DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8712.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Clarice

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk í garðaprjóni, vösum og kraga. Stærð S-XXXL.

DROPS 173-30
DROPS Design: Mynstur nr ab-064
Garnflokkur C + C eða E
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 g litur nr 5110, ljós grár
Og einnig:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
150-175-200-200-225-250 g litur nr 02, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA Bogalaga (hvít), NR 540, 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8712.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónaðar eru stuttar umferðir yfir l í kanti að framan, svo að hann dragist ekki saman á hæðina. Prjónið frá réttu í 10. hverri umf þannig: Prjónið sl yfir allar l í kanti að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka, snúið við og prjónið yfir allar l eins og áður. ATH! Þegar stuttar umferðir eru prjónaðar yfir vinstri kant að framan, er byrjað frá röngu.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á hægra framstykki (þ.e.a.s. á eftir kant að framan) þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á vinstra framstykki (þ.e.a.s. á undan kant að framan) þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan kanti að framan, prjónið 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið út um 1 l á hægri kant að framan þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir í kanti að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu l í kanti að framan.
Aukið út um 1 l í vinstri kanti að framan þannig: Prjónið 1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þær l sem eftir eru í kanti að framan.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 28 og 36 cm.
STÆRÐ M: 30 og 38 cm.
STÆRÐ L: 32 og 40 cm.
STÆRÐ XL: 34 og 42 cm.
STÆRÐ XXL: 36 og 44 cm.
STÆRÐ XXXL: 38 og 46 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og er saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 58-60-66-72-78-84 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með 1 þræði Alpaca Bouclé og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 5 cm. Í næstu umf frá réttu er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fitjið upp nýja l í lok hverrar umf fyrir ermi þannig: 3 l, 2 sinnum, 4 l 1 sinni og 16-16-14-12-10-9 l 1 sinni (= 26-26-24-22-20-19 l fleiri fyrir ermi í hvorri hlið) = 110-112-114-116-118-122 l. Haldið nú áfram í sléttprjón með 4 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur á ermi). Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l í næstu umf frá hálsi = 49-50-51-51-52-54 l. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm prjónið næstu umf frá réttu 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af með sl. Prjónið hina öxlina alveg eins.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 37-38-41-44-47-50 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjóna nr 8 með 1 þræði Alpaca Bouclé og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 5 cm. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 8 kantlykkjur í garðaprjóni, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l í kanti að framan. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm aukið út um 1 l garðaprjón í kanti að framan – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 8 sinnum (= 16 l í kanti að framan), JAFNFRAMT er fækkað um l í sléttprjóni innan við kant að framan, fitjið upp nýjar l fyrir ermi og fellið af fyrir opi í kraga þannig:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

ERMI: Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fitjið upp nýjar l í lok hverrar umf frá réttu þannig: 3 l 2 sinnum, 4 l 1 sinni og 16-16-14-12-10-9 l 1 sinni (= 26-26-24-22-20-19 l fleiri fyrir ermi). Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni með 4 l garðaprjón í lokin (= kantur á ermi).
ÚRTAKA INNAN VIÐ KANT AÐ FRAMAN:
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fækkið um 1 l sléttprjón innan við kant að framan – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 6-6-6-7-7-7 sinnum.
KRAGI: Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm prjónið frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 8 l, prjónið þær l sem eftir eru. Snúið við og prjónið til baka, í lok umf eru fitjaðar upp 6 nýjar l (= 14 l fyrir kraga).

Þegar allar útaukningar og úrtökur hafa verið gerðar eru 63-64-65-65-66-68 l á prjóni. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Prjónið nú 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið fyrstu 14 l, fellið af þær 49-50-51-51-52-54 l sem eftir eru fyrir öxl/ermi. Klippið frá.
Prjónið nú kraga þannig: Byrjið frá röngu og prjónið yfir allar 14 l, * snúið við og prjónið 8 l til baka, snúið við, prjónið til baka, snúið við, prjónið yfir allar l, snúið við og prjónið yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 8-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI
Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki. ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum á vinstri kant að framan. Fitjið upp nýjar l fyrir ermi í lok umf frá röngu. Þegar fellt er af fyrir opi í kraga er prjónað frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 8 l, prjónið þær l sem eftir eru. Snúið við og prjónið til baka, í lok umf eru fitjaðar upp 6 nýjar l (= 14 l fyrir kraga).
Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Prjónið síðan frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 49-50-51-51-52-54 l, prjónið síðan þær 14 l sem eftir eru í kant að framan. Snúið við og prjónið stuttar umf yfir kant að framan þannig:
Byrjið frá röngu og prjónið til baka yfir allar 14 l, snúið við og prjónið yfir allar l, * snúið við og prjónið 8 l til baka, snúið við, prjónið til baka, snúið við, prjónið yfir allar l, snúið við og prjónið yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 8-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið við kant í hálsi. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Klippið frá og festið enda.

