DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Passing Storm

Prjónað poncho og eyrnaband með gatamynstri, prjónað á ská úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-34
DROPS Design: Mynstur nr co-047
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

PONCHO:
Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
200-250-300 g litur nr 04, milligrár

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio
250-300-350 g litur nr 04, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með mynsturprjóni verði 10 x 10 cm.

EYRNABAND:
Stærð: S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 - 58/60 cm

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
50-50-50 g litur nr 04, milligrár

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio
100-100-100 g litur nr 04, milligrár

DROPS PRJÓNAR NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með mynsturprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR:
1. umferð byrjar frá neðri kanti.
UMFERÐ 1-2: Prjónið að 1. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 3-4: Prjónið 2 umf yfir allar l.
UMFERÐ 5-6: Prjónið að 2. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 7-8: Prjónið 2 umf yfir allar l.
UMFERÐ 9-10: Prjónið að 3. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 11-12: Prjónið 2 umf yfir allar l.
UMFERÐ 13-14: Prjónið að 3. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 15-16: Prjónið 2 umf yfir allar l.
STL L/XL- XXL/XXXL ( UMFERÐ 17-18): Prjónið að 2. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka.
Endurtakið umf 1 til 16-18-18.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. Stykkið er prjónað frá hlið og saumað saman í lokin.

PONCHO:
Fitjið LAUST upp 44-48-56 l á hringprjóna nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l. Snúið við, setjið síðan 3 prjónamerki í stykkið frá neðri kanti þannig (án þess að prjóna):
1. prjónamerki eftir 16-18-28 l,
2. prjónamerki eftir næstu 12-13-12 l,
3. prjónamerki eftir næstu 10-11-10 l, nú eru 6 l á eftir síðasta prjónamerki.
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð), * A.2, A.3 *, endurtakið frá *-* 1-1-2 sinnum til viðbótar, A.2, A.1, endið með 6 l garðaprjón (= hálsmál) – JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 2 umf með mynstri eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist ca 68-74-84 cm við hálsmál og ca 139-167-191 cm neðst niðri – stillið af eftir eina heila eða hálfa mynstureiningu af A.2 á hæðina (= umf 10 eða síðasta umf), fellið LAUST af.

FRÁGANGUR:
Saumið uppfitjunarkant og affellingarkantinn kant í kant – saumið í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur.

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

EYRNABAND:
Fitjið upp 12 l á prjóna nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið frá réttu þannig: 2 l garðaprjón, A.2 (byrjið á 2. umf í mynstri), endið með 2 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 48-50-52 cm – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 2 umf garðaprjón. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið uppfitjunarkant og affellingarkantinn kant í kant – saumið í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Mette Laszkiewicz wrote:

Do you count the 6 neck garter stiches and the 2 bottom garder stiches into your work? That is do you ever do short rows over the garter stiches ?

11.09.2022 - 19:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Laszkiewicz, when inserting the markers you should count all stitches - then when working short rows, just turn where you inserted the markers. Happy knitting!

12.09.2022 - 11:18

country flag Vella wrote:

Bonjour Je ne suis pas sûre de bien avoir placé les 3 marqueurs. Sur les 2 premiers rgs raccourcis on doit tricoter jusqu'au 1er marqueur soit 16 mailles pour moi y compris les 6 mailles d'encolure. Est-ce exact ? À quoi correspondent les 6 mailles après le 3ème marqueur ? Merci

14.01.2022 - 16:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vella, les marqueurs sont placés sur l'endroit, autrement dit le 1er marqueur se trouve à 16 mailles (1ère taille) du bas, et le dernier à 6 mailles du haut (côté encolure). Vous allez tricoter davantage de rangs sur le bas du poncho: en commençant sur l'endroit, tricotez 16 mailles, tournez et tricotez ces 16 mailles sur l'envers, tricotez 2 rangs sur toutes les mailles, etc.. Bon tricot!

14.01.2022 - 16:53

country flag Vella Chantal wrote:

Bonjour, Quand faut-il commencer le 1er rang raccourci ? au 3ème rang du travail depuis le montage ou au 4è rang ? Si je comprends bien : Le 1er rang du travail = les 44 m endroit. Le 2ème rang du travail = 1er rang des diagrammes sur les 44 m Et après on commence les rangs raccourcis (le 3ème rg) mais alors pourquoi faut il 2 rangs de diagrammes ? Merci

10.01.2022 - 18:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vellal, tricotez d'abord 2 rangs des différents points (point mousse, A.1, A.2, A.3) sur toutes les mailles et commencez les rangs raccourcis au rang suivant. La séquence des rangs raccourcis se termine toujours par 2 rangs sur toutes les mailles, on va donc commencer ainsi. Bon tricot!

