DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunny Date

Prjónuð peysa með gatamynstri, prjónuð í ferhyrning úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-26
DROPS Design: Mynstur me-102
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
750-800-900 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð þegar prjónað er eftir A.2, A.3 og A.4.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt (lykkja með prjónamerki er í miðju á þessum 3 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í ferhyrning á sokkaprjóna/hringprjóna frá miðju á hrygg og út. Síðan eru framstykkin prjónuð fram og til baka í hvorri hlið. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 12 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjóna 4 með Merino Extra Fine. Prjónið eftir A.1 (= 4 mynstureiningar í umferð) og skiptið yfir á hringprjóna þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 236 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig: * A.2 (= 7 lykkjur), A.3 yfir næstu 48 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig: * A.2 (= 7 lykkjur), A.3 yfir næstu 48 lykkjur (= 8 mynstureiningar á breidd), A.4 yfir næstu 4 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum. ATH! Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Í næstu tveimur síðustu umferðum í A.2, A.3 og A.4 (nú eru 324-372-420 lykkjur í umferð) prjónið þannig: Prjónið fyrstu 83-95-107 lykkjur, fellið af næstu 38-42-46 lykkjur, prjónið næstu 163-191-219 lykkjur, fellið af næstu 38-42-46 lykkjur og prjónið síðustu 2 lykkjur. Í næstu umferð (= síðasta umferð í A.2, A.3 og A.4) eru fitjaðar upp 38-42-46 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af = 332-380-428 lykkjur.

Prjónið síðan þannig: * A.5 (= 5 lykkjur), A.6 yfir næstu 72-84-96 lykkjur (= 6-7-8 mynstureiningar á breidd), A.7 (= 6 lykkjur) *, prjónið *-* alls 4 sinnum. Haldið svona áfram með A.5, A.6 og A.7 þar til mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina = 572-620-668 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur (án útaukninga), síðan eru felldar af fyrstu 143-155-167 lykkjur, setjið næstu 143-155-167 lykkjur á þráð (prjónið þær slétt fyrst), fellið af næstu 143-155-167 lykkjur, haldið eftir síðustu 143-155-167 lykkjum á prjóni, prjónið síðan fram og til baka yfir þessar lykkjur (= hægra framstykki).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka án útaukning í hlið. Prjónið þannig frá réttu: A.8 A (= 4 lykkjur), A.8 B yfir næstu 132-144-156 lykkjur (= 11-12-13 mynstureiningar á breiddina), A.8 C (= 7 lykkjur). Prjónið A.8 1 sinni á hæðina, prjónið síðan A.9 A-C yfir A.8 A-C. Þegar A.9 hefur verið prjónað 6-7-8 sinnum á hæðina er prjónað A.10 A-C yfir A.9 A-C. Fellið af með sléttum lykkjum.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af þræði í annarri hlið á prjóni. Prjónið alveg eins og hægra framstykki, en fyrsta umferð í A.8 hefur nú þegar verið prjónað, byrjið frá röngu í 2. umferð í mynstri.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 48-48-54 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Merino Extra Fine. Prjónið A.11 yfir allar lykkjur. Þegar A.11 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram í sléttprjóni, í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður til 45-49-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 2½-2-2 cm millibili alls 16-18-19 sinnum = 77-85-93 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 41-40-40 cm prjónið A.12 yfir miðju 13 lykkjur í umferð (= mitt ofan á ermi). Fellið af þegar ermin mælist 53-52-52 cm.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermi í. Notið nál til að þræða og draga opið saman við miðju að aftan (= uppfitjunarkantur).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.05.2017
Smá leiðrétting í mynsturteikningu A.8
Yfirfarið á vefsvæði: 13.03.2023
BAKSTYKKI:...ATH! Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Í næstu tveimur síðustu umferðum í A.2, A.3 og A.4 (nú eru 324-372-420 lykkjur í umferð) prjónið þannig:

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður sllétt (það eiga að myndast göt)
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Mette Eriksen-Vik wrote:

Hei! Jeg finner ikke A8, A9 og A10

18.12.2019 - 12:14

DROPS Design answered:

Hej Mette, det ligger i nederste højre hjørne, lige over måleskitsen. God fornøjelse!

15.01.2020 - 11:46

country flag Birgit wrote:

Hallo, gibt es eine Möglichkeit einen Verschluss (Bindeband?) an der Jacke zu befestigen?

09.06.2019 - 06:59

DROPS Design answered:

Liebe Birgit, die Jacke können Sie am besten mit einer Nadel oder Brosche zusammenhalten. Viel spaß beim stricken!

11.06.2019 - 10:56

country flag Aurelie PRUDENT wrote:

Bonjour, Qu'est ce que des aiguilles doubles? Combien de pelotes pour la taille S/M svp? Merci pour votre retour et bonne journée !

09.04.2019 - 12:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Aurelie PRUDENT! Les aiguilles doubles pointes (5 aiguilles au total) sont les aiguilles pour tricoter en rond, mais surtout des petits ouvrages (ex. chausettes). Pour la taille S/M il vous faut 15 pelotes de DROPS MERINO EXTRA FINE. Bon tricot!

