DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 224-33
DROPS Design: Mynstur x-477
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Skóstærð: 26/28 – 29/31 – 32/34 – 35/37 – 38/40 – 41/43 – 44/46
Lengd fótar eftir þæfingu: 17-18-20-22-24-27-30 cm
Lengd fótar fyrir þæfingu: ca 23-24-27-30-32-36-40½ cm.

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-100-100-100-150-150 g litur 70, súkkulaði

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 60 eða 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
Fyrir þæfingu: 16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Eftir þæfingu: 20 lykkjur á breidd og 27 umferðir á hæðina með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Prjónið 1 lykkju framhjá 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (2. prjónamerki situr á milli þessa 2), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 4 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 – mynsturteikning sýnir prjónstefnu og hvernig tátiljan er saumuð saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ÞÆFÐAR TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tátiljan er prjónuð frá tá. Fyrst er prjónað í hring á sokkaprjóna, stykkinu er skipt ofan á rist og prjónað er fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Hællinn er saumaður saman mitt að aftan og stykkið er þæft í þvottavél.

TÁTILJA:
Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjóna 5,5 með DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð slétt.
Setjið 2 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna, setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð og 2. prjónamerki á eftir 4 lykkjur – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Nú er prjónað sléttprjón hringinn og það eru auknar út 4 lykkjur í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9-10 sinnum = 32-32-36-36-40-44-48 lykkjur í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 6-7-8-10-12½-15½-18½ cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 0-2-0-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir allar lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis (þ.e.a.s. frá byrjun á umferð og fram að 2. prjónamerki) = 32-34-36-38-42-46-50 lykkjur.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 12-12-13½-15-18-22-26 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 3-3-2-2-3-4-4 lykkjur slétt, fellið af 1 lykkju, prjónið 8-10-12-14-14-14-16 lykkjur slétt og setjið þessar lykkjur á þráð (= tunga), fellið af 1 lykkju, prjónið 19-19-20-20-23-26-28 lykkjur slétt og prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 3-3-2-2-3-4-4 lykkjur einu sinni til viðbótar = 22-22-22-22-26-30-32 lykkjur í umferð.

NEÐRI HLIÐ:
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju með 1 uppslætti innan við kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið -það eiga ekki að myndast göt. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 5-5-6-6-7-6-7 sinnum í hvorri hlið = 32-32-34-34-40-42-46 lykkjur.
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist alls 21-22-25-28-30-34-38½ cm og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað mitt á stykki til að gera rúnaðari hæl þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 14-14-15-15-18-19-21 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman 2 sinnum og prjónið 14-14-15-15-18-19-21 lykkjur = 30-30-32-32-38-40-44 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður frá röngu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 13-13-14-14-17-18-20 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman 2 sinnum og prjónið 13-13-14-14-17-18-20 lykkjur = 28-28-30-30-36-38-42 lykkjur.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið eins og áður frá röngu.
Fellið af allar lykkjur með sléttum lykkjum í næstu umferð. Stykkið mælist alls 23-24-27-30-32-36-40½ cm frá uppfitunarkanti.

TUNGA:
Setjið til baka 8-10-12-14-14-14-16 lykkjur af þræði á sokkaprjóna 5,5. Prjónið fram og til baka í garðaprjóni og fækkið lykkjum í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 ystu lykkjur í hvorri hlið slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 2 sinnum = 4-6-8-10-10-10-12 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu og fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð frá röngu.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman þannig að affellingarkantur aftan á hæl liggi kant í kant. Sjá mynsturteikningu A.1 sem sýnir hvernig tátiljan er saumuð saman. Saumið saman í ystu lykkjubogana svo saumurinn verði ekki þykkur. Þræðið þráð í gegnum lykkjur frá uppfitjunarkanti, herðið á þræði og festið vel.

ÞÆFING:
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = sýnir hvernig tátiljan er saumuð saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Martina wrote:

Hallo, ihr habt es euch mit der Antwort leicht gemacht. Ich habe mit Alaska von Algawo gestrickt, genau wie angegeben. Maschenprobe war auch in Ordnung. Die Anleitung muss wohl einen groben Fehler enthalten.

05.12.2023 - 15:35

country flag Martina wrote:

Ich habe den Beitrag von Heike gelesen. Was ist da schief gelaufen? Habe auch für meinen Schwiegersohn diese Hausschuhe gestrickt in Größe 46, nach dem Filzen war es nur Größe 38/39. Ist vielleicht die Anleitung falsch?