VASAR:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið LAUST upp 20 l með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 8. Prjónið síðan garðaprjón. Þegar stykkið mælist 20 cm er fellt af.
Leggið vasann á framstykki þannig að það verði 3 l sléttprjón á milli vasa og kant að framan og botninn á vasanum liggur alveg niður að kanti með garðaprjóni neðst niðri á fram- og bakstykki. Saumið vasann með 1 þræði af hvorri tegund í l eina og eina þannig að vasinn liggi flatur á framstykki. Endurtakið á hinu framstykkinu. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Pernille wrote:

Jeg har strikket rygstk. - det er OK.\r\nNu er jeg i gang med højre forstk. I opskriften står der, at der skal være 64 masker (str M) når jeg har foretaget ud-og indtagninger. Der er kun 56 masker! \r\nJeg har regnet opskriften igennem flere gange, og kan ikke se, hvordan det kan lade sig gøre at have 64 masker tilbage. Kan der være fejl i opskriften?\r\nVil du forklare mig det.\r\nTak :-)

10.02.2024 - 15:37

country flag Ellis Steutel wrote:

In dit patroon staat Kid Silk 02 lichtgrijs als advies, ik heb dit patroon jaren geleden gemaakt en heb nog 4 bollen over. Ik wil nu bij bestellen, maar deze kleur staat niet meer als zodanig in de lijst... bestaat deze kleur nog wel? En zo ja, welk nummer is het geworden? Dank voor uw antwoord! Groet, Ellis

20.08.2023 - 17:02

DROPS Design answered:

Dag Ellis,

Bij het patroon staat Brushed Alpaca Silk 02 en niet Kid-Silk. Kleur 02 hiervan is nog steeds in de handel, echter zal je waarschijnlijk kleurverschillen krijgen door verschillende verfbaden. Kleur nr 02 van Kid-Silk is zwart, dus ik denk dat je iets anders bedoelt...

22.08.2023 - 20:29

country flag Lene Kristiansen wrote:

Der er fejl i opskriften i højre forstykke , der står tag 1 m retstrikning ud i forkanten total 8 gange ( 16 m ) det i parentes er forkert det giver kun 8 m

23.04.2022 - 17:59

country flag Centina wrote:

Minderen naast de voorbies: Minder zo elke 4e nld (dus om de nld aan de goede kant) 6-6-6-7-7-7 keer in totaal. Elke 4e naald is niet hetzelfde als om de naald , dat is immers elke 2e naald? Hoe vaak moet er nu geminderd worden? Elke 2e of elke 4e naald?

21.12.2021 - 15:17

DROPS Design answered:

Dag Centina,

Het moet elke 4e naald zijn en niet om de naald. (Het is inderdaad een beetje verwarrend doordat er om de naald aan de goede kant staat.

23.12.2021 - 15:31

country flag LUCQUIN Corinne wrote:

Bonjour, les manches trois quart me paraissent vraiment trop courtes, mais j'ai déjà fait tout le dos avec ses manches ; quelle serait la plus simple solution, sans tout démonter, pour rallonger les manches une fois l'ouvrage fini? Peut-on faire une bordure crochet et dans ce cas quel point?

04.10.2021 - 21:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lucquin, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, n'hésitez pas à contacter votre magasin pour toute assistance personnalisée - ou bien demandez conseil à d'autres tricoteuses dans notre DROPS Workshop. Bon tricot!

05.10.2021 - 07:11

country flag Sabine Simma wrote:

Liebes Drops-Team, Werden die verkürzten Reihen in jeder 10. Reihe oder in jeder 10. Rippe gestrickt? In jeder 10. Reihe kommt mir etwas viel vor. Ich habe Bedenken das mir die Blenden zu lang werden wenn ich in jeder 10. Reihe verkürzten. Vielen Dank für die Beantwortung meiner Fragen

19.08.2021 - 23:09

DROPS Design answered:

Liebe Frau Simma, die verkürzten Reihen werden in jeder 10. Reihe (über alle Maschen) gestrickt, nicht in jeder 10. Krausrippe, aber gerne können Sie sie in der Höhe anpassen, wenn sie zu oft erscheinen. Viel Spaß beim stricken!

20.08.2021 - 07:24

country flag Isabelle Brouillette wrote:

Si je fais des rangs raccourcis jusqu'à l'épaule, je fais une augmentation dans la bordure mais je ne peux pas faire une diminution lorsque je fais un rang raccourci. Est-ce que c'est exact. Merci

16.04.2021 - 22:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brouillette, les diminutions de l'encolure se font après les mailles de la bordure devant, les rangs raccourcis ne concernent que la bordure devant; lorsque vous diminuez, diminuez sur un rang tricoté sur toutes les mailles, pas sur un des rangs raccourcis. Bon tricot!

19.04.2021 - 07:39

country flag Isabelle Brouillette wrote:

Bonjour, j'éprouve des difficultés à comprendre les explications pour le devant droit. Quand arrête-t-on de faire des rangs raccourcis? Merci

15.04.2021 - 18:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brouillette, il faut plus de rangs point mousse que de rangs jersey pour la même hauteur, ainsi, pour éviter que les mailles de la bordure devant ne contractent l'ouvrage, on va tricoter les rangs raccourcis tout du long, jusqu'à ce que l'on rabatte les mailles de l'épaule. Bon tricot!

16.04.2021 - 14:07

country flag Silvia Vidal wrote:

Buenos días, tengo una duda. Sobre tejer las hileras cortas. Se debe aplicar a todo el borde hasta que la pieza mida 68 cm? Muchas gracies por los consejos y los patrones!

08.02.2021 - 11:16

DROPS Design answered:

Hola Silvia, tienes que tejer hileras cortas sobre los pts en los bordes delanteros hasta que la pieza mida 68 cm. Buen trabajo!

11.02.2021 - 07:58

country flag Jelena Helena Bajovic wrote:

Får jag köppa denna koftan.......

25.09.2020 - 11:07