DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Pink Petunias

Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað ofan frá og niður með klauf mitt aftan í hnakka og stuttum puffermum. Stærð XS - XXL.

DROPS 223-35
DROPS Design: Mynstur r-776
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - M - L - XL - XXL - XXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-450-500-550-600 g litur 29, bleiki pardusinn

HEKLFESTA:
20 stuðlar á breidd og 10 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 4 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚTAUKNING (á við um handveg):
Aukið út um 1 lykkju þannig: Heklið 1 loftlykkju í lok umferðar (= 1 ný lykkja).
Aukið út um 3 lykkjur þannig: Heklið 3 loftlykkjur í lok umferðar (= 3 nýjar lykkjur).
Í næstu umferð á eftir útaukningu, heklið 1 stuðul í hverja og eina af nýjum loftlykkjum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki, bakstykki og ermar er heklað fram og til baka hvert fyrir sig og heklað er ofan frá og niður. Þegar stykkin hafa verið hekluð til loka eru þau saumuð saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál.

FRAMSTYKKI:
Hægri öxl:
Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunál, heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkju = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul – sjá HEKLLEIÐBEININGAR.
Þegar heklaðar hafa verið 7-7-7-9-9-9 umferðir með stuðlum, klippið þráðinn og geymið stykkið. Heklið vinstri öxl.

Vinstri öxl:
Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 7-7-7-9-9-9 umferðir með stuðlum, heklið næstu umferð frá röngu þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern af 15-16-17-17-18-18 stuðlum á vinstri öxl, heklið 32-32-32-34-34-36 loftlykkjur (= hálsmál), heklið 1 stuðul í hvern af 15-16-17-17-18-18 stuðlum á hægri öxl – passið uppá að heklað sé frá röngu þannig að áferðin verður alveg eins á hægri og vinstri öxl.

Nú eru 62-64-66-68-70-72 stuðlar í umferð.
Haldið áfram fram og til baka með stuðlum. Þegar stykkið mælist 10-11-12-11-12-11 cm frá öxl, byrjar útaukning í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju 3-2-1-1-1-1 sinnum, 3 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 5-6-7-7-11-13 lykkjur 1 sinni = 78-86-94-102-112-124 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með stuðlum þar til stykkið mælist alls 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn frá og festið.

BAKSTYKKI:
Hægri öxl:
Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir með stuðlum, klippið þráðinn frá.
Heklið 16-16-16-17-17-18 lausar loftlykkjur (= hálsmál), heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul á öxl – passið uppá að heklað sé frá réttu þannig að önnur hver umferð á öxl verði alveg eins frá réttu og röngu = 31-32-33-34-35-36 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að auka út fyrir handveg, jafnframt þegar stykkið mælist 15 cm, geymið stykkið og heklið vinstri öxl. Heklið síðan vinstri og hægri öxl saman, þannig að það myndist klauf aftan á miðju baki. Lestu næsta kafla áður en þú heklar áfram.

Þegar stykkið mælist 10-11-12-11-12-11 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir handveg í hlið – aukið er út í lok hverrar umferðar frá réttu – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju 3-2-1-1-1-1 sinnum, 3 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 5-6-7-7-11-13 lykkjur 1 sinni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm frá öxl – stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé frá röngu, klippið þráðinn frá. Geymið stykkið. Heklið vinstri öxl.

Vinstri öxl:
Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 3 umferðir með stuðlum, heklið 16-16-16-17-17-18 loftlykkjur í lok 3. umferðar (= hálsmál). Heklið 3 loftlykkjur til að snúa við með og heklið síðan 1 stuðul í hverja lykkju = 31-32-33-34-35-36 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum.
Aukið nú út fyrir ermar alveg eins og á hægri öxl, en aukið er út í lok hverrar umferðar frá röngu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm – stillið af að síðasta umferð sé hekluð frá röngu, heklið vinstri og hægri öxl saman frá réttu þannig:

Heklið eins og áður yfir lykkjur á vinstri öxl, heklið síðan yfir lykkjur frá hægri öxl. Nú er klauf mitt aftan á bakstykki. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum og aukið út fyrir handveg í hvorri hlið. Þegar öll útaukning fyrir handveg hefur verið gerð til loka eru 78-86-94-102-112-124 lykkjur og stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm frá öxl.
Haldið áfram fram og til baka með stuðlum þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn frá og festið.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið hliðarsauma og skiljið eftir smá klauf ca 5 cm í hvorri hlið neðst á toppnum.