04.12.2023 - 21:44

DROPS Design answered:

Liebe Martina, stimmte Ihre Maschenprobe? Am besten wenden Sie sich bitte direkt an dem Laden, wo Sie die Wolle gekauft haben; dort kann man Ihnen am besten weiterhelfen, auch per Telefon oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

05.12.2023 - 08:59

country flag Heike wrote:

Hallo ihr Lieben, ich habe diese tollen Hausschuhe in Größe 46 hergestellt und habe mich beim Stricken und Filzen streng an die Anleitung gehalten. Nun habe ich fantastische Hausschuhe, die mir mit meiner Größe 38 passen. Was ist schief gegangen? Leider habe ich immer noch keine Hausschuhe für meinen Sohn in Größe 46! Ein ganz tolles Modell, ich freue mich auf eure Antwort und liebe Grüße aus Deutschland!

18.10.2023 - 13:19

country flag David wrote:

What does it mean when it says: move the markers when working... Does it mean that I start with the 4 stitches between the markers and everytime i increase i do so between the markers? So increasing by two means there will now be 6 between the markers?

14.08.2023 - 06:53

DROPS Design answered:

Dear David, the markers should stay on the same place so that you will increase on each side of the markers as explained under INCREASE TIP and you will get 2 more stitches between each marker after every increase round. Happy knitting!

14.08.2023 - 10:27

country flag Maj-Britt wrote:

Jeg forstår ikke følgende - om jeg skal strikke en ret rille - jeg strikker jo ret i forvejen, når jeg strikker rundt? Strik videre i glatstrik til arbejdet 6-7-8-10-12½-15½-18½ cm fra opslåningskanten. Strik 1 omgang ret og tag 0-2-0-2-2-2-2 masker ud jævnt fordelt over maskerne mellem 1.og 2.mærke (dvs fra starten af omgangen og frem til 2.mærke) = 32-34-36-38-42-46-50 masker. Strik videre i glatstrik til arbejdet måler 12-12-13½-15-18-22-26 cm fra opslåningskanten.

04.03.2023 - 07:34

DROPS Design answered:

Hej Maj-Britt, hele det stykke du beskriver strikker du i glatstrik :)

08.03.2023 - 07:59

country flag Jessi wrote:

Hallo, werden die Zunahmen am Anfang in jeder Reihe gestrickt oder im Wechsel eine Runde Zunahme eine Runde rechts? Danke im Voraus für die Antwort Viele Grüße Jessi

22.02.2023 - 11:16

DROPS Design answered:

Liebe Jessi, am Anfang soll man 4 Maschen in jeder Runde zunehmen, nach 6-6-7-7-8-9-10 Runden hat man 24-24-28-28-32-36-40 Maschen zugenommen, es sind 32-32-36-36-40-44-48 Maschen auf der Nadel. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2023 - 13:29

country flag LAROCHE wrote:

Bonjour, J'aimerai savoir svp à combien de pointures en moins se chiffrent lorsqu'on a procédé au feutrage ? Cordialement

16.01.2023 - 15:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Laroche, retrouvez sous l'en-tête les mesures de l'échantillon avant et après feutrage - n'hésitez pas à tricoter votre échantillon et à le feutrer pour bien vérifier vos mesures avant/après. Bon tricot!

16.01.2023 - 16:54

country flag Laroche wrote:

Au tout début quand on me dit d'augmenter 9 fois tous les tours, c'est bien "augmenter 4 mailles 9 fois (pour moi), et cela tous les tours jusqu'à obtenir 44 mailles". Je tricote la pointure 41-43. Merci

15.01.2023 - 15:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Laroche, tout à fait, en taille 41/43, vous allez suivre les nombres indiqués en avant-dernière position: vous augmentez 9 fois 4 mailles tous les tours, autrement dit, vous avez 8 + (9x4) = 44 mailles. Bon tricot!

16.01.2023 - 09:29

country flag Nicole wrote:

Bonjour J'aimerai savoir quel taille choisir? Il faut choisir sa taille habituelle? Merci

26.03.2022 - 13:47

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, tout à fait, vous trouverez dans l'en-tête les pointures et la longueur de pied correspondante. Bon tricot!

28.03.2022 - 08:41

country flag Guinha wrote:

Thanks for the quick response, but I'm still confused. 11 rows total, starting with row wrong side and finishing with row right side? Could you please explain like this: Row 1 wrong side knit, Row 2 right side knit, Row 3 wrong side knit, Row 4 right side decrease, Row 5 wrong side knit, Row 6 right side knit, Row 7 wrong side knit, Row 8 right side decrease, and then what do I do? I'm lost... Sorry for not getting it

31.01.2022 - 07:27

DROPS Design answered:

Dear Guinha, starting from WS work: R1: K from WS; R2: K from RS decreasing 1 st on each side, R3: K from WS; R4: K from RS; repeat row 1 to 4 one more time = you have cast off 4 sts in total. Knit 1 more row from WS, 1 more row from RS and cast off on next row from WS. Happy knitting!

31.01.2022 - 10:21