09.04.2019 - 13:22

country flag Elodie wrote:

Bonjour, Faut-il bien tricoter 4 fois les diagrammes A2 à A4 (après A1), car cela n'est pas flagrant sur les photos du modèle. Merci!

22.03.2019 - 05:56

DROPS Design answered:

Bonjour Elodie! Continuer ainsi: *A.2 (= 7 mailles), A.3 au-dessus des 48 mailles suivantes (= 8 fois en largeur), A.4 au-dessus des 4 mailles suivantes*, tricoter de *-* 4 fois au total > cela veut dire que vous tricotez les diagrammes A2 à A4 quatre fois en largueur (parce que vous travaillez le carre). Bon tricot!

22.03.2019 - 07:38

country flag Karin wrote:

Meiner Meinung nach ist das Diagramm A8, A9 und A10 für Stricken in Runden gezeichnet. Für Stricken in Hin und Rückreihen muss man die Rückreihe dementsprechend anders stricken. Laut Foto sehe ich es als glatt rechts gestrickt.

23.01.2019 - 19:26

DROPS Design answered:

Liebe Karin, alle Diagramme zeigen alle Reihen (= Hin- sowie Rückreihen) in A.9 werden die leere Kästchen glatt rechts gestrickt. Die 2 ersten und 2 letzten Maschen sind kraus rechts gestrickt: rechts bei den HInreihen sowie bei den Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!

24.01.2019 - 10:44

country flag Karin wrote:

Bei den Vorderteil Muster A8 A9 und A10 sind das Hin u. Rückreihen im Musterdiagramm? Laut Foto der Jacke sieht es aus wie nur Hinreihen. Kann mir da jemand was dazu sagen?

21.01.2019 - 17:52

DROPS Design answered:

Liebe Karin, alle Reihen sind im Diagram gezeigt, dh die Hin sowie die Rückreihen. Diagramme lesen Sie von der unteren rechten Ecke rechts nach links bei den Hinreihen und links nach rechts bei den Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!

22.01.2019 - 07:56

country flag Camilla Phersson wrote:

Hej! när man stickar i large ska man sticka diagram 2,3och 4 4gånger. Det blir 16varv för mig Då stämmer inte Bilden man ser innan man avmaskar för ärmen. Det är inte hela diagrammet. Tänker jag fel?

17.07.2018 - 21:53

DROPS Design answered:

Hei Camilla. Diagram A.2, A.3 og A.4 for størrelse L har 23 omganger. Det felles til ermer på den nest siste omgang (= omgang 22), og på den siste omgangen legges det opp nye masker over. Du skal sette ermet inn i dette hullet under montering. De maskene som legges opp på den siste omgangen av M.2, M.3 og M.4 havner derfor på framsiden av jakken i forhold til ermet. God fornøyelse

19.07.2018 - 15:17

country flag Annelies wrote:

Bedankt voor het snelle antwoord, maar ik begrijp het niet zo goed. Dus ik moet geen teruggaande naald breien? Bij A.1 wilt dit dan zeggen dat ik na dat ik 1 rechts gebreidt heb naar de volgende rij op het telpatroon moet gaan? Dus 3 rechts ipv 6 recht (3x teruggaande naald)

13.04.2018 - 10:17

DROPS Design answered:

Dag Annelies, Alle naalden die je breit staan in het telpatroon aangegeven, dus je slaat niks over. Nadat je naald 1 (= 3 steken) van telpatroon A.3 hebt gebreid, brei je naald 2 (=3 steken) en zo ga je verder in de hoogte met het telpatroon. Telpatroon A.1 brei je 4 keer in de rondte, dus je herhaalt het patroon in de breedte (3 steken x 4 = de 12 steken die je hebt opgezet) en omdat je in de rondte aan het breien bent, brei je steeds op de goede kant van het werk.

16.04.2018 - 10:08

country flag Annelies wrote:

Hallo, ik ben begonnen met deze trui te breien en als beginster vraag ik me af hoe ik het telpatroon moet lezen. Bij a1 is dit dan 3 rijen rechts zoals het er staat? Of moet ik 6 rijen rechts breien omdat je nog eens terug moet? Mvg Annelies

11.04.2018 - 15:29

DROPS Design answered:

Hallo Annelies, In de telpatronen zijn altijd alle naalden aangegeven, dus de zowel de heengaande als de teruggaande naald. (Bij rondbreien heb je geen teruggaande naald :) )

12.04.2018 - 07:11

country flag Phëadra wrote:

Hallo, ik ben begonnen met deze trui te breien. Het is de eerste keer dat ik met naalden zonder kop brei, mijn vraag is nu ivm het telpatroon A.1 hoe ik de teruggaande naald moet breien? Is dit recht of averecht? Telt de teruggaande naald als 2 rij op het telpatroon of nog steeds in dezelfde? Alvast bedankt!

06.04.2018 - 19:37

DROPS Design answered:

Hallo Phëadra, In de telpatronen zijn altijd alle naalden weergegeven. De 'teruuggaande' naald brei je recht op de goede kant en averecht op de verkeerde kant (zodat er tricotsteek ontstaat op de goede kant).

08.04.2018 - 18:32