DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1424
DROPS Design: Mynstur w-732
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál: ca 9 cm að þvermáli

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50 g litur 17, natur
50 g litur 24, dökk grár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 fastalykkjur og 20 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

FYLGIHLUTIR: E.t.v. smá vatt í fyllingu.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.
Svæði merkt með gráum lit hefur þegar verið heklað, það sýnir bara hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KINDUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er höfuðið heklað með eyru og topp, fætur eru heklaðir hvor fyrir sig og síðan eru öll stykkin hekluð saman. Dindill er heklaður og haldið er áfram á bakhlið á búk. Að lokum er framhliðin og bakhliðin hekluð saman með ullarreifis kanti í kringum kindina.

HÖFUÐ MEÐ EYRU OG TOPP (A.1):
Stykkið er heklað í hring frá miðju á höfði og út. Höfuð og eyru eru heklað með litnumdökk grár og toppurinn er heklaður með litnum natur.
Byrjið með heklunál 4 með litnum dökk grár. Heklið A.1, þegar þráðurinn er klipptur frá er skipt yfir í litninn natur þegar byrjað er á toppnum. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 er lokið, klippið frá og festið enda.
Saumið augu og nef um 3. umferðina þannig: Saumið 2 franska hnúta fyrir augu – sjá mynsturteikningu A.8 og saumið 2 spor fyrir munn með litnum natur – sjá mynd. Geymið stykkið.

FÓTUR (A.2):
Heklið 1 fót eftir mynsturteikningu A.2 með litnum dökk grár. Klippið frá og festið enda. Heklið annan fót til viðbótar á sama hátt og geymið stykkið, stykkin eru hekluð saman við afganginn síðar.

FÆTUR HEKLAÐIR SAMAN (A.3):
Heklið nú umferð með litnum dökk grár á bakhlið á höfði jafnframt eru fæturnir festir í þessari umferð þannig:
Heklið A.3 í aftari lykkjubogana á 3. umferð af A.1 með litnum dökk grár – lesið MYNSTUR, jafnframt er hvor fótur festur jafnóðum – sjá svartan ferning í A.3 fyrir staðsetningu.

FRAMHLIÐ Á BÚK (A.4):
Heklið A.4 með litnum natur um síðustu umferð í A.3, klippið síðan frá og festið enda.
Geymið stykkið.

BAKHLIÐ Á BÚK MEÐ DINDIL (A.5/A.6):
Heklið fyrst dindil, síðan er búkurinn heklaður áfram í kringum dindil með litnum natur þannig:
Byrjið með heklunál 4. Heklið A.5 (= dindill), heklið síðan A.6 í og í kringum fyrstu lykkju á dindli, með dindil í miðju. Haldið áfram þar til A.6 er lokið. Klippið frá og festið enda.

ULLARREIFI Í KRINGUM KIND (A.7):
Heklið nú framhlið og bakhlið saman með litnum natur þannig:
Leggið framhlið og bakhlið saman – ranga á móti röngu. Ef óskað er eftir að setja smá fyllingu er það gert með vatti núna. Heklið síðan frá framhlið með byrjun frá loftlykkju mitt ofan á toppi á framhlið/bakhlið á búk þannig:
Heklið A.7 í gegnum bæði lögin – umferðin byrjar við demants tákn. ATH: Heklið frá framhlið á fæti, fætur eiga að hanga út þar sem merkt er með svörtum ferning í mynsturteikningu. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = byrjið hér að hekla 1 loftlykkju (næsta lykkja er bogalaga tákn), 1. umferð er hekluð í kringum þessa loftlykkju
symbols = keðjulykkja
symbols = keðjulykkja í aftari lykkjuboga á lykkju
symbols = loftlykkja
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = 2 fastalykkjur í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = fastalykkja í fremri lykkjuboga á lykkju
symbols = hálfur stuðull í lykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkjuboga
symbols = byrjið hér
symbols = festið þráðinn með 1 keðjulykkju og byrjið umferð með 1 loftlykkju. Umferð endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = festið þráðinn með 1 keðjulykkju og byrjið umferð með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = Demants tákn: Umferðin byrjar með 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju. Umferðin endar með 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju, heklið 20 loftlykkjur fyrir lykkju og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð
symbols = 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju
symbols = Fóturinn er heklaður jafnóðum með í þennan loftlykkjuboga, þ.e.a.s. þessi loftlykkjubogi er heklaður þannig: Heklið 1 loftlykkju, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju í A.2 (fótur), heklið 1 loftlykkju
symbols = Dindill: Byrjið með loftlykkjurnar. Þegar A.5 hefur verið heklað til loka er A.6 heklað (dindill er hringlaga tákn í miðju á A.6), næsta lykkja er bogalaga tákn. Fyrsta umferð með fastalykkjum er hekluð í og í kringum fyrstu loftlykkju á dindli – haldið þess vegna í dindil þegar er í kring
symbols = klippið frá og festið enda
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1424