ERMI:
Heklið 27-27-29-29-31-31 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Muskat. Snúið og heklið mynstur þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 3 loftlykkjur, A.2 yfir næstu 2 loftlykkjur, A.3 yfir næstu 18-18-20-20-22-22 loftlykkjur, A.2 yfir næstu 2 loftlykkjur, A.4 yfir síðustu 2 loftlykkjur.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka, haldið áfram alveg eins með því að auka út eins og útskýrt er í A.2 (þ.e.a.s. aukið út um 1 stuðlahóp í hverri umferð sem er hekluð) innan við A.1 og A.4 þar til heklaðar hafa verið 8-8-9-9-10-10 umferðir með mynstri og aukið hefur verið út alls 7-7-8-8-9-9 sinnum í hvorri hlið = 25-25-28-28-31-31 stuðlahópar. Heklið síðan A.3 yfir alla loftlykkjuboga og A.1 og A.4 í hvorri hlið eins og áður þar til ermin mælist ca 16-16-17-17-18-18 cm mitt á ermi.
Klippið þráðinn og festið.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Í kringum handveg er heklaður kantur þannig – byrjið mitt undir ermi með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju:
UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* umferðina hringinn – stillið af þannig að heklaður sé fjöldi fastalykkja / loftlykkja sem er deilanlegur með 6, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.
Skiptið ermum meðfram handveg ca 16-16-18-18-19-19 cm niður hvoru megin við axlasauminn. Ermar koma ekki til með að mætast undir ermi. Saumið ermar í við handveg í ystu lykkju. Klippið þráðinn og festið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Í kringum hálsmál er heklaður kantur þannig – byrjið mitt að aftan neðst í klauf og heklið fyrstu umferð frá röngu þannig:
UMFERÐ 1: Heklið1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* 12 sinnum upp meðfram klauf, haldið áfram alveg eins í kringum kant í hálsmáli og heklið alveg eins 12 sinnum niður meðfram hinni hlið á klauf – stillið af þannig að heklaður sé sá fjöldi með fastalykkjum / loftlykkjum sem er deilanlegur með 6, endið með 1 fastalykkju neðst við klauf. Snúið stykkinu og heklið 2. umferð frá réttu.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, * hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur um næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 fastalykkju neðst við klauf.
Saumið nú kant í hálsi neðst við klauf saman þannig:
Leggið vinstri hlið á kanti yfir hægri hlið á kanti og saumið nokkur spor í gegnum bæði lögin þannig að kantarnir festast saman.
Saumið tölur í hægri hlið á klauf. Tölum er hneppt í gegnum loftlykkjuboga í vinstri hlið á kanti.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan eða 1 stuðull í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = 1 stuðull um loftlykkju eða loftlykkjuboga
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur í byrjun á umferð (koma í stað fyrsta stuðul í umferð)
symbols = byrjið á umferð með ör
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Marianne wrote:

Ik snap de mouwen niet, als ik het patroon lees meerder je de stokjesgroep toch aan het begin en eind? Eén toer is toch A1, A2, A3, A2, A4? Ik krijg dubbele meerderingen. Graag een uitgebreidere uitleg.

15.06.2023 - 18:05

country flag Sharon Markwell wrote:

I'm not sure I'm making the sleeves correctly as have not worked from a diagram before. On the second row & other rows, should A3 be worked into every chain space, meaning the one chain space, then the 4 chain space? I've been doing double crochet, 4 chain, double crochet, 1 chain into every chain space and they are extremely frilly. Should I just been working into the 4 chain spaces?

19.04.2023 - 07:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Markwell, yes, from 2nd row you will work the double crochets in the chain-space from previous row, ie on 2nd row in A.3 work (1 dc, 4 ch, 1 dc) around the 4-ch from previous round. Work A.2 the same way, crocheting in the chain space (either around the 4 chains or around the 1 chain for the increases). Happy crocheting!

19.04.2023 - 08:14

country flag DARLENE LAW WATSON wrote:

Trying to make the sleeve. What does the A stand for in the directions?