11.01.2022 - 08:47

country flag Vella Chantal wrote:

Bonjour, Quand on fait les rangs raccourcis et qu'on retourne le travail pour le rang suivant, faut-il emballer la maille voisine avant de tourner ou faut-il ne rien faire pour laisser le jour se faire au moment où on tourne le travail ? Merci

11.11.2021 - 20:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vella, c'est une question de choix, la maille n'a pas été emballée dans le modèle où c'est la technique de base des rangs raccourcis qui a été utilisée, mais libre à vous de les emballer si vous préférez. Bon tricot!

12.11.2021 - 07:40

country flag Monica wrote:

Buongiorno... Volevo gentilmente chiedere, quando dice " allo stesso tempo, dopo aver lavorato due ferri del motivo, lavorare a ferri accorciati". I due ferri del motivo sono i primi ferri del diagramma A.2? Grazie mille e buona giornata. 😊

24.03.2021 - 05:46

DROPS Design answered:

Buonasera Monica, per "due ferri" si fa riferimento alla lavorazione dei motivi come stabilito. Buon lavoro!

24.03.2021 - 20:05

country flag Rosa wrote:

Me encanta este patrón, y llevo varios dias intentando hacerlo y no soy capaz. No entiendo el patrón. Por favor como y de q manera se introducen las vueltas cortas? A que se refieten con la expresion "orilla inferior" cuando se comienzan las vueltas cortas , cual es el primer marcador? Perdonen q me extienda tanto , pero es q de verdad q esta complicado. Gracias por su atención.

13.03.2020 - 21:18

DROPS Design answered:

Hola Rosa. Bajo el patrón tienes la selección de vídeos que te puede ayudar a elaborar la prenda. También puedes consultar con las tiendas de Drops más cercanas por teléfono o email para obtener ayuda especializada.

15.03.2020 - 22:01

country flag Martine wrote:

Le schéma A2 à 20 rang, mais l'on doit faire de 1 à 18... Comment peut on faire le dessin au complet si on arrête à 18 ( je fais le L/XL)

01.03.2020 - 17:25

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, les rangs raccourcis se tricotent indépendamment des rangs du point ajouré, autrement dit, tricotez A.2 sur les mailles concernées, au rang suivant concerné par le motif, chaque A.2 ne va pas "augmenter" en même temps, notez bien à quel rang vous en êtes de chaque A.2 pour bien répéter les motifs en hauteur sur le bon nombre de rangs. Bon tricot!

02.03.2020 - 10:47

country flag Daguenet wrote:

Bonjour , je suis les instructions du modèle , j'ai placé mes marqueurs , je fais mes 2 rangs qui corresponds au point mousse et je commence le diagramme qui se termine par les 6 m points mousse après il y a écrit EN MËME TEMPS quand 2 rangs points fantaisie ont été tricotés ,tricoter rangs raccourcis . cela veut dire de faire le diagramme et le rangs raccourcis en même temps ? comment on peux suivre 2 choses ? et quelle est se points fantaisie ? merci

04.01.2020 - 16:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Daguenet, les rangs raccourcis vont vous permettre d'obtenir la forme souhaitée = plus de rangs en bas (bas du poncho) et moins de rangs (côté encolure); les différents diagrammes vont être ainsi tricotés à un rythme différent en fonction des rangs raccourcis, mais ils doivent être tricotés comme dans le diagramme (chaque A.2 doit faire 20 rangs en hauteur, même si vous ne le tricotez pas à chaque fois). Bon tricot!

06.01.2020 - 07:54

country flag Christine wrote:

Aber dann ist man doch in den verkürzten Reihen weiter als beim Rest, oder habe ich da einen Denkfehler?

02.01.2019 - 15:46

DROPS Design answered:

Liebe Christine, also ja, Sie stricken Diagram weiter über die gestrickten Maschen aber die unterschiedlichen A.2 in der Breite werden einen unterschiedlichen Anzahl in der Höhe wiederholt (= mehr am Anfang der Reihen, wo man mehr Reihen strickt = untereren Rand als oben am Hals). Viel Spaß beim stricken!

02.01.2019 - 15:52

country flag Christine wrote:

Hallo, wie verhält es sich mit dem Muster in den verkürzten Reihen? Das verschiebt sich,oder ? Bitte um Hilfe !!!

02.01.2019 - 14:29

DROPS Design answered:

Liebe Christine, das Muster stricken Sie über die gestrickten Maschen in den verkürzten Reihen, dh einfach das Muster weiterstricken, wenn Sie die Maschen in A.2 stricken. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2019 - 15:05