova wrote:

Hi, The recommended size needles for Safran and Alpaca yarn is 3mm yet this dress is knitted in 6mm. That makes it a very loose knitted dress yet in the photo it doesn’t look that way.

12.02.2021 - 03:39

Nova answered:

Please disregard my last comment I did not read the instructions correctly. I can see that a yarn of each is required which makes sense. Thank you!

12.02.2021 - 03:42

country flag Charlene Pettit wrote:

Can this pattern be knitted in a single yarn? I would like to knit it in a cotton if you could suggest one

16.11.2020 - 21:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Petit, you can replace 2 strands yarn group A (= Alpaca + Safran here) with 1 strand yarn group C - like DROPS Paris for example - read more about alternatives here. Happy knitting!

17.11.2020 - 10:36

country flag Anx wrote:

Cześć, ppdzieliłam pracę sześcioma markerami. Prze których markerach zamyka sie oczka na początku?

09.03.2020 - 21:51

DROPS Design answered:

Witaj! Najpierw zamykamy oczka przy 2 markerach na bokach sukienki: zmknąć po 1 o. z 2 stron markerów (nie zamykać o. w miejscu 2 markerów przodu i 2 tyłu) – PATRZ ZAMYKANIE OCZEK powyżej - 8-9-9-9-9-9 razy co 5-5-5-6-6-7 okr. Od wys. 31-32-33-35-36-37 cm od dołu robótki zacząć zamykać 1 o. za 1-szym i 3-cim markerem i przed 2-gim i 4-tym markerem (przód i tył) i powtarzać to 4-4-5-5-5-5 razy co 6-6-8-8-8 okr. Pozdrawiamy!

10.03.2020 - 17:48

country flag Magda wrote:

Cześć, robie sukienke w rozm s i chciałbym ja przedłużyć. Zrobiłam według schematu i jest zby krótka, nawet jeśli by się wydłużyła od ciężaru. W którym miejscu dodać cm? Myślę, że miedzy schematem M2 a 6 markerami, ale nią mam pewności. Czy tak bedzie dobrze? Inne wymiary są ok.

05.03.2020 - 12:05

DROPS Design answered:

Witaj Magdo, dokładnie tak. Jak skończysz schemat, przerabiaj dalej bez schematu tyle ile chcesz przedłużyć sukienkę. Dopiero później dodaj markery i zamykaj oczka. Pozdrawiamy!

05.03.2020 - 17:02

country flag Magda wrote:

Dzień dobry, czy na pewno oczka na przód i tył zamyka się za 1 i 3 markerem, a przed 2 i 4, a nie odwrotnie? Czy te 28 oczek miedzy markerami nie powinno zostać bez zmian, a zmniejszać sie na bokach? Przy robieniu od góry tak właśnie robiłam.

10.01.2020 - 16:24

DROPS Design answered:

Witaj Magdo! Tak trzeba zamykać te oczka, powstaną kliny z przodu i tyłu, postępuj zgodnie z opisem. Koniecznie zamieść zdjęcie gotowej sukienki na naszej grupie DROPS Workshop na facebooku. Miłej pracy!

10.01.2020 - 18:08

country flag Magda wrote:

Dziękuje za odpowiedz. Jeszcze jedno pytanie. Czy oczka na bokach odejmujemy od razu, gdy robótka osiągnie dł 25 cm (rozm.S)?

08.01.2020 - 22:07

DROPS Design answered:

Witaj Magdo! A jednak się pomyliłam: wyjaśniam ponownie: na wysokości 25 cm zaczynasz zamykać 1 o. z każdej strony markerów na bokach (zamknięte 4 o. w okrążeniu). Zamykasz tak samo 9 razy co 5 okr. (razem 36 zamkniętych oczek). Jednocześnie jak dojdziesz do 32 cm wysokości, zaczynasz zamykać 1 o. za 1-szym i 3-cim markerem i przed 2-gim i 4-tym markerem (markery na tyle i przodzie; zamykasz 4 o. w okrążeniu) (PATRZ ZAMYKANIE OCZEK powyżej). Powtarzasz to 4 razy co 6 okr. (zamkniętych 16 o.). Łącznie będzie na koniec: 160-36-16=108 o. Pozdrawiam serdecznie!

08.01.2020 - 22:41

country flag Magda wrote:

Cześć. Prosze o wyjaśnienie, bo nie do końca rozumiem opis. Robię rozmiar S, podzieliłam prace sześcioma markerami. Które markery stanowią środek boków? Które ograniczają przód i tył? Ile oczek ma ma mieć przód i tył w rozmiarze S, bo rozumiem, że ta ilośc się nie zmienia? I czy oczka na środku boków odejmować przy samych markerach czy oczko za markerem? Pozdrawiam

07.01.2020 - 21:28

DROPS Design answered:

Witaj Magdo, skorygowałam nieco opis, aby był czytelniejszy. Markery 3 i 6 stanowią boki sukienki, jest 80 o. na tył i 80 o. na przód sukienki w rozmiarze S. Oczka na środku boków odejmować przy samych markerach, tak samo jak przy pozostałych 4 markerach. Miłej pracy!

08.01.2020 - 21:45