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Pia Olsen wrote:

Hej. Jeg kan kun se diagram forklaringen, men ikke hverken diagrammet eller tegnene, der passer til forklaringerne, og så er det jo svært at hækle fåret

04.06.2023 - 16:29

DROPS Design answered:

Hei Pia. Sjekk om nettleseren din har lastet ned alt. Det skal være 7 diagram + 1 tegning til denne oppskriften. Alt er OK hos oss. Det er også laget 2 videoer som viser hvordan disse er heklet, scroll nederst på siden. Mvh DROPS Design

05.06.2023 - 08:01

country flag REINE MARIE wrote:

Je vais essayer de passer le fil de coton dans le point mousse des pattes ,je pense que ça devrait marcher voilà je vous dirai si j'ai réussi .

21.04.2023 - 12:01

country flag REINE MARIE wrote:

Bonjour ,merci de votre réponse ça c'est ce que je fais mais comme les pattes n 'ont pas beaucoup d'épaisseur alors cette astuce est pas la meilleure . Je vais essayer autre chose pour le moment je vois pas trop comment faire ,en tout cas je vous remercie de votre réponse .Bonne journée .

21.04.2023 - 11:47

country flag REINE MARIE wrote:

Bonsoir , je fais les pattes de ce mignon petit mouton mais comment arrêter les fils car en les montant au rang (3 ) alors ça ne fait pas joli et tout part car j'ai fais un noeud pour arrêter les fils . Merci de votre réponse .

20.04.2023 - 21:14

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, dans cette vidéo, nous montrons comment rentrer des fils de coton dans un ouvrage au crochet, ceci devrait pouvoir vous aider. Votre magasin a fort probablement d'autres astuces qu'il partagera volontiers avec vous, même par mail ou téléphone. Bon crochet!

21.04.2023 - 08:05

country flag Jeanne Kalcevic wrote:

So very cute and easy to make thank-you

13.01.2023 - 19:19

country flag Ilona Hessner wrote:

Mit Drops Andes habe ich wunderschöne Schals und Stirnbänder gestrickt. Da ich Reste hatte, kam ich auf die Idee, den Wollstrang zu teilen. Die Farben passen zu den Rocking Sheeps - für zwei dürfte es auf jeden Fall reichen. Danke Lanade - die Anleitungen sind einfach SPITZE!

07.11.2018 - 23:28

country flag Ilona Dorn wrote:

Guten Tag, meine Frage bezieht sich nicht auf das Schaf. Ich wollte nur fragen, ob der Osterkalender nicht weiter geht. Ich habe jetzt immer wieder probiert, aber ich sehe nur die ersten vier Tage. Freundliche Grüße, Ilona

19.03.2018 - 20:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Dorn, es sind ja nur 4 Anleitung in dem Osterkalender, in dem Osterworkshop finden Sie aber viel mehr Modellen. Viel Spaß beim stricken!

20.03.2018 - 08:47

country flag Monika Opočenská wrote:

Dobrý den, všimla jsem si, že se vloudila malá chybička a část textu (popisy symbolů) je v angličtině. Můžete to opravit, moc prosím? Určitě chci tu roztomilou ovečku vyrobit :-) Děkuji Monika

15.03.2018 - 11:08

DROPS Design answered:

Dobrý den, Moniko, díky za upozornění - opraveno! Ať se vám hezky háčkuje! Hana

16.03.2018 - 06:46