DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Comforting Cables

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með laskalínu, köðlum og áferðamynstri. Stærð S-L.

DROPS 52-7
DROPS Design
Garnflokkur B

Stærð:
Dömu: S-M-L
Herra: (S/M – M/L)
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
650-700-750 (850-900) g nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3 og 4 eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með prjóna nr 4 og mynstur M.5 verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – fyrir hálsmál

ATH: Mikilvægt er að halda prjónfestunni við laskaúrtöku!
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

STROFF:
* 2 l sl, 2 l br *. Endurtakið frá *- *.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri frá réttu.
----------------------------------------------------------

BOLUR:
Tölur í () = Herra stærðir!
Fitjið upp 188-192-200 (200-208) l á hringprjóna nr 3 með natur og prjónið stoff í 5 (6) cm – í síðustu umf er aukið út um 88-96-100 (100-108) l jafnt yfir = 276-288-300 (300-316) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig (byrjið frá hlið): 26-29-32 (32-36) l af M.5, M.2, M.4, M.2, M.3, M.2, M.1 (= miðja að framan), M.2, M.3, M.2, M.4, M.2, 52-58-64 (64-72) l af M.5, M.2, M.4, M.2, M.3, M.2, M.1, M.2, M.3, M.2, M.4, M.2, 26-29-32 (32-36) l af M.5.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 34-36-37 (40-43) cm fellið af 4 l í hvorri hlið fyrir handveg = 134-140-146 (146-154) l á fram- og bakstykki. Geymið stykkið.

ERMI:
Fitjið upp 52-52-52 (56-56) l á sokkaprjóna nr 3 með natur og prjónið stroff í 5 (6) cm – í síðustu umf eru auknar út 22-22-22 (18-18) l jafnt yfir = 74-74-74 (74-74) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: M.4, M.2, M.3, M.2, M.1, M.2, M.3, M.2, M.4. Prjónið mynstur uppúr jafnframt því sem auknar eru út 2 l mitt undir ermi í 4. hverri umf 27-27-29 (29-29) sinnum = 128-128-132 (132-132) l – fyrstu 6 útauknu l eru prjónaðar í M.2 og þær útauknu l sem eftir eru, eru prjónaðar í M.5. Þegar stykkið mælist 50-49-49 (52-53) cm fellið af 4 l mitt undir ermi = 124-124-128 (128-128) l. Prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og bolur þar sem felldar voru af 4 l = 516-528-548 (548-564) l á prjóni.
Setjið prjónamerki í skiptinguna á milli erma og bols = 4 prjónamerki. Haldið áfram með mynstur uppúr en fyrstu l hvoru megin við prjónamerkin eru prjónaðar með sléttprjóni (= 2 l sléttprjón í skiptingunni frá bol að ermi).
LASKALÍNA:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fækkað er um 8 l í hverri umf (fækkið um 1 l hvoru megin við 2 l sléttprjón).
Prjónið fyrst 5-6-8 (8-9) umf áður en úrtaka byrjar.
Fækkið síðan um 1 l 51-52-53 (53-55) sinnum hvoru megin við prjónamerki í hverri umf.

Fækkið l þannig:
Á undan 2 l sléttprjón:
Frá réttu: Prjónið 2 l sl saman
Frá röngu: Lyftið næstu 2 l, setjið þær snúnar til baka á vinstri prjón (eina og eina), prjónið 2 l snúnar br saman.
Á eftir 2 l sléttprjón:
Frá réttu: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Frá röngu: Prjónið 2 l br saman.

Þegar eftir eru 8 l er fellt af fyrir hálsmáli að framan JAFNFRAMT er haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu þannig: Setjið miðju 20-24-28 (28-32) l á þráð og síðan er prjónað til loka fram og til baka. Fellið síðan af við hálsmáli í annarri hverri umf 2 l 1 sinni, 1 l 2 sinnum.

Eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 54-57-59 (62-66) cm og eftir eru 80-80-88 (88-84) l á prjóni.
Peysan mælist upp að öxlum = 60-62-64 (67-70) cm. Setjið l af þræði á prjóninn og prjónið upp 10 l hvoru megin við úrtöku í hálsi = 120-124-136 (136-136) l á prjóni.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf slétt, 1 umf brugðið, 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út/fækkið lykkjum til 120-120-130 (130-140) l jafnt yfir í umf. Prjónið A.6 í 9 cm – endið á 1. eða 5. umf í mynstri, prjónið 1 umf slétt jafnframt sem l yfir hvern kaðal eru prjónaðar saman tvær og tvær. Prjónið síðan 1 umf br og fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman 4 l mitt undir ermi.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.12.2022
Búið er að bæta við tákni fyrir kaðal yfir 4 lykkjur í 1. umferð í mynsturteikningu M.1.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = kaðall: Kaðallinn er prjónaður yfir tvær lykkjur þannig: Prjónið aðra lykkjuna fyrst án þess að lyfta lykkju af prjóni og prjónið síðan fyrri lykkjuna. Lyftið síðan báðum lykkjum af vinstra prjóni.
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Comforting Cables

Bill, United States

Comforting Cables

Susie, United States

Comforting Cables

Silje, Norway

Comforting Cables

Silje Andersen, Norway

Comforting Cables

Silje, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 52-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Gerrie wrote:

= Zet 3 st op een kabelnld en hou deze voor het werk, 2 r, 2 st r van de kabelnld Dit klopt niet helemaal volgens mij. Moet dit niet zijn: zet 2 steken op een kabelnaald

27.01.2019 - 11:22

country flag Karina Remming wrote:

Hej - jeg kan simplethen ikke forstå ærmet. Hvor strikkes M5? 74 masker i begynd er jo kun til det beskrevne mønster M.4, M.2, M.3, M.2, M.1, M.2, M.3, M.2, M.4. Og udtagningen...hvordan kan det nogen sinde gå op med M2 og så efterfølgende M4... ... og hvilken M2? Jeg kan slet ikke få det til at gå op.

