DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tulip Season

Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, gatamynstri og norrænu mynstri með túlipönum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-1
DROPS Design: Mynstur w-860
Garnflokkur C eller A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 17, natur
150-150-150-150-200-200 g litur 35, vanillugulur
100-100-100-100-100-100 g litur 63, eyðimerkurrós
50-100-100-100-100-100 g litur 25, mosagrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 41, sinnep
50-50-50-50-50-50 g litur 61, lime
50-50-50-50-50-50 g litur 65, ryð

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Til að peysan verði örlítið hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan.
Byrjið við prjónamerki frá réttu, prjónið 15-16-16-17-17-18 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 30-32-32-34-34-36 lykkjur brugðið.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 45-48-48-51-51-54 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 60-64-64-68-68-72 lykkjur brugðið.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 75-80-80-85-85-90 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræðinum og prjónið 90-96-96-102-102-108 lykkjur brugðið.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að prjónamerki mitt að aftan. Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 116-120-128-132-136-140 lykkjur á hringprjón 4 með litnum natur í DROPS Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm, fækkið allar 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í hverri brugðinni einingu = 87-90-96-99-102-105 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 7-7-7-9-9-9 cm frá uppfitjunarkanti. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotinn saman tvöfalt og við frágang þá verður kanturinn í hálsmáli ca 3-3-3-4-4-4 cm.
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 25-26-24-25-26-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 112-116-120-124-128-132 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð = mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.
Skiptið yfir á hringprjón 5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.
Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón með litnum natur í 2-2-3-3-4-4 cm, mælt frá prjónamerki mitt að framan – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 2-4-0-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 114-120-120-126-132-132 lykkjur. Prjónið síðan mynstur þannig:

A.1:
Prjónið A.1 alls 19-20-20-21-22-22 sinnum hringinn á berustykki. Þegar 2. umferð í A.1 hefur verið prjónuð, eru 133-140-140-147-154-154 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð merkt með ör-1 í A.1 er aukið út um 27-30-40-33-36-46 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 160-170-180-180-190-200 lykkjur.

A.2:
Prjónið A.2 alls 16-17-18-18-19-20 sinnum hringinn á berustykki. Aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar 8. umferð í A.2 hefur verið prjónuð, eru 192-204-216-216-228-240 lykkjur í umferð.
Að auki eru lykkjur auknar út jafnt yfir í hverri umferð merktri með ör eins og útskýrt er að neðan:
Ör-2: Aukið út um 12-12-12-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 204-216-228-240-252-270 lykkjur.
Ör-3: Aukið út um 12-24-24-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 216-240-252-264-276-300 lykkjur.
Ör-4: Aukið út um 12-12-12-24-24-36 lykkjur jafnt yfir = 228-252-264-288-300-336 lykkjur.
Ör-5: Aukið út um 12-12-12-24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 240-264-276-312-324-360 lykkjur.

A.3:
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn, en takið vel eftir að í flestum stærðum byrjar A.3 á fram- og bakstykki og ermum, þ.e.a.s. eftir að berustykkinu hefur verið skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING Á BERUSTYKKI FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsinn, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 36-39-41-47-49-55 lykkjur með mynstri eins og áður (½ bakstykki), setjið næstu 48-54-56-62-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið 72-78-82-94-98-110 lykkjur mynstur eins og áður (framstykki), setjið næstu 48-54-56-62-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 36-39-41-47-49-55 lykkjur í mynstri eins og áður (½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-168-180-204-216-240 lykkjur. Haldið áfram með mynstur hringinn. ATH: Ef A.2 hefur ekki verið prjónað til loka á berustykki, prjónið A.2 til loka áður en A.3 er prjónað hringinn yfir allar lykkjur á fram- og bakstykki. ATH: Ef stykkinu er skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar mitt í mynsturbekk í A.2/A.3, kemur þessi mynsturbekkur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermum eftir skiptingu. Prjónið mynsturbekkinn til loka á framstykki og bakstykki eins langt og hægt er mitt undir hvorri ermi. Prjónið síðan næsta mynsturbekk í A.2/A.3 hringinn yfir allar lykkjur.

Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur.
Þegar stykkið mælist 24 cm frá skiptingu, prjónið A.5 hringinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 33-36-36-42-45-48 lykkjur jafnt yfir = 189-204-216-246-261-288 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-54-56-62-64-70 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-64-70-74-80 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Að auki er sett 1 prjónamerki í 27.-30.-32.-35.-37.-40. lykkju í umferð. Látið þetta prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið á að passa við miðjulykkju í mynsturteikningu – teljið út frá þessu prjónamerki hvar umferðir byrjar í næsta mynsturbekk.

Byrjið umferð við prjónamerki mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur hringinn alveg eins og á fram- og bakstykki – mynsturbekkurinn sem heldur áfram frá berustykki kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi. Þegar næsti mynsturbekkur byrjar, teljið byrjun á mynstri út frá miðjulykkju í mynsturteikningu.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5½-4-2½-3-2 cm millibili alls 7-6-8-11-9-12 sinnum = 40-48-48-48-56-56 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum natur.
Prjónið þar til ermin mælist 34-33-32-29-28-26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á undan gatamynstri í A.4.
Nú er prjónað A.4 alls 5-6-6-6-7-7 sinnum í kringum ermi. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 38-37-36-33-32-30 cm frá skiptingu – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1-0-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 39-48-48-48-54-54 lykkjur.
Prjónið A.5 alls 13-16-16-16-18-18 sinnum hringinn á ermi.
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 9-9-9-9-12-12 lykkjur jafnt yfir = 48-57-57-57-66-66 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af.
Ermin mælist ca 44-43-42-39-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.
Yfirfarið á vefsvæði: 29.03.2022
Leiðrétting á prjónastærð + undir TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI.

