DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Maren

Prjónuð peysa með gatamynstri og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-27
DROPS Design: Mynstur cm-066
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 + 1 lykkja með sléttprjóni í hvorri hlið (hvoru megin við 21 lykkju). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. ATH: Misjafnt er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚRTAKA:
Lykkjum er fækkað undir ermi þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki) takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjum færri).

ÚTAUKNING (á við um útaukningu á hliðum á fram- og bakstykki):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett í miðju lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 102-102-102-102-106-106 lykkjur á hringprjóna 4 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 116-116-116-116-120-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig:
Sláið uppá prjóninn, 15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= vinstri ermi), 1 lykkja sléttprjón, A.1 (= 19 lykkjur), 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1-1-1-1-3-3 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón (= framstykki), sláið uppá prjóninn, 15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= hægri ermi), 1 lykkja sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1-1-1-1-3-3 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón (= bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA er nú lokið. Haldið áfram með þessa skiptingu með mynstri og sléttprjóni. Aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er frá að ofan.
ATH: Aukið er út mismunandi á berustykki og ermum þannig:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út um 4 lykkju í hverri umferð alls 0-0-0-5-10-16 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 18-22-30-30-30-30 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð alls 4-4-0-0-0-0 sinnum.

ERMAR:
Aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð alls 0-0-2-1-0-0 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 20-24-29-32-35-35 og að lokum í 4. hverri umferð alls 3-3-0-0-0-2 sinnum.

Eftir allar útaukningar eru 296-328-360-388-420-452 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 22-24-25-27-29-31 cm frá öxl (19-21-22-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti). Prjónið nú þannig: Fitjið upp 7 nýjar lykkjur á prjóninn (setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna), setjið fyrstu 61-69-77-81-85-89 lykkjurnar á þráð (= ermi), prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður yfir næstu 87-95-103-113-125-137 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 61-69-77-81-85-89 lykkjur á þráð, fitjið upp 7 nýjar lykkjur undir ermi, (setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna), prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður yfir þær 87-95-103-113-125-137 lykkjur sem eftir eru (= framstykki. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 188-204-220-240-264-288 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og sléttprjón eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri), útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið síðan út með 4 cm millibili alls 7 sinnum = 216-232-248-268-292-316 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón og A.1 þar til stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm, passið uppá að næsta umferð sé síðasta umferðin í A.1. Prjónið síðustu umferðina í A.1, JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn milli A.1 og A.1 í miðju á framstykki og miðju á bakstykki er jafnaður út til 47-59-71-71-83-95 lykkjur (= alls 220-240-264-264-288-312 lykkjur).
Prjónið síðan þannig – frá byrjun á umferð: A.2 (= 11 lykkjur), 1 l br, A.2, A.1 eins og áður, * A.2, 1 l br *, prjónið frá *-* alls 3-4-5-5-6-7 sinnum, A.2, A.1 eins og áður, A.2, 1 l br, A.2, A.1 eins og áður, *A.2, 1 l br *, prjónið *-* alls 3-4-5-5-6-7 sinnum, A.2, A.1 eins og áður. Prjónið A.1/A.2 1 sinnum á hæðina, prjónið síðan 2 umferðir garðaprjón áður en fellt er af.

ERMI:
Setjið til baka lykkjur af þræði á stutta hringprjóna/sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 7 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi- HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Prjónið sléttprjón í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA.
Endurtakið úrtöku með 3-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 13-16-19-20-21-22 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 42-44-46-48-50-52 lykkjur eftir á prjóni. Þegar ermin mælist 42-41-41-40-38-37 cm stillist lykkjufjöldinn til 48 lykkjur í öllum stærðum. Prjónið síðan þannig: * A.2, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* alls 4 sinnum. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón, fellið síðan af. Ermin mælist alls ca 46-45-45-44-42-41 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.02.2017
ÚTAUKNING hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Susi wrote:

Der Pulli hat doch keinen V- Ausschnitt, wie oben angegeben ? Das ist doch ganz klar ein Rundhals? Schade, denn ich suchte eine Anleitung für einen V- Ausschnitt mit Raglan von oben. :-(

12.03.2023 - 10:25

DROPS Design answered:

Liebe Susi, danke für den Hinweis, Halsausschnitt ist jetzt korrigiert - hier finden Sie unsere Pullover von oben nach unten mit V-Ausschnitt. Viel Spaß beim stricken!

13.03.2023 - 09:43

country flag Gaye wrote:

Hi, I really love this pattern but the small size is too big. I would be an XS, would I be able to use a smaller needle to get this size?

04.11.2022 - 19:25

DROPS Design answered:

Dear Gaye, using a smaller needle may not be enough to get the size you want. You need to use a rule-of-three to calculate the stitches needed for your measurements, according to your gauge and adapt the pattern to the new calculations and measurements. You can see how to calculate a pattern here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=19. Happy knitting!