21.01.2019 - 13:12

country flag Sigrún wrote:

Eruð þið með kuppskriftina af sömupeysunni en kvenna ? svo það sé sami hálskragi og á kvennapeysunni ?

11.01.2019 - 17:48

DROPS Design answered:

Blessuð Sigrún. Ég er ekki alveg viss um hver spurningin er en þessi peysa er gefin upp fyrir dömur og herra. Lykkjufjöldinn í () er fyrir herra. Virðist vera sami kragi á báðum peysum.

19.01.2019 - 12:22

country flag Birte Jakobsen wrote:

Der må være noget galt med str har strikket str large til en ung mand der normalt bruger str large ,men den var alt for stor så jeg måtte desværre pille det hele op når man ser på andre opskrifter med samme garn ,er der meget mindre masker Mvh Birte Jakobsen

04.01.2019 - 22:51

DROPS Design answered:

Hei Birthe. Denne modellen er noe romsligere enn de nyere modellene våre, men målskissen nederst på siden stemmer overens med strikkefasthet og maskeantall. Vi råder alltid til å se på målskissen ved valg av størrelse så man er sikker på at målene passer til mottakker. Om du ønsker modellen smalere kan du strikke en mindre størrelse, men for eksempel beholde lengden til M/L. God fornøyelse

07.01.2019 - 07:58

country flag Karina Remming wrote:

Syntes at diagrammet er svært at læse da det er utydeligt og småt. Er det muligt at få en bedre version?

14.12.2018 - 14:51

DROPS Design answered:

Hei Karina. Vi skal få lastet opp et tydeligere diagram snarlig. God fornøyelse

17.12.2018 - 14:29

country flag Pat wrote:

In the M.1 correction, Miossec asked this in 2011 and if I understood the answer (I do read French some), was told it could just be knit as per the chart instead of having a cable worked over 4 stitches which is what the correction says. Which is right and if it is actually supposed to be cabled, do you hold the cable needle to the front or the back? IOW which direction does the cable twist?

09.03.2018 - 22:09

DROPS Design answered:

Dear Pat, in the original pattern (Norwegian) you are working first row in diagram as shown, ie without any cables on row 1, you can work this cable on first row in M.1 (cross sts as next cables in M.1) if you like to or just do not work it and start cabling with row 3. Happy knitting!

12.03.2018 - 08:19

country flag Pat wrote:

I'm sorry, I've done cabling and I've done raglan and I don't understand this pattern at all. I am having to rewrite it completely because the pattern to be established ONLY works after you finish increasing and there's no way I will be able to keep the pattern working right without the rewrite. That's aside from the sizing issue.

09.03.2018 - 15:30

country flag Dinah wrote:

Hi! Ich habe zwei Fragen zur Raglanpasse: "Stricken Sie 5-6-8 (8-9) . bevor Sie mit dem Abketten anfangen. Danach, bei jeder R., auf beiden Seiten der Markierungsfäden 1 M. x 51-52-53 (53-55) abk." Zum ersten Satz, sind damit Runden gemeint, bevor man mit den Raglanabnahmen beginnt? Zum zweiten Satz, wird wirklich in jeder kommenden Runde (später Reihe) für den Raglan abgenommen? Vielen Dank für die Hilfe.

01.11.2017 - 00:46

DROPS Design answered:

Liebe Dinah, Passe wird zuerst in der Runde gestrickt, dann hin und zurück. Wenn 8 Raglanabnahmen übrig sind, legen Sie die mittleren Maschen für Halsausschnitt still. Dann wird es hin und zurück gestrickt, mit Raglanabnahmen wie zuvor (aber nur Hinreihen abnehmen) und gleichzeitig werden Maschen für den Hals abgekettet. Viel Spaß beim stricken!

01.11.2017 - 09:13

country flag Pat wrote:

Drops 52-7 and 52-8 are sooooo gorgeous but too big. I need about 100 cm which is more like my 40 inches measurement. I am going to try taking out some stitches of m5 at the underarm of the sleeve and body. If you want to know the results send me an email to reply to. It could be a bust but I would look ridiculous wearing this sweater as the pattern stands.

26.10.2017 - 17:56

country flag Marianne Wittke wrote:

Verstehe ich die Anleitung richtig, dass in Runden gestrickt wird? Mich irritiert nur, dass die Abkürzung "R." für Reihe und nicht "Rd." für Runde benutzt wird und auf beiden Seiten(bei Runden?) je 4 Maschen für das Armloch abgekettet werden sollen. Ich hoffe Sie können mir das verdeutlichen. Mit freundlichem Gruß M.Wittke

24.10.2017 - 11:51

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wittke, Rumpfteil wird bis die Armlöcher in der Runde gestrickt, dann werden die Ärmel auch in der Runde gestrickt und endlich wird die Passe zuerst in der Runde bis zum Halsauschnitt dann hin und zurück gestrickt. Die Seiten von dem Rumpfteil sind wo die Markierer eingesetzt werden. Viel Spaß beim stricken!

24.10.2017 - 13:27