01.01.2023 - 16:37

DROPS Design answered:

Hi Darlene, The A.1 - A.4 are the numbers of the diagrams at the bottom of the pattern. Happy New Year!

02.01.2023 - 06:47

country flag Dorthe Knight wrote:

Increase 1 stitch 3-2-1-1-1-1 time, 3 stitches 0-1-2-3-3-4 times and 5-6-7-7-11-13 stitches 1 time = 78-86-94-102-112-124 stitches. I don't get the instruction. For which row do I do what?

05.06.2022 - 22:43

DROPS Design answered:

Dear Dorthe, for example, for size XS, you increase 1 stitch 3 times on each side (at the end of the following 6 rows) then 3 stitches 0 times (so we ignore this part) and increase 5 stitches (for size XS) at the end of the next 2 rows. Happy knitting!

06.06.2022 - 13:58

country flag Berit wrote:

Är toppen väldigt töjbar? 47x2=94 cm runtom i storlek L verkar väldigt litet…

23.01.2022 - 21:55

DROPS Design answered:

Hei Berit. Det er nok ikke så veldig tøyelig. Men istedenfor å se på størrelse, se på målskissen og se på de mål som vil passe deg best og hekle etter den størrelsen. mvh DROPS Design

25.01.2022 - 11:44

country flag Toos Van Vught wrote:

Sorry, van die vier lossen snap ik al. (nou ja, Al) Maar ik blijf het een moeilijk patroontje vinden. met groet, Toos

24.06.2021 - 13:54

country flag Toos Van Vught wrote:

Zeer bedankt voor uw reactie. Ondanks deze blijf ik het moeilijk vinden want er staat niet veel meer dan in het patroon. Het meerderen doe je in A2 door twee stokjesgroepen in de middelste 4 lossen te haken schrijft u maar je hebt toch in het patroon geen 4 middelste lossen? verder heb ik de parelmoer knopen gekocht maar ik lees niets over het bevestigen hiervan en over lusjes voor de knopen o.i.d. Graag nog wat uitleg a.u.b. groetend, Toos

24.06.2021 - 13:13

DROPS Design answered:

Dag Toos,

Als je patroon A.2 volgt, dan maak je automatisch meerderingen. Deze zijn al opgenomen in het patroon zelf. In het telpatroon kan je ook zien dat je aan het einde meer steken hebt dan in het begin. Bij de symboolverklaring staat een boogje waar '4 lossen' bij staat. Daar bedoelde ik de 4 lossen mee :)

De knopen worden aan de goede kant van het split genaaid en door de lossenlussen op de linkerkant van de rand geknoopt.

09.07.2021 - 09:38

country flag Toos Van Vught wrote:

Voor-en achterpand heb ik gehaakt maar helaas begrijp ik het patroon van de mouwtjes niet. Er staat bijv. haak A.3 over 20 lossen. Moet dit in de toeren daaronder ook? verder begrijp ik niet hoe ik kan meerderen en het patroon daarbij kan volgen. Hoe kan ik een hele stokjesgroep meerderen? U zou mij een groot plezier doen door dit patroon uitgebreider te beschrijven. Ook wil ik het topje 95-29 maken maar het beschreven Army is nergens te krijgen. Heeft u een suggestie voor een andere garen.

14.06.2021 - 12:10

DROPS Design answered:

Dag Toos,

Na het haken van de ketting van lossen haak je eerst A.1 over de eerste 3 lossen, A.2 over de volgende 2 lossen en dan A.3 over 20 lossen. De eerste toer de toer met de pijl (de streepjes in de eerste toer in het telpatroon zijn de lossen, zodat je kunt zien waar je in moet haken. Het meerderen doe je in A.2 door 2 stokjesgroepen in de middelste 4 lossen te haken.

Het topje van 95-29 wordt met DROPS Paris gehaakt, je zou een ander garen uit categorie C kunnen nemen, bijvoorbeeld DROPS Big Merino of 2 draden uit categorie A, bijvoorbeeld DROPS Safran.

24.06.2021 - 10:05

country flag Lillie Taulbee wrote:

I would love to have this sleeve pattern, I would call it ''Angel wings'', so pretty!

05.02.2021 - 13:08

country flag Sleeping Beauty wrote:

Those sleeves are straight out of a fairytale, so pretty.

15.01.2021 - 03:22