DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lavender Pocket

Prjónuð peysa úr DROPS Air með laskalínu. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni með útaukningu í laskalínu og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-36
DROPS Design: Mynstur ai-328
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-500 g litur 15, fjólublá þoka

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 8 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 178 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 5,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman og prjónið 3 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½ cm frá uppfitjunarkanti. Fellið síðan af fyrir 7 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-8½-8½-9 cm millibili.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 8 lykkjur (= A.1) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 102-102-102-118-118-118 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu og miðju að framan:
Prjónið 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur, A.1 (= 8 lykkjur), 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 16-16-16-24-24-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt.
Haldið svona áfram með stroff, þegar stykkið mælist ca 1½ cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist 4 cm, setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan, í byrjun á umferð mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið þannig – frá réttu: 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið (= kantlykkjur að framan), sléttar lykkjur yfir fyrstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-2-0-2-2 lykkjur ( = 10-12-12-14-16-16 lykkjur), A.1, 10 sléttar lykkjur, A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 18-18-18-26-26-26 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-4-4-0-4-4 lykkjur (= 18-22-22-26-30-30 lykkjur), A.1, 10 sléttar lykkjur, A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-2-0-2-2 lykkjur (= 10-12-12-14-16-16 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt (= kantlykkjur að framan) = 102-110-110-118-126-126.
Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu), alls 18-20-22-25-26-28 sinnum = 246-270-286-318-334-350 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 18-20-22-23-25-27 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu:
Prjónið fyrstu 42-46-48-52-56-59 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 46-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-78-82-90-98-104 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 46-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-46-48-52-56-59 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 166-182-194-210-230-246 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar lykkjur eru auknar út. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-1 = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 12 cm millibili alls 3 sinnum = 178-194-206-222-242-258 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-36-36-35-36-36 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 32-36-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 210-230-246-262-290-306 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið þannig – frá réttu: 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið og endið með 3 lykkjur slétt. Prjónið stroff svona í 6 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 46-50-54-62-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna / sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56-62-70-72-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 27-25-24-21-20-19 cm aukið út um 0-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 52-56-64-72-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Klippið þráðinn frá og festið. Ermin mælist ca 31-29-28-25-24-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Fitjið upp 26-26-28-28-28-28 lykkjur á prjón nr 5,5 með Air. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þar til stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af.
Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið vasana niður á hvort framstykkið, ca 1 cm yfir stroff og mitt á hvoru framstykki – sjá mynd.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag LaureM wrote:

Mea culpa vous pouvez supprimer ma question précédente je suis fatigué et j’avais mal lu ! Par contre il me semble mais a vérifier qu’il y a une erreur dans la version française. Pour le premier rang endroit du col vous finissez par 3 mailles envers et 2 mailles endroits. Ce ne serait pas 3 mailles endroit à la fin plutôt ? Car je suis en taille M donc je monte 102 mailles et en recalculant tout le premier rang je tombe sur 101 mailles. Encore merci

05.06.2023 - 23:34

DROPS Design answered:

C'est exact LaureM, merci pour votre retour, la correction a été faite. Bon tricot!

06.06.2023 - 09:29

country flag LaureM wrote:

Bonjour, tout d’abord un grand merci pour le modèle ! J’ai une question car je ne comprend pas dutout le diagramme du A.1. En lisant vos explications je compte 6 mailles au total et non 8 et je ne vois aucune maille envers travaillée sur l’endroit. Pouvez vous m’éclairer ? Merci

05.06.2023 - 22:11

DROPS Design answered:

Bonjour Laure et merci, le diagramme A.1 se tricote sur 8 mailles ainsi, vu sur l'endroit: 3 m envers, 2 m end, 3 m env; Sur l'envers, tricotez ainsi: 3 m end, 2 m env, 3 m end. Bon tricot!

06.06.2023 - 09:06

country flag Penny Cole wrote:

Where on earth is the sizing chart on this pattern please

30.08.2022 - 13:57

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cole, you will read more about sizes, measurements and chart here. Happy knitting!

30.08.2022 - 15:07

country flag CARMEN CASTILLO wrote:

Canesú, delantero, ¿el raglan empieza con 12 puntos, aumento 22 veces un punto, me da 34 puntos? porque dice 48 puntos delantero (talla L)

02.01.2022 - 19:49

DROPS Design answered:

Hola Carmen, el delantero tiene 40 puntos (incluyendo 3 derechos, 3 reveses). Los diagramas A.1 forman parte de las piezas delantera y espalda. Saludos!

05.01.2022 - 13:02

country flag Josie wrote:

Bonjour. J'ai déjà réalisé un grand nombre de vos modèles. J'attends ma commande de LIMA mais je voudrais juste vous dire que j'aimerais réaliser des modèles sans utiliser d'aiguille circulaire ou double pointes. Pouvez-vous le signaler aux créateurs et créatrices. Merci

03.10.2021 - 01:29

country flag Gitte Christensen wrote:

Hvor meget garn skal der bruge ved Str. XXL

29.09.2021 - 11:56

DROPS Design answered:

Hej Gitte. 450 g DROPS Air till storlek XXL. Mvh DROPS Design

29.09.2021 - 12:02

country flag Eva Bergqvist wrote:

Tack för svar! Nu förstår jag vad jag missat, de 8 maskorna A1. Uppfattade att de var intagningar som jag skulle vänta med till oket. Därför hoppade jag över dem. Gott att få klarhet. Har börjat sticka koftan utifrån ett annat mönster som jag inte blir förvirrad av. Men bra att få veta hur jag tänkte fel. Med vänlig hälsning, Eva

25.04.2021 - 11:50

country flag Eva Bergqvist wrote:

Täck för svar. Jo, jag vet vad** betyder. Men har du räknat på mönstret för halskantens maskor. Jag har lagt upp 118 maskor. Men stickar jag halskantsmönstret, har också räknat ihop mönstret flera gånger. Varje gång blir resultatet 98, det fattas alltså mönster för 20 maskor. Hur stickar jag dessa? Med vänlig hälsning, Eva

20.04.2021 - 21:17

DROPS Design answered:

Hej Eva. Du stickar halskanten såhär i storlek XL: 3 rm, 3 am, 2 rm, 12m (resårstickning), A1 (= 8 m), 2rm, 2 am, 2 rm, 2 am, 2 rm, A1 (= 8 m), 24 m (resårstickning), 2 rm, A1 (= 8 m), 2rm, 2 am, 2 rm, 2 am, 2 rm, A1 (= 8 m), 12 m (resårstickning), 2 rm, 3 am, 3 rm = 118 m. Mvh DROPS Design

21.04.2021 - 08:34

country flag Eva Bergqvist wrote:

Försöker sticka ”Lavender Pocket” i xl. Fastnar redan i halskanten. 118 maskor. Men det fungerar inte med beskrivningen. Blir flera maskor över. Och när skall jag öka (A1) efter 8 maskor eller vad menas?

19.04.2021 - 23:02

DROPS Design answered:

Hej Eva. Har du sett att vissa delar står inom stjärnor och att de delarna då ska stickas över det antal maskor som uppges efter? Om du gör det så stämmer antalet maskor i halskanten. Ökningarna börjar sedan under OK där du först ökar på vissa slätstickade delar och sedan börjar ökningen till RAGLAN. Mvh DROPS Design

20.04.2021 - 07:20

country flag Ulla Fosgerau Salomonsen wrote:

Jeg vil foreslå "Spring Blazer."

09.01.2021 - 16:14