07.11.2022 - 00:40

country flag Magda Jensen wrote:

Udtagninger f.eks. Ærme - er det= omslag i begge sider + 4 m (i alt 6 m)? Og er det det samme med forstykke/bagstykke (mellem de 2 mønstre)? F.eks. Skal der på ryg/forstykke udtages (30gange x 4+2m =180 m), under ryg&forstykke står at der er 220m og under ærmer står der 360m . Vil det sige at der efter udtagninger er 580 m??Kan man ikke oplyse maskeantal på henholdsvis ærme og bagstykke/forstykke efter udtagninger?

12.06.2022 - 12:15

DROPS Design answered:

Hej Magda, Hvilken størrelse strikker du? Hvor langt er du kommet i opskriften? Hvad er dit spørgsmål?

17.06.2022 - 09:09

country flag Anne wrote:

Hi, I’m having trouble with the increases on yoke. The first row given says first increase for raglan is done (8 stitches increased) does this first row also show sleeve and front/back increases? If it does not, how do I knit the sleeve and front/back increases ? Thanks for your help

06.03.2022 - 11:23

DROPS Design answered:

Dear Anne, in the raglan you have all of the increases (sleeve/ front/ back) and are each marked and explained in the pattern. Happy knitting!

06.03.2022 - 13:52

country flag Nelleke wrote:

Meerderen ? VOORPAND EN ACHTERPAND: Meerder 4 steken elke nld 0-0-0-5-10-16 keer in totaal, dan om de naald 18-22-30-30-30-30 keer in totaal en tot slot elke 4e nld 4-4-0-0-0-0 keer in totaal. Wanneer begin je met meerderen bij maat M . Zijn de meerderingen meegenomen in het patroon A1? Ik begrijp niet waar ik met meerderen begin na de 1 e naald van patroon A1.

13.02.2022 - 17:57

DROPS Design answered:

Dag Nelleke,

Omdat je maat M breit kun je gelijk beginnen met om de naald meerderen, want bij elke naald staat 0 keer. De meerderingen staan niet in het telpatroon, de steken van het telpatroon blijven steeds hetzelfde en je meerdert voor de raglan steeds aan elke kant van A.1

17.02.2022 - 11:34

country flag Sandra wrote:

Scusate, ma dove si mettono i marcapunti per determinare gli aumenti del raglan per le maniche? Sembra ci siano solo 4 aumenti ai lati delle 15 m delle maniche (1gett, 15m, 1gett). Gli altri 4 sono i gettati centrali tra i due motivi di 19+2m sia davanti che dietro? O non ho capito nulla? la spiegazione mi sembra un po' confusionaria... forse dipende dalla traduzione...

12.01.2021 - 09:48

DROPS Design answered:

Buongiorno Sandra, in questo modello non è previsto l'inserimento di segnapunti per gli aumenti, ma può inserirli seguendo la divisione indicata nel modello: le varie parti sono indicate tra le parentesi. Buon lavoro!

12.01.2021 - 10:02

country flag Marcia wrote:

I understand that I need to increase 8 stitches for the A.1 sections. Do I also need to increase for the sleeves?

09.07.2019 - 17:25

DROPS Design answered:

Dear Marcia, you increase for raglan before 1 st + A.1 and/or after A.1 + 1 stitch - see RAGLAN. Depending on your size you will increase a different way on sleeve and body, you then increase 1 stitch at the beginning of body/sleeve after 1 st after A.1 and increase at the end of body/sleeve before 1 st before A.1, you will increase either 4 sts or 8 sts on each increase round. Happy knitting!

10.07.2019 - 09:04

country flag Marcia wrote:

Hi. I'm making the XL size. For the increases in the yoke...if I increase on both sides of each A.1 pattern and there are 2 patterns on the front and 2 on the back, that makes 8 stitches. I also increase 4 stitches for the sleeves (every other round). Is this right? Thanks.

09.07.2019 - 06:54

DROPS Design answered:

Hi Marcia, A total of 8 stitches are increased on each increase-round for raglan, so you need to increase on the first side of the first A.1 and the far side of the second A.1 on both front and back pieces. Happy knitting!

09.07.2019 - 07:27

country flag Anne wrote:

A general comment on patterns: it would be so helpful if the diagram explanations appeared on the same page as their diagrams when the pattern is printed.

03.05.2019 - 12:09

country flag Marcia wrote:

I'm trying to figure out the right size. How much ease is there in the bust?

13.04.2019 - 19:56

DROPS Design answered:

Dear Marcia, if you're in doubt, you should always choose the largest size. You can also take as a reference the measurements in the diagram.

14.04.2019 - 11:07