Mynstur

symbols = natur
symbols = vanillugulur
symbols = sinnep
symbols = lime
symbols = mosagrænn
symbols = eyðimerkurrós

symbols = ryð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
symbols = miðjulykkja
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Tulip Season

AmarJyot Kaur, Canada

Tulip Season

Giselle

Tulip Season

Alex, Canada

Tulip Season

Lisa, United Kingdom

Tulip Season

Esperanza, Spain

Tulip Season

AmarJyot Kaur, Canada

Tulip Season

ionamar, Spain

Tulip Season

Gutworzy, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (87)

country flag Marleen Gruben wrote:

Hallo Er staat dat mijn lengte van de tulpen trui 62 cmmoet zijn dat klopt niet ik heb alles al ingebreid en dan word het een kort truitje zoals op de foto wat ik net bekeek Voor mij de eerste keer dat ik een Top down trui heb gebreid

06.04.2024 - 14:46

country flag Kerstin Pilblad wrote:

232-1 Ska man sticka dubbelvikt halskant med rundsticka 40 cm eller 80 cm? Står inte i mönstret, bara att det är nr 4.

19.02.2024 - 20:45

DROPS Design answered:

Hej Kerstin, du skal bruge 40 cm i halsen :)

23.02.2024 - 13:03

country flag Jocelyne Ouellette wrote:

Comment faire pour ne pas avoir de décalage (démarcation), à la fin et début de chaque rang s.v.p. merci?

18.01.2024 - 12:36

country flag Wenke Glad wrote:

Skjønner ikke at omgangen skal begynne midt bak? Dette er ikke pent?

31.05.2023 - 18:55

country flag Maggie Banks wrote:

Are the quantities of each colour yarn based on using a fairisle method, separate lengths of yarn for each motif or a mixture of both?

07.05.2023 - 17:36

DROPS Design answered:

Dear Maggie Banks, the quantities should be enough for working using a fairisle method. Happy knitting!

07.05.2023 - 19:33

country flag Maria Grazia Sala wrote:

Nella lista iniziale delle quantità e colori del materiale necessario alla realizzazione di questo maglione manca "n.25 Muschio verde"

23.03.2023 - 18:22

DROPS Design answered:

Buonasera Maria Grazia, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto la quantità di filato. Buon lavoro!

23.03.2023 - 20:42

country flag Annicka Andreasson wrote:

Stickar denna tröja i Baby Merino, bytte garn enligt ert tips. Merino stickas med stickor 3, är inne på rosa randen men stickningen mäter bara 11 cm från markören. Enligt bilden så är ju den bården nere på bröstet. Hur ska jag göra? Lägga in fler bårder? Med vänlig hälsning Annicka

23.01.2023 - 08:33

DROPS Design answered:

Hei Annica. Om du skal strikke denne i Baby Merino, må du bruke 2 tråder. Og husk sjekke at du får den oppgitt strikkefastheten. mvh DROPS Design

23.01.2023 - 14:39

country flag Susanne Öhrvall wrote:

Hej Har fått fel mönster för nedladdning.

19.01.2023 - 17:09

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Hva mener du? Om du går inn på Tulip Season / DROPS 232-1 vil du se en beskrivelse til en strikket genser i DROPS Paris, der arbeidet strikkes ovenfra og ned med dobbel halskant, rundfelling, hullmønster og nordisk mønster med tulipaner. Om du har bestilt garn og oppskrift fra en nettbutikk, må du kontakte den nettbutikken du har handlet hos. mvh DROPS Design

23.01.2023 - 08:45

country flag Mette wrote:

Kære Drops Design Jeg har et spørgsmål til det svar i lavede til min spørgsmål d 22.05. Kl 15.06.. jeg kan ikke komme til at kommentere på spørgsmålet desværre? så jeg skriver her.. Hvor kan jeg få fat i de brochurer, der viser et udvalg af sæsonens kollektion? Dem i snakker om? De har dem aldrig i de butikker, jeg spørger efter dem i.. kan I sende dem til mig? Vh Mette

05.07.2022 - 11:02

DROPS Design answered:

Hej Mette, her finder du sæsonens kollektion: DROPS kollektion Forår & Sommer 2022 Og du køber garnet som passer til, ved at klikke på Bestil-knappen som ligger inde på selve opskriften :)

05.07.2022 - 11:13

country flag Mette wrote:

Kære Drops Design! Hvor kan jeg købe jeres fire nye sommerkataloger i fysisk form? Kan det virkelig passe, jeg skal sidde og printe alle opskrifterne ud? Kan jeg slet ikke købe mig til nogle fysiske kataloger med jeres flotte opskrifter i flotte farver? Kærlig hilsen Mette

22.05.2022 - 15:06

DROPS Design answered:

Hei Mette. Vi har sluttet med å lage kataloger der det både var bilder og oppskrifter, alt kommer nå på vår nettside. Men du skal få tak i brosjyrer (med bilder) der vi viser et utvalg av sessongens kolleksjon. I disse brosjyrene vil det ved bildene stå DROPS nr. slik at du enkelt kan søke opp oppskriften på nettsiden vår og skrive ut den/de oppskriftene du måtte ønske, gratis). mvh DROPS Design

23.05.2022 - 11:12